Morgunblaðið - 17.11.1998, Side 34

Morgunblaðið - 17.11.1998, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Mozarteum í Salzburg lokað um stundarsakir Skólinn hættu- legur heilsunni HINUM vii-ta tónlistarskóla, Mozarteum í Salzburg í Austur- ríki, heldur verið lokað um stund- arsakir vegna veikinda og dauðs- falla kennara og nemenda við hann. Allir þeir sem hafa kennt eða stundað nám við skólann hafa verið kallaðir í læknisskoðun en við skoðun reyndist mikið magn eiturefnisins PCB í teppum og veggfóðri kennslustofa hans, að því er segir í Aftenposten. Heilbrigðisyfirvöld í Salzburg ákváðu að loka skólanum þegar kennari við hann lést úr hvítblæði fyrir skömmu. Áður höfðu kennari og nemandi látist úr sama sjúk- dómi. Við skoðun kom í ljós að eit- urefnið PCB, sem safnast fyrii' í fituvef manna og dýra, var að fmna í miklu magni í skólabyggingunni. PCB er krabbameinsvaldandi. Ekki er vitað hvernig PCB barst í veggfóður, tréklæðningu og teppi skólahússins, sem var byggt árið 1979. Getgátur eru um að það hafi borist inn í loftræsti- kerfið við bruna í nálægu húsi eða frá spennustöð í nágrenninu. Frá upphafi hafa kennarar og nemendui- kvartað yfu' húsinu og segjast finna fyrir ýmiss konar vanlíðan innan dyi’a. Varð það til þess að sett var upp nýtt loft- ræstikerfi árið 1994 en nú virðist svo sem það hafi gert illt veiTa og sé undirrót veikindanna. Lokun skólans, sem kann að vara í hálft til eitt ár, er mikið áfall. Ekkja tónskáldsins W.A. Mozarts stofnaði hann árið 1814 og er hann talin ein besta „útung- unarstöð" heims í heimi óperu, leikhúss og tónlistar. Um 1.500 manns stunda nám hjá 500 kenn- urum skólans og fer nú kennslan fram í bráðabirgðahúsnæði um alla Salzburg. Tvær listaþjóðir Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Nor- ræna húsinu miðvikudaginn 18. nóvember kl. 12.30 syngur Tjarn- arkvartettinn íslensk lög við ljóð íslenskra skálda. Tjarnarkvartettinn er blandað- ur kvartett skipaður þeim Rósu Kristínu Baldursdóttur, sópran og stjórnanda, Krisljönu Arngríms- dóttur alt, Hjörleifi Hjartarsyni tenór og Kristjáni Hjartarsyni bassa. Kvartettinn hefur starfað saman í u.þ.b. 8 ár og á þeim tíma sungið víða bæði innan lands og utan. Hann hefur sungið inn á þrjár geislaplötur og kom sú síð- asta út nú fyrir nokkrum dögum. Á efnisskrá tónleikanna eru lög ýmist samin eða útsett af Hróð- mari Inga Sigurbjörnssyni en þessi lög er öll að fínna á nýju plötunni. _ Verð aðgöngumiða er 400 kr. Ókeypis fyrir handhafa stúdenta- skírteina. Dagskrá Háskólatón- leika má nálgast á vefnum. Slóðin er: http://www.hi.is/~gunnag/tonlis TÓJVLIST Ilústaðakirkja KAMMERTÓNLEIKAR Á efnisskrá voru verk eftir Beet- hoven og Mozart. Flytjendur voru Guðrún Birgisdóttir, Auður Haf- steinsdóttir, Svava Bernharðsdóttir, Bi-yndís Halla Gylfaddttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir. Sunnudagur- inn 15. nóvember, 1998. NÚ ÞEGAR tuttugasta öldin er nærri liðin, er rétt að huga um stund að liðnum tíma en líklega hafa á þessari öld orðið meiri breytingar á hugmyndum manna en nokkru sinni fyrr í sögu mannsins. Eitt af því, sem einkennt hefur þróun list- sköpunar, er algjör höfnun á eldri gildum, svo mjög, að nú búa í heim- inum raunverulega tvær listaþjóðir. Mörgum hefur tekist að tileinka sér listviðhorf beggja en gera samt skörp skil varðandi listsköpun manna í dag og fyrrum. Þetta gæti sem best verið túlkað í setningu eins og að „allt gamalt er vont og allt nýtt er gott“. Þessu mætti sem best snúa við, enda eru menn farnir að sjá til með því sem gamalt er og endurlifa það sem nýtt væri. Þarna er að fmna lykilinn að hinni enda- lausu leit mannsins að sjálfum sér, leit sem aldrei mun linna, fyrr en við endalok tímans. Ef kenningar nútímans um breyttan heim og lífs- viðhorf eru réttar og að t.d. breytt- ur hljóðheimur kalli á ný viðhorf til hljóðlistar, ættu menn að hafna tón- list eftir Mozart. Þetta hefur ekki gengið eftir. Því lengur sem „módernisminn" er virkur, eykst leit manna eftir Mozart, svo mjög, að hann hefur aldrei verið jafn vin- sæll og í dag. Þetta er í raun mjög sérkennilegt sambýli og ráðgáta, sem aðeins gat orðið til á tuttugustu öldinni. Tónleikar Kammermúsíkklúbbs- ins sl. sunnudagskvöld voru helgað- ir tónlist eftir Beethoven og Mozart og haldnir fyrir fullu húsi, svo að eitthvað var heim að sækja í Bú- staðakirkjuna að þessu sinni. Tón- leikarnir hófust með tríó-serenöðu fyrir flautu, fiðlu og lágfiðlu, op. 25, eftir Beethoven. Þetta elskulega verk er samkvæmt Gi'oves samið 1801 og var það vel flutt af Guð- rúnu, Auði og Svövu, sérstaklega tilbrigðaþátturinn (nr. 4) en þar áttu hljófæraleikarnir skemmtileg- ar einleiksstrófur og án þess á aðra sé hallað, var lágfiðlutilbrigðið sér- lega vel flutt af Svövu. Síðasti þátt- urinn, Adagio-Allegro, var og fal- lega mótaður. í öðru viðfangsefni tónleikanna, kvartett fyrir flautu, fiðlu, lágfiðlu og selló, K.285, eftir Mozart, bætt- ist Bryndís Halla í hópinn. Þessi kvartett er helst frægur fyrir hæga þáttinn, sem er undurfögur flautu- sóló. Það má deila um tónmótun flautuleikarans, hvort betur fari á að leika þessa undrasóló með mikl- um syngjandi tóni, eða hamið, eins og Guðrún gerði. Hvort sem hlust- endur vilja frekar, þá var leikur Guðrúnar mjög sannfærandi og gæddur þeirri dulúð, sem má finna í þessu einstæða tónverki. Fyrsti kaflinn og lokaþátturinn eru sér- lega glaðlegir og var leikurinn í lokakaflanum mjög skemmtilega mótaður. Tríóþátrinn, WoO 39 (1812), samdi Beethoven fyrir tíu ára stúlku, Maximiliane Brentano, og var þetta létta en laglega verk mjög vel flutt af Önnu Guðnýju, Auði og Bryndísi Höllu. í lokaverki tónleik- anna, píanókvartett K.493 eftir Mozart, er var ásamt sams konar verki í g-moll, K.478, fyrsta verk sinnar tegundar, var tekist á við stórbrotið tónmál snillingsins. Fyrsti kaflinn er viðamikil tónsmíð er var sérlega vel flutt og í lokakafl- anum, sem er einn allsherjar „pí- anókonsert", lék Anna Guðný með miklum glæsibrag perluglitrandi tónlínur meistarans. I heild voru þetta skemmtilegir tónleikar, þar sem góð tónlist var vel leikin og á köflum snilldarlega, svo að vel má horfa til komandi ald- ar af bjartsýni, að enn um sinn muni Beethoven og Mozart eiga erindi við þjóðir, því fegurðinni verði aldrei fargað á altari tísku eða ein- hverrar hugmyndafræði, að hún eigi sér það óræði, er enginn fái við snert eða á snúið og búi aðeins með þeim, er vilja hennar njóta, án nokkurra skilyrða. Jón Ásgeirsson TJARNARKVARTETTINN. Tj arnarkvartettinn á háskólatónleikum Allir undir grun LEIKLIST II V O IIII', II V O 1 S V o 11 i Leikfclag Rangæinga MÚSAGILDRAN eftir Agötu Christie. Leiðbeinandi: Benedikt Árnason. Leikendur: Fjóla Jónsdóttir, Benóný Jónsson, Berg- sveinn Theodórsson, Ásgerður Ás- geirsdóttir, Þorsteinn Ragnarsson, Hjördís Ólafsdóttir, Svavar Friðleifs- son, Ingvar Guðbjörnsson. Leikmynd: Sigrún Jónsdóttir. Ljósahönnun: El- var Bjarnason. Ljósamaður: Jón Sig- urðsson. Förðun: Arndís Sveinsdóttir, Vigdís Guðjónsdóttir. Hárgreiðsla: Vigdís Guðjónsdóttir. Sviðsmaður: Ingyar Siguijónsson. Föstudagur 13. nóvember. NÚ ÞEGAR Leikfélag Rangæ- inga fagnar tvítugsafmælinu færist starfsemi félagsins af saumaverk- stæðinu yfir á félagsheimilið Hvol, og það fyrir tilstilli Hvolhrepps. Þetta er við hæfi, því leikfélagið hefur verið í sókn á undanförnum árum og á skilið rýmri og betri húsakynni en buðust í iðnaðarhús- næðinu. Þar að auki vai- iðnaðarhús- næðið þannig staðsett, að það tók ókunnuga hálft kvöldið að ramba á það. Þetta frumsýningarkvöld tók það hins vegar áhorfendur allt kvöldið að komast að hinu sanna um hver morðinginn er í Músagildrunni, og var þeim þar líkt farið og þeim ótöldu þúsundum manna sem séð hafa leikritið á fjölunum í London, en þar hefur það gengið lengst allra leikverka, eða síðan skömmu eftir síðari heimsstyrjöld, ef ég man rétt, og ekki að ástæðulausu. Það er til marks um hvernig til tókst hjá Leikfélaginu að þessu sinni, að áhorfendur fylgdust spenntir með því sem var að gerast á sviðinu og vildu af engu missa. Þar ber að þakka einbeittum leik og skarpri til- sögn Benedikts Árnasonar, sem augsýnilega hefur miðlað leikendum drjúgt úr digrum sjóði reynslu sinn- ar og vakað yfir uppsetningunni með fránu auga atvinnumannsins. Það er hverju samfélagi happ að hafa slíkan listamann innan seiling- ar, og má reyndar segja svo um þau hjón bæði, Benedikt og Agnesi Löve. Þá var leikmyndin hæfileg og sannferðug: ágætlega hallærislegar mublur eins og sjást í öðrum hverj- um „prívat" gististað með eggi og beikoni á Bretlandseyjum. Ekki væri rétt að fjalla sérstaklega um frammistöðu einstakra leikara, en þau komust vel frá sínu öll. Fjóla Jónsdóttir, dugmikill formaður Leikfélagsins, lét í ljós þá ósk að leikslokum, að áhorfendur hefðu skemmt sér eins vel og þau sem að sýningunni stóðu. Eg fann þá ósk rætast með sjálfum mér og allt um kring á áhorfendabekkjunum þetta frumsýningarkvöld, og er þess reyndar fullviss að svo muni verða um áhorfendur á næstu sýningun- um. Og það þýðir ekkert að spyrja mig hvaða morðingi það er sem gengur laus á Hvoli um þessar mundir. Sunnlendingar verða bara að komast að því sjálfir. Guðbrandur Gíslason B O K.M EKIKITAKVÖ LD í ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARANUM ÍRSKI VERÐLAUNAHÖFUNDURINN RODDY DOYLE HEIÐURSGESTUR Vaka-Helgafell efnir til bókmenntakvölds í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld klukkan 20:30. Heiðursgestur kvöldsins verður Roddy Doyle, einn þekktasti núlifandi rithöfundur íra og mun hann lesa úr nýútkominni bók sinni Paddv Clarke ha. ha. ha! en fyrir hana hlaut Doyle Booker-verðlaunin bresku fyrir nokkru. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og er aðgangur ókeypis. Lesið verður úr eftirtöldum bókum: Paddv Clarke ha. ha. ha! eftir Roddy Doyle. Sérðu það sem ég sé? eftir Þórarin Eldjárn. Flugnasuð í farangrinum eftir Matthías Johannessen. Aunun íbœnum eftir Sindra Freysson sem hlaut Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness á dögunum. Borein bak við orðin eftir Bjarna Bjarnason sem hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar fyrr í haust. Dauðarósir eftir Arnald Indriðason. Veröld víð eftir Jónas Kristjánsson. * VAK\-HELGAFELL Síðumúla 6 - sími 550 3000 Fyrirgefning synd- anna í nýrri útgáfu í Þýskalandi FYRIRGEFNING syndanna efth- Ólaf Jóhann Ólafsson er nú komin út í nýrri innbundinni útgáfu í Þýska- landi hjá Steidl Veflag. Bókin kom fyrst út þar í landi órið 1995 hjá sama forlagi og hlaut lofsamlega dóma. Berliner Morgenpost sagði þá að sagan væri spennandi, lágstemmd og rituð á fágaðan hátt. Að mati Recklingháuser Zeitung var bókin engin hversdagslesning og sagði þar að Ólafur Jóhann væri einstaklega næmur skáldsagnahöfundur. Loks sagði Sudkurier söguna kunnáttu- samlega byggða. Fátítt er að sama bók komi út með svo skömmu milli- bili í innbundnu formi fyrir almennan markað í Þýskalandi en algengara er að önnur útgáfa sé í kiljuformi. Fyrirgefning syndanna hefur nú komið út inn- bundin og í kilju í Bandaríkjunum og Englandi, tvisvar sinnum innbundin í Þýskalandi en jafnframt í Frakklandi, Nor- egi og Danmörku. Dómai’ hafa hvarvetna verið lofsam- legh'. Vaka-Helgafell á nú í viðræðum við forlög í nokkrum Evrópulöndum um útgáfu á bókinni, meðaí annars í Hollandi, Finnlandi og á Ítalíu. Fyrir- gefning syndanna kom fyrst út hjá Vöku-Helgafelli árið 1991. Ólafur Jóhann Ólafsson í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.