Morgunblaðið - 17.11.1998, Side 62

Morgunblaðið - 17.11.1998, Side 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens SBM HUS0OMDIMN ’A HEJMIUNU ------vþAVEEÐaSAÐSESJAþÉ, .WAðÞóXrrdÐGsei 11 o& sbm HusKörroRiMW vew S ÉG AE> L'»TA BAÐ5&M l/IND UiM ■ F’^íÍKA , VAVfs e-n Hundalíf Ferdinand 600P M0RNIN6..IM HERE TO A5K IF YOU'D CARET0 5UB5CRIBE TO THE "6REAT PUMPKIN" NEW5LETTER 6ET0FF OUR PORCH OR 1 LL 5IC OUR D06 ON YOU' —ux i — {Yftf? / ■ /0-20 l’M 50RRY.. I dipn't mean TO BOTHER YOU.. THAT 5 ALL RI6HT.. WE DON'T HAVE A D06.. Góðan dag ... ég kem hingað til að spyrja hvort Jní viljir gerast áskrifandi að fréttabréf- inu „Graskerið mikla“ Komdu þér burt af stigapallinum eða ég siga hundinum okkar á þig! Fyrirgefðu ... Þetta er allt í ég ætlaði ekki lagi við eigum að ónáða þig ... ekki hund ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Meinleg fáfræði eða gró ðasj ónarmið Frá Alberti Jensen: ENGU er líkara en að þrátt fyrir mikla fræðslu takist mönnum að halda í óverðskulduð völd með blekkingum og mögnuðum áróðri sem þeim tekst jafnvel að láta þá borga sem verið er að leika með. Sannast það m.a. á útsmognum auglýsingum íslenskra útvegs- manna í blöðum og sjónvarpi, en þar er um að ræða óhemjudýra sí- bylju sem látin er dynja á þjóðinni úr öllum áttum. Líklega eru aug- lýsingar þessar ólöglegar, en hvað sem því líður eru þær í meira lagi ósmekklegar og í anda þess valda- kerfís sem áróðursmeistarar út- vegsmanna hafa byggt þeim. Sagt er að sjaldan sé góð vísa of oft kveðin og þegar allur sá fjöldi fólks sem látið hefur í sér heyra til varnar þjóð vorri og landi nú, þeg- ar að er sótt í auðlinda- og hálend- ismálum, þá gleður slíkt, því aldrei má slakna á verðinum. Þótt mér of- bjóði stundum hvað auðvelt virðist að blekkja þjóðina, þá er ekki gefið að barnaleg skrif Bjarna Hafþórs Helgasonar fyrir vinnuveitendur sína breyti einhverju. Mér finnst miður að þessi fyrrum ágæti fréttamaður skuli vera með svona kjánalæti. Svík þú aldrei ættland þitt í tryggðum, voru orð þekkts þing- manns til annars, að gefnu tilefni. Seinni setningu kunns kvæðis þekkja flestir og þó nokkrir mættu taka báðar bókstaflega. Að nokkrum heilvita íslendingi skuli koma til hugar að virkja til útflutnings á rafmagni um sæ- streng er meira skilningsleysi á náttúrulegum auðlindum í sinni upprunanlegu mynd en ég hefði trúað. En það er staðreynd að þeir eru til sem svo hugsa og mjög hættulegir landi okkar vegna mik- ils valds og efnahagslegrar trúar. Menn þessir eru svo utangátta að allt í senn vilja þeir; kaupa meng- unarkvóta af öðrum þjóðum svo við getum byggt fleiri heilsuspillandi iðjuver og virkja til útflutnings svo hægt sé að minnka mengun ná- grannaþjóða okkar. Þvílík speki. An lofts lifir enginn. Nú þegar eru ískyggilegar blikur hvað varðar samspil og jafnvægi himins og jarðar. Eyðing ósonlagsins gerir að lokum jörðina óbyggilega og með sama áframhaldi verður það í fyrir- sjáanlegri framtíð. Brasilíumenn hafa tekið sér það vald að eyða regnskógum sem eru aðalsúrefnisgjafi jarðarbúa. Ennþá er freon notað í frystitækni. Á norðurströnd Skotlands er unnið úr og eytt kjarnorkuúrgangi sem fluttur er víða að. Mengun frá starfsemi þessari hefur þegar borist að Noregsströndum og er á leið hingað. Hver vill þá fiskinn okkar? Hver er að tala um að græða? Það græðir enginn þegar hann er dauður, nema þá að hann hafi látið gott af sér leiða lifandi. Islendingar hafa ennþá mögu- leika til að vera öðrum þjóðum gott fordæmi. Þeir gera það ekki með virkjunum sem eru undanfari mengunar á landi og stóriðju sem mengar himin, haf og jörð og er verst þeim sem við slíkt vinna. Að virkja umfram þarfir er mikil skammsýni og á stóriðju fyrir út- lendinga þufum við síst að halda. Á meðan útlend stóriðja fær raf- magn undir kostnaðarverði er okrað á íslenskum ylræktendum og reyndar eru útlendingar einir und- anþegnir okrinu. Víða um landið efast menn um að hagkvæmara sé að nota rafmagn til hitunar húsa en olíu. Nýlega var lokið við að sökkva hverasvæði undir uppistöðulón, en talið er að gufuaflsvirkjun svæðis- ins hefði skilað margfaldri þeirri orku sem vatnsaflsvirkjunin gerir og margfalt minni kostnaði og litl- um landskemmdum. Umhverfis- ráðherra sagði af því tilefni að vert væri að læra af þessu og var að skilja á honum að könnun svæðis- ins hefði fengið flýtimeðferð. Islendingar eiga að virkja eins lítið og mögulegt er og alls ekki íyrir önnur lönd. Við höfum ekki sótt gull í greipar Norðmanna og hafa þeir verið okkur erfiðastir þjóða. Bretar láta sig engu varða mengun sem þeir valda í hafinu við Skotland. Og Rússarnir með Kóla- skagann, en mengun Rússlands er á neyðarmörkum og skaðar víðar. Eins og Netið, sem hægt væri að gera svo margt gott með, er að hluta til notað sem andlegur rusla- haugur alheimsins, svo er og um náttúrulegt umhverfi, því skal spillt ef peningar fást fyrir. Það land sem er eyðilagt verður aldrei lagað. Trúlega er ekki langt í að rafmagn verði framleitt með öðrum hætti og margfalt ódýrara en nú þekkist. Líklega verður sól- arorkan beisluð og virkjanir óþarf- ar. Engin nauðsyn að eyðileggja og menga. Verum þolinmóð. Það er of seint að iðrast eftir dauðann. ALBERT JENSEN, Háaleitisbraut 129, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskiiur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teijast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. (WvV Brúðhjón Allur borðbiínaður - Glæsileg gjáfavara Briiðhjúnalistar verslunin Laugnvegi 52, s. 562 4244.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.