Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐ.TTTDAGIJR 17. NÓVRMRRR 1998 45
AÐSENDAR GREINAR
Höfuðborg og lands-
byggð, ein heild?
ÉG VERÐ að játa
að vissulega hef ég
koraið við í Reykjavík
með óreglulegu milli-
bili síðustu tvo áratug-
ina í ýmsu erinda-
gjörðum. Ekki get ég
sagt að þar færi ég um
blómleg héruð eða
vænleg til búskapar,
því kom mér á óvart
að þar er til húsa
ráðuneyti það sem fer
með landbúnaðarmál,
auk velflestra sérsam-
banda íslenskra
bænda, yfirdýralækni,
Rannsóknastofu land-
búnaðarins, Bænda-
höllina, yfírkjötmat, lífeyrissjóð
bænda, áburðarverksmiðju, mjólk-
ursamlag, Bændasamtök Islands
og sitthvað sem virðist í fyrstu og
svo að athuguðu máli síst eiga mik-
ið skilt við starfsemi þá sem al-
gengust er á höfuðborgarsvæðinu.
Eg sé ekki að það yrði alvarlegt
efnahagsáfall fyrir þjóðina, eða
stórfelld fækkun býla, ef allir
bændur á Seltjarnarnesinu þyrftu
að fara út á land til að nýta sér þá
þjónustu sem áðurnefndir aðilar
hafa með höndum. Ekki þótti mér
síður furðulegt að rekast á Lands-
virkjun og Rafmagnsveitur ríkis-
ins í höfuðborginni fjarri vel flest-
um virkjanlegum vatnsföllum
landsins. Eins þykir mér einkenni-
legt að Ratsjárstofnun skuli vera í
Reykjavík þó svo að engar ratsjár-
stöðvar séu í því lögsagnarum-
dæmi. Menn geta líka spurt því í
ósköpunum sambærileg þjónustu-
fyrirtæki við sjávarútveginn séu
einnig staðsett í Reykjavík því
ekki nándar nærri öllum afla
landsmanna er skipað þar upp,
Landhelgisgæslan, Kvótaþingið,
sjávarútvegsráðuneytið, Hafrann-
sóknastofnun og Fiskistofa gætu
gott betur en sómasamlega borið
sig í útgerðarbæjum á landsbyggð-
inni. Mikill meirihluti þeirra stofn-
ana, íyrirtækja og samtaka sem
bera ýmist nafn ríkisins eða lands-
ins eru með sveitarfesti sína í
Reykjavík. Reykvíkingar eiga ekki
einir rétt á því að
hirða útsvör af opin-
berum stofnunum og
fyrirtækjum og njóta
annara margfeldisá-
hrifa sem starfsemi
þeirra hefur í för með
sér.
Reykjavík hefur
með einhverju móti
náð að tryggja sér það
mikil ítök í þjóðmál-
um, að útgjöld hins
opinbera þangað eru
farin að vefja sjálf-
krafa upp á sig í óvið-
ráðanlegan bandhnyk-
il. Utgjaldaaukningin
er orðin svo mikil að
flestir eru sammála um að aðgerða
sé þörf en fæstir vilja draga úr út-
gjöldum í Reykjavík. Ég trúi tæp-
ast að sjónarmið meirihluta lands-
manna sé að leggja niður lýðveldið
Þó sjórinn taki lengi
við, segir Arnljótur
Bjarki Bergsson, þá
taka útnesið við Skerja-
fjörðinn og nærsveitir
ekki endalaust við.
og stofna borgríki, því þó sjórinn
taki lengi við þá tekur útnesið við
Skerjafjörðinn og nærsveitir ekki
endalaust við. Landsmenn geta
ekki látið sér fátt um fínnast með
þá byggðaþróun sem er í landinu,
þaðan af síður alþingismenn.
Byggðaáætlun hefði átt að vera
komin nú þegar í framkvæmd.
Þessi þróun gengur ekki til lengd-
ar. I sjálfu sér eru margir sem
fremur vildu búa á landsbyggðinni
en í höfuðborginni, það sem í veg-
inum stendur eru ytri skilyrði sem
ekki er ýkja erfítt að ráða bót á og
í raun felst hagur allra lands-
manna í því að það verði gert.
Höfundur er formaður Varðar FUS,
Akureyri.
Arnljótur Bjarki
Bergsson
Sinfóníuhljómsveit Islands
Tónleikar í Háskólabíói
fimmtudaginn 19. nóvember kl. 20:00
Einleikari:
Steven Isserlis
Hljómsveitarstjóri:
Rico Saccani
Efnisskrá.
Antonin Dvorak:
Dmitri Shostakovich:
Sellókonsert
Sinfónía nr. 5
Sinfóníuhljómsveit Islands
Háskólabíói við Hagatorg
Sími: 562 2255
Fax: 562 4475
Nánari upplýsingar á sinfóníu-
vefnum: www.sinfonia.is
RAUÐA ROÐIN
Miðasala á skrifstofu hljóm
sveitarinnar og við innganginn