Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 24

Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ „Danni rauði“ í forystu franskra græningja París. The Daily Telegraph. DANIEL Cohn-Bendit, hinn þýzk- borni leiðtogi námsmannauppþot- anna í Frakklandi í maí 1968, var atkvæðamesti þátttakandinn á flokksþingi franska græn- ingjaflokksins „Les Verts“ um helgina og steig þar með á eftir- minnilegan hátt aftur á svið franskra stjórn- mála. Cohn-Bendit, sem varð víð- frægur sem „Dany le rouge“ (Danni rauði) þá atburðaríku mánuði ársins 1968 sem skóku franska ríkið og stjórnmálalífið í landinu svo um munaði, var í október sl. kjörinn til að verða efsti maður á frainboðslista franskra græningja í kosningum til Evrópuþingsins, sem fram fara næsta haust. Hann heldur þýzku ríkisfangi sínu, en sam- kvæmt gildandi löggjöf um Evr- ópuþingið getur borgari hvaða ESB-ríkis sem er boðið sig fram til þess í hvaða ESB-ríki sem er. Cohn-Bendit sýndi og sannaði á Iaugardaginn, fyrri dag hins tveggja daga Ianga flokksþings nærri París, að þrátt fyrir nokk- ur aukakíló og lítið eitt grátt í vöngum væri hann ekki farinn að mýkjast neitt í skoðunum sínum. Hann sagðist styðja Lionel Jospin, leiðtoga sósíalista og nú- verandi forsætisráðherra Frakk- lands, í forsetaframboð árið 2002. Hann skoraði jafnframt á Jospin að veita þúsundum ólög- legra innflytjenda landvistar- Ieyfi, en það hefur um hríð verið baráttumál þeirra sem yzt eru til vinstri í stjórnmálum Frakk- lands. Danicl Cohn-Bendit Allt orðið með kyrrum kjörum í Indónesíu Habibie segist reiðubúinn að flýta forsetakjöri Djakarta. Reuters. Reuters AMIEN Rais, leiðtogi múslíma í Indónesíu, ávarpar stuðningsmenn sína í Djakarta í gær. Hann sagðist myndu beita sér fyrir því að Habibie forseta yrði steypt af stóli stæði hann ekki við fyrirheit um lýðræð- isumbætur í landinu. ALLT var með kyrrum kjörum í Indónesíu í gær, og svo virtist sem lát hefði orðið á verstu óeirðunum í landinu síðan í maí. Enn má þó sjá skriðdreka og brynvarða bíla við forsetahöllina og þúsundir her- manna gæta þinghússins og ann- arra mikilvægra bygginga. Stúd- entar stóðu fyrir friðsamlegum mótmælum í höfuðborginni Djakarta í gær en ekki kom til átaka. Jusuf Habibie, forseti Indónesíu, gaf í gær til kynna að hann væri reiðubúinn að flýta kjöri nýs for- seta, en það er ein höfuðkrafa stjómarandstæðinga. Þingkosningar eiga að fara fram í maí á næsta ári og gert hafði ver- ið ráð fyrir að æðsta löggjafarsam- kunda landsins (MPR), sem er æðri þinginu, kysi nýjan forseta 6-7 mánuðum síðar. Habibie sagði í gær að til greina kæmi að flýta kjöri nýs forseta, ef MPR féllist á það. I síðustu viku skrifuðu helstu leiðtogar stjórnarandstöðunnar undir yfirlýsingu, þar sem þess er krafist að MPR komi saman til for- setakjörs eigi síðar en þremur mánuðum eftir að þingkosningar hafa farið fram í maí 1999. Að minnsta kosti 16 manns létu lífið og um 450 særðust í óeirðun- um, sem staðið höfðu í fjóra daga og náðu hámarki á laugardag. Eru þetta mestu óeirðirnar í Indónesíu síðan í maí, þegar Suharto, fyrr- verandi forseti, var neyddur til að segjiPaf sér eftir þriggja áratuga setu á valdastóli. Habibie hét því í sjónvarpsávarpi í gær að hafin yrði rannsókn á beitingu ofbeldis gegn mótmælendum, og að hver sá sem gerst hefði sekur um lög- brot yrði sóttur til saka. Skyldu lögreglan og herinn ekki verða undanskilin. Stjórnarandstæðingar yfirheyrðir Indónesíska lögi’eglan sagðist í gær hafa yfirheyrt tíu stjómarand- stæðinga, sem allir höfðu skriíáð undir áskorun um afsögn Habibies í síðustu viku, vegna gruns um aðild þeirra að samsæri um að steypa stjóminni. Lögreglan sagði að tíu- menningarnir hefðu ekki verið handteknir, en að þeim væri óheim- ilt að fara úr landi. Þeirra á meðal er Sukmawati Sukamoputri, dóttir Sukamos, fyrsta forseta landsins. Fjánnálamarkaðir í Indónesíu virtust ekki hafa orðið fyrir mikl- um áhrifum af óeirðunum. Gengi rúpíunnar er stöðugt og hluta- bréfavísitala var við lokun markaða í gær hærri en á föstudag. Þó er óttast að fjárfestar muni halda að sér höndum vegna ótryggs stjóm- málaástands, og að óróinn geti stefnt í hættu þeim efnhagsbata, sem orðið hefur undanfarnar vikur í kjölfar aðstoðar frá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum. Lýðræði keypt dýru verði Handtaka Pinochets, fyrrverandi einræð- isherra í Chile, hefur beint sjónum manna að því hvaða skilyrðum umskiptin frá einræði til lýðræðis í ríkjum Suður- Ameríku voru háð, segir í grein Stefáns A. Guðmundssonar frá Mexíkó. HANDTAKA fyrrverandi ein- ræðisherra Chile, Augustos Pin- ochets, í London og framsalskröf- ur æ fleiri ríkja, hafa vakið heimsathygli. Það hefur hins veg- ar vafist fyrir Evrópubúum hvers vegna hann hafi ekki verið ákærður í heimalandi sínu, maður sem sakaður er um þjóðarmorð og pyntingar í Chile á árunum 1973 til 1989. Svarið við þessari spurningu er að finna í hinum við- kvæmu umskiptum frá einræði til lýðræðis sem nær öll Suður- Am- eríka hefur verið að ganga í gegn- um. Frá lokum 7. áratugarins og fram til loka þess áttunda héldu flest lönd Suður-Ameríku inn á braut lýðræðis. Herinn sem hafði þá verið við völd vegna kalda stríðsins og þá sérstaklega bylt- ingarinnar á Kúbu, ákvað í flest- um ríkjum álfunnar að hliðra til fyrir lýðræðislegum umbótum og lét af hendi ríkisvaldið. Gengið var til borgaralegra kosninga árið 1979 í Ekvador, 1980 í Perú, 1981 í Bólivíu, 1983 í Argentínu og 1984 í Úrúgvæ og Brasilíu. Pinochet, sem stjórnaði Chile með harðri hendi frá árinu 1973, beið lengur en nágrannarnir og lét ekki af völdum fyrr en 1989. I kosningum það ár bar Patricio Aylwin úr Kristilega lýðræðis- flokknum sigur úr býtum. Aylwin, sem er hægrisinnaður, lýsti því yfir fyrir kosningarnar að hann myndi ekki láta draga menn til ábyrgðar vegna glæpaverka fyrr- verandi stjórnar. Þetta var mann- réttindasamtökum auðvitað gífur- legt áfall, einkum og sér í lagi að- standendum fórnarlamba ógnar- stjórnarinnar en mörg þúsund manns voru myrt eða „týndust" á þessu tímabili í Chile. Hefði hrifsað völdin að nýju Þrátt fyrir að Aylwin hafi verið gagnrýndur harðlega fyrir þessa stefnu, hefur hún að flestra mati verið talin óhjákvæmileg við um- skiptin frá einræði til lýðræðis. Ástæðan er sú að herinn stóð fyrst og fremst að þeim. Hefði vinstri- maður unnið kosningarnar og vilj- að ákæra Pinochet, er nánast full- víst, að herinn hefði hrifsað til sín völdin og þannig komið í veg fyrir frekari skref í lýðræðisátt. Til marks um það hve ákveðinn Pinochet var og hve sterk staða hans var kosningaárið, þá tilkynnti hann opinberlega að „dagurinn sem þeir snerta einn af mínum mönnum verður síðasti dagurinn sem lög ríkisins gilda“. Skilaboðin gátu ekki verið skýr- ari. Almenn sakaruppgjöf var nauðsynleg ef koma ætti á lýð- ræði. Argentína undantekningin Öryggi Pinochets og hersins var því tryggt áður en borgaralegar kosningar fóru fram og þetta er ástæða þess að hann hefur aldrei verið sóttur til saka í heimalandi sínu. Samskonar samkomulag var gert í öðrum löndum Suður-Amer- íku. Er reynslan sú að umskiptin hafa gengið betur fyrir sig þar sem hægrisinnaðar stjórnir hafa tekið við völdum vegna þess að þær hafa ekki gert róttækar breytingar á stjómarháttum og ekki ógnað stöðu hersins. Undantekning frá þessari reglu um samkomulag hers og borgara- legrar stjórnar er Argentína. Þar hafði borgaralega kosin stjórn Ra- úls Alfonsíns styrk og völd til að ákæra fyrrverandi herstjórn fyrir glæpi. En aðstæður voru aðrar, þar sem staða hersins var mun veikari en í nágrannaríkjunum vegna ósigursins í Falklandseyja- stríðinu árið 1982. Herinn gerði nokkrar tilraunir til þess að semja við borgaraleg öfl um almenna sakaruppgjöf en tókst ekki. Tæpast ósvikið lýðræði Þar sem einræðisstjórnir réðu í flestum tilfellum breytingunni frá einræði til lýðræðis, er hægt að færa rök fyrir því að niðurstaðan hafi í raun og veru ekki verið ósvikið lýðræði, því að lýðræðis- lega kosnar ríkisstjórnir skorti það vald sem þurfi til að sækja fyrrverandi ógnarstjómir til saka. En þó svo að þessi gagnrýni sé bæði góð og gild, benda margir á að ekki hafi verið um aðra leið að ræða. Það sé mjög erfitt, næstum ómögulegt, að ákæra fyrrverandi stjórn þegar hún ráði hraða og ákvæðum umskiptanna. Auðvitað sé lýðræðið í Suður-Ameríku ekki á sama stigi og í Evrópu og muni kannski aldrei verða, en einhvers staðar verði að byija. Og þó liðin séu tíu til tuttugu ár frá breytingunni og ætla mætti að borgaraleg öfl væru búin að ná stjórn á hemum, er fólk hrætt við að ýfa gömul sár og stefna því í hættu sem þegar hefur áunnist. Þetta er auðvitað mikið hitamál í dag, einkum í Chile þar sem Isabel Allende, dóttir Salvadors Allende fyrrverandi forseta sem Pinochet steypti af stóli og myrti, hefur ver- ið mjög ötul við að telja fólki trú um það að lýðræðið sé orðið það sterkt að hægt sé að ákæra gamla einræðisherrann. En það eitt og sér yrði gríð arlega stórt skref í átt að ósviknu lýðræði. * Urskurður stríðs- glæpadómstóls SÞ Þrír Bosníu- menn sakfelldir Haag. Reuters. SÉRSTAKUR stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna vegna stríðs- ins í fyrrverandi ríkjum Júgóslavíu sakfelldi í gær tvo Bosníu-múslima og einn Bosníu-Rróata fyrir ódæðis- verk gegn serbnesku fólki í Celebici-fangabúðunum, nærri Konjic í Mið-Bosníu árið 1992. Hins vegar sýknaði dómstóllinn óvænt mann sem gegnt hafði herfor- ingjastöðu en í dómsúrskurði var að þeirri niðurstöðu að Zajnil Delalic hefði ekki gegnt stjórnunai-stöðu í Celebici eða borið ábyrgð á þeim ódæðisverkum sem framin voru þar. Sögðu saksóknarar, sem krafist höfðu þess að Delalic yrði dæmdur til tíu ára fangelsisvistar, að þeir myndu áfrýja málinu. Celebici-réttarhöldin, sem staðið hafa í 22 mánuði, eru þau fyrstu sem fjalla beint um ábyrgð stjórn- enda, hermanna jafnt sem óbreyttra borgara, í fangabúðum sem þessum og einnig þau fyrstu þar sem fjallað er um ódæðisverk sem framin voru gegn Serbum. Héldu saksóknarar því fram að í Celebici-búðunum hefðu margir fangar verið myrtir en þar munu einnig hafa tíðkast pyntingar, bar- smíðar og nauðganir. Bosníu-múslimarnir Hazim Delic og Esad Landzo voru dæmdir til 20 ára og 15 ára fangelsisvistar fyrir sinn þátt í þeim ódæðisverkum sem framin voru í Celebici og Bosníu- Króatinn Zdravko Mucie hlaut ell- efu ára fangelsisdóm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.