Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Reuters BANDARÍSKUR sjóliði um borð í flugmóðurskipinu USS Eisenhower undirbýr flugskeyti fyrir skot á laugardag, skömmu áður en fyrirskip- aðar loftárásir á írak áttu að hefjast. Áhöfnin fékk á síðustu stundu skipun um að fresta árásum í sólarhring. Arás afstýrt á síðustu stundu Lundúnum. Reuters. ÁRAS Bandaríkjamanna og banda- manna þeirra á Irak var afstýrt á síðustu stundu um helgina. Hér á eftir fer lýsing á gangi atburða í réttri tímaröð. Föstudaginn 13. nóvember gerir Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lokatilraun til að fá Saddam Hussein, forseta íraks, til að falla frá ákvörðun sinni um að írakar hættu öllu samstarfi við vopnaeftirlitsmenn SÞ. Bill Clinton Bandaríkjaforseti fyrirskip- ar hernum að láta til skarar skríða. Laugardaginn 14. nóvember eru sprengjum hlaðnar orustuþotur á flugmóðurskipinu USS Eisenhower í viðbragðsstöðu. Einni klukkustund áður en þær áttu að fara í loftið frestar Clinton árásinni um sólar- hring. Þetta var um klukkan eitt eft- ir hádegi að íslenzkum tíma. írakar senda öryggisráði SÞ tveggja síðna langt bréf, þar sem þeir bjóða að heimila vopnaeftirlits- mönnum að hefja aftur störf í Irak, en bréfinu fylgir tveggja síðna við- auki, sem að mati Bandaríkja- manna setti of marga fyrirvara. Sandy Berger, einn öryggismála- ráðgjafa Clintons, hafnar tilboði Iraka formlega skömmu eftir kl. átta að kvöldi. Tuttugu mínútum yfir miðnætti á laugardagskvöld, þ.e. þegar komið er fram á sunnudaginn 15. nóvem- ber að íslenzkum tíma, berst Hvíta húsinu annað bréf Iraka til öryggis- ráðs SÞ, þar sem þeir bjóða að taka aftur upp samstarf við vopnaeftir- litsnefndina skilyrðislaust. Clinton ráðfærir sig símleiðis við Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Jacques Chh’ac, forseta Frakklands. Rétt eftir kl. átta að morgni sunnudagsins afturkallar Clinton árásarskipun sína, eftir að _ hafa ákveðið að taka tilboði Iraka. Orustuflugvélar Bandaríkjahers bíða á flugbraut flugmóðurskipsins með hreyflana í gangi á meðan Clinton flytur ávarpið þar sem hann tilkynnir þetta, en hermennirnir fylgjast með í beinni sjónvarpsút- sendingu. Clinton segir Bandaríkja- menn tilbúna að láta til skarar skii'ða hvenær sem er unz Irakar hefðu sýnt svo ekki verði um villzt fram á að þeir hlíttu samþykktum öryggisráðsins. Hann hvetur til þess að ný ríkisstjórn taki við völdum í Bagdad, sem „helgi sig friði“, og segir að bandarísk stjórnvöld muni efla aðgerðir af sinni hálfu til að þetta markmið náist. Frekari uppbygging bandarísks herafla við Persaflóa og tilflutningur hergagna þangað er stöðvaður. I gær, mánudaginn 16. nóvember, greinir talsmaður SÞ frá því að 84 manna hópur vopnaeftirlitsmanna muni halda aftur til íraks í dag, þriðjudag. Irösk dagblöð fordæma Clinton fyrir ákall sitt um stjórnar- skipti í Bagdad og segja það hroka- fulla ögrun. Lúsjkov stofnar slj órnmálasamtök Moskvu. Reuters. BORGARSTJÓRINN í Moskvu, Júrí Lúsjkov, tilkynnti í gær að hann hygðist stofna stj órnmálahreyf- ingu. Hann neitaði hins vegar að veita ákveðið svar við spurningunni um hvort hann hygðist hella sér út í for- setaslaginn árið 2000 en gengið hefur verið út frá því sem vísu síð- ustu vikur að hann bjóði sig fram í forsetakosningunum. Lúsjkov kveðst ætla að stofna stjórnmálahreyfingu, „Föðurland", sem muni „tileinka sér allt rökrétt frá vinstri[flokkunum] og allt rökrétt frá hægri[flokkunum]“ og að hreyf- ingin muni „forðast allra róttækni til hægri og vinstri". Hreyfingin verði fylgjandi því að lögmál markaðsins ríki en að hún styðji virka þátttöku ríkisins í efnahagsmálum. Á meðal flokka sem boðin hefur verið aðild að hreyfingu Lúsjkovs er samband óháðra verkalýðsfélaga, og samtök fyrrverandi hennanna, „Bræðralag í vopnum". Lúsjkov ítrekaði að hann hefði ekki enn tekið ákvörðun um framboð en kvaðst fylgjast náið með stjórn- málaþróuninni. Sagðist hann myndu blanda sér í baráttuna ef fram kæmu „frambjóðendur sem væru hættuleg- ir framtíð Rússlands“. Júrí Lúsjkov ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 2 7 alltof GREINILEG ssm Thomson samsteypan er fjórði stærsti framleiðandi raftækja í heiminum og eru vörumerki hennar Thomson, General Electric, Proscan, RCA, Saba og Telefunken. Thomson er leiðandi í framleiðslu sjónvarps-, myndbanda- og hljómtækjabúnaðar. Fyrirtækið var meðal annars fyrst til að innleiða DVD spilara og plasmatækni en sú tækni er undirstaða fyrir þynnri og fyrirferðarminni skjái. UMBOÐSMENN UM LAND ALLT Dreifing: Tæknival, heildsala
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.