Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 38

Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ PltrgtwWnlíili STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. PRÓFKJÖR í REYKJANES- KJÖRDÆMI PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi, sem fram fór sl. laugardag, sýnir mikinn styrk Sjálf- stæðisflokksins í kjördæminu. Rúmlega 12.200 manns tóku þátt í röðun frambjóðenda í efstu sæti listans. Það er um- talsvert meira en aðstandendur prófkjörsins reiknuðu með. Þátttakan speglar ekki síður styrkleika þeirra, sem tókust á um efstu sætin. Hins vegar er umhugsunarefni, ef rétt er, að umtalsverður fjöldi stuðningsmanna annarra flokka hafi tekið þátt í prófkjörinu. Þrír einstaklingar gáfu kost á sér í forystusæti listans. Keppni þeirra í milli var allhörð, en niðurstaða er ótvíræð. Stuðningur við hvern og einn þeirra var á hinn bóginn það afgerandi og mikill að allir geta þeir vel við unað. Hlutur kvenna í prófkjörinu vekur athygli. I fimm efstu sætum, sem talin eru örugg, sitja tvær konur. I sjö efstu sætum sitja þrjár konur. Þegar þess er gætt að 6. sætið verður baráttusæti má ætla að þær taki allar meiri og minni þátt í þingstörfum á næsta kjörtímabili. Þessi niður- staða gefur konum byr í segl við niðurröðun á framboðs- lista í öðrum kjördæmum. Prófkjör hafa bæði kosti og galla. Þau eru ótvírætt lýð- ræðislegasti kosturinn við röðun á framboðslista; stuðn- ingsmenn flokkanna ráða milliliðalaust samsetningu fram- boðslista. Þau kalla á hinn bóginn á nokkur innbyrðis átök í stjórnmálaflokkum, sem geta skilið eftir sár, ef illa tekst til. I auglýsingasamfélagi okkar tíma er og hætt við að kostn- aður geti farið úr böndum. Atök og kostnaður, sem fylgir prófkjörum, kann síðan að valda því að hæfir einstaklingar draga sig til hlés í stjórnmálum. Augljóst er, að verulegir fjármunir hafa verið lagðir í prófkjörsbaráttuna nú eins og stundum áður. Hvert prófkjör kallar á umræður og vangaveltur um hvort þessi aðferð við val frambjóðenda sé komin út fyrir eitthvað, sem kalla má eðlileg mörk. Færa má rök fyrir því, að svo sé. A hinn bóginn hefur engin betri aðferð verið fundin til þess að tryggja lýðræðislegt val frambjóðenda. Það er auðvitað hugsanlegt að sníða megi verstu agnúana af prófkjörum með samkomulagi á milli frambjóðenda, en þó er alltaf hætta á að slíkt samkomulag haldi ekki, þegar á reynir. En hvað sem þeim umræðum líður er niðurstaðan sterkur framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjör- dæmi við alþingiskosningar að vori. MENNING OG VIÐSKIPTI MENNING og viðskipti eru tvö nátengd hugtök. Menn eiga ekki svo viðskipti að menningarleg áhrif íylgi ekki með. Viðskipti og aukin menningaráhrif hafa þekkingu í för með sér, þjóðir kynnast og skilningur eykst. Því á síður að vera hætta á menningarlegum átökum og óvild, ef viðskipti þjóða eru eðlileg og menningarlegt flæði milli þeirra einnig. Þekking þjóða hverra á annarri eykur líka víðsýnið og er oftast, ef ekki alltaf, lykillinn að blómlegum viðskiptum þeirra í milli. Við fornleifauppgröft t.d. í Jórvík á Englandi hefur kom- ið í Ijós að víkingarnir fóru ekki bara ránshendi um lendur Englands eins og gjarnan er getið í íslendingasögunum, heldur voru þeir einnig kaupmenn, sem komu til landsins í friðsamlegum tilgangi og til þess eins að eiga viðskipti, kaupa og selja vöru. Þeir fluttu með sér menningu sína og áhrif og þjóðirnar kynntust. Lýsi hf. hefur á undanförnum misserum verið að hasla sér völl í Kína og í síðastliðnum mánuði stóð fyrirtækið fyr- ir kynningarfundum á markaðsvöru sinni þar eystra í þremur stórborgum, Beijing, Shanghai og Dalian. Kína er markaður, sem er gífurlega stór eins og gefur að skilja og er því mikils verður markaður fyrir Island og Islendinga. Þekking og skilningur á menningu þjóða er lykillinn að velgengni á erlendum mörkuðum, sagði í samtali, sem Morgunblaðið átti við Baldur Hjaltason, framkvæmda- stjóra Lýsis hf., í Morgunblaðinu nýlega. Þetta er mergur málsins, því að hægt er að eyða gífurlegum fjármunum til einskis í kynningarstarf, sé ekki fyrir hendi þekking á þeim markaði, sem selja á vöruna á. Oft hafa menn hrapað að því að búa vöruna svo út sem þeim sjálfum líki, í stað þess að setja sig í spor kaupandans og selja vöruna í því formi, sem hann myndi helzt kjósa. Þannig er þekking á kröfum mark- aðarins nauðsynleg til þess að unnt sé að ná þar einhverjum árangri. Minna um jarðhræringar í Ölfusi Grunnskóla- börnin sýndu rétt viðbrögð Jarðhræringar hafa valdið umtalsverðum skemmdum hjá nokkrum húseigendum í Ölfusi og innanstokks í Hveragerði. Blaða- menn Morgunblaðsins voru þar á ferð um helgina og í gær til að skoða skemmdir og heyra af viðbrögum fólks. BAKVAKT verður hjá al- mannavamanefndum í Hveragerði og Ölfus- hreppis og vakt er áfram á Veðurstofu Islands vegna jarð- skjálftanna sem verið hafa í Ölfusi og Hveragerði síðan á föstudag. Nokkuð hefur dregið úr skjálfta- virkni á svæðinu, segir í frétt frá Al- mannavörnum ríkisins. Einar Mathiesen, bæjarstjóri í Hvera- gerði, segir að eftir að hafa ráðfært sig við sér- fræðinga Veðurstofunn- ar hafi almannavarna- nefndirnar ákveðið að aflétta sérstökum við- búnaði og vakt í stjórn- stöð en að nefndarmenn og aðrir lykilmenn vegna hugsanlegra að- gerða verði áfram á bakvakt. Hann segir al- mannavamanefndir hittast næst þegar til- efni gefst til og ef hrær- ingar halda áfram. „Þetta fór í sjálfu sér allt frekar rólega fram hjá okkur, við þurftum að taka utan um nokkra nemendur og hugga þá á föstudag og mönnum bregður eðlilega en við erum líka vön svona hrinum þótt þessir kippir hafi verið óvenju harð- ir,“ sagði Guðjón Sigurðsson, skóla- stjóri í grunnskólanum í Hvera- gerði, í samtali við Morgunblaðið í gær þegar hann var spurður um jarðhræringarnar og viðbrögð við þeim. Guðjón og Þorsteinn Hjartarson aðstoðarskólastjórí ræddu við Morg- unblaðsmenn og sögðu þeir rætt reglulega um jarðskjálfta og áhrif þeirra í skólanum. „Við ræðum þessi mál einu sinni á ári í hópi kennara, förum yfir hugsanlega hættu og við- brögð við jarðskjálftum, og síðan ræða kennarar málið í sínum bekkj- um,“ sagði Guðjón. Alls eru um 350 nemendur í skólanum, kennarar eru 29 og nokkrir aðrir starfsmenn. Á laugardeginum var námskeið fyrir nemendur og foreldra í skólan- um, einmitt þegar einn kippurinn kom yfir. Þeir sögðu mestu truflun- ina hafa verið vegna hávaða í lausum vegg sem glamraði í sal skólans en þar er um bráðabirgðavegg að ræða sem á eftir að tengjast öðrum vegg og millilofti. Sögðu þeir þó enga hættu hafa stafað af þessum titringi. Fjöllum reglulega um viðbrögð við jarðskjálftum Þorsteinn sagði börnin hafa sýnt rétt viðbrögð þegar skjálftinn reið yfir á föstudagsmorgninum enda stutt síðan í'arið hefði verið með þeim yfir viðbrögð við jarðskjálftum. „Þau fóru undir borð eins og ráðlagt hefur verið og dokuðu þar við. Þá stóðu reyndar yfir próf í einhverjum bekkjunum og mátti sjá hvar sumir teygðu hendurnar upp á borðið og ná í prófverkefnið til að hægt væri að halda áfram vinnunni undir borði - það þurfti ekkert að hætta þótt jörðin titraði!" sagði Þorsteinn. Hann sagði nemendur þekkja rétt viðbrögð og það væri mikilvægast að menn héldu ró sinni en æði ekki af stað. Þeir Guðjón nefndu að vegna aðstæðna í Hveragerði, nálægðar við hverasvæði og jarðhitann, væri hægt að hafa lifandi kennslu í náttúru- fræði og var t.d. farið í haust í göngu upp úr Reykjadal og framhjá Skarðsmýrarfjalli þar sem hægt var að sjá nýjar sprungur og um- merki eftir skjálfta á þeim slóðum í sumar. Verkfræðingar frá Verkfræðistofnun Há- skólans skoðuðu skól- ann á sunnudag og sagði Guðjón skólastjóri að engar skemmdir hefðu fundist nema að ein rúða hefði brotnað. Þá féll einn ljósarammi niður í eldri hluta hús- næðisins og sagði Guð- jón að ákveðið væri í framhaldi af því að skipta um þá ramma. Hann sagði að í fyrra hefði verið gripið til þeirra fyrirbyggj- andi aðgerða að setja öryggisfílmu á stórar rúður í skólabyggingunni enda þótt talið væri samkvæmt stöðlum að þær rúður ættu ekki að brotna. Skólastjórinn sagði að í gærmorgun hefðu kennarar rætt við nemendur og hann gekk sjálfur í elstu bekkina: „Við ræddum almennt við nem- endur og upplýstum um þá niður- stöðu verkfræðinganna að byggingin hefði ekki skemmst og þannig reyn- um við að halda öllu sem eðlilegustu enda þekkja nemendur þetta ástand og halda ró sinni,“ sagði Guðjón og Þorsteinn nefndi að menn hefðu kannski heldur meiri vara á sér gagnvart börnum sem væru ein heima dagstund og reyndu að hafa þær stundir sem stystar. „Þetta hef- ur hins vegar einhver áhrif, það er erfiðara að einbeita sér í prófum og menn eru mikið með hugann við þetta núna en það líður frá um leið og um hægist," sögðu þeir skóla- menn að lokum. Langharðasti skjálftinn íbúðarhúsið á Bakka í Ölfusi stórskemmdist í jarðskjálftanum um nónbil á laugardag. Jarðskjálft- inn, sem mædist 4,7 á Richter átti upptök sín rétt fyrir sunnan Þurá í Ölfusi. Af frásögn Hvergerðinga, sem Morgunblaðið heimsótti á laugardag, mátti ætla að skjálftinn hefði verið afar kröftugur. Hver- gerðingar eru ýmsu vanir, en lík- legt má telja að vegna nálægðar við upptök skjálftans hafi áhrifa hans gætt eins áþreifanlega og raun bar vitni. Engilbert Hannesson, ábúandi að Bakka, var fjaiverandi þegar skjálftinn reið yfir og kom því að Engilbert Hannesson, ábúandi á Bakka. og Hveragerði er ÓRÓI hefur verið í Hveragerði og n; enn tal GUÐJÓN Sigurðsson skólastjdri (t.h, skdlastjdri fyrir utan Gri VARNINGUR í verslun í Hveragerði húsi sínu stórskemmdu er hann kom heim, svo nú er óíbúðarhæft í hús- inu. Djúpar sprungur voru víða í veggjum og bækur höfðu kastast á þriðja metra úr hillum út á góli'. Björgunarsveitarmenn frá Þorláks- höfn bára út húsgögn eftir skjálft-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.