Morgunblaðið - 17.11.1998, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 17.11.1998, Qupperneq 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Faðir okkar, + ARNÓR SIGURÐSSON frá Sauðárkróki, Fögrubrekku 16, Kópavogi, lést laugardaginn 14. nóvember í Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Jarðarförin tilkynnt síðar. Fyrir hönd vandamanna, Stefanía Arnórsdóttir, Sveinn Tumi Arnórsson. + Ástkaer eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓFRÍÐUR GRÓA SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, áður til heimilis á Snorrabraut 81, lést á Landspítalanum föstudaginn 13. nóvember. Guðmundur Lárusson, Lárus I. Guðmundsson, Jón Valgeir Guðmundsson, Kristján S. Guðmundsson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Bróðir okkar og fraendi, EYJÓLFUR ÞORVARÐARSON sjómaður frá Bakka, Kjalarnesi, lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 13. nóvember. Systkini og aðrir aðstandendur. Ástkaer faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, METÚSALEM SIGMARSSON, Garði, Reyðarfirði, lést fimmtudaginn 12. nóvember á heimili sínu. Útförin fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju laugar- daginn21. nóvember kl. 14.00. Ásgeir Metúsalemsson, Inga Ingvarsdóttir, Hildur Metúsalemsdóttir, Svavar Kristinsson, Lára R. Metúsalemsdóttir, Guðni Elísson, Guðlaug B. Metúsalemsdóttir, Sigurður H. Kristjánsson, Sigmar Metúsalemsson, barnabörn og barnabarnabörn + Kær bróðir okkar og mágur, RÚTUR HALLDÓRSSON, Sólvallagötu 14, Reykjavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 10. nóvember. Útförin ferfram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 19. nóvember kl. 15.00. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja styrkja líknarstarfsemi í minningu hans, er bent á Krabbameinsfélag íslands. Brynjólfur H. Halldórsson, Guðrún St. Halldórsdóttir, Brian Dodsworth. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför RAGNARSÁRNASONAR sjómanns, Lindasíðu 4, Akureyri. Sigurbjörg Helgadóttir, Ragna J. Ragnarsdóttir, Sigurður R. Ragnarsson, Kolbrún B. Ragnarsdóttir, Svanhvít B. Ragnarsdóttir, Valdís B. Þorkelsdóttir og fjölskyldur. SVANHVÍT PÁLSDÓTTIR + Svanhvít Pálsdóttir fæddist í Reykjavík 20. júní 1936. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 26. október sfðastliðinn og fór útfór hennar fram frá Akraneskirkju 3. nóvember. Elsku amma, ég sakna þín mikið, þú varst mjög góð amma og ég er mjög þakklát fyrir það sem þú gafst okkur, ég vona að þér líði vel uppi á himninum. Eg vona að þú kynnist mörgum, okkur líður öllum illa síðan þú lést. Þín Sigrún Jóhannsdóttir. Elsku mamma mín, ég trúi varla að þú sért farin frá okkur. Otal minningar sækja á mig, þú varst besta móðir sem nokkurt bam gat hugsað sér. Eg gat alltaf leitað til þín með öll mín vandamál, þú varst alltaf til staðar og leystir úr þeim af mikilli ánægju. En ég var nú ekki ein um að leita til þín, þeir voru ófáir bæði úr okkar fjöl- skyldu og utan hennar líka. Það var svo gott að koma til þín og fá sér kaffi og spjalla saman. Það var mikið hlegið þegar ég, Hulda syst- ir, Hulda Mjöll og þú vorum sam- an, að ég tali nú ekki um þegar öll fjölskyldan var saman komin. Mik- ið gat maður nú skemmt sér vel. Það var okkur öllum því mikið áfall þegar þú greindist með þann sjúkdóm sem átti eftir að verða þér svo erfíður. Þegar þú svo fórst í að- gerð og við biðum eftir að henni lyki þá leið okkur mjög illa, en svo kom læknirinn og sagði okkur að aðgerðin hefði gengið mjög vel og urðum við svo bjartsýn. Það var talið að þeir hefðu komist fyrir sjúkdóminn. Svo kom að því að þú máttir fara heim, það var mikill gleðidagur fyrir okkur öll eftir all- an þennan langa tíma sem þú hafð- ir verið á sjúkrahúsinu. En smám saman dró ský fyrir sólu og þér fór að versna aftur uns ekki varð hjá því komist að þú yrð- ir að fara á spítalann aftur. Við bið- um öll milli vonar og ótta eftir fréttum. Eg talaði við þig í síma á hverjum degi og svo komum við líka í heimsókn til þín. Mikið var sárt að sjá þér hraka, það nísti hjartað en þú varst alltaf svo glöð og bjartsýn og brostir alltaf þótt þú hefðir miklar kvalir. Síðan kom reiðarslagið þegar við fréttum að sjúkdómurinn hefði tekið sig upp aftur og það væri ekkert hægt að gera, ég mun aldrei gleyma þeim degi. Ég vildi ekki trúa því að allt væri búið en þurfti samt að horfast í augu við það. Þú óskaðir eftir að fara á sjúkrahúsið á Akranesi. Eins og þú orðaðir það, þú vildir fara heim og vera nálægt þinni fjöl- skyldu. Ég fylgdist með og talaði við þig í síma á þeim degi og mikið varst þú glöð. Pabbi, Hulda systir og Björgvin fylgdu þér alla leið. Pabbi og við systkinin vorum síðan hjá þér síðustu dagana á spítalan- um. Það var erfiður tími að sjá líf þitt smám saman fjara út, hjörtu okkar fylltust tárum í hvert sinn sem við sátum hjá þér og héldum í hönd þína, við töluðum við þig, aOtaf brostir þú sama hversu mikið þú þjáðist, augu þín sögðu okkur hvemig þér í raun og veru leið. Þú straukst alltaf toppinn frá augum mínum og brostir til mín og vafðir handleggnum utan um háls minn, það mátti lesa ást úr augnaráði þínu. Bros þitt yljar mér um hjart- að og á eftir að gera það í framtíð- inni. Ég söng fyrir þig sálm þegar við vorum einar og þá kreistir þú hönd mína til að láta mig vita að þú heyrðir til mín. Ég vil þakka fyrir að hafa átt þessar stundir með þér og pabba. Þetta hafa verið þung spor fyrir okkur öll. Ég vil þakka öllum þeim sem hafa sýnt okkur umhyggju og alúð á þessum ei'fiða tíma, sérstakar þakkir til Gerðar á deild 13 D á Landspítalanum, einnig vil ég þakka hjúkrunarfólki á Sjúkrahúsi Akraness fyrir hvað það hugsaði vel um mömmu allt til hinstu stundar. Guð blessi ykkur og ykkar störf. Elsku Gunna mín, þú hefur misst mikið en guð styrkir þig eins og okkur öll. Við söknum þín svo mikið elsku mamma mín, þú varst hetja í mínum augum. Elsku pabbi, þú hefur misst mikið en við höfum minningarnar til að ylja okkur við á erfiðum stundum. Megi góður guð varðveita minningu þína og elsku pabbi, megi góður guð styrkja þig í þinni miklu sorg. Guð blessi þig mamma mín, við hitt- umst seinna, ég elska þig óskap- lega heitt, megi ljós þitt lýsa okkur öllum um ókomna framtíð. Þín dóttir Hildur. JOHANNES L. STEFÁNSSON + Jóhannes Líndal Stefánsson fæddist að Kleifum í Gilsfirði 9. júní 1910. Hann lést á dvalarheimilinu Silfurtúni í Búðar- dal 6. nóvember síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Garpsdalskirkju 14. nóvember. Ég get ekki látið vera að rifja upp nokk- ur minningabrot úr bemsku minni vegna andláts Jó- hannesar Stefánssonar á Kleifum. Kleifadvölin nokkur sumur hafði mikil og mótandi áhrif á mig. Fyrsta sumarið sem ég var á Kleifum var þegar búið að ráða vinnustúlku til inniverka og fékk ég því að vera útivið enda léleg til allra húsverka í þá daga. Jói var mjög sérstakur maður og minnistæður öllum sem hann hittu á lífsleiðinni. Þegar ég hef verið að £ % 0* r / ^GAV^ Þegar andlát ber að höndum Útfararstofa kirkjugarðanna ehf. Sími 551 1266 Allan sólarhringinn rökræða við fólk um hesta, hunda eða jafn- vel rafmagn og var komin í rökþrot þá hef ég borið því við að ég hafi nú verið hjá honum Jóa á Kleifum og viti því heilmikið um málið. Þá lyftast brúnir við- mælenda minna og ég hef þótt miklu merki- legri fyrir vikið og yfir- leitt unnið rökræðurnar bara með því að nefna Jóa. Eitt sumarið kom rafmagnið úr eigin virkjun og þótti mér þetta algjört undur. Rafmagnsveit- unum þótti of langt að leggja línu alla leið inní Gilsfjarðarbotn. Jói átti bestu hestana og hundana og svo beislaði hann rafmagnið líka og var stórmenni í huga barnsins. Eitthvert sumarið kom ég að Kleifum þá orðin unglingur og varð samferða Jóa suður en hann átti þá erindi í bæinn. Hann keyrði Trabant og ekkert útvarp var í bflnum en Jói fór með ljóðabálk eftir Sigfús Blön- IBIómabtÁðin Öaf'ðsKom v/ Fossvo^skipkjMgapð SUnh 554 0500 H H H H H H H H H H Erfidrykkjur P E R L A N u Sími 562 0200 [IIIIIIIIII H H H H H H H H H H £ dal um Drottninguna í Algeirsborg til þess að hafa ofan af fyrir okkur. Þessi Ijóðabálkur er um 80 erindi og honum lauk þegar komið var fyrir Hvalfjörð. Mér er þetta svo minnis- stætt og hef minnst á þetta við ýmsa en fáir kannast við þennan ljóðabálk um íslensku stúlkuna sem er tekin til fanga í Tyrkjaráninu og varð drottn- ing í Algeirsborg. Þennan ljóðabálk kunni Jói utanbókar. Ég bjó lengi erlendis og átti í erf- iðleikum með að taka ákvörðun um að flytja heim til Islands. Ég ákvað það eftir draum sem mig dreymdi en hann var þannig að ég var stödd á Kleifum á grænum engjum og var að ná í rauða meri fyrir Jóa. Meri þessi var kunn að því að hoppa yfir allar hindranir en Jói hafði keypt hana suður í Saurbæ eitt sumai'ið. I draumnum tókst mér að beisla hana og koma henni á tölt. Eftir þennan fallega draum ákvað ég því að flytja heim. Alltaf höfum við sumarbömin haft náið samband við Kleifafólkið og Jói og Unnur fylgst vel með okkur í gegnum tíðina. Við höfum ætíð verið velkomin og ættingjai' okkar einnig. Ég sendi Unni og allri fjölskyldunni mínar samúðarkveðjur með þökk fyrir allt hið liðna. Kristín Benediktsdóttir (Krissa). Skilafrestur minning- argreina EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudags- blaði ef útfór er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á fóstudag. I miðvikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laug- ardagsblað þarf greinin að ber- ast fyrii' hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er út- runninn eða eftir að útfór hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þai' sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.