Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 59

Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 59 FRÉTTIR Yfirlýsiiig’ Félags starfsmanna LI Úr dagbók lögreglunnar Annasöm helgi MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing. „Stjórn Félags starfsmanna Landsbanka Islands lýsir furðu sinni á vinnubrögðum stjórnar Ibúðalánasjóðs og félagsmálaráð- heiTa í málefnum Veðdeildar Landsbanka Islands hf. Veðdeild Landsbanka íslands var stofnuð með lögum nr. 1 hinn 12. janúar 1900. Hún hefur hefur þjónað Húsnæðisstofnun frá upji- hafi. í Veðdeild Landsbanka Is- lands hf. starfa nú 25 manns. Meðal þeirra era starfsmenn sem hafa unnið í Veðdeildinni nánast allan sinn starfsaldur og hafa langa reynslu og sérþekkingu á verkefn- um Veðdeildar. Nú hefur þessum starfsmönnum Veðdeildar verið sagt upp störfum. Það er ekki óá- nægja með störf fólksins í Veðdeild LI sem er kveikjan að uppsögn starfsmanna. Deildin hefur sinnt hlutverki sínu vel og því ekki verið haldið fram að þjónustan sé að- Arnessýsla Fundur um stefnu- og samfylkingarmál Stjómmálafélag Menntaskólans að Laugarvatni stendm- fyrir fundi í kvöld, þriðjudagskvöldið 17. nóvem- ber, með þingmönnum Alþýðu- bandalags og Alþýðuflokks ásamt fulltrúa Kvennalista þar sem kynnt verða stefnumál og setið fyrir svör- um varðandi samfylkingarmál og fleira. Fundurinn verður haldinn í fyrir- lestrasal Menntaskólans að Laugar- vatni og hefst kl. 20. AUir eru vel- komnir. finnsluverð á einhvern hátt. Mikil umsýsla fjármuna fer um deildina á hverju ári. Hægt er að sýna fram á að þjónusta deildarínnar er ódýr miðað við sambærilega fjármála- starfsemi. Krafa hefur verið á bankastofnanir að hagræða í rekstri, fækka bankastofnunum, sameina þær og gera þjónustuna eins ódýra og kostur er. Þetta hef- ur verið krafa eigenda bankanna og almenn umræða í viðskiptalífinu. Það sem nú hefur gerst þ.e. með stofnun Ibúðalánasjóðs með til- heyrandi yfirbyggingu sbr. at- vinnuauglýsingar í blöðum og nú síðast flutningi verkefna Veðdeild- ar Landsbanka Islands er óskiljan- legt í þessu ljósi. Stjórn Félags starfsmanna LI fordæmir óvönduð og ófagleg vinnubrögð undirbúningsstjórnar íbúðalánasjóðs og félagsmálaráð- heraa í þessu máli. Vinnubrögð undirbúningsstjórnarinnar og ráð- herra er móðgun við starfsmenn Veðdeildar LI eftir ára- og ára- tugastörf þessa fólks. Stjórn sjóðs- ins hefur átt í viðræðum við fulltrúa Landsbankans að undanförnu um áframhaldandi þjónustu Veðdeildar við sjóðinn. A sama tíma og þessar viðræður hafa átt sér stað var stjórn Ibúðalánasjóðs að ganga frá samningum um flutning verkefn- anna til nýrrar innheimtudeildar á Sauðárkróki. Starfsmenn Veðdeild- ar vissu ekki annað en alvöru við- ræður væra í gangi um málið. Tilkynning um vinnubrögð undir- búningsnefndar ráðherrans bárust svo stjórnendum Landsbankans og starfsfólki í Veðdeildinni í almenn- um fréttum Ríkisútvarps. Þetta eru fáheyrð og siðlaus vinnubrögð. Við- ræður við Landsbankann virðast því hafa verið yfirvarp meðan var verið að semja við aðra bankastofn- un um málið. Stjórn íbúðalánasjóðs og félags- málaráðherra sem jafnframt er at- vinnumálaráðherra taka ekkert til- lit til fjárhagslegi'ar afkomu þeirra 25 starfsmanna Landsbankans sem missa vinnuna hér í Reykjavík. Það er gengið út frá því að þetta sé ekk- ert vandamál. A sama tíma talar ráðherra um atvinnuuppbyggingu á Sauðárkróki og ný störf. Hér er ekki um ný störf að ræða, heldur einungis flutning starfa af höfuð- borgarsvæðinu. I ljósi þess sem er að gerast núna er líka athyglisvert að skoða hvern- ig stjórn sjóðsins er samansett og hvaða hagsmunir eru að baki full- trúum í stjóm íbúðalánasjóðs. Árni Gunnarsson er aðstoðannaður fé- lagsmálaráðherra. Hann er í undir- búningsstjórninni. Hann er úr kjör- dæmi ráðherrans sem á að flytja starfsemina í. Hrólfur Orlygsson starfandi bankaráðsmaður í banka- ráði Búnaðarbanka Islands hf. Hann er ritari nefndarinnar. Þarna era sýnilega stórfelldir hagsmunaá- rekstrar á ferðinni auk þess sem þessi bakgrunnur stjórnarmanna kallar að okkar mati á skoðun sam- keppnisyfirvalda á málinu. Stjórn FSLÍ hefur miklar efa- semdir um hagræði þess að flytja þessa starfsemi -af höfuðborgar- svæðinu þar sem aðalmarkaðs- svæði íbúðalánasjóðs er og öll önn- ur starfsemi er viðkemur starfsemi hans. Það er athyglisvert að þing- menn landsbyggðar þeysa fram á völlinn og fagna þessari ákvörðun, þeir horfa blint á ímynduð störf sem verið er að búa til, en hvar eru þingmenn Reykjavíkur þegar verið er að svipta höfuðborgarbúa at- vinnunni með þessum hætti?“ Helgin 13.-15. nóveniber I NOGU var að snúast hjá lögreglu- mönnum í höfuðborginni um helg- ina. Alls eru færð til bókunar 470 verkefni af ýmsu tagi. Nokkuð var um átök milli einstaklinga inná veit- ingastöðum án þess að hægt sé að tilgreina ástæður átaka hér. Karlmaður slasaðist er hann kastaðist af bifhjóli sem hann mun hafa tekið ófrjálsri hendi að morgni sunnudags. Slysið átti sér stað í Alf- heimum við Suðurlandsbraut en hjólinu hafði verið stolið úr geymslu í Mörkinni skömmu áður. Farþegi í bílnum sem hjólinu var ekið á kenndi eymsla á höfði eftir óhappið. Okumaður vélhjólsins er talinn hafa kastast á þriðja tug metra er hann keyrði á bifreiðina og þykir því mildi að hann slasaðist ekki alvar- lega. Hann er grunaður um að hafa verið ölvaður við aksturinn. Bílvelta varð á Laugavegi við Klapparstíg að morgni sunnudags. Bifreiðinni var ekið á Ijósastaur og steinstólpa. Okumaður hljóp brott af vettvangi en tveir farþegar náð- ust. Svo virðist sem þeir hafi tekið lykla bifreiðarinnar traustataki í gleðskap sem þeir voru í og ákveðið að fara í ökuferð að eiganda for- spurðum og með ofangreindum af- leiðingum. Til átaka kom þegar lögreglan var að kanna aldur ungmenna sem vora framan við skemmtistað við Kringluna að kvöldi laugardags. Þarna var samankominn hópur 15 til 16 ára unglinga úr nágranna- sveitarfélagi og voru margir hverjir talsvert ölvaðir. Hópurinn brást illa við aðgerðum lögreglu og veitti tals- verðan mótþróa. Einn lögreglu- manna var bitinn og skemmdir unn- ar á einni lögreglubifreið. Sex aðilar voru handteknir og fluttir á lög- reglustöð og nokkrir þeirra vistaðir í fangahúsi. Líkanismeiðingar Ráðist var að konu á heimili hennar að kvöldi föstudags. Konan var flutt á slysadeild með áverka. Ai'ásarmaðurinn er sambýlismaður konunnar. Til átaka kom milli tveggja manna á skemmtistað að kvöldi laugardags og var annar sleginn í andlitið svo tvær tennur losnuðu. Að morgni laugardags barst lög- reglu tilkynning um að eigandi hundai' færi ítrekað með kjölturakka sinn á gæsluvöll þar sem hann skildi eftir sig „stykki" sín. Haft var tal af viðkomandi hundaeiganda sem baðst afsökunar á þessu atferli sínu og lof- aði bótum. Hundaeigandinn vai' lát- inn þrífa upp slóð hundsins á gæslu- vellinum. Ekki þarf að taka fram hversu tillitslaust það er að að fara með dýr inná svæði þar sem smá- börn era að leik. Að kvöldi laugardags urðu lög- reglumenn að handsama Scháffer hund sem var laus í austurborginni og talinn hættulegur. Fram kom að hundurinn hefði oft verið laus sem er ekki í samræmi við gildandi reglur. Notkun endurskinsmerkja Lögreglan vill koma því á fram- færi að mjög mikilvægt er að allir borgarbúar, ungir sem aldnir noti endurskinsmerki nú þegar dags- birtu nýtur ekki við nema fáar stundir dag hvern. Skúlagata 59 • Sími 540 5400 • www.raesir.is Mazda □emio Mazda Demio er fjölnota bíll sem er kjörinn fyrir þá sem hafa í mörgu að snúast. Hann er þeim frábæru eiginleikum búinn að á svipstundu er hægt að breyta honum úr fjölskyldubíl í vinnubíl sem rúmar vörur og kassa eða tómstundabíl fyrir skíðabúnaðinn, útilegudótið eða hnakkinn á hestinn. Hann er fallegur og einstaklega hentugur. Mazda Demio er alitaf til í allt! Verö: □emio LX 1.S15.000 kr. □emio GLX 1.295.000 kr. - ávallt viðbúinn!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.