Morgunblaðið - 17.11.1998, Síða 72

Morgunblaðið - 17.11.1998, Síða 72
72 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ CZ7.... HÁSKÓLABÍÓ HASKOLABIO Hagatorgi, simi 530 1919 . nóvember Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd kl. 7, 9 og 11. m-,í ■vdiSlw -aMjalHai v-v aiSli Cam ro Dia Frá leikstjómum Dumb and Dumber og Kinapin kemur gamanmyna ársins. IHeRe'S S MÉFd^G/1 \> lT 1/2 BYLGJAN*^ ★tti/2 kvikmyndir.is ★ ★★ MBL Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. SpBBÉj HANN HEFUR RfE SL. I4.000 VITNI - '0G ENGINN 5Á *4iVAÐGERÐISl sJrúie BAKEnTTRAEAA ‘ 1 foreldraGILDRAN W/l 31 Sýnd kl. 4.40, 7 og 9.20. Sýndki.*5. ísl tal. ^ < imtugsafmæli Karis Bretaprins Camilla var drottn- ing í einn dag Á LAUGARDAGINN hélt Karl Bretaprins upp á fímrntugsaf- mæli sitt með fjörugu teiti fyrir vini og vandamenn. Athygli vakti að ástkona hans til margra ái-a, Camilla Parker Bowles, var við hlið hans alla veisluna, en hún skipulagði veisluna fyiir ást- manninn á sveitasetri hans í Highgi’ove. Mættu ekki til veislunnar Elísabet Englandsdrottning og Philip eru ósátt við sam- band Karls við Camillu og voru þau fjarri góðu gamni, enda hafði hún staðið fyrir veislu kvöldinu áður í Buckingham- höll. Einu meðlimir bresku konungsfjölskyldunnar sem mættu á laugardeginum voru Margrét prinsessa og synir Karls og Díönu, William og Harry. Hins vegar mætti kóngafólk víðs vegar að í veisl- una, auk þekktra einstaklinga úr skemmtanabransanum. Ungu prinsarnir voru með óvænta skemmtun í afmælis- veislunni þegar þeir stigu á stokk og léku atriði úr kvik- KARL fylgir drottningarmóðurinni til sætis í Buckingham-höll. Forsæt- isráðherrann Tony Blair horfir á brosmildur að vanda. CAMILLA mætir til afmælisveislunnar, sem liún hélt fyrir Karl. myndinni Með fullri reisn. Þeir dönsuðu við lagið „You Sexy Thing“ og skellihlógu á meðan. Hins vegar gengu þeir ekki jafn langt og fyrirmyndirnar, því aðeins skyrtumar fengu að fjúka. Vaxandi vinsældir KARL skálar við gesti í teitinu á föstudaginn í Buckingham- höll, sem Elísabet Englands- drottning hélt fyrir soninn. Karl Bretaprins kemur vel út í skoðanakönnun enskra dagblaða um þessar mundir og í nýlegri könnun kom í ljós að 74 prósent að- spurðra telja að hann yrði góður konungur landsins. Yfír 86 prósent töldu einnig að hann hefði sýnt og sannað að föðurhlutverkið væri honum í blóð borið. Hins vegar eru 46 prósent aðspurðra á móti hjóna- bandi Karls og Camillu þrátt fyrir að prinsinn hafí margoft sagt að slíkt sé ekki á dagskránni. En Camilla var sem drottning i afmælisveislunni og segja má að hún hafí í það minnsta verið drottning í einn dag. BÆNDAFÉLAGIÐ við farartækið sem er vitaskuld Landrover-jeppi. MYSA og blóðmör á borðum. Þá er bara að háma í sig. Bændafélag í Frostaskjóli Blóðmör og mysa á borðum BÆNDAVEISLA félagsmið- stöðvarinnar í Frostaskjóli bauð nú fyrir skömmu til mik- illar átveislu. í boði var blóð- mör og lifrarpylsa ásamt kartöflumús og rófustöppu. Fríður hópur ungmenna úr vesturbænum sat við langborð og gæddi sér á þessum vin- sæla þjóðarrétti langt fram á ^ kvöld. Skáluðu menn í ís- lensku bergvatni, mysu og ný- mjólk á milli þess sem ræður voru fiuttar um ágæti matar- ins. Tilefnið var stofnun „Bændafélagsins" sem í eru nokkrir vaskir unglingar. Fé- lagið hefur í hyggju að kynna sér ýmis málefni sem tengjast hinum dreifðu byggðum landsins. Næst á dagskrá er reiðferð í óbyggðir. Einnig hefur félagsskapurinn á prjónunum að heimsækja bóndabæi í nágrenni Reykja- víkur og bera saman búnaðar- hætti. A fundum og uppákom- um er skylda að klæðast ís- lenskum lopapeysum og farar- tæki félagsmanna er forláta Land Rover jeppi. MYNDBÖND Greyið hann Seagal Föðurlandsvinurinn (Patríot) Spennumynd ★ Framleiðendur: Howard Baldwin, Patrick D. Choi, Nile Niami, Steven Seagal. Leikstjóri: Dean Semler. Handritshöfundur: David Ayer eftir bók William Heine. Kvikmyndataka: Stephen F. Windon. Tónlist: Stephen Edwards. Aðalhlutverk: Steven Seagal, Gailard Sartain, L.Q. Jones, Camilla Belle, Dan Beene. 110 mín. Bandaríkin. Myndform 1998. Myndin er bönnuð börnum innan 16 ára. STJARNA Stevens Seagals hefur fallið jafn skjótt og hún fór upp á him- ininn fyrir nokkrum árum. Hlutverk í spennumyndum eins og „Nico“, „Marked For De- ath“ og „Under Si- ege“ sýndu þennan svipbrigðalausa bardagakappa brjóta útlimi and- stæðinga sína á alls konar vegu. Síðan kom skellurinn „On sem má kalla vist- væna ofbeldismynd þar sem Seagal reyndi að benda á umhverfispjöll og annað þess háttar meðan hann lúskraði á vondu körlunum. Það er eins og greyið hafi ekkert lært á mis- tökum sínum því að nýjasta mynd hans, Föðurlandsvinurinn, er afskap- lega mikið að reyna að koma þeim boðskap til leiðar að nútíma læknavis- indi eiga margt eftir ólært meðan náttúrulækningar geti bjargað mann- kyninu. Myndin náði ekki að komast í kvikmyndahús í Bandaríkjunum og ekki einu sinni myndbandamarkaður- inn tók við henni, heldur var hún frumsýnd í sjónvapi. Gallinn við þessa mynd er Seagal sjálfur og markhópur hans. Þeir sem leita upp myndir með Van- Damme, Seagal og öðrum bar’dagaköppum eru sjaldnast að leita að háleitum boðskap um náttúruna eða mannlega gæsku. Þeh' vilja sjá eyðileggingu og annað þess háttar og best er að sem flestir týni lífi í rás myndarinnar nema hin tilfinningakalda ofurhetja. I Föður- landsvininum er eins og framleiðend- ur myndarinnar hafi allt í einu tekið eftir að ekkert væri að gerast í mynd- inni svo þeir hafi ákveðið að bæta við nokkrum bardagaatriðum með Seagal eftir að tökum lauk og passa atriðin engan veginn í myndina og gera þau hana bara enn sorglegri á að horfa. Ef Seagal ætlar að bjarga ferlinum verð- ur hann að snúa blaðinu við og byrja að berja á mönnum en ekki bjarga viðkvæmu vistkerfi náttúrunnar. Ottó Geir Borg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.