Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Æfðu við-
brögð við
sprengju-
tilræði
ÆPÐ voru viðbrögð við hugsanlegu
sprengjutilræði gegn bandaríska
sendii'áðinu í Reykjavík um hádegis-
bilið í gær. Þátt í æfingunni tóku lög-
reglan, Landhelgisgæslan og varnai--
liðið á Keflavíkurflugvelli.
Æfingin hófst með því að banda-
rísk herþyrla lenti um hádegisbilið
skammt frá Umferðarmiðstöðinni og
út úr henni stukku 6 hermenn með
alvæpni. Hlupu þeir inn í lögreglubíl
sem ók þeim í átt til sendiráðsins við
Laufásveg þar sem sviðsett voru við-
brögð við sprengjutilræði gagnvart
sendiráðinu.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá lögregiunni hafa æfíngar
af þessu tagi farið fram víða um
heim þar sem Bandaríkjamenn hafa
sendiráð eða aðrar stofnanir.
Hefur það tengst ótta bandarískra
stjórnvalda um að hryðjuverkamenn
láti til skarar skríða gagnvart banda-
rískum hagsmunum vegna loftái’ása
á stöðvar múslimskra hryðjuverka-
manna í haust í Afganistan og árása
á eiturefnaverksmiðju í Súdan.
--------------------
Almannavarnir
Ekki lengur
viðbúnaður
ALMANNAVARNIR í Hveragerði
aflýstu svokölluðu viðbúnaðarstigi
vegna jarðskjálftahættu um kvöld-
matarleytið í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofunni seint í gærkvöldi var allt
með kyi’rum kjörum á jarðskjálfta-
svæðinu. Þar vildu menn þó ekki
fullyrða að hrinan væri gengin yfir.
Hins vegar hefði staðan verið metin
svo í gær að ekki hefðu legið fyrir
nægilega skýrar vísbendingar að
* vænta mætti fleiri skjálfta til að við-
halda viðbúnaði í Hveragerði.
■ GrunnskóIabörnin/38
Morgunblaðið/RAX
HALLDÓR Jóhannsson bóndi á Stóru-Breiðuvík við rústir fjárhússins sem brann til kaldra kola í gærmorgun.
244 kindur drápust og mikið eignatjón varð í bruna í Stóru-Breiðuvrk
„Aðkoman var skelfíleg “
Á ANNAN tug slökkviliðsmanna
frá Brunavörnum Eskifjarðar og
Reyðarfjarðar fékk lítið að gert
þegar full hlaða af heyi og fjárhús
brunnu til grunna í gær á bænum
Stóru-Breiðuvík í fyrrum Helgu-
staðahreppi á Reyðarfirði. 244 kind-
ur brunnu inni í eldsvoðanum og
mikið hey í samliggjandi hlöðu auk
heys, sem var utan við hlöðuna. Þá
brann einnig dráttarvél, sem stóð
við fjárhúsdyrnar. Eldsupptök eru
ókunn, en talið er að eldurinn hafi
kviknað snemma aðfaranótt mánu-
dags.
Aðkoman var skelfileg," sagði
Halldór Jóhannsson, bóndi á Stóru-
Breiðuvík, við Morgunblaðið í gær.
„Eg get ekki lýst því hvernig mér
leið í morgun, það var hræðilegt að
koma að þessu nánast öllu í rúst.
Það er greinilegt að eldurinn var
búinn að krauma þarna lengi.“
Lögreglan fékk tilkynningu um
eldinn um kl. 7 í gærmorgun frá
trillusjómanni á útstími frá Eski-
firði. Slökkvistarfinu lauk um há-
degisbil í gær og ljóst er að um
stórtjón er að ræða. Húsin sem
brunnu voru byggð árið 1990 og
voru að grunnfleti tæpir 400 fer-
metrar og stóðu um 300 metra frá
íbúðarhúsinu á Stóru-Breiðuvík.
Aldrei var hætta á að eldurinn legð-
ist í það. Rannsóknarlögreglumenn
frá Eskifirði vörðu ásamt Halldóri
gærdeginum í að kanna eldsupptök,
en ekki var neitt komið fram sem
varpað gæti ljósi á þau.
Halldór sagði að ekki lægi ljóst
fyrir að hve miklu leyti hann fengi
tjónið bætt frá tryggingum.
„Skepnur og hey eiga að vera
tryggð, en óvíst er með húsin,“
sagði Halldór. „Dráttarvélin var
einnig tryggð og eitthvað af lausa-
dóti sem tilheyrði húsunum."
Halldór stundar eingöngu sauð-
fjárbúskap og missti allt sitt fé í
brunanum og hverfur því ekki að
neinni aukabúgrein.
Morgunblaðið/Golli
Stundaskránni breytt
KENNARAR og nemendur brutu
upp hefðbundna stundaskrá í
gær og héldu upp á dag íslenskr-
ar tungu á margvíslegan hátt.
^jfcNemendur Austurbæjarskóla
brugðu á leik í tilefni dagsins
eins og íjölmörg önnur skólabörn
víða um land.
■ íslensk tunga/6
Viðskiptaráðherra um söfnun kennitalna við kaup á hlut í FBA
Þvert á stefnu um
dreifða eignaraðild
FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð-
herra sagði í umræðum á Alþingi í
gær að ef það væri rétt sem fram
hefði komið í fjölmiðlum um helgina
að ákveðnir aðilar hefðu staðið fyrir
kennitölusöfnun í þeim tilgangi að
komast yfír stærri hlut í Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins (FBA) en
þeir annars gætu gengi það þvert á
stefnu ríkisstjórnarinnar um að ná
fram dreifri eignaraðild að bankan-
um. Ráðherra tók skýrt fram að á
þessu stigi málsins ætlaði hann
ekki að leggja mat á hvort þetta
hefði verið gert en sagði að ef svo
væri þá væri um alvarlegan hlut að
ræða.
„Eg hef spurst fyrir um þetta
mál hjá þeim sem ég tel að best
þekki til eins og hjá Fjárfestingar-
bankanum. Sjálfsagt hafa einhver
brögð verið að þessu. Eg ætla hins
vegar ekki að kveða upp neina
dóma hér á þessari stundu um það í
hversu miklum mæli þetta hefur
verið gert. Ég tel að þetta sé ekki
rétti tíminn vegna þess að það mun
koma í ljós á næstu dögum hvort
menn hafi verið í kennitölusöfnun i
þeim tilgangi að komast yfir stærri
hlut í FBA,“ sagði hann.
Verðmæti hverrar kennitölu
50-100 þúsund krónur
Jóhanna Sigurðai’dótth’, þingmað-
ur jafnaðarmanna, vakti athygli á
þessu máli í umræðum um fnimvarp
viðskiptaráðherra þess efnis að
heimilt verði að selja 51% hlutafjár
ríkissjóðs í bankanum á næsta ári.
Vitnaði Jóhanna í frétt Ríkisút-
varpsins um helgina þar sem sagði
að heimildir væra fyrir því að verð-
bréfamiðlarar hefðu samið við menn
um að skrá sig fyrir hámarkshlut í
FBA á genginu 1,4 en á móti héti
verðbréfafyrirtæki því að kaupa
hlutinn á hærra gengi.
Jóhanna vitnaði einnig í bréf sem
henni hafði borist og dreift hafði
verið til starfsmanna ákveðins verð-
bréfafyrirtækis, sem hún vildi ekki
nafngreina, en í því heimiluðu yfir-
menn fyrirtækisins undirmönnum
sínum að safna kennitölum til að
gera tilboð í FBA. Jóhanna skýrði
frá því að í bréfinu kæmi fram að
starfsmönnum væri heimilt að koma
með kennitölur sínar, fjölskyldu
sinnar eða aðila sem þeir treystu.
„Verðmæti hverrar kennitölu er
á bilinu 50.000 til 100.000 krónur,“
segir m.a. í bréfinu, að sögn Jó-
hönnu. Hún tók fram að hún teldi
að um óeðlilega viðskiptahætti væri
að ræða og að hún velti því óneitan-
lega fyrir sér hvort svokallaður kol-
krabbi væri þai-na á ferð til þess að
eignast FBA.