Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 268. TBL. 86. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Minnast ÞÚSUNDIR manna hafa komið að heimili rússnesku þingkon- unnar Galínu Starovojtovu, sem myrt var aðfaranótt laugardags, til að minnast hennar. Hefur morðið vakið mikla reiði og er jafnvel talið kunna að marka þáttaskil, þar sem almenningur sé búinn að fá nóg af ofbeldinu sem viðgangist. I gær hét Jevgem' Prímakov, forsætisráðherra landsins, því að gripið yrði til hertra aðgerða gegn glæpamönnum og reynt að draga úr öfgastefnu og spill- þingkonu ingu. Hann sagði hins vegar að ekki kæmi til greina að lýsa yfir neyðarástandi í landinu eins og kommúnistar hafa lagt til, svo að beita megi glæpamenn hörðu. Starovojtova verður lögð til hinstu hvflu í klaustri heilags Alexanders Nevskís en þar hvfla nokkrir ástsælustu listamenn Rússa, m.a. rithöfundurinn Fjodor Dostojevskí og tónskáld- ið Pjotr Tsjajkovskí. ■ Almenningur búinn að fá/26 Irakar segjast ekki reyna að hindra störf UNSCOM Sameinuðu þjóðunum, Washington, Bagdad, Prag. Reuters. ÍRAKAR vísuðu því á bug í gær að það að þeir neituðu að afhenda skjöl, sem vopnaeftirlitsnefnd Sam- einuðu þjóðanna (UNSCOM) óskaði eftú- í síðustu viku, væri tilraun til að hindra störf nefndarinnar. Nizar Hamdoon, sendiheiTa íraks hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði í gær að Irakar hefðu ekki frekari skjöl til reiðu sem „tengd- ust afvopnun", eftir að hann af- henti öryggisráði SÞ bréf frá Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráð- herra Iraks, þar sem hann skýrir hvers vegna Irakar neituðu að af- henda skjölin. í bréfinu sakar Aziz Richard Butler, yfn-mann UNSCOM, um að óska eftir skjölunum á þessum tíma til að tefja fyrir áformaðri út- tekt öryggisráðs SÞ á því hvernig Irak hafi framfylgt ályktunum ráðsins. Öryggisráðið féllst fyrr í þessum mánuði á að gera slíka út- tekt gegn því að Irakar tækju aftur upp samstarf við UNSCOM, en þeir vonast til að matið leiði til þess að olíusölubanni á þá verði aflétt. Jeremy Greenstock, sendiherra Bretlands hjá Sameinuðu þjóðun- um, sagði í gær að deilan vegna skjalanna myndi væntanlega seinka úttektinni. Butler varkár í ummælum Richard Butler var varkár í um- mælum um málið í gær, og sagði frekari viðræður og rannsóknir þurfa að fara fram áður en ákvörð- un væri tekin um viðbrögð. Madeleine Aibright, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að málið væri ekki þess eðlis að Irökum yrði gefinn ákveðinn frestur til að afhenda skjölin, það sem skipti máli væri að þeir sýndu vilja til samvinnu. William Cohen, varnarmálaráðhen-a Bandaríkj- anna, tók skýrt fram í gær að eng- in áform væru uppi um að beita hervaldi vegna málsins. Búist var við að öryggisráð SÞ ræddi deiluna um skjölin á fundi sínum í gær, og hvort framlengja ætti um hálft ár í viðbót leyfi Iraka til að selja ákveðið magn olíu til kaupa á matvælum og lyfjum. ■ Segja UNSCOM/25 Reuters Fimbulkuldi í A-Evrópu HEIMSKAUTAKULDI og hríðar- byljir gerðu mikinn usla í austur- hluta Evrópu í gær, umferð bif- reiða og lesta fór mjög úr skorð- um og rafmagnsleysi gerði íbúum ótalmargra smáþorpa Iífíð leitt. Telja sljórnarerindrekar að rekja megi íjölda dauðsfalla til mikils kuldaveðurs í Evrópu undanfarna viku, allt frá Frakklandi til Rúss- lands og Eystrasaltsríkjanna. Verst hefur ástandið verið í Póllandi og fyrrverandi lýðveld- um Sovétríkjanna, en þar hefur kuldinn farið langt niður fyrir þau mörk sem menn eiga að venj- ast á þessum árstíma - og eru menn þó ýmsu vanir. Fór frostið í Póllandi allt niður í 26 gráður á celsíus og frusu að minnsta kosti 37 menn til dauða í liðinni viku, en flestir þeirra munu hafa sofn- að áfengisdauða á víðavangi. Ovenju kalt, hefur einnig verið í Vestur-Evrópu og rekja menn fimm dauðsföll í Frakklandi til kuMatiðarinnar að undanförnu. Á myndinni má sjá tvo kosovo- albanska drengi sem þykja búa við afar slæm skilyrði í flótta- mannabúðum í úthverfi Sarajevo í Bosniu og hafa fengið að kenna illa á kuldunum undanfarna daga. ESB afléttir útflutningsbanni á brezkar nautakjötsafurðir Blair heitir að styðja endurheimt markaða Brussel, London. Reuters. BREZKIR nautgripabændur fögnuðu í gær mjög ákvörðun Evrópusam- bandsins (ESB) um að létta útflutningsbanni af brezku nautakjöti, en tals- menn þeirra sögðu ákvörðunina aðeins vera upphafið að nýrri og erfiðri baráttu fyrir að endurheimta fyiTÍ sess þessara afurða á erlendum mörkuð- um. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hét stuðningi stjórnvalda við það verkefni, tveimur og hálfu ári eftir að bannið tók gildi. A fundi landbúnaðarráðherra ESB-landanna fimmtán í Brussel í gær greiddi meirihluti þeirra at- kvæði með því að banninu skyldi aflétt. Með þessari ákvörðun er það nú í höndum framkvæmdastjómar- innar að aflétta banninu formlega. Þýzki landbúnaðarráðherrann var sá eini sem greiddi atkvæði á móti tillögunni. Fulltrúar Frakk- lands, Austurríkis, Lúxemborgar og Spánar sátu hjá. „Þetta er stórt framfaraskref,“ sagði Ben Gill, forseti brezku bændasamtakanna. Samkvæmt til- lögunni, sem ráðherramir sam- þykktu, verður útflutningur á nautakjöti frá Bretlandi leyfður aft- ur, en undir ströngum skilyrðum. Afurðirnar verða að vera beinlausar og af dýrum á aldrinum hálfs árs til 30 mánaða, og bornum eftir 1. ágúst 1996. Tony Blair lýsti mikilli ánægju með ákvörðun ráðherranna og hét bændum aðstoð stjómvalda við að endurheimta útflutningsmarkaði brezkra nautakjötsafurða, en slíkt tæki tíma. „Ríkisstjómin mun nú vinna að því að tryggja að við getum byggt aftur upp traust [neytenda á erlendum mörkuðum] á brezku nautakjöti," sagði Blair. Útflutningsbann ESB var sett í marz 1996 eftir að brezk stjórnvöld viðurkenndu að tengsl væru milli kúariðu og banvæna heilahrömun- arsjúkdómsins Creutzfeldt-Jakob (C JD). Yfir 30 manns hafa látizt úr CJD svo vitað sé. Yfir fjórum millj- ónum nautgripa hefur verið slátrað frá því bannið var sett í því skyni að reyna að hindra að kúariðusmit ber- ist út í fæðukeðjuna. Fyrirvarar vísindamanna Vísindamenn, sem hafa sinnt rannsóknum á kúariðu, lýstu í gær sumir hverjir efasemdum um rétt- mæti ákvörðunar ráðherranna, en dýralæknanefnd ESB mælti með takmörkuðu afnámi bannsins fyrr í mánuðinum. „Vandamálið er og hefur alltaf verið, að við vitum ekki hvaða naut- griph- eru sýkth- og hverjir ekki. Jafnvel þótt við höfum slátrað mikl- um fjölda þá er fjarri því að við get- um fullyrt að við höfum náð öllum þeím sýktu,“ sagði Stephen Dealer, sameindalíffræðingur við Burnley- sjúkrahúsið á N-Englandi. Dow Jones- vísitaian aldrei verið hærri New York. Reuters. MIKIL hækkun varð á verði hlutabréfa á Wall Street í New York í gær og er meginorsökin rakin til samruna stórfyrir- tækja. Hefur Dow Jones-vísi- talan aldrei verið hærri. Dow Jones-vísitalan hækk- aði í gær um 2,34% eða 214,72 stig og stóð í lok viðskipta í 9.374,27 stigum, sem er nýtt met. Hæst hefur hún áður staðið í 9.337,97 stigum við lok- un, en það var 17. júlí síðastlið- inn. Með hinu nýja meti lýkur fjögurra mánaða erfiðleika- skeiði, þar sem Dow Jones komst lægst niður í 7.400 stig 1. september. Vísitalan stóð og í 7.467 stigum 8. október en hefur risið síðan, eða um 1.900 stig á sex vikum. Alls skiptu 772 milljónir hluta um eigendur á Wall Street í gær. Verðbréf lækk- uðu lítilsháttar vegna hinnar miklu hækkunar á hlutabréfa- markaði. Dollarinn styrktist hins vegar bæði gagnvart jeni og þýska markinu. Nasdaq-vísitalan hækkaði um 2,55% í gær og stóð í 1.977,42 stigum í lok dagsins. Vantar hana 37 stig í að jafna það stig sem hún hefur hæst komist í, en það var 20. júlí síð- astliðinn. Hlutabréf hækkuðu um 2,2% í Þýskalandi í gær, 2,3% í Bretlandi og 1,1 í Frakklandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.