Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reiði í Rússlandi vegna morðsins á þingkonunni Galínu Starovojtovu
Almenningur búinn að fá
sig fullsaddan af ofbeldi
Reuters
FJÖLDI fólks hefur komið með blóm og kerti á stigapallinn þar sem Starovojtova var myrt.
Galína Starovojtova
galt fyrir skoðanir
sínar með lífí sínu.
Vera kann að dauði
þingkonunnar í Sankti
Pétursborg marki
þáttaskil í rússneskum
stjórnmálum.
REIÐI og sorg ríkir í Rússlandi
vegna morðsins á þingkonunni Ga-
línu Starovojtovu, sem var skotin við
heimili sitt aðfaranótt laugardags.
Þúsundir manna hafa komið að
morðstaðnum með blóm til að minn-
ast Starovojtovu, sem var einn ötul-
asti baráttumaðurinn fyi-ir lýðræði
og gegn kynþáttafordómum á rúss-
neska þinginu. Hafa margir lýst
þeirri skoðun sinni að morðið á þing-
konunni kunni að marka vatnaskil,
það hafi verið til marks um sívax-
andi ofbeldi í tengslum við stjórn-
mál, sem almenningur sé nú búinn
að fá sig fullsaddan af. Ekki er enn
vitað hverjir stóðu að baki morðinu
en ekki er talinn vafi á því að St-
arovojtova hafi goldið fyrir stjórn-
málaskoðanir sínar með lífi sínu.
Morðið bar öll merki leigumorðs,
Starovojtova og aðstoðarmaður
hennar, Rúslan Linkov, voru skotin í
stigagangi fjölbýlishússins sem hún
bjó í. Starovojtova var skotin í þrí-
gang í höfuðið og lést samstundis en
Linkov náði að hringja í útvarps-
fréttamann áður en hann missti
meðvitund. Hann er kominn til með-
vitundar að nýju en getur ekki tjáð
sig. Öflug öryggisgæsla er á sjúkra-
húsinu sem hann liggur á. Lögregla
telur að karl og kona hafi verið að
verki.
Ráðgjafi Jeltsíns
Starovojtova var sjötti rússneski
þingmaðurinn sem fellur fyrir morð-
ingjahendi á fimm árum. I hin skipt-
in var talið að um viðskiptadeilur
hafi verið að ræða en sú er hins veg-
ar ekki talin raunin með St-
arovojtovu. Hún var ötul baráttu-
kona fyrit' mannréttindum og barð-
ist hatrammlega gegn umburðar-
leysi, kynþáttahatri og þjóðernis-
hyggju og beindi spjótum sínum
einkum að meirihluta kommúnista
og öfgafullra þjóðernissinna, sem
fara með meirihluta í Dúmunni,
neðri deild rússneska þingsins.
Starovojtova fór til dæmis fremst
í flokki þeirra sem kröfðust þess að
þingið vítti þingmann sem lét niðr-
andi ummæli falla um gyðinga fyiT í
mánuðinum. Kallaði hún yfir sig
reiði og hatur margi-a andstæðinga
vegna óþreytandi baráttu sinnar.
Starovojtova var fædd árið 1946
og lærði sálfræði við háskólann í
Leníngrad. Hún tók sæti á fyrsta
lýðræðislega kjörna þinginu á ní-
unda áratugnum, í stjórnartíð Míka-
íl Gorbatsjov, síðasta leiðtoga Sovét-
ríkjanna. Var hún í hópi stuðnings-
manna mannréttindafrömuðarins
Andrejs Shakarov og studdi Borís
Jeltsín til valda. Er hann tók við for-
setaembættinu varð hún sérlegur
ráðgjafi hans í málefnum þjóðar-
brota.
Leiðir forsetans og Starovojtovu
skildi vegna stefnu Jeltsíns í Tsjet-
sjníjumálihu en forsetinn minntist
hennar engu að síður með hlýju um
helgina og kvaðst sjálfur myndu
hafa yfirumsjón með rannsókninni á
morðinu. „Hún var nánasti félagi
minn í baráttunni og aðstoðarmað-
ur. Skotin sem bundu enda á líf
hennar hafa sært alla Rússa sem
meta lýðræðishugsjónina einhvers."
Rússneskir stjórnmálamenn,
embættismenn og fjölmiðlamenn
hafa fordæmt morðið á Star-
ovojtovu, hvar svo sem í flokki þeir
eru. Vladimír Pútín, yfirmaður rúss-
nesku leyniþjónustunnar, sagði
TILLAGA um vantraust á tyrk-
nesku stjómina kom til umræðu á
þingi í gær og er búist við, að hún
verði samþykkt á morgun. Tyrk-
neskir fjölmiðlar sögðu í gær, að ný
samsteypustjórn miðflokkanna
myndi sitja fram að kosningum í
aprfl en að dagar Mesuts Yilmaz
sem forsætisráðherra væru taldir.
Stjörnuspá á Netinu
mbl.is
_/KLL.TAf= e/TTHV'A€í NÝTT
morðið vera svartan blett á sögu
rússnesku þjóðarinnar og „gera lítið
til að bæta ímynd landsins út á við“.
Aðrir hafa verið enn harðorðari
og fullyrt að morðið marki þáttaskil
í rússneskum stjórnmálum, þar sem
ofbeldi og glæpir eru ótrúlega al-
geng. „Það er útilokað að umbera
þetta lengur," sagði Grígorí Javl-
inskí, formaður hins frjálslynda Ja-
bloko-flokks. „Við getum ekki leng-
ur setið aðgerðarlaus gagnvart æ
uppivöðslusamari skríl. Við getum
ekki lengur látið eins og allt sé við
það sama.“
Ekki er ljóst hvað það var sem
virðist hafa fyllt mælinn hjá Rúss-
um. Sumir hafa bent á það að Star-
ovojtova hafi verið kona, aðrir nefna
vinsældir hennar og enn aðrir það að
fólk sé einfaldlega búið að fá nóg.
Kommúnistum kennt uin
Félagar Starovojtovu í stjórnmál-
um hafa kennt kommúnistum eða
öfgafullum þjóðernissinnum um
morðið og sagt það til marks um
Tyrkir tilkynntu um helgina, að
hætt yrði við vopnakaup á Italíu
vegna þess, að Italíustjóm hefði
neitað að framselja Kúrdaleiðtog-
ann Abdullah Öcalan.
I vantrauststillögunni er Yilmaz
borin á brýn mikil spilling og er al-
mennt gert ráð fyi'ir, að hún verði
samþykkt þegar hún kemur til at-
kvæða á miðvikudag. Var það meðal
annars haft eftir Bulent Ecevit, að-
stoðarforsætisráðherra, og því
nokkuð ljóst, að deilan við Itali um
Öcalan muni lifa stjórnina. Standa
að henni þrír flokkar og hafa þeir
ekki meirihluta á þingi.
Tyi’knesku blöðin sögðu í gær, að
Tansu Ciller, fyrrverandi forsætis-
ráðhema og andstæðingur Yilmaz,
hefði sent flokki hans blómvönd og
væri það skilið sem svo, að hún gæti
hugsað sér, að flokkar þeirra störf-
uðu saman. Það þykir líka styðja
hugsanlegt samstarf þeirra, að
þingnefnd ákvað í gær að vísa ekki
málum Cillers, sem einnig er sökuð
um spillingu, til hæstaréttar og
flokksbræður Yilmaz í nefndinni
studdu þá ákvörðun. Líklega myndu
„rauða ógn“. Gengu ásakanirnar svo
langt að innanríkisráðherrann
Sergej Stephasín boðaði til blaða-
mannafundar til að lýsa því yfir að
ekkert benti til þess að Gennadí Sel-
eznjev, forseti Dúmunnar, tengdist
þri á nokkurn hátt.
A síðustu mánuðum hafði St-
arovojtova varað við því að glæpa-
hópar reyndu nú með öllum ráðum
að komast inn í stjórnmálabaráttuna
í borginni. Sveitastjórnarkosningar
fara fram í næsta mánuði og hefur
það orðið æ algengara að glæpa-
menn reyni að komast á þing, eða í
borgar- og sveitarstjórnir, til að
njóta friðhelgi. Hefur baráttan fyrir
komandi kosningar í Sankti Péturs-
borg verið sögð hin grimmilegasta í
sögu Rússlands.
Sagði Starovojtova frá því í viðtali
í októbei' að stjórnmálamanni þar í
borg hefðu verið boðnar um 7 millj-
ónir ísl. kr. fyrir að hætta við fram-
boð. Sjálf hafði hún hug á því að
bjóða sig fram sem héraðsstjóri í
Leníngrad-héraði fyrir utan Sankti
hvorki Yilmaz né Ciller veita slíkri
stjórn forystu vegna fjandskapar-
ins, sem er með þeim, heldur trú-
lega leiðtogi þriðja flokksins, Bulent
Ecevit.
Þjóðverjar veigra sér
við framsalsbeiðni
Tyi'kneska stjórnin tilkynnti um
helgina, að hætt hefði verið við
vopnakaup á Ítalíu vegna Öcalan-
málsins en ítalskur dómstóll hefur
úrskurðað, að ekki mega framselja
hann til lands þar sem dauðarefsing
er við lýði. Öcalan er einnig eftir-
lýstur í Þýskalandi fyrir glæpi, sem
liðsmenn hans í Kúrdíska verka-
mannaflokknum eru taldir hafa
framið, en óvíst er, að Þjóðverjar
fari fram á, að hann verði framseld-
ur þeim. Hefur Öcalan beðið um
stuðning páfa við baráttu Iíúrda í
Tyrklandi fyi-ir sjálfræði.
Talsmenn löglegs, kúrdísks
stjórnmálaflokks í Tyrklandi hafa
skýrt frá því, að lögreglan hafi
handtekið nokkrar þúsundir fylgis-
manna hans síðan Ócalan var hand-
tekinn í Róm fyrir 11 dögum.
Tyrknesku stjórninni
spáð falli á morgun
Ankara. Reuters.
Morgunblaðið/Ásdís
Heimsótti
/
Island
MORGUNBLAÐIÐ átti viðtal við
Galínu Starovojtovu árið 1996
þar sem hún ræddi m.a. horfur
fyrir lýðræðið í Rússlandi og vax-
andi andúð á Vesturlöndum
vegna uppgangs öfgafullrar
þjóðernisstefnu og hruns komm-
únismans í Rússlandi. Starovoj-
tova sagði að menn á Vesturlönd-
um vildu ekki viðurkenna að þeir
litu á Rússa sem óvin sinn en það
skini samt í gegn með útþenslu
NATO allt að landamærum Rúss-
lands. Ræddi hún einnig um
heilsu Borís Jeltsíns, sem þá
hafði nýlega farið í hjartaaðgerð.
Pétursborg og talið var að hún íhug-
aði forsetaframboð árið 2000.
Kom til íslands 1996
Galína Starovojtova kynntist Is-
lendingum sem reka fyriitæki í
Sankti Pétursborg vel, og kom hún á
þeirra vegum til Islands um jólin
1996. Björgólfur Thor Björgólfsson,
sem rekur drykkjarvörufyrirtæki í
borginni segir Starovojtovu hafa
verið afar hjálplega sem þingmaður
kjördæmisins sem fyrirtækið er í.
„Hún vann lengi á bak við tjöldin en
var nýlega farin að láta að sér
kveða. Hún var ekki aðeins góður
stjórnmálamaður, heldur einnig vel
menntuð, vel gefin og síðast en ekki
síst afskaplega góð manneskja. Hún
hafði til að bera það sem vantaði í
rússnesk stjórnmál og þá gerist
þetta,“ segir Björgólfur.
Starovojtova hafði lýst áhuga á
því að upplifa íslensk jól og kom í
hans boði til íslands jólin 1996. Átti
hún þá óformlega fundi með ýmsum
ráðamönnum.
Kemur vel
ávondan
Istanbul. Reuters.
TYRKNESKIR framleiðendur
alls konar varnings hafa lengi
stundað það að kalla hann
ítölskum nöfnum, áþekkum
frægum vörumerkjum, til að
villa um fyrir löndum sínum og
gefa framleiðslunni meiri glans.
Er þetta að sjálfsögðu ólöglegt
og nú hefur þessi óheiðarleiki
komið í bakið á framleiðendun-
um sjálfum vegna Öcalan-máls-
ins;
ítalir hafa neitað að framselja
Kúrdaleiðtogann Abdullah Öcal-
an og Tyrkir eru æfír, jafnt al-
menningur sem stjórnvöld. Hef-
ur fólk verið hvatt til að snið-
ganga ítalskar vörur og hvað
skyldi svo sem vera ítalskara en
Bentini-skyrtur og Alpacino-leð-
urvörur. Þær eru raunar tyrk-
neskar og framleiðendur þeirra
reyna nú að koma því á fram-
færi í fyrsta sinn, að þær eigi
ekkei-t skylt við Ítalíu þrátt fyrir
nafnið. Framleiðendur Bellona-
sófa birtu til dæmis stóra aug-
lýsingu í tyrkneskum dagblöð-
um þar sem þeir sóru af sér allt
samband við ítalska tísku.