Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Dr. Michael Corgan, sérfræðingur í öryggismálum, telur litlar líkur á að varnarliðið verði kvatt brott Breytingar í Keflavík hafa ekki áhrif á skuldbindingu Dr. Michael T. Corgan er sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum og hefur beint rannsóknum sínum að Islandi. Hann kvaðst í viðtali við Karl Blöndal vera þeirr- ar hyggju að þótt kalda stríðinu væri lokið væri Island enn mikilvægt og táknrænt gildi þess að hafa varnarliðið hér á landi væri slíkt að Bandaríkjamenn myndu ekki íhuga að kalla það heim á næstunni. Hann flytur fyrirlestur um Island og bandaríska öryggishagsmuni eftir lok kalda stríðsins í hátíðarsal Háskólans klukkan 17.15 í dag. BANDARÍKJAMENN leggja í stefnu sinni í öryggismálum höfuðá- herslu á að viðhalda þeim bandalög- um, sem þeir eru aðilar að. Dr. Michael T. Corgan er prófessor við Boston-háskóla á sviði sagnfræði og alþjóðastjórnmála og sagði hann í samtali við Morgunblaðið í gær að sú stefna tæki til Islands eins og annarra bandamanna Bandaríkja- manna. Þótt breytingar yrðu á sam- setningu varnarliðsins mætti ekki túlka það sem breytingu á skuld- bindingu varnarsamningsins og að- ildarinnai- að NATO. Togstreitan milli þings og forseta Corgan er staddur hér á vegum Willard Fiske-stofnunarinnar á Is- landi og flutti í gær fyrirlestur und- ir heitinu „Hver mótar utanríkis- stefnu Bandaríkjanna?" á vegum Félags stjórnmálafræðinga og talar í hátíðarsal Háskóla Islands klukk- an 17.15 í dag um ísland og banda- ríska öryggishagsmuni eftir lok kalda stríðsins á vegum Sagn- fræðiskorar Háskólans. Corgan var í bandaríska sjóhernum og var hér á landi 1981 til 1982. Doktorsritgerð hans fjallaði um íslensk stjórnmál og öryggismál á níunda áratugnum. Hann fjallaði í gær um togstreit- una milli þings og forseta í utanrík- ismálum og tengdi það þeim málum, sem nú standa yfir vegna sambands Bills Clintons Bandaríkjaforseta við Monicu Lewinsky. „Sú barátta sem nú á sér stað um það hvort svipta eigi forsetann emb- ætti er að hluta til tengd baráttu, sem staðið hefur undanfarin 200 ár milli þings og forseta um það hvor eigi að ráða meiru um utanríkis- stefnuna," sagði hann. „Þingið er ávallt að reyna að taka frá forsetan- um vald, sem hann hefur tekið til sín þegar neyðarástand hefur ríkt eða stríð.“ Corgan sagði að eftir að kalda stríðinu lauk hefði mátt eiga von á því að þingið reyndi að ná aftur til sín völdum forsetans eða takmarka þau burtséð frá því hvaða flokkur væri þar í meirihluta og hvort það væri flokkur forsetans eða ekki. Það væri hluti af myndinni, en einnig væru repúblikanar að hefna fyrir það að á sínum tíma þegar demóki-atar voru í meirihluta hefði dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkt að hefja umfjöllun um það hvort setja ætti Richard Nixon forseta af. Þá hefði hugmyndafræði Repúblikanaflokks- Morgunblaðið/Þorkell Dr. Michael T. Corgan ins og andúðin á Clinton örugglega sitt að segja. Ekki of mikið vald til einstak- linga og einstakra hópa í fyrirlestri sínum í gær sagði Corgan að í stjómarskrá Banda- ríkjanna væri meðal annars fjallað um það að stjómvaldið þyrfti að vera valdamikið, en einstaklingar og einstakir hópar innan þess mættu ekki verða of valdamiklir. „Því var ákveðið að deila völd- um,“ sagði Corgan. „Oft er talað um aðskilnað valdsins, en það er ekki rétt. Valdinu er deilt og allir geta lagt sitt af mörkum. Það er aðeins þáttur valdsins, sem aðeins einn hluti stjómvaldsins hefur og hann liggur hjá forsetanum. Hann getur náðað hvern sem honum sýnist. En það er enginn hluti stjórnsýslunnar sem er utan valdsviðs annað hvort þings eða forsetaembættisins." Hann sagði að þetta gerði það vandkvæðum bundið að reka utan- ríkisstefnu, nema um væri að ræða neyðarástand. „Þá getur forsetinn tekið völdin,“ sagði hann. „En um leið og neyðará- standið er afstaðið getur þingið tek- ið völdin til sín aftur.“ Corgan hyggst í dag fjalla um Is- land og Bandaríkin og mótun bandarískrar öryggisstefnu. Ný áhersla á mikilvægi bandalaga „I Bandaríkjunum er verið að reyna að horfa fram í tímann í ör- yggismálum," sagði hann. „Eins og stendur eru ísland og önnur ríki Atlantshafsbandalagsins dæmi um það að stefnan hafí gengið upp. Sambandið við Evrópu er sterkt. Bandaríkjastjórn hefur gefíð út skjal, sem ber heitið Sameiginleg sýn fyrir árið 2010, og þar stendur að það séu ákveðnir hlutir, sem þarf að halda við. Það fyrsta, sem þar er nefnt, er að styrkja þurfi þau bandalög, sem Bandaríkjamenn eiga aðild að. Það er nýtt, ef eitt- hvað er að marka reynslu mína úr hernum, að í skjali um stefnu skuli bandalög vera nefnd í upphafi. Þetta er ný áhersla og það segir mér að þau bandalög, sem Banda- ríkjamenn eiga aðild að - og þar er Island meðtalið - muni áfram verða hátt skipuð og það sé ætlun Banda- ríkjamanna að viðhalda þessum bandalögum eins og verið hefur, sem bandalögum ríkja, sem hafa samráð. Þetta er ekki spurning um alvalda Bandaríki eins og sumir hafa sagt og ýmsir stjómmálamenn og hermálaskýrendur eiga eftir að halda fram.“ Corgan benti á að nú væru ýmsir þættir að bætast við skilgreining- una á öryggismálum. Umhverfismál væru farin að vega þungt, en hefðu ekki gert það áður. Efnahagsmál hefðu alltaf skipt máli, en nú væri vægi þeirra enn meira. Þá væri ákveðið gildismat um það hvernig hlutirnir ættu að ganga fyrir sig í heiminum hluti af þessu. Upplýsingabyltingin tekur við af iðnbyltingunni „Ég vitna í Eisenhower, sem sagði að öryggi þjóðar sé fólgið í hernaðargetu, efnahagsástandi og gildum. Þessir þættir legðust ekki saman heldur væri margfeldissam- band milli þeirra og vantaði einn þeirra algerlega væri útkoman núll. Nú er lykillinn að efnahagslegri vel- gengni í Bandaríkjunum sem og öðrum vestrænum ríkjum, þar á meðal Islandi, upplýsingar. Upplýs- ingabyltingin hefur breytt öllu, eðli þjóðfélaga er að breytast og það er að taka við næsta stig á eftir iðntím- anum. Helsti styrkur Bandaríkja- manna í efnahagsmálum verður einnig helsti hernaðarstyrkurinn. Þar á ég við yfirburði í öflun upplýs- inga, dreifingu þeirra og greiningu. Ef einhver reynir að ráðast á Island verður það ekki með eldflaugum heldur verður ráðist á bankakerfið. Það er veiki hlekkurinn. Öryggis- stefna framtíðarinnar verður í þessu samhengi." Corgan sagði að þótt dregið hefði úr hemaðarvægi íslands væri ekki loku íyrir það skotið að staðan breyttist á ný og bætti við að óþarfi væri að leggja niður slökkviliðið þótt lítið væri um elda. „Island hafði hernaðargildi þegar ógn stafaði úr norðri," sagði hann. „Hún er ekki fyrir hendi að sama skapi og áður, en komi hún fram á ný verður hún af því tagi að hægast verður að kljást við hana á upplýs- inganótunum. Þar með verður ekki sagt að aðrir þættir hætti að skipta máli, en þeir verða ekki aðalatriðið í öryggismálum og vörnurn." Munu vilja viðhalda varnarliðinu Corgan sagði að þótt af og til heyrðust yfirlýsingar stjórnmála- manna í Bandaríkjunum um að loka ætti herstöðvum erlendis og kveðja hermenn heim væri ólíklegt að her- stöðinni á Islandi yrði lokað að frumkvæði Bandaríkjamanna. „Ég held að völlurinn hafi mikið táknrænt gildi bæði vegna tvíhliða samnings Islands og Bandaríkjanna frá 1951 og aðildarinnar að Atlants- hafsbandalaginu," sagði hann. „Ég held að Bandan'kjastjóm og aðrir bandamenn geri sér grein fyrir táknrænu gildi skuldbindingarinnar gagnvart hinum ýmsu löndum og mikilvægi þeirra. Ég sé því ekki fyr- ir mér að á næstunni muni banda- rísk stjómvöld hneigjast til þess að vilja loka stöðinni heldur muni þvert á móti vilja viðhalda henni. Hvað kostnað og endurskipulag vai'ðar verður slíkt að breytast í hernum. En her má ekki staðna og sá her, sem alltaf hefur sömu liðskipan, er að biðja um ósigur. Þannig að mér sýnist sambandið standa styrkum fótum og ákvarðanir um það hvort vélamar verða 18 eða fjórar eða málaðar grænar eða bláar em tæknilegar og gefa ekki til kynna að eðli bandalagsins sé að breytast." Engin niður- staða í Noregi ENGIN niðurstaða varð af neyð- arfundi Kirsti Kolle Grpndahl, forseta norska Stórþingsins, með leiðtogum þingflokkanna í gær og stefnir því enn sem fyrr allt í stjómarkreppu síðar í vikunni því stjórn miðflokkanna hefur enn ekki tekist að fá meirihluta- stuðning við fjárlög sín sem leggja á fram á fimmtudag. Landsfundur Verkamanna- flokksins var haldinn um helgina og var greinilegt á ræðum for- mannsins, Thorbjorns Jaglands, að flokkurinn stefnir á að taka við stjómartaumunum á næstu vikum. Fór Jagland hörðum orð- um um dugleysi núverandi stjórnar en lét hins vegar ekki styggðaryrði falla um Hægri- flokkinn, sem Verkamannaflokk- urinn vonast til að muni styðja stjóm sína. Ahern vekur reiði n-írskra sambandssinna Spáir sameiningu Irlands innan tíðar Dublin. The Daily Telegraph. BERTIE Ahern, forsætisráðherra Irlands, sagði á sunnudag að hann ætti von á því að írland og Norður- Irland myndu sameinast í hans lífs- tíð. Sagði Ahern í útvarpsviðtali að það ferli sem sett var í gang með samþykkt Belfast-samkomulagsins í þjóðaratkvæðagreiðslu í maí myndi á endanum verða til þess að írland sameinaðist. Spáði Ahern annairi þjóðaratkvæðagi'eiðslu í kringum 2018 þar sem kosið yrði um samein- ingu. Þessi ummæli Aherns vöktu mikla reiði meðal sambandssinna á N-Ir- landi sem ekki mega heyra minnst á sameiningu Irlands, heldur halda SILFURBUÐIN Kringlunni • S: 568 9066 - aÍSeÍns betri - hátt á lofti stöðu N-Irlands sem hluta af Bretaveldi. Sögðu frétta- skýrendur í gær að ummælin væru líkleg til að gera stöðu Davids Trimbles, leiðtoga stærsta flokks sambandssinna (UUP) og verðandi forsætisráðherra á N-Irlandi, enn erfiðari því Trimble sagði er hann ákvað að skrifa undir samkomulagið að hann teldi að með því væri sam- bandið við Bretland tryggt. Það var hins vegar skoðun lýð- veldissinnans Gerrys Adams, leið- toga Sinn Féin, að samningurinn væri skref í átt að sameiningu Ir- lands og nú hefur Ahern í reynd, tekið undir þá túlkun Adams. Auk þess að hafa reitt sambands- sinna til reiði þykir líklegt að um- mæli Aherns varpi skugga á sögu- lega heimsókn Tonys Blairs, forsæt- isráðherra Bretlands, til írlands í þessari viku en Blair mun ávarpa írska þingið í Dublin á fimmtudag, fyrstur breskra forsætisráðherra. Hefur áður verið haft eftir Blair að hann búist ekki við því að sjá írland sameinað á sinni ævi. Bandaríkin íhuga einhliða fækkun kjarnorkuvopna New York. Reuters. BANDARÍSKA varnarmálaráðu- neytið hefur svo lítið bæri á lagt til að Bandaríkjamenn íhugi að skera einhliða niður í kjarnorkuvopnabúri sínu, vegna minnkandi ógnar við þjóðaröryggi í heiminum og í sparn- aðarskyni. Frá þessu greindi The New York Times í forsíðufrétt í gær. Sá niðurskurður sem lagður hefur verið til, að sögn heimildarmanna blaðsins innan bandarísku stjórn- sýslunnar, gengur út á að fækka kjarnaoddum niður fyrir þau 6.000 stykki, sem aðilum START I-samn- ingsins er heimilt að eiga, en sá samningur var gerður á meðan kalda stríðið stóð enn sem hæst. í START II-samningnum, sem undirritaður var árið 1993, sömdu Bandaríkjamenn og Rússar um að fækka kjarnaoddum sínum niður í 3.000-3.500. Rússneska þingið hefur hins vegar ekki enn staðfest samn- inginn og því hefur hann ekki getað tekið formlega gildi. Að sögn heimildarmanna New York Times mun hinn einhliða nið- urskurður ekki hafa nein áhrif á fæl- ingarmátt kjarnorkuvopnabúrs Bandaríkjanna. En með töfinni á gildistöku START II standa banda- rísk varnarmálayfirvöld frammi fyr- ir því að þurfa að verja hundruðum milljóna dollara í að viðhalda og hugsanlega endurnýja kjarnorku- vopn sem þau höfðu gert ráð fyrir að lóga. Varnarmálaráðuneytið mun í apríl síðstliðnum hafa lagt háleynilega skýrslu fyrir fulltrúadeild þingsins, þar sem útlistaðar voru níu tillögur að einhliða niðurskurði kjarnorku- vopnabúrsins. Háttsettur embættis- maður Hvíta hússins tjáði New York Times að hvorki Bill Clinton forseti né William Cohen varnar- málaráðherra hefðu tekið ákvörðun um tillögur varnannálaráðuneytis- ins og þeir myndu heldur ekki gera það fyrr en rússneska þingið, þar sem kommúnistar hafa mest að segja, lýkur síðustu lotu umræðna um START Il-samninginn.__________
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.