Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Yfír fimm hundruð manns á flokksþingi Framsóknarflokksins Finnur sigraði Siv með 63% atkvæða Finnur Ingólfsson hafði betur í baráttu við Siv Friðleifsdóttur um embætti varafor- manns í Framsóknarfiokknum. Finnur var að styrkja stöðu sína þá daga sem flokks- þing flokksins stóð yfír og sigur hans varð á endanum öruggur. Egill Ólafsson fylgd- ist með aðdraganda kosningarinnar og viðbrögðum frambjóðenda við úrslitunum. FRÁ flokksþingi Framsóknarflokksins seni fram fór um síðustu helgi. Morgunblaðið/Porkell HALLDÓR Ásgrímsson óskar Finni Ingólfssyni til hamingju. FINNUR Ingólfsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, sigraði Siv Friðleifsdóttur alþingismann í varaformannskjöri á flokksþingi Framsóknarflokksins. Finnur fékk 343 atkvæði eða 62,8% atkvæða, en Siv fékk 197 atkvæði eða 36,1%. 549 greiddu atkvæði. Þegar úrslit- in lágu fyrir sagði Halldór As- grímsson, formaður Framsóknar- flokksins, að mikil verkefni biðu- þeirra beggja í framtíðinni fyrir flokkinn. Þegar úrslitin lágu fyrir ávarp- aði Finnur Irigólfsson flokksþingið. Hann sagði að á seinni árum hefði verið lítið um tvísýnar kosningar um ábyrgðarstörf í Framsóknar- flokknum. Kannski of lítið því heil- brigð og drengileg átök settu gjarnan þau mál og áherslur í brennidepil sem frambjóðendur stæðu fyrir. „Margir sem um varaformanns- kjörið hafa tjáð sig við mig hafa harmað að hafa ekki átt þess kost að velja okkur bæði til starfsins. Því erum við bæði í raun sigurveg- arar í þessum kosningum. Ég tel að flokksþingsfulltrúar hafi sýnt að þeir óska eftir að við bæði tvö getum leikið lykilhlutverk fyrir Framsóknarflokkinn á vegferð hans inn í næstu öld. Aðeins bæj- arlækur skilur kjördæmi okkar að. Eftir það veganesti sem flokksþingið hefur gefið okkur báðum ættum við að geta haft for- ystu um að efla og treysta stöðu Framsóknarflokksins og leiða hann til stórkostlegs sigurs á suð- vesturhorninu í komandi alþingis- kosningum,“ sagði Finnur. Siv ávarpaði einnig þingið og þakkaði þann góða stuðning sem hún fékk í kjörinu. Hún sagðist hafa fengið mikla hvatningu frá stuðningsmönnum sínum. „Ég óska nýkjömum varafor- manni til hamingju með kjörið og ég vona af einlægni að við getum átt gott samstarf eftir þetta. Að loknu þessu flokksþingi mun ég vinna áfram og af enn meiri krafti en fyrr að því að efla fylgi okkar, bæði í Reykjaneskjördæmi og um hinar dreifðu byggðir landsins. Það eni afar mikilvægar kosningar framundan í vor og það er því brýnt að framsóknarmenn þjappi sér saman til sóknar," sagði Siv. Sigur Finns ljós þegar leið á þingið Stuðningsmenn Finns og Sivjar unnu af miklum krafti á flokksþing- inu að því að afla sínum mönnum stuðnings. Fyiir þingið hafði Siv rætt við fjölda þingfulltrúa og það var mál margra að hún væri að vinna á. Skiptar skoðanir voru um hvort hún ætti raunhæfa möguleika á sigri, en það var þó greinilegt eftir að þingið byrjaði að stuðningsmenn Finns lögðu gríðarlega áherslu á að tryggja honum sigur. Þeir lögðu m.a. áherslu á að það yrði mikið áfall fyrir Framsóknarflokkinn ef ráðherra flokksins yrði hafnað í varaformannskjöri. Andstæðingar flokksins myndu notfæra sér það, ekki síst í Reykjavík þar sem miklu skipti fyrir hann að styrkja stöðu sína. Stuðningsmenn Sivjar sögðu að þessi áróður, sem þeir kölluðu hræðsluáróður, hefði haft áhrif á marga þingfulltrúa sem voru óá- kveðnir eða haft höfðu uppi góð orð um stuðning við Siv. Það bendir því margt til þess að Finnur hafi verið að styrkja stöðu sína þá daga sem flokksþingið stóð yfir. Stuðningsmenn Finns notfærðu sér einnig þau rök á þingfulltrúa úr tilteknum kjördæmum, að ef Siv yrði varaformaður yrði hún óhjá- kvæmilega fremst á bekk þeirra sem bíða eftir ráðherrasæti. Þar með myndi Guðni Agústsson og Valgerður Sverrisdóttir ekki verða ráðherrar í næstu ríkisstjórn. Siv virtist eiga meiri stuðning meðal ungi-a framsóknarmanna en Finnur. Siv fékk hins vegar ekki afgerandi stuðning frá konum í flokknum. Nokkra athygli vakti af- dráttarlaus stuðningsyfirlýsing Signínar Magnúsdóttur borgar- fulltrúa við Finn á fundi þingfull- trúa úr Reykjavík, sem haldinn var á laugardag. Fleiri áhrifakonur í Framsóknarflokknum studdu Finn þó að þær létu stuðninginn ekki op- inberlega í ljós. Á laugardeginum fór ekki milli mála að allt útlit var fyrir örugg- an sigur Finns. Stuðningsmenn Sivjar breyttu þá dálítið um bar- áttuaðferð og sögðu í samtölum við þingfulltrúa að þeir gerðu sér grein fyrir að orrustan væri töp- uð, en það væri hins vegar mikil- vægt að Siv fengi ekki slæma kosningu. Staða Siyjar styrktist Almennt má telja að Siv hafi styrkt stöðu sína í flokknum á flokksþinginu. Halldór Ásgríms- son þakkaði henni sérstaklega fyr- ir hversu drengilega hún tók úr- slitunum og hann tók fram að frambjóðendanna beggja biðu mikil verkefni fyrir flokkinn í framtíðinni. Nafn Sivjar var nefnt fyrir fjórum árum þegar Fram- sóknarflokkurinn valdi ráðherra til setu í ríkisstjórninni. Nafn hennar mun án efa koma aftur upp í vor sem ráðherraefni ef flokkurinn verður aðili að ríkisstjórn. Það fer þó ekki milli mála að andstaða er við að Siv fái svo skjótan frama innan flokksins. Eitt af því sem var notað gegn henni á flokksþinginu var að hún væri ung og gerði of miklar kröfur um frama í flokkn- um. Sú spurning hlýtur hins vegar að vakna hvort það geti ekki komið niður á fylgi flokksins ef hann ætl- ar að halda niðri sterkum stjórn- málamönnum eins og Siv óneitan- lega er. Sigur Finns í varaformanns- kjörinu er mikilvægur fyrir hann og styrkir hann sem framtíðar- leiðtoga. Líklegt má telja að sig- urinn hjálpi honum að ná aftur því trausti sem hann naut í upp- hafi kjörtímabilsins meðal kjós- enda, en nýleg skoðanakönnun leiddi í ljós að hann nýtur minnstra vinsælda ráðherra ríkis- stjórnarinnar. Átök um umhverfismál á þingi framsóknarmanna HÖRÐ átök og miklar umræður urðu um umhverfismál á flokks- þingi Framsóknarflokksins. Ólafur Órn Haraldsson alþingismaður vildi að í ályktun um umhverfismál yrði þess krafist að Fljótsdalsvirkjun færi í umhverfismat, en því var hafnað í umhverfisnefnd þingsins. Steingrímur Hermannsson, fyrr- verandi formaður Framsóknar- flokksins, lýsti yfir stuðningi við að Fljótsdalsvirkjun færi í umhverfis- mat. Talsverðar deilur urðu í umhverf- isnefnd flokksþingsins og dróst fram að hádegi á sunnudag að ganga frá ályktun í umhverfismál- um. Ólafur Örn og Ólafur Magnús- son, formaður Sólar í Hvalfirði, lögðu mikla áherslu á að í ályktun- inni yrði þess krafist að Fljótsdals- virkjun færi í lögformlegt umhverf- ismat. Þeir féllu hins vegar frá þessari kröfu þegar sýnt þótti að hún myndi ekki ná fram að ganga í nefndinni. Hvorugur deiluaðila munu hafa talið það sér í hag að láta fara fram atkvæðagreiðslu á þinginu um þetta mál. Niðurstaðan varð því sú að ekki var minnst á Fljótsdalsvirkjun í ályktuninni, en áhersla lögð á að endurskoðun laga um umhverfismat verði lokið á kjörtímabilinu. Steingrímur Hermannsson sagði í umræðunum að hann harmaði að ekki skyldi hafa náðst fram að Fljótsdalsvirkjun færi í umhverfís- mat. Hann sagðist ekki skilja að það væri neitt að óttast í sambandi við umhverfismatið. Hann fagnaði hins vegar öðrum áherslum flokksins í umhverfismálum og hvatti flokks- menn að taka forystu í þessum málaflokki. Hann minnti á að flokk- urinn hefði haft forystu í umhverfis- málum allt frá því að Eysteinn Jónsson var formaður Framsóknar- flokksins. Fyrr á þinginu vék Halldór Ás- grímsson, formaður Framsóknar- flokksins, að deilum um virkjana- mál. Hann sagði að ef menn vildu ekki virkja á hálendinu yrði að virkja í byggð. Hann sagðist þó ekki vera sannfærður um að betur gengi að ná samkomulagi um að virkja þar. Hann sagði að á sínum tíma hefði verið gerð sátt um Eyjabakka og kvaðst telja að það ætti að standa við hana. Halldór vill undirrita Kyoto-bókunina I umhverfisnefnd var einnig mik- ið rætt um hvort Island ætti að ger- ast aðili að Kyoto-bókuninni. Niður- staðan varð sú að ekki var tekin af- dráttarlaus afstaða til þess hvort Is- land ætti að undirrita hana, en lögð áhersla á að stjórnvöld meti kosti og galla þess að undirrita bókunina fyrir 15. mars nk. Halldór Ásgrímssfjn Iýsti því yfir að hann teldi að ísland ætti að stefna að því að undirrita Kyoto- bókunina og taka þannig þátt í að deila byrðum af mengun heimsins. Umhverfisráðherra væri nú að láta meta kosti og galla við það að undir- rita bókunina. Halldór lagði hins vegar áherslu á sérstöðu íslands varðandi nýtingu endurnýjanlegra orkulinda _og benti á að 2/3 orku- notkunar íslendinga kæmu frá end- urnýjanlegum orkulindum. Það land sem kæmi næst á eftir íslandi fengi 16% orku sinnar frá endurnýjanleg- um orkulindum. Steingrímur fagnaði yfirlýsingu Halldórs um Kyoto-bókunina og sagði mikilvægt að Halldór hefði ekki tekið undir yfirlýsingar Davíðs Oddssonar um bókunina, en Davíð hefur sagt að ísland ætti ekki að undirrita hana. Halldór sagðist ætla að beita sér fyrir því á vettvangi Norðurlanda- samstarfsins að komið verði á skipulögðu samstarfi frjálsra fé- lagasamtaka sem starfa að um- hverfismálum. í umhverfisályktun- inni var lögð áhersla á mikilvægi frjálsra félagasamtaka. Þetta mun vera hluti af samkomulagi sem gert var í umhverfisnefnd um að ekki yrði minnst á Fljótsdalsvirkjun í umhverfisályktuninni. Kosningar á þingi framsóknarmanna Halldór fékk 97,6% atkvæða HALLDÓR Ásgi-ímsson var endurkjörinn formaður Fram- sóknaifiokksins á flokksþingi flokksins. Hann fékk 519 at- kvæði sem voru 97,6% at- kvæða. Ingibjörg Pálmadóttir var endurkjörin ritari með 90,3% atkvæða. Unnur Stef- ánsdóttir var endurkjörin gjaldkeri með 86,6% atkvæða. Varamenn þeirra voru einnig endurkjörnir. Drífa Sigfús- dóttir var endurkjörin vararit- ari með 80,2% atkvæða og Þuríður Jónsdóttir varagjald- keri með 77,8% atkvæða. Við kjör í miðstjórn Fram- sóknarflokksins fékk Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópa- vogi, flest atkvæði, en næstir komu Ari Teitsson, formaður Bændasamtakanna, og Jón Sveinsson hæstaréttarlögmað- ur. Af 25 aðalmönnum í mið- stjóm eru 9 konur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.