Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR m-n - > x ^ i • ÞIÐ eruð bara svindlarar hérna fyrir norðan, þú ert bara kasólétt plat jólasveinakerling góða... Vikurnám fyrirhugað við Snæfellsjökul SKIPULAGSSTOFNUN hefur hafíð frumathugun á umhverfisá- hrifum vikurnáms við Snæfellsjök- ul. Nesvikur ehf. fyrirhugar vikur- nám á svonefndu Jökulhálssvæði austan Snæfellsjökuls og Harða- balasvæði að norðanverðu. Nesvik- ur hyggst vinna vikur til útflutn- ings og til frekari úrvinnslu í fram- tíðinni. Fyrirhugað er að leggja tvo nýja vegi sem eiga að auðvelda flutningana og koma upp athafna- svæði á Breið á bökkum Hólm- kelsár suður af Rifi. I mati Skipulagsstofnunar á um- hverfisáhrifum framkvæmdarinn- ar segir m.a. að vikursvæðin á Jök- ulhálsi séu að mestu ógróin. Landslagsáhrif eru ekki talin verða veruleg nema helst þar sem jökulgarður úr vikri verður allur unninn. Á Harðabalasvæðinu er meginbreytingin á útliti lands talin stafa af því að meira verður af ljós- um vikri á yfirborði og landið því ljósara á litinn þar sem vikur hefur verið numinn. Truflun af námu- vinnslunni og flutningum er eink- um talin hafa áhrif á gangandi ferðamenn. Nýjar ökuleiðir við jökulinn Fyrirhugað er að tengja vikur- vinnslusvæðin með vegi frá Geld- ingafelli að Harðabala. Kostirnir eru taldir styttri flutningavega- lengd, vikurflutningar fara ekki í gegnum Ólafsvík eða eftir vegi frá Ölafsvík upp á Jökulháls og að flutningar færast fjær vatnsvemd- unarsvæði. Vegurinn opnar nýja ökuleið meðfram jöklinum að norð- anverðu. Ókostir eru taldir þeir að farið er um tiltölulega ósnortið land. Þá er fyrirhugað að leggja nýjan veg frá Klukkufossi að at- hafnasvæði á Breið. Kostirnir eru taldir styttri flutningavegalengd og að vikurflutningar fara hvorki um þéttbýli á Hellissandi og Rifi né um þjóðveg. Vegurinn opnar nýja ökuleið frá Rifi um Dýjadal og upp að Jökulhálsi. Ókostir eru taldir þeir að farið er um ósnortið land. Samkvæmt frummatsskýrslu er talið að hægt sé að koma í veg fyr- ir verulega sjónmengun af mann- virkjum og efnishaugum með því að velja staðsetningu vel. Almenningi gefast fimm vikur til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir sem eiga að berast Skipulagsstofnun eigi síðar en 28. desember 1998. F í jólaeldhúsið Rautt og grænt með skoskum skáböndum. Diskamottur 490 kr., pottaleppar 280 kr. stk., grillhanski 500 kr., stólsessa 590 kr., svunta 1.500 kr., kappi 930 kr., efni 660 kr. Einnig nýkomið loð-fleece á 1.495 kr. m. 1 Ö -búðirnar Örugg verndun persónuupplýsinga Ástæða til að breikka umræðuna •• Orugg verndun per- sónuupplýsinga er yfírskrift ráðstefnu sem haldin er í dag, þriðju- daginn 24. nóvember, á Hótel Loftleiðum. Ráð- stefnan er haldin á vegum Skýrr hf. Hrafnkell V. Gíslason er framkvæmda- stjóri þjónustudeildar hjá Skýrr. „Nálgunin í umræðunni um miðlægan gagnagrun á heilbrigðissviði hefm’ aðal- lega snúist um einn þátt sem snýr að verndun per- sónuupplýsinga, þ.e. dulrit- un. Við viljum á hinn bóg- inn breikka þessa umræðu. Okkur fínnst ástæða til að líta á öryggismál og per- sónuvernd í víðara sam- hengi en gert hefur verið. Það eru til faglegar leiðir til að nálgast þetta verk- efni og leysa með góðum ár- angri.“ Hrafnkell segir að dulritun sé vissulega öflug leið til að tryggja tiltekna þætti í persónuvernd. En hann segir að það þurfi fleira að koma til eins og stjórnunarlegar aðferðir þ.e. hver heimilar aðgang að upplýsingum, hver ber ábyrgð og hver tekur ákvörðun um hver gerir hvað.“ Þá segir Hrafnkell að nákvæma lýsingu þurfi á vinnu- ferli þar sem hægt er að rekja þær aðgerðir sem gerðar voru og bera saman við það sem gera átti. „í síðasta lagi þai’f tæknilegar lausnir og tæknileg vinnuferli. Undir þann flokk falla hlutir eins og dulritun og öryggiskerfi. Þessi umræða um persónu- vernd er ekkert ný þó hún hafi ekki farið fram fyrir opnum tjöld- um fyir en núna að undanförnu. Skýrr hefur starfað á þessum vettvangi í nær hálfa öld og unnið með upplýsingar sem hefur þurft að vernda. Þessar upplýsingar sem við erum að sýsla með eru grundvöllur starfs okkai’. Við höf- um byggt okkar starf á því að persónuvernd þeirra upplýsinga sem vistaðar eru séu í lagi miðað við þær kröfur sem hið opinbera gerir á hverjum tíma. Þessar kröfur eru hins vegar að breytast m.a. vegna umræðu um persónu- vernd í miðlægum gagnagrunni á heilbrigðissviðinu.“ - Eru kröfurnarþá að aukast? „Já, en aðalatriðið er þó að meðvitund almennings, stjórn- valda og stjórnmálamanna er að aukast mikið. í tölvukerfum nú- tímans, ekki bara hér á landi, heldur alls stað- ar í heiminum, er gífur- lega mikið af upplýs- ingum sem spannar í raun flesta þætti nú- ____________ tíma samfélaga, t.d. — fjármál, innkaup, laun og svo framvegis. Vissulega hefur margt mjög gott verið gert á Islandi í þessum efnum, tölvunefnd hefur áorkað ýmsu miðað við þann þrönga stakk sem henni er snið- inn. En það er ástæða til að skoða þessi mál í heild sinni.“ Hrafnkell segir að í nýrri skýrslu frá ríkisendurskoðun fyr- ir árið 1998 sé verið að tala um rekstraröryggi upplýsingakerfa. „Skýrslan fjallar bæði um rekstr- aröryggi og aðgangsöryggi sem m.a. er hluti af þessari persónu- vernd. Vísað er í samning sem Skýn’ gerði við fjármálaráðherra um rekstur landskerfa en þar eru vistaðir stjórnsýsluþættir ís- lenska ríkisins, þjóðskráin, skatt- Hrafnkell V. Gíslason ►Hrafnkell V. Gíslason er fæddur í Reykjavík árið 1960. Hann lauk BS-prófí í tölvunar- fræði frá Háskóla íslands árið 1983 og MS-prófi í tölvunar- fræði frá University of Pitts- burg í Bandaríkjunum árið 1988. Hann starfaði hjá tölvu- deild Sparisjóðsins í Keflavík í þijú ár en hefur síðan starfað hjá Skýrr hf., nú síðast sem framkvæmdasljóri þjónustu- deildar. Eiginkona hans er Björg Ey- steinsdóttir hjúkrunarfræðing- ur og eiga þau fjögur börn. Þessi umræða er lengra kom- in í nágranna- löndunum skráin, tollakerfið, bótakerfi Tryggingastofnana, launaskrá hins opinbera og svo framvegis. Gerður var sérstakur samning- ur milli fjármálaráðherra og Skýrr um rekstur og meðhöndlun þessara upplýsinga og þar er kveðið á um hvernig staðið skuli að persónuvernd." - Eru farnai■ nýjar leiðir í þess- um samningi? „Já, í samningum er kveðið á um öryggiskröfur og þjónustu- markmið sem tryggja góða per- sónuvernd og tryggan rekstur." - Hvernig er verndun persónu- upplýsinga háttað hérlendis mið- að viðínágrannaiöndunum? „Það veit í raun enginn hvernig þessum málum er háttað hér á landi því engar kannanir hafa ver- ið gerðar á þessum málum hér á landi. Þessi umræða er lengra komin í nágrannalöndunum og ástæða til -------- að kynna sér stöðu mála þar, þó með það i huga að fínna nálgun sem hentar íslenskum aðstæðum." - Hverjir koma til með að halda fyrir- lestra á ráðstefnunni? „Eftir að Davíð Oddsson for- sætisráðherra hefur flutt ávarp mun Tom Peltier ræða um nýj- ungar í verndun persónupplýs- inga. Hann er eftirsóttur fyrirles- ari um það sem tengist öryggis- málum í kringum tölvukerfí og gagnagrunna. Þá mun Oddný Mjöll Arnardóttir lögfræðingur fjalla um verndun persónuupplýs- inga lagalega séð. Stefán Hrafn- kelsson mun síðan fjalla um ógn- anir og lausnir hvað varðar ör- yggi á Netinu. Bjarne Hansen ræðir um áhættur í þessu sambandi en hann er löggiltur tölvuendurskoð- andi hjá Ernst og Young í Dan- mörku.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.