Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ENDURMINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 29 ERLENT Deilt um kjarnorku í N-Kóreu STJÓRNVÖLD í Norður- Kóreu vísuðu á bug í gær orðrómi um að þau væru að smíða neðanjarðarkjarnorku- ver. I fréttatilkynningu frá op- inberu fréttastofunni KCNA segir að þessi orðrómur sé ekkert nema rógur, runninn undan rifjum Bandaríkja- manna og S-Kóreumanna. Spenna óx í síðustu viku milli N- og S-Kóreu eftir að Band- aríkjamenn sökuðu N-Kóreu- menn opinberlega um að vera á laun að koma sér upp kjam- orkutilraunastöð neðanjarðar við Yongbyon, þar sem gamalt kjarnorkuver af sovézkri gerð er að finna, sem samkvæmt samningi N-Kóreu við Band- aríkin frá 1994 á ekki að vera í notkun. Auk þess var greint frá því í Washington Post sl. föstudag, að N-Kóreumenn væru að smíða tvo nýja skot- palla fyrir meðaldrægar stýriflaugar og þeir hefðu aukið framleiðslu á skamm- drægum flaugum. Forsetaskrif- stofan farin frá Bonn SKRIFSTOFA þýzka forseta- embættisins var í gær flutt formlega til Berlínar. Þar með er hún fyrst úr hópi helztu stjórnarskrifstofa Þýzkalands til að flytja frá Bonn til Berlín- ar. Stefnt er að því að þingið og flest ráðuneyti sambands- stjómarinnar verði í septem- berbyrjun á næsta ári farin frá hinum kyrrláta bæ á Rínar- bökkum, þar sem stjórn Vest- ur-Þýzkalands var fundinn staður hálfri öld fyrr. „Eg er viss um að við verðum í Berlín á áætlun,“ sagði Franz Mun- tefering, byggingamál- aráðherra, við athöfn á skrif- stofu forsetans Romans Herzogs í Berlín í gær. Viðræður um Kosovo VESTRÆNIR samningamenn hittu í gær serbneska stjórn- málaleiðtoga, í því skyni að reyna að brúa hyldýpið sem ber í milli Serba og Kosovo-Al- bana um hvernig haga skuli framtíð héraðsins, þar sem fólk af albönskum ættum er í mikl- um meirihluta íbúanna. Chris Hill, erindreki Bandaríkja- stjómar, átti að eiga fund með Milan Milutinuvic, forseta Serbíu, í Belgrad. „Við höldum áfram viðræðum," sagði tals- maður Hills. „Við verðum að finna atriði sem báðir aðilar geta fallizt á og það verður að koma pólitískt samkomulag út úr þessu á endanum." Hizbollah ban- ar Israela HIZBOLLAH-skæruliðar í Lí- banon, sem njóta stuðnings frá Iran, varpaði í gær sprengjum á ísraelska hermenn í Suður- Líbanon. Einn ísraeli lézt og tveir særðust, að sögn heim- ildamanna sem hliðhollir eru ísraelum. ísraelar hefndu árásarinnar tafarlaust með flugskeytaárás úr þyrlum. Ævimiimingar Gro Harlem Brundtland vekja umtal Læknir, móð- ir, stjórn- málamaður Annað bindi æviminninga Gro Harlem Brundtland kom út fyrir skömmu. Vakti bókin mikla athygli og umtal, ekki síst kaflinn um sjálfsmorð sonar hennar Jörgens. Sigrún Davíðsdóttir gluggaði í bókina. „HVAD kemur fólki það við þótt sonur hennar hafi fyrirfarið sér?“ spurði ágætur maður, þegar hann heyrði að Gro Harlem Brundtland skrifaði heilan kafla í annað bindi endurminninga sinna, „Mit liv 1987- 1998“, um þetta átakanlega atvik í lífi sínu. Spurningin á vissulega rétt á sér og það getur verið fróðlegt að hugleiða svarið. En endurminningar stjórnmála- manns eru annað og meira en per- sónulegur vitnisburður og einnig það er fróðlegt að hafa í huga. Því miður er það ekki aðeins tími fjölmiðlanna, sem líður hratt, heldur tíminn al- mennt og það virðist þvi miður ein- kenna sjálfsævisögur stjórnmála- manna að þeim liggur svo á að koma þeim út að ekki virðist hafa gefist nægur tími til að liggja yfir frásögn- inni. Bók Brundtland er þar engin undantekning. Jorgen Þegar endurminningarnar komu út í Noregi voru forsíður norsku blaðanna fyrst og fremst bundnar frásögn hennar af syninum Jorgen. Hann var 25 ára þegar hann svipti sig lífi haustið 1992. Móðirin fær fréttina á hótelherbergi í Brussel, þegai’ Olav eiginmaður hennar hringir í hana. Eftir svefnlausa nótt kemst hún loksins heim til fjölskyld- unnar í Ósló, eiginmannsins og þriggja barna þeirra og fjölskyldna þeirra. Síðan rekur hún síðustu daga hans, sjúkdóminn sem hafði þjáð hann og um leið fjölskylduna, viðbrögðin eftir jarðarförina, bréfin sem streyma til hennar og sem hún sjálf svarar og dagana á eftir, þegar daglega lífið tekur við á ný, en ekk- ert er eins og áður. í viðtölum eftir að bókin kom út hefur Brundtland sagt frá að hún hafi sest niður árla morguns, byrjað að skrifa kaflann, sem í bókinni er 34 blaðsíður og ekki litið upp, hvorki bragðað vott né þurrt allan daginn, fyrr en kaflinn var fullskrifaður að kvöldi. Lesningin er átakanleg eins og allar frásagnir af þessu tagi hljóta að vera og það er eldci síður átakan- legt að lesa bréfbrotin frá fólki, sem skrifar henni. I bréfunum er sagt frá hliðstæðum atbm'ðum úr lífi bréfrit- aranna, sem vilja með reynslu sinni leggja inn huggunarorð. Tárin flóa léttilega við lesturinn. Nei, hún kemst ekki yfir sonarmissinn, það gerir enginn, en lífið heldur áfram. Niðurstaða Brundtland í lok kafl- ans er: „Við verðum að vera athafna- samari og betri til að meðhöndla geðræna sjúkdóma og einkum og sérílagi verðum við frekar en áður að nota tíma og fé til að fyrirbyggja sjálfsmorð." Hún áfellist lækna og heilbrigðiskerfið fyi'ir að skilja sjúklinga og aðstandendur alltof mikið efth’ í lausu lofti. Það er eng- inn, sem heldur fast í unga manninn. Hann fær að valsa um fársjúkur. Fyrst eftir lát hans fá foreldrar hans að vita að hann hefur oft verið flutt- ur á slysavarðstofuna nær dauða en lífi efth’ sjálfsmorðstilraunir. Hvern- ig það getur dulist getur sá spurt, sem ekki hefur kynnst öðru eins. Lærdómur lesandans er að vissu- lega þarf að leita læknis, en það er GRO ásamt syni sínum Jörgen, sem framdi sjálfsmorð, en Gro fjallar rækilega um þann atburð og afleiðingar hans í bókinni. einnig mikilvægt að stóla á eigið framtak og ekki að treysta því að kerfið sjái um allt. Þetta er líka að renna upp fyrir fjölskyldunni, þegar ungi maðurinn deyr. Eftir situr móðirin með öll sín ef og ef. Lærdómur af frásögninni um Jorgen En það er einnig annar lærdómur, sem draga má af frásögn hinnar syrgjandi móður. Hann er sá að geð- sjúkdóma þarf að taka óskaplega al- varlega. Sonurinn deyr 25 ára að aldri, en fyrstu merkin um að hann væri „maníó-depressívur“, ýmist hátt uppi eða langt niðri, komu í ljós þegar hann var sextán ára. Og strax þegar hann var fjórtán ára var ljóst að hann átti við erfiðleika að stríða, sem lýsing móðurinnar gefur til kynna að voru annars eðlis en venju- leg unglingaveiki. Brundtland er sjálf læknir og hún reynh’ að kynna sér málin. Samt gildir það sama um hana og aðra fjölskyldumeðlimi að hún sveiflast á milli þess að halda og vona að allt sé í lagi og leita úrlausna. Þetta minnir lesandann á hve óskaplega erfitt við eigum almennt með að viðurkenna að það sé eitthvað að hjá okkar nán- ustu og taka hlutina föstum tökum út frá því. Þessi óvilji okkar til að horfast í augu við hlutina og hin hrikalega áminning, sem liggur í frásögn móðm-innar, eru kannski mikilvægasti lærdómurinn, sem draga má af frásögninni. Þá kemur líka að spurningunni af hverju stjórnmálamaður eigi að segja vandalausum frá jafnpersónulegum atburði og sonarmissi. Þeir sem halda því fram að einstaklingar í brennid- epli fjölmiðla eigi rétt á einkalífi hafa mikið til síns máls. Sjálf segir Gro að hefði hún látið sonarmissinn liggja milli hluta hefði það líka vakið eftir- tekt, rétt eins og sjálf frásögnin gerir. En um leið og hún gerir það verður reynsla hennar öllum aðgengileg. Eins og af allri lífsreynslu er af henni lærdóm að draga. Það vita allfr að geðsjúkdómar eru í alltof ríkum mæli feimnismál. Frásögn af þessu tagi getur gert sitt til að draga úr fordóm- um á þessu sviði. Að máta sig á stall sögunnar Sjálfsævisögur stjómmálamanna eru ekki aðeins persónulegur vitnis- burður. Þær eru sögulegur vitnis- burður og þótt það sjáist ekki á yfir- borðinu þá eru stjómmálaleiðtogar alltaf að fullu meðvitaðir um að þeir eru ekki aðeins vegnir og metnir sem einstakiingar, heldur sem stjórnmála- menn og bomir saman við aðra slíka. Það er allt í lagi fyrir venjulegt fólk að vita af því að það sem skilur stjórnmálaleiðtoga frá öllum hinum er að þeir eru stöðugt að máta sig á stall sögunnar. Þefr kjósa að skrifa ævisögu sína til að gefa sína útgáfu af sjálfum sér og gerðum sínum. Það þarf ekki að lesa langt í bók Gro Harlem Brundtland til að átta sig á að hún er í bók sinni í hróka- samræðum við gagnrýnendur sína heima fyrir. Það þýðir ekkert fyrir stjórnmálamenn að vera hörundsár- ir. Því ofar sem þefr em því síður geta þeir verið að svara fyrir sig. Haustið 1990 lýsir Svend Auken, þáverandi leiðtogi danskra jafnaðar- manna, fyrir Brundtland þremur hugsanlegum leiðum, sem Evrópu- samstarfið geti farið. I fyrsta lagi sé það sem hann kallaði „Thatcher- módelið", sem gerði ráð fyrir sam- starfi eins og fram að þessu. I öðru lagi væri pólitískt, efnahagslegt og hernaðarlegt samband eins og Jacques Delors, Spánn, Frakkland og Ítalía vildu. Þessu væra þó Þýskaland og Holland á móti, því þau vildu ekki axla efnahagsbyrðar Spánar og Ítalíu. í þriðja lagi væri samstarf líkt og í Öryggis- og sam- vinnustofnun Evrópu og þetta væri norræna línan. Að mati Aukens var til dæmis myntsamband óhugsan- legt. Óneitanlega athyglisverð, en um ieið kolröng úttekt. Það sem gerir sjálfsævisögu að góðri lesningu er þegar í henni er ekki aðeins góð frásögn, heldur einnig áhugaverðar vangaveltur. Bók Brandtland er undarlega gjör- sneydd því síðara og því miður vant- ar til dæmis alveg í hana hvernig allt það merkisfólk, sem hún hittir, kem- ur henni fyrir sjónir. Við kynnumst engum betur en við geram í fjölmiðl- um og þá er til lítils af innanbúðar- manni að skrifa frásögn úr sölum stjórnmálanna. En kannski finnst henni hún enn vera of nálægt þessu fólki til að segja sína skoðun hreint út. Frásögn Brundtland er dæmi um hvernig gagnrýnin situr í stjóm- málamanni, sem síðan grípur tækifærið og svarar margra ára upp- safnaðri gagnrýni. Eitt af því sem hún er stöðugt að svara era ásakanir um að hún hafi eytt of mikium tíma í alþjóðamál og of litlum í heimamálin. Þegar hún er tekin tali 1989 í tilefni af fimmtugsaf- mæli sínu færfr hún þetta í tal, segist aðeins eyða um 10 prósentum af vinnutíma í alþjóðamál, en er sann- færð um að um aldamótin muni norskur forsætisráðherra eyða að minnsta kosti tvöfalt meiri tíma í slík mál. „Það væri rangt og óverjanlegt að eyða tímanum bara í naflaskoðun. Við verðum og eigum að taka þátt í alþjóðastarfi. Það væri fullkomlega þýðingariaust ef við ættum í einu og öllu að halda okkur innan eigin landamæra." I ljósi þess hve Islend- ingar og Norðmenn era líkh’ í andan- um að mörgu leyti, era þetta athygl- isverð ummæli. ESB-vangaveltur An tillits til hvort Islendingar líkj- ast Norðmönnum eða ekki þá sitja þeir nú við sama borð í litlu EFTA og nýta sér EES-samninginn til að vera svolítið með í ESB. Það er því óneitanlega forvitnilegt að rekja sig í gegnum bók Brundtland og það sem hún hefur um Evrópusamskiptin að segja. BLAA ROÐIN Sinfóníuhljómsveit íslands Tónleikar í Háskólabíói föstudaginn 27. nóvember kl. 20:00 Hljómsveitarstjóri: Einsöngvarar: Ólöf Kolbrún Harðardóttir Garðar Cortes og Renato Frasesconi Kórar: Kór íslensku óperunnar og Karlakórinn Fóstbræður Efnisskrá: Óperutónlist eftirWagner, Borodin, Tchaikovsky, Mascagni, Puccini Jón Ásgeirsson og Orff Miðasala á skrifstofu hljóm- sveitarinnar og viö innganginn Sinfóníuhljómsveit íslands Háskólabíói við Hagatorg Sími: 562 2255 Fax: 562 4475 Nánari upplýsingar á sinfóníu- vefnum: www.sinfonia.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.