Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Erindisbréf yfírmanna lögreglunnar
í Reykjavík gefín út
Einhugur um starfs-
skiptingu meðal
æðstu yfirmanna
I ERINDISBREFI lögreglustjór-
ans í Reykjavík, sem gefíð var út af
dómsmálaráðuneytinu í gær sam-
kvæmt tillögu starfshóps á vegum
ráðuneytisins, kemur fram að hann
skuli sinna daglegri stjórn embætt-
isins í samræmi við lögreglulög. I
erindisbréfí varalögreglustjóra
segir að hann hafí umsjón með
starfsemi þriggja meginsviða emb-
ættisins í samráði við lögreglu-
stjóra, en þau eru lögreglusvið,
rannsóknar- og ákærusvið og
rekstrar- og þjónustusvið. Hann
ber auk þess daglega ábyrgð á
ákveðnum verkefnum.
í tillögu að starfslýsingu yfir-
mannanna samkvæmt skýrslu sem
fyrirtækið VSÓ ráðgjöf vann fyrir
dómsmálaráðuneytið, og kynnt var
fyrir skömmu, var tiltekið að dag-
leg yfirstjórn embættisins skyldi
vera í höndum varalögreglustjóra.
Erindisbréf var í gær einnig gef-
ið út fyrir varalögreglustjóra.
Hvorugt embættanna hefur áður
verið skilgreint með erindisbréfí.
Einhugur um
verkaskiptinguna
í starfshópnum, sem skipaður
var af dómsmálaráðhen-a 2. nóv-
ember, sitja Haraldur Johannes-
sen ríkislögreglustjóri, formaður,
Böðvar Bragason lögreglustjóri í
Reykjavík, Georg Kr. Lárusson
varalögreglustjóri og Björg
Thorarensen skrifstofustjóri á lög-
reglusviði dómsmálaráðuneytisins.
Haraldur Johannessen segir að
einhugur hafí verið í starfshópnum
um verkaskiptingu lögreglustjóra
og varalögreglustjóra. Dómsmála-
ráðherra hafi gefið út erindisbréf
embættanna á grundvelli tillagna
hópsins.
„Þeir þættir er varða stjóm-
skipulag embættis lögreglustjór-
ans í Reykjavík sem starfshópur-
inn hefur fjallað um og lokið vinnu
við eru unnir af einhug og með
samþykki starfshópsins, þar á
meðal lögreglustjórans í Reykjavík
og varalögreglustjórans,“ segir
Haraldur Johannessen.
Eftir er að ráða framkvæmda-
stjóra yfir rekstrar- og þjónustu-
sviði lögreglunnar og hefur sú
staða verið auglýst en umsóknar-
frestur rennur út í lok mánaðarins.
Haraldur segir að með ráðningu
hans verði framkvæmdastjórn
embættisins orðin fullskipuð, en í
henni eiga sæti lögreglustjóri,
varalögreglustjóri, yfirlögreglu-
þjónn, saksóknari og fram-
kvæmdastjóri.
„Gert er ráð fyrir því að fram-
kvæmdastjómin fjalli enn frekar
um innri málefni embættisins, þau
málefni sem lúta að öðram þáttum
í starfseminni heldur en þeim sem
starfshópurinn átti að sinna og
fjalla um. Eg reikna með þvi að þá
verði litið svo á að starfshópurinn
hafi lokið sínum störfum," segir
Haraldur, „og framkvæmdastjórn
lögreglustjóraembættisins taki við
og vinni að áframhaldandi breyt-
ingum á innri starfsemi embættis-
ins í samráði og samvinnu við
starfsmenn þess. Um þær breyt-
ingar sem þegar hafa verið gerðar
á lögi-eglusviði ríkti einnig fullkom-
in samstaða í starfshópnum,“ sagði
Haraldur að lokum.
Nokkrir verkefnaflokkar
færðir til lögreglusijói-a
Björg Thorarensen, skrifstofu-
stjóri lögregluskrifstofu dóms-
málaráðuneytisins, sem var einn
fulltráanna í hópnum, segir að er-
indisbréfin séu í stóram dráttum
byggð á tillögum í skýrslu VSO en
með ýmsum tilhliðrunum og skýr-
ara orðalagi. Aðspurð segir hún að
meginatriðið hafi ekki verið að
breyta stöðu lögreglustjórans mið-
að við það hvemig hún var skil-
greind í skýrslunni. Nokkrir verk-
efnaflokkar hafi þó verið færðir til
lögreglustjóra, að tillögu hans
sjálfs, eins og innra eftirlit og
skýrsluskrá. „Við höldum því fram
að staða lögreglustjórans hafi
aldrei verið veik og þær ályktanir í
þá átt sem dregnar voru út frá til-
lögum að skipuriti hafi verið rang-
ar.“
Sjónvarpið flyt-
ur á næsta ári
STARFSEMI Ríkisútvarpsins-
sjónvarps verður á næsta ári flutt
úr sjónvarpshúsinu við Laugaveg í
Reykjavík í hús Ríkisútvarpsins
við Efstaleiti. Áætlað er að flutn-
ingarnir hefjist í júlí og að í árslok
verði allar deildir sjónvai’ps og út-
varps komnar undir sama þak.
Bjarni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri sjónvarps, kvaðst í
samtali við Morgunblaðið í gær
gera fastlega ráð fyrir að fyrsta
deildin sem flyttist yrði fréttastof-
an en áætlað er að það verði í júlí.
Síðan verða aðrar deildir sjón-
varpsins fluttar hver af annarri og
segir hann ráðgert að flutningun-
um ljúki í lok næsta árs.
Sænsku konungshjónin
taka á móti forsetanum
Stokkhólmi. Morgunblaðið.
Fjölgun í
Húsdýra-
garðinum
SÓMI heitir hann, kálfurinn
sem svolgrar mjólkina úr pela
hjá Gunnari ísdal dýrahirði í
Fjölskyldu- og húsdýragarðin-
um. Sómi kom í heiminn fyrir
viku og braggast vel. Hann er
afkvæmi þeirra Tinnu (4 ára)
og Guttorms (6 ára), sem bæði
búa í Húsdýragarðinum.
KARL Gústaf Svíakonungur og
Silvía drottning taka í dag á móti
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Is-
lands, er opinber heimsókn hans til
Svíþjóðar hefst. Forsetinn dvelur í
heimsókninni í Hagahöllinni, en þar
tekur greifynjan af Halland á móti
honum árla dags. Olafur Ragnar hitt-
ir síðan Karl Gústaf konung og halda
þeir í virðulegum hestvagni með
fylgdarliði að konungshöllinni, þar
sem drottningin tekur á móti þeim.
Þar mun Olafur Ragnai- hitta
sænska fyrirmenn, en síðan snæðir
hann hádegisverð í boði konungs-
hjónanna. Seinna um daginn heim-
sækir forsetinn þinghúsið og stjórn-
an’áðið, þai' sem hann hittir Göran
Persson forsætisráðherra. Saman
halda þeir síðan blaðamannafund, en
síðla dags býður forsetinn íslending-
um til móttöku á Nordiska museet.
Um kvöldið halda konungshjónin
kvöldverð til heiðui’s forsetanum.
Miðvikudagurinn er helgaður
sænsku og íslensku viðskiptalífi, auk
þess sem forsetinn heldur konungs-
hjónunum veislu.
Morgunblaðið/Ásdís
Tilboð opnuð í Borgarfjarðarbraut
Gildistöku fram-
kvæmdaleyfis frestað
VEGAGERÐIN opnaði í gær tilboð
í Borgarfjarðarbraut frá Bæjar-
sveitarvegi til Kleppjárnsreykja.
Um er að ræða 9,2 kílómetra langan
veg og er gert ráð fyrir nýju vegar-
stæði frá afleggjaranum að Bæjar-
sveit að Flókadalsá, en þaðan og til
Kleppjárnsreykja verði vegurinn
lagfærður í núverandi vegarstæði
til bráðabirgða, samkvæmt upplýs-
ingum Vegagerðarinnar í Borgar-
nesi. Kostnaðaráætlun hljóðar upp
á tæpar 80 milljónir og bárast tólf
tilboð í verkið, það lægsta upp á
rúmar 55 milljónir og það hæsta
upp á rámar 92 milljónir.
Sveitarstjórn í hinu nýja bæjarfé-
lagi í Borgarfirði, sem samanstend-
ur af Hálsasveit, Reykholtsdals-
hreppi, Lundarreykjadalshreppi og
Andakílshreppi, hafði gefið Vega-
gerðinni leyfi fyrir framkvæmdun-
um, en í kjölfarið barst kæra frá
bóndanum á Steðja, þar sem þess er
krafist að framkvæmdaleyfi í landi
hans verði afturkallað og vísaði um-
hverfisráðherra málinu til úrskurð-
arnefndar skipulags- og byggingar-
laga, þar sem það er nú til meðferð-
ar.
Á fundi hreppsnefndar 12. nóv-
ember síðastliðinn var samþykkt
samhljóða tillaga um að fresta af-
greiðslu málsins og gildistöku fram-
kvæmdaleyfisins þar til úrskurður
nefndarinnar liggur fyrir, sam-
kvæmt upplýsingum Þórunnar
Gestsdóttur, sveitarstjóra.
Vegagerðin hefur fjórar vikur til
að fara yfir tilboðin og ganga frá
samningum við tilboðsgjafa. Auð-
unn Hálfdánarson, hjá Vegagerð-
inni í Borgarnesi, sagði að ákveðið
hefði verið að fara í meiriháttar við-
gerðir og endurbætur á núverandi
vegi í samræmi við tillögu sem kom-
ið hefði fram þar að lútandi í sumar.
Um væri að ræða lagfæringar á
gamla vegai-stæðinu til bráðabirgða
að undanskildum lítilsháttar lagfær-
ingum við Flókadalsá. Vegurinn
væri ekki hannaður miðað við ýtr-
ustu staðla og ekki væri gert ráð
fyrir 90 kílómetra ökuhraða þar
heldur 70 til 80 kílómetra hraða.
Ný brú
Auðunn sagði að að hluta til væri
um að ræða nýjan veg, þ.e. frá Bæj-
arsveitarafleggjaranum og upp að
Flókadalsá. Þaðan og til Klepp-
járasreykja væri um að ræða end-
urbætur á núverandi vegarstæði.
Einnig væri um að ræða nýja brú
yfir Flókadalsá og stórt ræsi í
Geirsá, en brúin yrði byggð af
vinnuflokki Vegagerðarinnar og
væri ekki inni í útboðinu. Samtals
væri um að ræða 9,2 kílómetra lang-
an veg og þar af væru 3 km frá
Bæjarsveitarafleggjaranum og að
Flókadalsá.
Auðunn sagði að ef vel viðraði
áfram væri vonast til þess að fram-
kvæmdir gætu hafist fyrir áramót.
Ef veður færu harðnandi yrði sjálf-
sagt ekkert byrjað á framkvæmd-
um fyrr en í vor.
Á ÞRIÐJUDÖGUM
ttmnili
HEFURÞÚ
SPURNINGAR
VARÐANDi
FJÁRFESTINGAR
ocLfFEYRISMÁL?
RAéXijÁFAR OKKAK
SVAftASrtlRNINCtlM
Á VERBBRÉf AtXXiUM
25-27. NÚVtMftlR
í ÚnMJUM KÚNAOAMUNKANS
I Kúnwoci
MAMJtASOKC 9. SÍMI 554 Z222
IsmAkamum
SMAKATOKGI l S(MI 564 7828
OC IIIAFNAHFIRHI
riAKOAAGOTU 0-15. JÍMI 565 5600
VEíUÐ VbLKOMIN!
A U G L Ý S 1 N G fi
BLAÐINU í dag fylg-
ir auglýsing um
verðbréfadaga
Búnaðarbankansí
útibúum hans í
Kópavogi, Smáran-
um og í Hafnar-
firði dagana
25.-27. nóvember
MKNNCVC
I.ISTIH
BÆKUR
Geir gefur ekki kost á sér í
landsliðið/C1
Sigurður Valur Sveinsson
leikur með Lemgo/Ci 1