Morgunblaðið - 24.11.1998, Side 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Smáfólk
AMó MT BROTMEfc
TALK5 ALLTMETIME
AB0UTTHI5“6REAT
PUMPKIN"THINe(5EE..
50 50METIME5 I
TMINK HE'5 REALLT
©
œ
3
ANP THEN I
WONDER AdOUT THE
RE5T OF OUR
Og bróðir minn, sjáðu til, Svo að stundum held ég
er alltaf að taia um þetta að hann sé kexruglaður,
„stóra grasker ...“ og ...
Og síðan verður mér
hugsað til hinna í ljöl-
skyldunni, og ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Burt með Reykja-
víkurflugvöll
Frá Guðmundi Bergssyni:
MÁNUDAGINN 9. þ.m. kom mað-
ur í kvöldfréttir Sjónvarpsins og
sagði að leggja ætti niður Reykja-
víkurflugvöll sem bæði væri lélegur
og hættulegur og alltof dýrt að gera
við hann. Þá hugsaði ég með mér:
Það var mikið að einhver maður
kom sem talaði af viti í sambandi við
Reykjavíkurflugvöll en hingað til
hafa flestir rætt um að leggja út í
milljóna króna kostnað við að gera
hann nothæfan. Þetta fyrirbæri
Bretanna, sem illu heilli tróðu hon-
um í Vatnsmýrina á sínum tíma og
fengu leyfí ráðamanna hér til að
brjóta niður Rauðhólana og keyra
þá oní mýrina til að gera flugvöllinn.
En ég var of fljótur á mér, því hann
hafði meira að segja í sambandi við
flugvöllinn. Hann var með teikningu
af hólma í Skerjarflrði þar sem flug-
vélar áttu að lenda í staðinn. Það
eru áratugir síðan fólk hefur heyrt
aðra eins endaleysu eða ekki síðan
Guðmundur framsóknarþingmaður
bar fram tillögu um að fylla Skerja-
fjörðinn með grjóti og gera úr hon-
um flugvöll og leggja þann gamla
niður. Það var á sínum tíma um það
rætt að færa æfinga- og kennsluflug
á Sandskeið en það datt uppfyrir og
hefur ekki verið á það minnst í
mörg ár. Er þó kominn mjög góður
vegur þangað uppeftir, svo ekki er
það lengi farið. Nú stendur til að
gera stórframkvæmdir á Keflavík-
ui-flugvelli fyrir millilandaflug. Þess
vegna gæti maður hugsað sér að
það væri hægt að fá smáskot fyrir
innanlandsflugið líka, þar sem því
væri ætlaður staður til framtíðar.
Þar sem við erum alltaf að búa til
uppistöðulón og virkja fallvötn til að
selja útlendingum ódýrt rafmagn í
álver og járnblendi og fleira væri
ekki úr vegi að við notuðum eitt-
hvað sjálfir.
Rafniagnsjárnbraut
leysti vandann
Rafmagnsjárnbraut ofan byggða
milli Keflavíkurfiugvallar og t.d.
Rjúpnahæðar í Breiðholti með við-
komu á 1-2 stöðum á leiðinni væri
fljót að renna á milli. Það tæki ekki
langan tíma að komast frá Reykja-
vík til Keflavíkur með svoleiðis far-
artæki. Það mætti þá fresta að tvö-
falda Reykjanesbrautina. Það þarf
ekki að minna á að rafmagnsjárn-
braut mengar ekki og ef dregið
væri úr bílaumferð minnkaði út-
blástur þannig að allt væri þetta af
hinu góða og ekki mun af veita . Til
lengri tíma litið mun ekki vera betri
kostur til í samgöngumálum en
einmitt rafmagnsbrautir. Það má
minna á að nú fer að nálgast ein öld
frá því að stórhuga menn eins og
Einar Ben. og fleiri höfðu uppi
ráðagerðir að leggja járnbraut aust-
ur fyrir fjall, enda ætlaði hann að
reisa orkuver við Þjórsá og færa
þannig landsmönnum rafmagnsljós
í stað gömlu lampanna og lýsiskol-
anna sem enn voru við lýði, enda
var Einar Ben. stórhuga maður, en
því miður komst lítið í framkvæmd
enda á undan sinni samtíð. Það væri
vel við hæfi að við létum þann
draum hans rætast nú 100 árum síð-
ar. Vatnsmýrin gæti orðið glæsileg-
asta byggingahverfi í Reykjavík ef
vel væri á haldið enda einn fegursti
blettur í gamla bænum. Svo á líka
að færa Hringbrautina ennþá nær
vallarsvæðinu. Bíðum ekki eftir
slysi, leggjum völlinn niður. Það eitt
er lausnin og til framtíðar. Allt ann-
að er ekki í takt við þann tíma sem
við lifum á. Við erum á leið inn í 21.
öldina, höfum það í huga og bjóðum
ekki hættunni heim.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík
Húmanistaflokkurinn
og hugsjónir
Frá Önnu B. Michnclsdóttur:
VEISTU, góði íslendingur, fyrir
hvað Húmanistaflokkurinn stend-
ur? Vissir þú að hann stendur og
berst fyrir því að mannréttindi séu
virt i þessu landi, eins og að eiga í
sig og á og húsnæði? Vissir þú að
hann berst fyrir því að öryrkjar fái
hærri bætur svo að þeir geti lifað á
þeim? Einnig vill hann að ellilífeyr-
isþegar fái hærri ellilífeyri svo að
gamalt fólk geti lifað sómasamlegu
lífi í ellinni. Eldra fólkið hefur unnið
hörðum höndum fyrir samfélagið,
það man tímana tvenna. Lægstu
launin og bætur ættu að vera 100
þúsund krónur á mánuði skatt-
frjálst (eftir skatt). Einnig þarf að
aðstoða þá sem eru húsnæðislausir
og það strax. Það mætti auka hér
leigurými á vegum borgarinnar þar
sem alþýðufólk ætti kost á að fá
leigt húsnæði á sanngjarnri leigu.
Það hefur aldrei verið verra
ástand en nú. Leiga fyrir 2 til 3 her-
bergja íbúð í dag er komin upp í
40-50 þúsund á mánuði. Hvernig á
verkamaður með 60 þúsund á mán-
uði að greiða slíka leigu? Það er
mikil fátækt í þessu landi. Við get-
um útrýmt henni með því að taka
höndum saman. Mér finnst Húman-
istaflokkurinn vera eini flokkurinn
sem stendur fyrir mannlegum mál-
efnum, sem skipta mestu máli. Við
búum í samfélagi þar sem mann-
eskjan sjálf skipth' sífellt minna
máli, vegna efnahagshyggju þar
sem peningavaldið ræður ríkjum.
Fólksflóttinn frá landinu er ekki
að ástæðulausu. Þið sem viljið
breyta þessu og berjast fyrir hug-
sjónum ykkar, látið í ykkur heyra
og kynnið ykkur Húmanistaflokk-
inn í síma 552 7404.
ANNA B. MICHAELSDÓTTIR,
leikskólakennari, Snorrabraut 34,
Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.