Morgunblaðið - 24.11.1998, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Einar Stefánsson og Þorsteinn Loftsson stunda rannsóknir á gláku og glákulyfjum
Aðeins hægt að
hægja á þrðun
sjúkdómsins
/3-CYC-ODEXTRI Í\J
CHEM 'CAL STRJCTLRE SCHEVÁllC DRAWIK3 DF Trtf CfC'-CDEXTRlN .CYLINDER
T.LOF'SSCN
HÉR má sjá hringlaga form burðarefnisins sem Þorsteini og Einari tókst
að fá til að nota í augndropa og flytja lyf sem verkar á augnþrýsting.
GLÁKA þrengir sjónsviðið þannig að það er líkast
því sem sjúklingur horfí gegnum rör.
HRÖRNUN eða kölkun í augnbotnum veldur fyrst
og fremst truflun á miðju sjónsviðs en hliðarsjón
og ratsjón eru í lagi.
SKÝ á augasteini getur valdið því að móða verður
yfir allt sjónsviðið.
ÞEGAR sjónhimna losnar verður sjónskerðing af
öðrum toga og færist þá svartur skuggi yfir sjón-
sviðið, ýmist neðan frá, frá hliðum eða að ofan.
Morgunblaðið/Kristinn
EINAR Stefánsson, prófessor í augnlækningum við Háskóla Islands.
Mögulegt er að menn
gangi með glákusjúk-
dóm lengi vel án þess
að hafa hugmynd um
það. Jóhannes Tómas-
son kynnti sér rann-
sóknir íslenskra vís-
indamanna á gláku og
lyfjum sem beitt er til
að halda henni niðri.
GLÁKA hefur verið og er
enn algengur augnsjúk-
dómur hérlendis, en hann
fá einkum þeir sem komn-
ir eru yfir miðjan aldur. Byrjunar-
einkenni er hægfara eða lúmskt
sjóntap og geta menn gengið með
sjúkdóminn um alllanga hríð án
þess að verða hans varir, þar sem
hann ágerist mjög hægt. Mikill
þiýstingur í augum gefur til kynna
grun um gláku og uppgötvist hann
er hægt að grípa til meðferðar til
að draga úr líkum á því að sjúk-
dómurinn leiði til blindu, sem hann
gerir sé meðferð ekki beitt.
Einar Stefánsson, prófessor í
augnlækningum, hefur unnið að
rannsóknum á verkun lyfja við
meðferð gláku. Þá hafa Einar og
Þorsteinn Loftsson, prófessor í
lyfjafræði, unnið að þróun lyfja
sem gefa má sem augndropa og
hafa einkaleyfi á aðferð sem þeir
hafa notað í rannsóknum sínum.
Morgunblaðið ræddi við Einar
Stefánsson um málið og greindi
hann í upphafi frá nokkrum atrið-
um varðandi gláku:
„Gláka hefur alltaf verið algeng-
ur sjúkdómur á Islandi og er það
enn. Glákublinda var landlæg langt
fram eftir þessari öld og í ritgerð
árið 1923 komst Helgi Skúlason
augnlæknir að þeirri niðurstöðu að
glákublinda væri algengari hér-
lendis en í nokkru öðru Evrópu-
landi,“ segir Einar. Hann segir
glákublindu hins vegar á undan-
haldi, því 250 manns hafi verið
skráðir blindir vegna gláku árið
1950 en 80 um þessar mundir. Á
sama tíma hefiu- þjóðinni fjölgað
mjög, öldruðum hlutfallslega
meira, og segir hann að því megi
ætla að hlutfall glákublindu hafi
lækkað sex til áttfalt á síðari hluta
aldarinnar. Áður en við fáum skýr-
inguna á því er Einar spurður hvað
gláka sé:
Margir sjúkdómar
„Glákusjúkdómar eru í raun
margir, en hérlendis er svonefnd
hægfara, gleiðhoma gláka algeng-
ust. Hún verður annars vegar
vegna rýmunar á sjóntaug sem
veldur því að taugasímar skemm-
ast og sambandið milli heila og
augna rofnar sem leiðir til skerð-
ingar á sjónsviði og á endanum
blindu, sé ekkert að gert. Hins veg-
ar stafar gláka af hækkuðum augn-
þrýstingi sem verður vegna þess
að rásir í auganu stíflast og augn-
vökvinn kemst ekki út. Sambandið
milli þessara orsaka er þó ekki ein-
hlítt, en vitað er líka um gláku að
hún er arfgeng. Meðferðin byggist
á því að lækka augnþrýstinginn
með ýmsum aðferðum, svo sem
lyíjum, skurðaðgerð eða ley-
sigeislameðferð. Hins vegar er
ekki um lækningu að ræða heldur
fyrirbyggjandi aðgerðir, meðferð
sem byggist á því að hemja sjúk-
dóminn þannig að hann valdi ekki
blindu og yfirleitt er meðferðin sú
að menn fá glákulyf út ævina.
í rannsókn sem við höfum gert á
augndeildinni og Friðbert Jónas-
son, dósent, hefur staðið fyrir, kom
m.a. í ljós að flestir glákusjúklingar
á íslandi vita af sjúkdóminum og
eru á meðferð. Mun fleiri af gláku-
sjúklingum hafa verið greindir með
gláku og fengið viðunandi meðferð
hérlendis en í nágrannalöndunum.
Hlutfallið er 85% sjúklinga hjá
okkur en um 50% í nágrannalönd-
um. Þar sem svipaðar rannsóknir
hafa verið gerðar erlendis komast
menn að því að um helmingur
glákusjúklinga veit ekki af sjúk-
dómi sínum og hefur þar af leið-
andi enga meðferð fengið. Hátt
greiningarhlutfall hér á stærstan
þátt í þeim mikla árangri sem
náðst hefur í því að draga úr gláku-
blindu hérlendis síðustu áratug-
ina.“
Hver er ástæðan fyrir háu grein-
ingarhlutfalli á gláku hérlendis?
„Hún er einkum sú að hérlendis
eru það augnlæknar sem mæla
sjón manna þegar þeir þurfa að fá
gleraugu. í leiðinni mælum við
augnþrýsting hjá öllum sem komn-
ir eni yfir fertugt og þá geta sést
fyrstu merki um gláku. Þess vegna
getum við haldið áfram að fylgjast
með því fólki sem virðist hætt við
að fá gláku og hafið meðferð. I
öðrum löndum annast sjóntækja-
fræðingar sjónmælingar að hluta
og þar er greining augnsjúkdóma
svo sem gláku síðri. I þessum
löndum geta menn því ekki sinnt
því forvarnastarfi sem við gerum í
leiðinni."
Aukaverkanir
Lyf sem nota má í baráttunni
við gláku hafa lengi verið í þróun
og notuð með nokkrum árangri
undanfarin ár. Ýmsar tegundir
lyfja eru notuð og þeirra á meðal
eru svonefndir karbon anhydrasa-
hemjarar. Til þessa hafa þessi lyf
verið notuð sem töflur eða hylki,
en þeim fylgja nokkrar aukaverk-
anir. Því hafa augu manna beinst
að þeim möguleika að framleiða
lyfið sem augndropa, sem hefur
verið nokkrum vandkvæðum
bundið. Erlend lyfjafyrirtæki hafa
allt frá árinu 1960 unnið að þeirri
þróun og fyrir hálfu öðru ári sendi
eitt þeirra augndropa á markað í
þessum lyfjaflokki.
íslendingar hafa einnig verið að
verki á þessu sviði og hafa þeir
Einar og Þorsteinn unnið að rann-
sóknum og þróun síðan snemma á
þessum áratug. Rannsóknaráð Is-
lands, Rannsóknasjóður Háskóla
íslands og erlent lyfjafyrirtæki
hafa lagt fé í rannsóknirnar, en
þeim er hvergi nærri lokið og legg-
ur Einar áherslu á að hér sé verið
að stíga lítil skref en þó áhuga-
verð. Þorsteinn Loftsson fékk árið
1994 einkaleyfi á tækni sem gerir
mögulegt að búa til augndropa
sem verkað geta í þessu skyni.
Hafa tilraunir farið fram bæði í
dýrum og mönnum.
Einar Stefánsson segir að lyf
hafi verið notuð til að lækka þrýst-
ing í augum allt frá sjötta áratugn-
um og þau nýst í þágu glákumeð-
ferðar. Lyfin voru í töflum eða
hylkjum en gallinn við þau hefur
verið verulegar aukaverkanir sem
takmarkað hafa notkun þeirra.
Frá árinu 1960 hafi erlend lyfja-
fyrirtæki reynt að koma lyfi við
glákusjúkdómum í form augn-
dropa og fyrir hálfu öðru ári hafí
eitt þeirra sent slíkt lyf á markað.
Hann segir þróunai-vinnu þeirra
Þorsteins Loftssonar engu að síð-
ur halda áfram og ætlan þeirra sé
sú að búa til kraftmeiri augndropa.
„Tæknin sem Þorsteinn notar til
að búa til augndropana byggist á
burðarefni sem heitir Cyclodextr-
in. Það era hringlaga sykursam-
eindir sem mynda eins konar
kleinuhring. Hann getur verið í
vatnslausn og innra byrði hrings-
ins hefur fituleysanlega eiginleika,
þar sem fituleysanlegar sameindir
geta komið sér fyrir, til dæmis lyfj
ið Acetazolamide, sem verkar á
augnþrýstinginn. Þannig gátum
við blandað saman Cyclodextrin og
Acetazolamide og búið til vatns-
lausn sem nota mátti sem augn-
dropa.“ Einar segir að þegar hafi
farið fram tilraunir í dýram og
mönnum, m.a. í samvinnu við er-
lent lyfjafyrirtæki og segir hann
að þar hafi þeim tekist að sýna
fram á að lyfið sé ágætlega virkt í
augndropaformi.
Rannsaka jafnframt lífeðlis-
fræði sjóntaugarinnar
Einar og Þorsteinn sóttu um
einkaleyfi á tækninni árið 1994 og
hafa tilraunir staðið yfir síðan.
Þróunarvinnan heldur áfram og
segir Einar það verða að koma í
ljós hvort hún leiði til fleiri skrefa í
átt til framleiðslu og markaðssetn-
ingar. Nokkuð ár muni enn líða
þar til niðurstöður fáist í þeim efn-
um. Jafnframt þessu verkefni hef-
ur Einar unnið að sérstakri rann-
sókn á því hvaða áhrif augnþrýst-
ingurinn hafi á heilbrigði sjóntaug-
arinnar.
„Rannsóknir okkar á lífeðlis-
fræði sjóntaugarinnar hafa bent til
þess að þessi lyfjaflokkur hafi ekki
einungis áhrif á augnþrýsting
heldur líka á súrefnisbúskap sjón-
taugarinnar. Benda tilraunirnar til
þess að glákulyfin kunni að hafa
bein áhrif á heilbrigði sjóntaugar-
innar og íýrnun hennar í gláku.
Þessi kenning kollvarpar ekki
gömlu kenningunni um að augn-
þrýstingur sé mikilvægur varðandi
glákumeðferð, því breyting á
augnþrýstingi getur haft áhrif á
súrefnisbúskap sjóntaugarinnar.
Við vonumst til þess að rannsókn-
irnar muni leiða til nýs skilnings a
lífeðlilsfræði gláku og nýrra að-
ferða sem kemur í veg fyrir blindu.
Það er fyrir okkur, vísindamönn-
unum sem stöndum að þessum
rannsóknum, það mikilvægasta í
þessu. En það er líka til marks um
breyttan tíðaranda í vísindum að
það varð fyrsta verk okkar að
sækja um einkaleyfi fyi-ir nýtingu
á þessari nýju þekkingu og þannig
eru vísindi og viðskipti að nálag-
ast, líka á svæði læknisfræði," seg-
ir Einar Stefánsson að lokum.
I
í