Morgunblaðið - 24.11.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 13
w
FRÉTTIR
Landssími fslands hf. semur við menntamálaráðuneytið um stuðning við skólastarf
Styður upplýsingatækni
Jón Gunnar
Grjetarsson
ráðinn tíma-
bundið
með 23 milljónum króna
FORSTJÓRI Landssíma íslands hf.
og menntamálaráðherra rituðu í
gær undir samning um stuðning
Landssímans næstu árin sem miðar
að því að efla notkun upplýsinga-
tækni í skólum. Leggur fyrirtækið
skólakerfmu til 23 milljónir króna á
rúmum þremur árum með búnaði,
niðurfellingu fjarskiptakostnaðar og
námskeiðahaldi.
Ólafur Stephensen, forstöðumað-
ur upplýsinga- og kynningardeildar
Landssímans, sagði stuðning
Landssímans miða að því að efla
upplýsingatækni í skólum. Hann
sagði áherslu lagða á að þróa fjar-
skiptatækni vegna fjarnáms og
sagði hann fyrirtækið leggja fram
þrjár milljónir króna í ár og síðan
sjö milljónir á ári næstu þrjú árin.
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra og Guðmundur Bjöi-nsson,
forstjóri Landssíma Islands hf.,
undirrituðu samninginn í gær og
sagði ráðherrann stuðning Lands-
símans við þróun upplýsingatækni í
skólum mjög mikilvægan og færði
hann fyrirtækinu þakkir fyrir áhug-
ann á verkefninu. Sagði hann mikil-
vægt að nýta tölvuþekkingu og fjar-
skiptatækni til að dreifa námsefni.
Unnið yi'ði að verkefninu á tveimur
sviðum, annars vegar með sex þró-
unarskólum í upplýsingatækni og
hins vegar mun Landssíminn
styrkja rannsóknarverkefni um með
hvaða hætti sé hægt að beita fjar-
skipta- og tölvutækni til að dreifa
fræðsluefni Námsgagnastofnunar,
sem til er á myndböndum, til skóla
og annarra sem vilja nýta það til
kennslu.
Vettvangur tilrauna í
sex þróunarskólum
Þróunarskólarnir eru Arbæjar-
skóli í Reykjavík, grunnskólinn á
Stokkseyri og Eyrarbakka og
Varmalandsskóli og framhaldsskól-
amir Fjölbrautaskólinn. við Armúla í
Reykjavík, Fjölbrautaskóli Suður-
Morgunblaðið/Ádsís
BJORN Bjarnason menntamálaráðherra og Guðmundur Björnsson,
forstjóri Landssima Islands, rita undir samning um stuðning Lands
símans við upplýsingatækni í skólastarfi.
lands á Selfossi og Menntaskólinn á
Akui'eyri. Alls sóttu 12 grunnskólar
og 12 framhaldsskólar um að verða
slíkir þróunarskólar. Björn Bjarna-
son sagði þróunarskólana eiga að
verða vettvang tilrauna í upplýsinga-
starfi og leiðbeina öðrum skólum.
Guðmundur Björnsson sagði
Landssímann gegna lykilhlutverki í
því efni að opna þjóðinni dyrnar að
upplýsingasamfélagi nútímans og
því væri nú lögð sérstök áhersla á
stuðning við menntamál með þess-
um samningi. Hann sagði mikla
möguleika á nýtingu fjarskiptatækni
í endurmenntun og það skipti sköp-
um fyrir samkeppnisstöðu atvinnu-
lífsins. Guðmundur sagði Landssím-
ann veita stuðninginn með tölvubún-
aði, fjarskiptabúnaði, með fjar-
skiptaflutningi og með sérfræðiað-
stoð starfsmanna fyrirtækisins.
Ráðstöfun stuðnings verður hverju
sinni ákveðin nánar í samráði við
menntamálaráðuneytið.
Sameining Hins íslenska kennarafélags og Kennarasambands íslands
Atkvæðagreiðsla meðal
félagsmanna í mars
FULLTRÚARÁÐ Hins ís-
lenska kennarafélags (HIK) og
samráðsnefnd Kennarasam-
bands íslands (KÍ) ákváðu á
fundum sínum á föstudag að
láta fara fram allsherjarat-
kvæðagreiðslu meðal félags-
manna um sameiningu félag-
anna tveggja.
Stefnt er að þvi að atkvæða-
gi-eiðslan fari fram í mars nk. en
áður verða félagsmönnum kynnt
drög að lögum fyrir hin væntan-
legu samtök. Verði sameiningin
samþykkt verður haldið stofn-
þing síðari hluta árs 1999 og
miðað við að samtökin verði
formlega til hinn 1. janúar árið
2000. Félagar í HIK eru um
1.300 og félagar í KÍ eru um
4.500 og því yrðu tæplega 6.000
manns í hinu nýja félagi.
Sameining félaganna á sér
langan aðdraganda, að sögn Ei-
ríks Jónssonar, formanns KI, en
á síðasta ári komu félögin sér
saman um ákveðna verkáætlun
um framvindu sameiningarinnar
og er ákvörðun um atkvæða-
greiðsluna í samræmi við þá
áætlun. Eiríkui' bendir aðspurð-
ur á að miklu fleira sameini fé-
lögin en sundri, til að mynda
hafi þau staðið saman að gerð
síðustu tveggja kjarasamninga,
en auk þess megi hagræða
rekstrinum með sameiningunni,
til dæmis með því að reka eina
skrifstofu í stað tveggja.
ÚTVARPSRÁÐ ákvað einróma á
fundi sínum í síðustu viku að mæla
með ráðningu Jóns Gunnars Grjet-
arssonar í stöðu fréttamanns inn-
lendra frétta á fréttastofu sjónvarps-
ins. Er það tímabundin staða til eins
árs.
I framhaldi af þessari ákvörðun út-
varpsráðs ákvað Markús Örn Ant-
onsson útvarpsstjóri að ráða Jón
Gunnar í umrædda stöðu. Hann hef-
ur undanfarið gegnt starfi afieys-
ingamanns í innlendum fréttum sjón-
varpsins.
-------♦-♦-♦-----
Grunnskólar Arborgar
36 kennarar
hafa sagt upp
störfum
ALLS hafa 36 kennarar í þremur
grunnskólum hins sameinaða sveitar-
félags Árborgar sagt upp störfum frá
og með 1. febrúar nk. vegna óánægju
með launakjör. Sigrún A. Jónasdóttir
formaður skólanefndai' Árborgar vill
lítið segja um uppsagnirnar á þessu
stigi en bendir á að fulltrúar kennara
hafi verið boðnir á fund samninga-
nefndar Árborgar í dag og segir að á
þeim fundi verði reynt að leita lausn-
ar á málinu.
-----------------
Fyrirlestur um
rétt kvenna
PRÓFESSOR Hanne Petersen flyt-
ur fyrirlestur í Norræna húsinu
þriðjudaginn 24. nóvember um efnið:
„Kvinder, ret og værdier i en
globaliseret verden“. Fyi-irlesturinn
hefst kl. 12 og á eftir verða umræður.
Að fyrirlestrinum standa m.a.
Rannsóknastofa 1 kvennafræðum, fé-
lagsvísindadeild Háskóla íslands og
Norræna kvennaréttarnetið, sem
nýtur styrks frá Norðuriandaráði.
Prófessor Hanne Petersen er
dönsk að uppruna en starfar nú sem
prófessor í Nuuk á Grænlandi. Hún
hefur ritað um ýmis lagaleg, heim-
spekileg og félagsfræðileg mál, m.a.
vinnuvernd kvenna og umhverfismál.
»bittrinnjjgflfiiimúffiaiun hjj&tta unggjaftstu igÉaaðapiÉt. Afjh.yife.tilet|ia
Bfffðum öfð' upp á^fveðjutiíboðsvéf'ð ■ 50föafsláÍfSf ölluffi*vörunf’“
verslunarinnar. Að auki seljum við hvíta
{^lgmál^Sigu ággffitkr. Ijjgjgin ogl^iri
litrík tilboð munu líta dagsins Ijós!
ÍUutinn
Síðumúla 15 • sími 553 3070
Liturinn þakkar öllum viöskiptavinum sínum fyrr og síðar ánæguleg kynni