Morgunblaðið - 24.11.1998, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
1 I iÆ 4? 1
^ : I í j PH | in 1
FRÁ endurvígslu gömlu kirkjunnar í Stykkishólmi síðastliðinn sunnudag.
Gamla kirkjan í
Stykkishólmi í sitt
upprunalega horf
Stykkishólmi - Það var hátíðleg
stund þegar biskupinn yfir fs-
landi, Karl Sigurbjömsson, end-
urvígði gömlu kirkjuna í Stykkis-
hólmi. Sóknarpresturinn í Stykk-
ishólmi, sr. Gunnar Eiríkur
Hauksson, þjónaði fyrir altari.
Sóknarprestar í prófastsdæminu
voru einnig viðstaddir og sr. Gísli
Kolbeins sem þjónaði Hólmurum
til margra ára.
Konungsleyfi fyrir bygging-
unni var gefið út í byrjun 1878.
Um sumarið var grunnurinn
gerður og bygging kirkjunnar
hófst þá um haustið. Hún var
vígð í októbermánuði árið 1879
og er því 119 ára gömul. Kirkj-
una teiknaði Helgi Helgason,
tónskáld og húsasmiður, og
Jóhannes Jónsson snikkari tók að
sér að byggja hana.
Þegar nýja kirkjan í Stykkis-
hólmi var vígð og tekin í notkun
árið 1990 vöknuðu spurningar
um hvað ætti að gera við gömlu
kirkjuna. Kirkjunni hafði lítið
verið haldið við og ástand hennar
orðið mjög bágt. Þar sem í
Stykkishólmi hefur verið mikill
áhugi á að viðhalda gömlum liús-
um og húsaþyrpingin í miðbæn-
um setur fallegan svip á bæinn
var ákveðið að ráðast í það verk
að endurbyggja hana.
Kirkjan hefur iistrænt og
menningarsögulegt gildi sem rétt
er að varðveita. Endurbygging
kirkjunnar hófst fyrir nokkrum
árum. Verkið gekk hægt í byijun,
en í ágiíst á síðasta ári skipaði
sóknarnefnd fimm manna fram-
kvæmdanefnd sem fékk það verk-
efni að ljúka endurbyggingu
kirkjunnar og sjá um að fjár-
magna verkið. Nefndina skipuðu:
Rakel Olsen, Dagbjört Höskulds-
dóttir, Ólafur K. Ólafsson, Bernt
Sigurðsson, Gunnar Sturluson og
William Thomas Möller.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Á einu ári hefur tekist að ljúka
verkinu og er kirkjan nú í upp-
runalegri mynd. Kirkjuturn var
endurbættur, þakið klætt stein-
skífum og kirkjubekkir lagfærð-
ir. Vandað hefur verið til allrar
vinnu og frágangs og er kirkjan
mjög falleg. Þeir sem unnu að
endurbyggingunni voru Baldur
Þorleifsson, Sigurður Lárusson
og Jón Svanur Pétursson. Hjör-
leifur Stefánsson arkitekt
teiknaði breytingarnar og fylgd-
ist með verkinu og haft var náið
samráð við Húsfriðunar-
nefnd.
Kostnaður við endurbyggingu
kirkjunnar er um 18 milljónir.
Framkvæmdanefndin skilar
gömlu kirkjunni skuldlausri til
sóknarnefndar, sem tekur nú við
rekstri kirkjunnar sem mun
gegna sínu fyrra hlutverki í
kirkjulegum athöfnum.
Kerta-
fram-
leiðsla á
Flateyri
NÝVERIÐ keyptu hjónin
Sarah J. Allard og Þorvaldur
Pálsson kertaframleiðslu að
sunnan, í þeim tilgangi að hefja
slíka framleiðslu á Flateyri.
Framleiðsla kertanna er ein-
föld, bráðið býflugnavax er sett
í mót með mismunandi mynstr-
um og það síðan látið harðna.
Framleiðslan hefur gengið
vonum framar og eru kertin
þegar komin í sölu hjá hand-
verkshópnum Purku á Flateyri
og í söluturninum Kjartanshúsi
sem þau hjón reka. Til stendur
að koma þeim víða í dreifingu.
Notkunargildi kertanna eru
mikið, þau er hægt að nota
jafnt á jólum sem og öðrum
tyllidögum.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
KRAKKARNIR gerðu furðufiska sem hengdir voru upp í anddyrinu,
en það var málað og því breytt í fiskabúr.
Nemendur í aðgerð og
mælingum á Ari hafsins
F.v. Björn Sigurbjörnsson, ráðuneytisstjóri landbúnaðan-áðuneytis,
afliendir verðlaunin, Sigurgeir Þórarinsson frá Ferðaklúbbnum 4x4,
Orri Hrafnkelsson, Örn Bergsson frá Landgræðslufélagi Öræfinga,
Eyþór Pétursson, Baldursheimi, og Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri.
Reyðarfirði - í síðustu viku var
þemavika hjá krökkunum á Reyð-
arfirði. Nemendur og kennarar
lögðu stundaskrána til hliðar og við
tóku ýmis verkefni og vettvangs-
ferðir tengd þema vikunnar „Haf-
inu“. Nemendur fengu m.a. að
skoða Dröfnina, skóla- og
rannsóknaskipið.
Allir nemendur skólans skoðuðu
skipið og nemendur í 9. og 10. bekk
fóru í veiðiferð út á fjörðinn. Troll-
inu var kastað og það reyndist
ágætur afli í pokanum svo það var
nóg að gera í mælingum og aðgerð
niðri á millidekki. Að aðgerð lokinni
voru sjaldgæfar fisktegundimar
skoðaðar. Ahöfnin á Dröfninni sá
um að fræða nemendur og þar var
valinn maður í hverju rúmi. Fróðir
og skemmtilegir menn sem allt
vildu fyi'ir krakkana gera. Stjórn-
völd eiga heiður skilinn fyrir að gefa
nemendum um land allt kost á því
að nýta sér skólaskipið Dröfnina og
vonandi að það verði til framtíðar.
Nemendur heimsóttu sjávarút-
vegsfyrirtæki á Reyðarfirði, SR-
mjöl og Skinney og á Eskifirði var
farið á netaverkstæði og í rækju-
vinnslu Hraðfrystihúss Eskifjarðar.
Hvarvetna var nemendum vel tekið
og þeir urðu margs vísari, því
reyndin var sú að fæstir höfðu kom-
ið inn í þessi fyrirtæki. Þá var
Sjóminjasafnið á Eskifirði heimsótt
þar sem hinn fróði og vinalegi safn-
vörður, Geir Hólm, tók á móti þeim
og sagði þeim frá lífinu fyrr á öld-
um.
I skólanum var unnið að margvís-
legum verkefnum. Þar má nefna
netagerð, þar sem nemendur lærðu
algenga hnúta og fengu tilsögn í að
riða net, eldhús með sjávarréttum
og sett var á fót rannsóknastofa þar
sem sjávardýr voru skoðuð í smásjá
og víðsjá. Krakkarnir gerðu furðu-
fiska sem hengdir voru upp í and-
dyrinu, en það var málað og því
breytt í fiskabúr. Af Netinu var náð
í upplýsingar og einnig úr bókum og
fjölmörg plaköt litu dagsins ljós svo
og stórt málverk eftir yngi'i nem-
endur eftir sögunni um selshaminn.
í lok vikunnar voru líffræðingar frá
Hafrannsóknastofnun fengnir til að
koma austur með sína landsþekktu
sýningu, sem þeir komu upp í skól-
anum samhliða sýningu nemenda.
Land-
græðslu-
verðlaun-
in 1998
Hellu - Viðurkenningar Land-
gi æðslu ríkisins voru afhentar sl.
föstudag í höfuðstöðvum Land-
græðslunnar í Gunnarsholti.
Verðlaunað var fyrir framtak í
þágu landgræðslu og gróður-
verndar, en með því vill Land-
græðslan vekja athygli þjóðar-
innar á fórnfúsu starfi ótal
þjóðfélagsþegna að landgræðslu-
málum og jafnframt hvetja fleiri
til dáða. Leitað var eftir tilnefn-
ingum frá öllum búnaðarsam-
böndum og umhverfisnefndum
landsins, en verðlaunin,
„Fjöreggið“, sem hjónin Edda
Björnsdóttir og Hlynur Halldórs-
son á Miðhúsum hönnuðu og
smíðuðu úr tré, hlutu fjórir aðil-
ar í ár.
Eyþór Pétursson, bóndi í Bald-
ursheimi í Mývatnssveit, hefur
ásamt fjölskyldu sinni stundað
uppgræðslu á jörð sinni um ára-
bil. Hann hefur grætt upp tugi
hektara af örfoka melum og
rofabörð svo kílómetrum skiptir.
Hann hefur tekið þátt í verkefn-
inu „Bændur græða landið“ frá
upphafi, en það er samstarfs-
verkefni Landgræðslunnar og
bænda um uppgræðslu heima-
landa. Hann stundar vistvæna
sauðfjárframleiðslu og er búinn
að bæta og auka svo mikið við
heimaland sitt, að hann er hætt-
ur að reka fé á afrétt.
Ferðaklúbburinn 4x4 er félag
áhugamanna um ferðalög og
búnað Qórhjóladrifsbifreiða.
Klúbburinn hefur einnig að
markmiði að vinna að umhverfís-
vernd og ábyrgri afstöðu félags-
manna sinna til góðrar umgengni
við náttúru landsins. Að þessu
hefur klúbburinn m.a. unnið með
stofnun umhverfisnefndar, með
fræðslu og sérstökum ferðum
félagsmanna, þar sem unnið hef-
ur verið að merkingum
vegaslóða á hálendinu til að
koma í veg fyrir akstur utan
vega á viðkvæmu gróðurlendi.
Þá hefur klúbburinn unnið við
uppgræðslu- og gróðurverndar-
verkefni í samstarfi við Land-
græðslu ríkisins.
Landgræðslufélag Oræfinga
var stofnað 1. nóvember 1992.
Það hefur að meginmarkmiði að
koma samfelldum nytjagróðri á
undirlendi sveitarinnar auk
fjallahlíða þar sem gróðurskil-
yrði og aðstæður leyfa. Eitt
fyrsta verkefnið var að friða
beit á rúmlega 5 þúsund hektur-
um lands ofan vegarins milli
Hofs og Hnappavalla. Félags-
menn hafa unnið ötullega að
þessum markmiðum með sán-
ingu og plöntun Iandgræðslu-
jurta, s.s. grass og lúpinu.
Einnig hefur verið lögð áhersla
á að koma upp birkiskógi á
þessu hrjóstuga landi. Félagið
hefur lagt áherslu á að virkja
unglinga til starfa, unnið að
fræðslu og breiðri þátttöku
brottfluttra Oræfinga auk
heimamanna.
Orri Hrafnkelsson hefur verið
formaður Skógræktarfélags
Austurlands síðan 1987. Undir
forystu hans hefur félagið lagt
mikla rækt við ýmis Iandvernd-
armálefni og náðst hefur sam-
staða um friðun stórra
landsvæða á Jökuldal og í
Jökulsárhlíð. Fyrir forgöngu
hans og tilstyrk Vegagerðarinn-
ar var lokið við friðun landsvæða
frá Teigará milli Hofteigs og
Hjarðarhaga og út að Hnitbjörg-
um í Jökulsárhlíð, alls um 42
kílómetra að lengd og um þrjú
þúsund hektara að stærð. Friðun
þessa svæðis býður upp á mikla
möguleika í landgræðslu og
skógrækt.
Dómnefnd var skipuð Huldu
Valtýsdóttur, Sigurgeiri Þor-
geirssyni, Nfelsi Árna Lund, Sig-
mundi Einarssyni og Sveini
Runólfssyni.