Morgunblaðið - 24.11.1998, Síða 19

Morgunblaðið - 24.11.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 19 ESB dæmir í máli Asea Brown Boveri Ltd. 5,7 milljarða sekt fyrir einokunartilburði Loftleiðabarir fá Dynakey afgreiðslukerfi HÓTEL Loftleiðir hefur samið við EJS um að setja upp NCR Dynakey-afgreiðslukerfi á bör- um og veitingastöðum þess. í fréttatilkynningu frá EJS segir að NCR Dynakey séu not- endavæn afgreiðslutæki sem byggist á PC-tölvum og Windows-stýrikerfum. „A NCR Dynakey keyrir veitingahúsaút- gáfa af afgreiðsluhugbúnaðinum Auði sem er íslenskur hugbún- aður fyrir Windows, smíðaður á hugbúnaðarsviði EJS. Af- greiðslutækin hjá Hótel Loftleið- um eru með snertiskjá. Sljórnun kerfísins er myndræn og velur notandinn allar aðgerðir með því að styðja á skjáinn. Auður býður úrval notendaskila sem henta mismunandi afgreiðslum, svo sem lyljaverslunum, vínveit- ingastöðum, matsölustöðum og almennum verslunum. I notendaskilum fyrir veit- ingahús má nefna að uppröðun borða er breytt með því að draga borð saman eða sundur með fíngri á snertiskjá. Upp- gjör, sem oft eru flókin á veit- ingastöðum, eru gerð afar ein- föld í Auði,“ segir í tilkynning- unni. Á meðfylgjandi mynd sjást fulltrúar frá EJS, Hótel Loftleið- um og G&G veitingum þegar samstarfssamningurinn var und- irritaður. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu- sambandsins ákvað í síðustu viku að sænsk-svissneska fyrirtækið ABB, Asea Brown Boveri Ltd., skuli greiða 70 milljón Ecu, um 5,7 millj- arða króna, í sekt fyrir að beita markaðshamlandi aðgerðum á mark- aði fyrir hitaveitulagnir. Þetta er þriðja hæsta sekt sem fyrirtæki inn- an ESB hefur verið dæmt til að greiða á þessum forsendum. Fyrirtækið hefur sýnt íslenskum markaði mikinn áhuga í gegnum tíð- ina og hitaveitulagnir frá þeim eru t.d. í notkun hjá Hitaveitu Reykjavík- ur. Þekktast er fyrirtækið þó hér á landi fyrir framleiðslu og sölu á raf- búnaði, sem notaður er víða um land í virkjunum Landsvirkjunar m.a. Reyndu að bola keppinauti út Framkvæmdastjórn ESB sagði í yfirlýsingu að ABB og níu minni fyr- irtæki hefðu gert leynilegt sam- komulag um að deila markaði með hitaveitulagnaefni á milli sín. Þau hafi einnig haft samráð um verð og reynt að bola keppinauti út af mark- aðnum. Sagði framkvæmdastjórnin að samvinna fyrirtækjanna hefði hafist í Danmörku árið 1990, færst út til Þýskalands skömmu síðar og frá 1994 hefði samráðið náð yfir allt Evrópusambandið, á markaði sem væri 400 milljóna Ecu virði. Einn af varaforsetum ABB, sem nú er hættur störfum, er sagður hafa stjórnað þessu samráði. Hann var ekki nafngreindur. ABB vOdi ekki Þekkt fyrir raf- búnað á íslensk- um markaði tjá sig um úrskurðinn að svo komnu máli. Guðmundur Ólafsson fram- kvæmdastjóri Johan Rönning hf. umboðsaðÖa ABB á íslandi, vildi lítið tjá sig um málið að öðru leyti en því að sektin væri vegna ABB IC Möll- er, dótturfyrirtækis ABB-sam- steypunnar, sem framleiðir hita- veiturör í Danmörku. „Þetta eru ekki hefðbundin vinnubrögð hjá ABB enda er fyrirtækið ekki þekkt af öðru en góðu hér á markaðnum," sagði Guðmundur. Að hans sögn er rafbúnaður frá ABB í ýmsum virkjunum hérlendis og síðasta stóra verkefnið sem íyrir- tækið tók þátt í hjá Landsvirkjun var rafbúnaður fyrir Hrauneyjafoss- virkjun, en auk þess hefur búnaður frá fyrirtækinu m.a. verið notaður í spennistöðvum og raflögnum víða um land auk þess sem Norðurál og álverið í Straumsvík nota rafbúnað fráABB. Fyrirtækið hefur einnig tekið þátt í útboði hjá Hitaveitu Reykjavíkur sem notar lagnaefni frá þeim, að sögn Guðmundar. ABB er að sögn Guðmundar stærsta fyrirtækið í heiminum á sviði framleiðslu á búnaði fyrir flutn- ing og dreifingu á rafmagni. Þorsteinn HOmarsson upplýsinga- fulltrúi Landsvirlgunar sagði- að þessi dómur skipti fyrirtækið litlu. „Okkar innkaup eru í mjög fóstum skorðum. Við vöndum til útboðs- gagnagerðar og metum gæði og hag- kvæmni tOboða á hverjum tíma og við treystum ABB til að bjóða góða hluti. Við höfum haft ágætt samstarf við ABB í gegnum tíðina og ég geri ekki ráð fyrir að við forðumst þá, þrátt fyrir þennan dóm,“ sagði Þor- steinn. Hann sagði að að undanfómu hefði ABB ekki verið með hagstæð- ustu boðin í stór verkefni á vegum Landsvirkjunar og hefði því aðallega verið með smærri verk fyrir Lands- virkjun síðustu ár. Landsvirkjun á þó reglulega í samstarfi við þá, að sögn Þorsteins. „Ætli við séum ekki í einhverjum tuga mOljóna viðskiptum við þá í dag,“ sagði Þorsteinn. --------------------- Slökkt á síðari ofni Járnblendi- félagsins VEGNA frekari skerðingar á raf- orku til Islenska jámblendifélagsins hf. verður síðari af tveimur bræðslu- ofnum félagsins í verksmiðjunni á Grundartanga tekinn úr rekstri mið- vikudaginn 25. nóvember og verður því slökkt á báðum ofnum verksmiðj- unnar fram til áramóta, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Tím- inn verður nýttur til stærri viðhalds- verkefna sem ekki er hægt að vinna með ofnana í rekstri. Fram til 5. des. fær ys og þys á ys.is hundraðasti hver gestur á ys.is ókeypís áskrift aó Bíórásirmi eða I Sýn í desember.” Gjörðu svo vel að ganga í bæinn A ys.is getur þú kynnt þér dagskrá Stöövar 2, Sýnar, Bíórásarinnar og Fjölvarpsins. Þú sérð 19-20 í beinni og getur fylgst með útsendingu Bylgjunnar. Þú kynnír þér áskriftarkosti og skoðar hvaða íþróttaútsendingar eru fram- undan. Þú næró sambandí við þáttagerðarmenn og kemst beínt á heimasiöur vinsælustu þáttanna. w ww.ys.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.