Morgunblaðið - 24.11.1998, Side 40

Morgunblaðið - 24.11.1998, Side 40
*40 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Um að lifa af bækur / „Lesturinn er veruháttur Islendingsins. Að lesa er að vera. Lífsbarátta Islendings- ins ferfram í bókunum, í bókmenntunum. Tilvera kans byggist á því að hann hafi sogið í sig merginn úr arfinum og skilað honum frá sér í nýju formi, í nýju efni, með nýju inntaki, - nýtt á gömlum merg, það er Island, land í sífelldri endurnýjun, lífæxlast aflífi, orð aforðum, bækur afbókumf ÞAÐ ER orðin mál- venja að tala um bókaflóð á haustin. Flóðið skellur á okkur og kaffærir, enginn fær við neitt ráðið. Og þetta flóð birtist ekki einungis í formi bókanna sjálfra heldur einnig í formi auglýsinga um bækur, frétta um bækur, viðtala um bækur, ritdóma um bækur. Bóka-þetta og bóka-hitt hellist yfir fólk af þvílíkum jötunmóð að um stund er eins og allt annað standi í stað, það sé ekkert ann- að líf, engin annar tími - aðeins þessi bókatími. Bókaútgáfan er orðin ein af höfuðskepnum landsins, ógn- vekjandi náttúruafl sem við ber- um ótta- VIÐHORF Eftir Þröst Helgason blandna virð- ingu fyrir. Samt vildum við ekki vera án þess frekar en óblíðrar veðr- áttunnar eða eldsins í iðrum jarðar því að það er þetta sem gerir okkur að Islendingum, það er glíman við höfuðskepnurnar sem hefur gert okkur jafnharð- dræg og raun ber vitni, - við er- um Islendingar vegna þess að við kunnum að lifa af eld og ís - og bækur. Að lifa af bækur. Á því byggist lífið í landinu. Sumir hafa mis- skilið þetta og haldið að lögmálið væri: Að lifa af bókum. Markað- urinn er ekki það lögmál sem heldur landinu á floti, heldur lesturinn, stríðið við bækurnar, við bækur aldanna. Lesturinn er veruháttur ís- lendingsins. Að lesa er að vera. Lífsbarátta Islendingsins fer fram í bókunum, í bókmenntun- um. Tilvera hans byggist á því að hann hafi sogið í sig merginn úr arfinum og skilað honum frá sér í nýju formi, í nýju efni, með nýju inntaki, - nýtt á gömlum merg, það er Island, land í sí- felldri endurnýjun, líf æxlast af lífi, orð af orðum, bækur af bók- um. Landið er byggt á bókum. Bókin nam landið með hinum landvættunum, úr öðrum heimi, hjáguð, guð. Hún skapaði okkur sjálfsmynd, gerði okkur að fólki með fortíð, með grunn, grundvöll til að standa á, byggja á, bak- grunn í konungum og hirðfólki. Bókin gerði okkur að stórmenn- um með forsögu, rætur. I bók- inni eru rætur okkar. Þegar í upphafi byggðist tilveruréttur okkar á henni. Þarna er kjarninn og það er í tilraun til þess að höndla þenn- an merkingarkjarna sem þjóðin hefur eflst, styrkst og stækkað. Löngunin til að viðhalda honum, útvíkka hann hefur haldið í okk- ur tórunni og ekki síður glór- unni. Hvers vegna erum við hér? Hvers vegna förum við ekki? Hvers vegna finnum við ekki einhvern betri stað, mildari stað, stað þar sem er þurrt og heitt, þar sem er ræktanlegt land? Leitin að svörunum hélt lífinu í blákaldri þjóðinni. Þessi svör fann hún í glímunni við textann sinn. Beygð og hokin í baðstof- unni, hálfköfnuð úr eigin búklykt tautaði hún fyrir vöram sér: Hvernig ættum við að geta yfir- gefið þessar bækur? Hvernig ættum við að geta yfírgefið þess- ar sögur? Hvernig ættum við að geta farið í miðjum lestri, í miðri sögunni? Hvar ættum við að geta fundið betri sögur? Hvar ættum við að geta fundið ríkari fortíð? Hvar ættum við að geta fundið aðrar eins hetjur til að blása í okkur baráttuanda, lífsanda? Hvar annarsstaðar myndum við finna okkur sjálf? Hvar annarsstaðar gætum við fundið svo fagra hlíð? Hvar höf- um við göfugra markmið en að frelsa þessa hlíð? Já, stolt var hún, þrátt fyrir allt, þessi þjóð. Þetta er rómantísk mynd en rómantíkin getur stundum verið rétt. Bækurnar héldu okkur hér. Þrátt fyrir fjölmargar og út- spekúleraðar tilraunir þrjóskra og misviturra valds- og þá eink- um guðsorðamanna fyrri alda til að brjóta þennan vilja til skiln- ings, til leitar að merkingu, til sköpunar á bak aftur þá fann þjóðin leið til þess að stunda sinn lestur. Guðsorð þurfti ekki. Þeirra guð var í gömlu bókun- um. Orð þeirra voru lög, lögmál manns og jarðar. I hartnær þrjúhundruð ár var nánast ekk- ert prentað hér á landi nema guðsorð en gömlu bækurnar lifðu með þjóðinni og af lestri þeirra æxluðust nýjar sögur, frjósöm orð. Nú er guðsorð þessa tíma að mestu gleymt en það sem ekki mátti prenta lifir góðu lífi, þar er stór hluti ger- sema okkar. Og þannig hélt þjóðin áfram að skilgreina sig og skilja í bók- um, í gegnum harðindi, pestir og baráttu um sjálfstæði. Jafnvel þeir sem flýðu land héldu tengslunum við bækurnar sínar, héldu áfram að yrkja sögurnar sínar og skapa sjálfa sig í bók- um. Og þannig skilgreinir þjóðin sig enn í bókum, í lestri sem skapar. Það er lesturinn sem heldur lífinu í Frónbúanum. Það er baráttan við bókina sem gerir hann að Islendingi. Sú barátta tekur aldrei enda. Bókin er lífs- ins ólga. Að lifa af bækur. Að komast milli orða, frá orði til orðs. Þarna liggur efinn í tilvera okkar. Þarna skilur á milli hamingju og óhamingju, feigs og ófeigs. í þessu bili er uppspretta merk- ingar en líka angistar, þarna verður kaos að kosmos eða heim- ur að neind. En þegar upp er staðið felst mennskan í þessari glímu. Lesturinn helgar lífið. Að lesa eða lesa ekki. Það er spurningin. Það er svo mörgu skrökvað Á DÖGUNUM var Kristján Ragnarsson 1 sjónvarpinu á Stöð 2, þar sem hann í frétta- þætti sat fyrir svörum hlustenda, sem hringdu inn til stöðvar- innar. Meðal spurning- anna, sem lagðar vora fyrir Kristján, var ein sem snerist um það lága hlutfall afla upp úr sjó, sem frystitogarar koma með að landi. All- ir vita, að þetta hlutfall getur verið þriðjungur og allt niður í fjórðung- ur afla, sem telst vera úr sjó. Þar er ekki með- talinn smáfiskur og ruslfiskur, sem spúlað er út um lensportin, svo að hlutfallið getur stundum verið enn lægra. Svar Kristjáns var afar skýi-t. Hann sagði, að búið væri að sýna fram á það með ítrekuðum útreikn- ingum, að það „borgaði sig ekki“ að koma með þennan úrgang í land og því væri sjálfgefið að fleygja öllu þessu affalli í hafið og senda það þannig á ný inn í lífkeðjuna. Hér er ekki um neitt lítilræði talað, heldur fleiri tugi þúsunda tonna á ári. Svar Kristjáns lýsir, eins og svo margt annað í hans framgöngu, hans ofurþröngu sýn á alla hluti, sem sjávarútveg varða. Á útveginn er sjálfsagt, að mati Kristjáns, að leggja allt annan mælikvarða en all- an annan atvinnurekstur í landinu. Það „borgar sig ekki“ fyrir járn- blendifélagið að hreinsa 15.000 tonn af ryki út úr útblæstri verksmiðj- unnar á ári. Ætli fjárfestingin, sem til þarf sé ekki 6-700 milljónir á hvern ofn og rekstrarkostnaður fleiri tugir milljóna króna á ári. Það borgar sig ekki fyrir hvaða iðjurekstur sem er eða þjónustustarfsemi að halda til haga tilfallandi affalli og spilliefnum, sem til falla í rekstrin- um. Þvert á móti þarf slíkur rekstur að kosta verulegum fjármunum til að farga slíku affalli með viðurkenndum hætti. Ætli það borgi sig fyrir loðnubræðslur að losa sig við lyktar- mengun eða grútarfrárennsli eða fyrir olíufélög að ganga svo ti’yggi- lega frá sínum starfsstöðvum, að ol- ía komist ekki út í sjó? Ellegar ætli Það er skrökvað af því að það er alveg sjálf- sagt á fjárhagslegum forsendum, segir Jón Sigurðsson í sjöttu grein sinni af 7. það borgi sig peningalega fyrir Reykjavíkurborg að leggja og reka hið gagnmerka frárennsliskerfi borgarinnar fyrir ótalda milljarða króna? Nei. Ekkert af þessu „borgar sig“. Það er einfaldlega eðlilegur og sjálfsagður hluti af nútímasiðmenn- Jón Sigurðsson ingu í umgengni fólks við umhverfi sitt. Og menn kosta því til, sem kosta þarf. Dagljóst er hins vegar af forstokkuðum svörum Ki’istjáns Ragnarssonar, að sú siðmenning hefur ekki náð til hans ennþá að því er sjóinn varðar og umgengnina við hann. Það er nefnilega ekkert víst, að það „borgi sig“ að gera út frysti- togara, ef til þeirra væra gerðar hinar sömu og eðlilegu kröfur og alls annars atvinnurekstrar, að þeir haldi utan um og fargi með fram- bærilegum hætti öllu sínu affalli. En hverju var þá skrökvað? Því, að það sé alveg sjálfsagt á fjárhags- legum forsendum, að frystitogarar kasti fyrir borð á hverjum áratug hundruðum þúsunda tonna af affalli og smáfiski, hvar sem þeir eru staddir á fiskimiðum. Það er umhugsunarefni og kannski til marks um hversu hefð- bundin og básaskipt umræðan um umhverfismál er, að þeir tveir reyndu sjónvarpsfréttamenn, sem stjórnuðu téðum sjónvarpsþætti, sýndu engin merki þess í útsending- unni, að þeim þætti neitt athuga- eða spurnarvert í þessu svari Krist- jáns Ragnarssonar. Frá því var sagt af síðasta árs- fundi LÍÚ, að samtökin hafi markað sér stefnu í umhverfismálum, en þetta atriði gleymdist víst þar. Og í bráðfallegum sjávardýralífsmynd- um, sem LIÚ notar í áróðursauglýs- ingum í sjónvarpinu hefur þetta líka gleymst, ef menn hefðu viljað segja satt frá. Inn í myndirnar vantar all- an þann ýlduviðbjóð, sem leiðir af því hátterni, sem að ofan er lýst og frystitogararnir dreifa um fískislóðir í magni, sem skiptir hundruðum tonna hvern einasta dag, sem þeir athafna sig á miðunum. En skiljan- legt er það. Drafúldið fiskúrkast á hafsbotni gefur ekki góða ímynd. Höfundur er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri og fyrrverandi starfs- maður sjávarútvegsráðuneytis. Háls-höfuð- verkur TALIÐ er að um 90% landsmanna muni fá höfuðverk einhvern tíma á lífsleiðinni. En hvað er höfuðverkur? Ég held að allir séu sammála um að það sé verkur eða sársauki í höfði. En það eru alls ekki allir sammála um hvað valdi höfuðverk, enda ekki von á öðru þar sem ekki er um eina orsök að ræða fyrir þeim fjölda af- brigða sem verkur í höfði getur verið. Eitt afbrigðið er svokallað- ur háls-höfuðverkur. Háls-höfuðverkur er verkur sem á upptök sín í hálsi en ekki í höfði. Talið er að 15-20% af öllum lang- vinnum og endurteknum höfuð- verkjum sé vegna stoðkerfisvanda- mála í hálsi. Einnig er þetta al- gengasta verkjavandamálið eftir hálsskaða eins og „whiplash" (tognun á hálsi við snöggt átak t.d. við aftanákeyrslu). Háls-höfuðverk er lýst sem höfuðverk öðrum meg- in í höfði en getur þó verið beggja vegna en þá með aðra hliðina ríkj- andi. Hann kemur í lang flestum tilfellum fram sömu megin í höfði við hvert kast en skiptir ekki um hlið eins og vill vera við mígreni. Einnig er oftast verkur í hálsi eða rétt neðan við höfuðkúpu samhliða háls-höfuðverk en oft er verkurinn það sterkur í höfði að viðkomandi áttar sig ekki á því. Verkurinn get- ur einnig byrjað í hnakkanum sem svo stigmagnast og leiðir fram í enni eða augu. Þetta getur komið oft fyrir í mánuði, staðið mislengi og oft situr stöðugur seiðingur eft- ir þangað til verkurinn í höfðinu fer aftur versnandi. Einnig getur svimi, ógleði og eyrnasuð fylgt í kjölfarið. Að sjálf- sögðu fá ekki allir mjög sterka verki í höfuðið, því stundum er þetta seiðingur sem kemur fi’am við aukið álag, eða við að horfa á sjónvarpið, eða ein- göngu fyrst á morgn- ana og við kennum lé- legum kodda um. Þetta getur einnig verið þreytandi stöð- ugur seiðingur sem aldrei virðist fara nema yfir blánóttina. Staða höfuðs hefur mikið að segja en oft- ar en ekki gerir við- komandi sér ekki grein fyrir því hvaða stöður valda eða ýta undir höfuðverk, enda er hann oft lengi í sömu stöðu áður en höfuðverkur- Það er landlægur misskilningur, segir Sveinn Sveinsson, að höfuðverkur sé bara höfuðverkur. inn fer að gera vart við sig. Að sama skapi getur verið erfitt að finna stöður sem minnka verkinn en þó hjálpar oft að leggjast út af og/eða taka verkjatöflur. Sjúkraþjálfun getur hjálpað Flestir hafa sínar skyndiskýr- ingar á verkjavandamálinu og gera lítið í málinu annað en taka verkja- töflur í hvert skipti sem höfuð- verkurinn verður of mikill. Oft gefst fólk þó upp á þessu og leitar til læknis því bæði er þetta óþægi- legt og oft mjög kvalafullt og einnig grípur hræðsla um sig hjá Sveinn Sveinsson fólki við að hafa verki í höfði. Það er mjög skiljanlegur ótti og ættu allir að leita til læknis og fá hans álit ef um endurtekna verki í höfði er að ræða. Sjúkraþjálfarar hafa fengið menntun og þjálfun til að finna út hvort um háls-höfuðverk sé að ræða eða ekki. Ef um háls- höfuðverk er að ræða þarf að finna út hvað það er í hálsi sem veldur höfuðverk. Helstu ástæður háls- höfuðverkjar eru vöðvaójafnvægi í hálsi, liðavandamál eins og skekkj- ur, stífleiki, ofhreyfanleiki ein- stakra liða, slitbreytingar o.fl. og bólga eða lélegt taugaflæði frá efstu hálsliðum og fram í höfuð. Einnig skiptir miklu máli hvernig viðkomandi beitir sér við vinnu og við hvíld, því rangt álag á hálsinn getur með tímanum orsakað verkjavandamál í höfði. Til þess að geta hjálpað viðkomandi þarf því að finna út orsök höfuðverkjarins. Oft er það auðvelt, sérstaklega þegar um nýlegt vandamál er að ræða, og meðhöndlun hjá sjúkra- þjálfara ætti að taka stuttan tíma. Ef vandamálið fær hins vegar ekki rétta meðhöndlun strax getur ástandið versnað til muna og fleiri verkjavandamál fara að koma fram, því aðlægir liðir og vöðvar fara þá að vinna öðruvísi og gera jafnvel illt verra. Þá þarf mjög ná- kvæma greiningu og meðhöndlun út frá henni verður að vera jafn nákvæm ef takast á að uppræta orsökina. Einnig hefur komið í ljós að vandamál í hálsi eykur á aðrar gerðir höfuðverkja, eins og mígreni höfuðverk, bæði af krafti og tíðni og því nauðsynlegt að meðhöndla það strax. Ái-íðandi er að einstaklingur reyni að gera sér grein fyrir af hverju verkurinn stafar, þótt það sé landlægur mis- skilningur að höfuðverkur sé bara höfuðverkur sem ekkert sé hægt að gera við nema taka verkjatöfl- ur. Höfuðverkur, eins og hver ann- ar verkur, þýðir: „Það er eitthvað að!“ Höfundur er löggiltur sjúkraþjálfnri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.