Morgunblaðið - 24.11.1998, Side 57

Morgunblaðið - 24.11.1998, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 5 7 FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg HLUTI húsgagnanna sem seldur er á Grand Háteli. Sölusýning á húsgögnum SÖLUSÝNING á húsgögnum í antík-stíl stendur yfir á Grand Hóteli og lýkur henni nk. miðvikudagskvöld. Húsgögnin eru smíðuð eftir gömlum fyrirmyndum í Indó- Landssím- inn opnar netverslun LANDSMENN geta nú keypt síma- búnað af Landssímanum í gegnum Netið. Netverslunin var opnuð föstu- daginn 20. nóvember. Kaupin fara þannig fram að við- skiptavinurinn skoðar búnaðinn á vefsíðunum þar sem hann getui' séð mynd af vörunni og fengið upplýs- ingar um verð og fleira. Vilji hann kaupa vöruna velur hann hnapp „Bæta í innkaupakörfu" og þannig getur hann sett í körfuna allar þær vörur sem hann ætlar að kaupa. Síð- an velur hann hnappinn „Kaupa“ og þá reiknar vefurinn út heildar- gi'eiðslu ásamt sendingarkostnaði. Boðið er upp á tvö möguleika á að fá vöruna afhenta, að fá hana senda annað hvort sem grænan eða bláan böggul. Grænn böggull er almenn sending á næsta pósthús en blár böggull er sendur heim til viðtak- anda. Vefurinn er líka upplýsingaveita fyrir þá sem vilja kynna sér verð og finna aðrar upplýsingar um vörur hjá Landssímanum. Vefslóð (URL) Netverslunarinnar er http://www.simi.is/simar Sýna kvikmynd Yves Angelo KVIKMYNDIN Tímaþjófurinn verður bráðlega sýnd hér á landi. Myndin, sem gerð er eftir skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur, er í leik- stjórn Yves Angelo. nesíu og eru fengin í gegnum antfksala í Danmörku og segir í fréttatilkynningu að gerður hafi verið samningur uin að húsgögn- in yrðu hönnuð úr besta fáanlega efni, þ.e.a.s. mahóní. Af því tilefni sýnir Alliance Frang- aise aðra mynd leikstjórans Yves Angelo, „Im air si pur“, miðvikudag- inn 25. nóvember kl. 21 í Austur- stræti 3. Kvikmyndin, sem gerð var árið 1996, er önnur mynd leikstjórans og hefur ekki verið sýnd hér á landi. Alliance Frangaise hefur áður sýnt kvikmynd Yves Angelo, Le Colonel Chabert, sem gerð var eftir sam- nefndu verki Balzac. Myndin sem nú verður sýnd ger- ist á glæstu heilsuhæli uppi til fjalla á árum fyrri heimsstyrjaldar. Sögu- efnið minnir á skáldsögu Tómasar Mann, Töfrafjallið, þó kvikmyndin eigi ekkert skylt við það verk. LEIÐRÉTT Um 170 en ekki 250 I fréttaspjalli við Sigrúnu Hv. Magnúsdóttur félagsráðgjafa, sem birtist í blaðinu á laugardag, var ranghermt að um 250 unglingar hefðu leitað meðferðar á meðferðar- heimilinu Tindum. Þeir voru um 170 talsins. Þá skal þess getið að viðtal þetta hafði beðið birtingar í nokkurn tíma. Misritun í Morgunblaðinu í fyrradag birt- ist auglýsing á bls. 13 með áskorun á Alþingi og ríkisstjórn um að fyrh’- skipa lögformlegt mat á umhverf- isáhrifum Fljótsdalsvirkjunar. Nafn eins þeirra, sem undirrituðu áskor- un þessa misritaðist í auglýsing- unni. Það átti að vera Hanna Guðrún Styrmisdóttir en ekki Harpa Guðrún. Þetta leiðréttist hér með. Fundur um nýútkomin greinasöfn FÉLAGSFUNDUR í Sagn- fræðingafélagi íslands verður hald- inn þriðjudagskvöldið 24. nóvember kl. 20.30 í húsi Sögufélags, Fischer- sundi. Að þessu sinni verður fjallað um nýútkomin greinasöfn. Ellen Gunn- arsdóttir leggur mat á ráðstefnurit Söguþings í fyrravor. Svavar Hrafn Svavarsson talar um ráðstefnurit guðfræði- og heimspekideildar Háskóla íslands Milli himins og jarðar. Hjalti Hugason ræðir rit- gerðasafnið Einsagan - ólíkar leiðir. ÁRNI Sigfússon með jólapoka Vímulausrar æsku og Foreldra- hópsins. Jólapokar til styrktar vímuvörnum VÍMULAUS æska og Foreldrahóp- urinn munu fyrir þessi jól selja sérmerkta plastpoka til styrktar starfi smu. Þetta eru sterkir plast- burðarpokar með jólamynd og merki samtakanna. Andvirði sölunnar verður notað til að Ijármagna rekstur ráðgjafar sem ætluð er foreldrum barna í vímuefnavanda. Þar fá foreldrar og börn þeirra ráðgjöf og stuðn- ing. Jólapokinn kostar 50 krónur og er seldur í verslunum Nýkaupa. Foreldrasími Vímulausrar æsku, 581 1799, er opinn allan sólar- hringinn. Heimasíða Vímulausrar æsku er www.tv.is/vimulaus. Ur dagbók lögreglunnar 20. til 23. nóvember 1998. Fámennt var í miðborginni um helgina eins og reyndar hefur verið undanfarnar helgar. Fá af- skipti varð að hafa af fólki og ekki þurfti að flytja nein ung- menni í athvarf, sem er nokkuð óvenjulegt. Nokkrir harðar árekstrar urðu um helgina og er ástæða til að hvetja ökumenn til að aka varlega við þær aðstæður sem oft fylgja þessum árstíma. AIls voru 38 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og 13 fyrir ölvunarakstur. Þá voru um 60 bókanir vegna ökutækja sem lagt var ólöglega. Aldrei er of oft brýnt fyrir ökumönnum að virða gildandi reglur og að taka tillit til þeirra sem nota gangstéttir. Ökumaður var stöðvaður á Vesturlandsvegi við Mosfellsbæ eftir að hafa mælst aka á 113 km hraða. Ökumaður var færður á lögreglustöð, en hann er einnig grunaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Höfð voru afskipti af ökumanni á laugardag vegna ógætilegs aksturs hans. Hafði ökumaðurinn gerst sekur um hættulegan svigakstur milli akreina og van- rækt merkjagjöf. Hann mun fá sekt fyrir akstur sinn auk þess sem ökuskírteini hafði ekki verið meðferðis eins og skylda er. Klukkan 1 að morgni laugar- dags varð mjög harður árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Kringlumýrar- og Miklubrautar. Ökumenn beggja bifreiða og farþegar úr báðum bílum voru fluttir á slysadeild með áverka á höfði, hálsi og baki. Annar öku- mannanna er grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Bæði ökutækin voru óökufær auk þess sem skemmdir urðu á umferðar- mannvirkjum. Um miðjan laugar- dag varð harður árekstur á Bústaðavegi við Háaleitisbraut. Fimm einstaklingar voru fluttir á slysdeild vegna meiðsla, þar af þrjú börn sem voru öll í annarri bifreiðinni. Um hádegisbil á sunnudag var árekstur fjögurra ökutækja á Vestui'landsvegi við Víkurveg. Ekki urðu slys á mönnum en fjar- lægja varð þrjú ökutæki af vett- vangi með kranabifreið. Einn öku- mannanna var sviptur ökuréttind- um til bráðabirgða vegna ölvunar. Innhrot - þjófnaðir Brotist var inn á heimili í aust- urborginni á föstudag og þaðan stolið nokkrum verðmætum auk þess sem skemmdir voru unnar á innanstokksmunum. Afskipti voru höfð af hópi ung- linga sem hafði farið inn í bakarí í austurborginni að kvöldi laugar- dags. Lítilsháttar skemmdir voru unnar á hurðabúnaði. Að morgni mánudags v;u' lögreglu tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir við bíla í Breiðholti. Lögi'eglu- menn náðu einum pilti á hlaupum undan réttvísinni. Hann var handtekinn og fluttur í fangahús lögi'eglu. Þá urðu lögreglumenn á eftirlitsferð varir við að verið var að gangsetja númerslausan bíl í miðborginni að morgni mánu- dags. Karlmaður var handtekinn, en skemmdir höfðu verið unnar á kveikjulás bifreiðarinnar. Hinn handtekni var fluttur í fangahús lögreglu. Annað Á laugardag slasaðist karlmað- ur á báðum fótum er hann féll niður í lest á skipi við Holta- bakka. Hann var fluttur ú slysa- deild til aðhlynningar. Ökumaður var stöðvaður um miðjan laugar- dag og fundust nokkrar flöskur af landa í bifreið hans. Ökumaður- inn var fluttur á lögreglustöð og hald lagt á mjöðinn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir, systir og fyrrverandi eiginkona, ÁSDÍS PÁLSDÓTTIR, Sléttahrauni 19, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju fimmtu- daginn 26. nóvember kl. 13.30. Páll Ragnar Kristjánsson, Kolfinna Líf Pálsdóttir, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, Gunnar Páll Ægisson, Eva Björk Kristjánsdóttir, Páll Ólafsson, María Guðmundsdóttir, systkini og Kristján Ingi Gunnarsson. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÚN ÞORGRÍMSDÓTTIR, Bjarmalandi 6, Sandgerði, lést á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur föstudaginn 20. nóvember. Jarðarförin fer fram laugardaginn 28. nóvember kl. 14.00 frá safnaðarheimilinu í Sandgerði. Björk Garðarsdóttir, Pétur Brynjarsson, Eyjólfur Gísli Garðarsson, Hrefna Birkisdóttir, Birna Helga Garðarsdóttir, Benedikt Hrafnsson, Magnús Garðarsson, Sigrún, Sigrún Erla, Katrín, Ólöf og Garðar Hrafn. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI KRISTÓFERSSON frá Götuhúsum, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju, í dag, þriðjudaginn 24. nóvember kl. 14.00. Guðbjörg Bjarnadóttir, Kristófer Bjarnason, Sigurlína Guðmundsdóttir, Júlíana Bjarnadóttir, Jón Trausti Hervarsson, Haraldur Bjarnason, Sigrún M. Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, STANLEY KIERNAN, Jökulgrunni 13, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar B7 hjartadeild, Sjúkrahúss Reykjavíkur. Maren Níelsdóttir Kiernan, Edward Kiernan, Erla Kiernan, Elsa Kiernan, Stella Kiernan, Jóhann Kiernan, Victor Kiernan, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. + Þökkum innilega samúð og vinarhug við and- lát og útför systur okkar, mágkonu og föður- systur, Dr. SIGRÍÐAR VALFELLS, Blönduhlíð 15, Reykjavík. Útför hennar fór fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til allra þeirra sem önnuðust hana á liðnum árum. Ágúst Valfells, Matthildur Valfelis, Sveinn Valfells, Svava Kristín Valfells, bræðrabörn og fjölskyldur þeirra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.