Morgunblaðið - 24.11.1998, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 61
í DAG
FRÉTTIR
Árnað heilla
/?/AÁRA afmæli. í dag,
VI V/þriðjudaginn 24. nóv-
ember, verður sextugur
Einar Guðni Jónasson,
múrarameistari, Strýtuseli
16, Reykjavík. Eiginkona
hans er Halldóra Trausta-
dóttir, ljósmóðir. Einar
verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
pT/\ÁRA afmæli. í dag,
O vr þriðjudaginn 24. nóv-
ember, verður fimmtugur
Jóhannes Pálmi Ragnars-
son, Lyngbergi 1, Þorláks-
liöfn. Eiginkona hans er
Ragnhildur Óskarsdóttir.
Þau taka á móti gestum
föstudaginn 27. mars kl. 20 í
Kiwanishúsinu í Þorláks-
höfn.
pT /AÁRA afmæli. í dag,
O Vf þriðjudaginn 24. nóv-
ember, verður fimmtugur
Sigurður Þorleifsson,
tæknifræðingur, Hraun-
brún 17, Hafnarfirði. Eig-
inkona hans er Sigrún
Óskarsdóttir. Þau hjón taka
á móti gestum kl. 18 á af-
mælisdaginn í Golfskála
golfklúbbsins Keilis, Stein-
holti 1, Hafnarfirði.
BRIDS
Llmsjón (iuðiniiiiiliir
Páll Arnarson
ÁRIÐ er 1966 og einn
Dallas-ásanna, Mike
Lawrence, sat í sæti suð-
urs, þá ungur maður og lítt
þekktur. Þetta var í rú-
bertubrids í spilaklúbbi í
San Francisco og meðal
áhorfenda var fullorðinn
maður og fastagestur í
klúbbnum.
Norður gefur; allir á
hættu.
Vestur
♦ ÁG872
»10
♦ K63
*G864
Norður
A K53
V K96
♦ D8
♦ ÁD1095
Austur
♦ 9
V 875432
♦ ÁG74
♦ 72
Suður
♦ D1064
y ÁDG
♦ 10952
*K3
Vestur Noi-ður Austrn- Suður
llauf Pass 3grönd
Pass Pass Pass
Lawrence fékk út
spaðasjöu, fjórða hæsta.
Hann tók fyrsta slaginn á
tiuna heima og spilaði strax
spaða til baka í öðrum slag.
Vestur gaf réttiiega, því
annars á sagnhafi níu slagi.
Kóngur blinds átti slaginn
og nú spilaði Lawrence
tíguldrottningu úr borði.
Með tímanum tókst honum
að byggja upp slag á tígul
og þurfti því ekki nema
þrjá slagi á iauf til að vinna
geimið. Vörnin fékk þrjá á
tígul og einn á spaðaás.
I sjálfu sér ekki flókið
spil, en hinum gamal-
reynda fastagesti þótti
nokkur byrjendabragur
vera á spilamennsku unga
mannsins og gat ekki stillt
sig um að gefa honum heil-
ræði: „Ungi maður, þegar
þú spilar gi'and þá sækirðu
fyrst þinn lengsta lit.“
Á HVAÐ ertu að glápa?
Hefurðu aldrei séð háhýsi
áður?
COSPER
ELSKULEGI eiginmaður. Ég gleymdi að segja þér að
fjölskyldan mín fékk að gista hjá okkur í nótt.
HÖGNI HREKKVÍSI
uJtQrvv uirbist hafa. Lag d Íörrujnu.
Sk\K
llinxjúii Margeir
l’éliir.vsoii
Staðan kom upp
á Monarch Ass-
urance skákmót-
inu í Englandi
sem lauk fyrr í
þessum mánpði.
Lettinn Daniel
Fridman (2.515)
hafði hvítt og átti
leik gegn Keitli
Arkell (2.475),
Englandi.
Svartur lék síð-
ast 23. - Hd8-c8.
Staða hans var
| erfið því drottn-
ingin er í prísund á a3 og
hvíta liðið stendur vel til
sóknar.
24. Bxf7+! - Kxf7 25.
Hxh7+ - Ke8 26. Rd5 - Kd8
27. Hh8+ og svartur gafst
upp.
HVÍTUR leikur og vinnur
STJÖRNUSPA
eftir Franees llrake
BOGMAÐUR
Þú ert gæddur ríku sjálfs-
trausti og metnaði sem
færir þér ýmislegt í aðra
hönd ogþú ert óhræddur
við að taka málstað þeirra
sem minna mega sín.
Hrútur _
(21. mars -19. apríl)
Það lífgar tvímælalaust upp á
tilveruna að eiga stund með
góðum vinum. Leggðu þig
fram og þá nærðu tilskyldum
árangri.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vertu viðbúinn því að atburða-
rásin taki kipp því ef þú ekki
hefur allt á hreinu getur þú
misst af tækifærinu til að laga
allar aðstæður þér í hag.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní) nA
Gefðu þér nægan tíma til að
skipuleggja framgöngu þína
því minnstu mistök munu
færa þig aftur á byrjunarreit.
Vertu samt hvergi hræddur.
Krnbbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er óþarfi að apa allt eftir
öðrum þótt góðir séu. Treystu
á sjálfan þig og þá munu aðrir
treysta þér líka.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er mikil spenna í kringum
þig og þú þarft á öllu þínu að
halda til þess að hlutirnir fari
ekki úr böndunu. Hafðu taum-
hald á skapi þínu.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (
Það getur verið ósköp nota-
legt að gera öðrum til geðs
þegar það á við. Mundu samt
að þú átt að ráða slíku sjálfur
en ekki hlaupa eftir óskum
annarra.
(23. sept. - 22. október) m
Þú hefur nú lagt hart að þér
og ert nú að undirbúa að
kynna eigin hugmyndir um
lausn mála. Farðu þér samt
hægt því þú þarft að vinna
aðra á þitt band.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Erfiðleikarnir eru til þess að
sigrast á þeim. Það mun bæði
stækka þig sjálfan og einnig
munt þú uppgötva hverjir eru
vinir í raun.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) MÉTf
Þér er nauðsyn á því að kom-
ast aðeins í burtu frá amstri
dagsins. Gættu þess bara að
láta ekki letina ná tökum á þér
því þá er verr farið en heima
setið.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Eitt og annað sem verið hefur
að angra þig að undanförnu
beinist nú í eina átt og þú átt
auðveldar með að ráða við
hlutina þannig. Gakktu því
ótrauður til verks.
Vatnsberi
(20. janúai' -18. febrúar)
Það er eitt og annað að gerast
í kringum þig sem þér finnst
þú ekki hafa puttana á. Vertu
samt hvergi smeykur því
hæfileikar þínir munu ávallt
njóta sín.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Það skiptir öllu máli að vera
sjálfum sér samkvæmur og
reyna ekki að blekkja sjálfan
sig hvað varðar takmörk í líf-
inu. Með þetta í huga ætti þér
að ganga fiest i haginn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár a f þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Námskeið um sjálfs
mat á fyrirtækjum
NÁMSKEIÐIÐ Innskyggnir
sjálfsmat verður haldið dagana
26.-27. nóvember nk. á Hótel Loft-
leiðum og hefst kl. 8.30.
Á námskeiðinu verður lögð
áhersla á sjálfsmatslíkanið og notk-
un þess við mat á stjórnunarárangri
fyi’irtækja. Fjallað verður um
ávinning af notkun Innskyggnis,
mismunandi aðferðir við fram-
kvæmd sjálfsmats og hlutverk
sjálfsmats í daglegri starfsemi fyr-
irtækja. Komið verður inn á tengsl
Innskyggnis við Islensku gæða-
verðlaunin. Þátttakendur þurfa að
vinna heimaverkefni.
Megintilgangur sjálfsmats er að
meta stöðu fyrirtækisins út frá nýt-
ingu kerfa, tnífestu stjórnenda og
þátttöku allra starfsmanna, að
varpa ljósi á forgangsatriði í um-
bótastarfi, að fylgjast með framför-
um og árangri fyrirtækisins og að-
stoða við stefnumörkun.
Sjálfsmatslíkön hafa yfirleitt ver-
ið þróuð sem grundvöllur einkunna-
gjafar fyrir gæðaverðlaun og svo er
einnig með Innskyggni. Islensku
gæðaverðlaunin voru veitt í fyi’sta
sinni á Alþjóða gæðadaginn, 13.
nóvember 1997 og féll Plastprenti
hf. í skaut. Verðlaunin eru veitt fyr-
ir framúrskarandi gæði á sviði
reksturs og stjórnunar.
Leiðbeinendur verða Guðrún
Ragnarsdóttir, gæðastjóri hjá
Landsvirkjun og Jón Freyi' Jóhann-
esson, forstöðumaður hugbúnaðar-
deildar Ríkisspítala. Síðasti skrán-
ingardagur er þriðjudagur 24. nóv-
ember.
----------------
Heimahlynning
með opið hús
HEIMAHLYNNING verður með
samverustund fyrir aðstandendur í
kvöld, þriðjudaginn 24. nóvember,
kl. 20-22 í húsi Krabbameinsfélags
íslands, Skógarhlíð 8.
Skólakór Kársness syngur undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur og
lesin verður jólasaga. Kaffi og með-
læti verður á boðstólum.
^ögn
Jólaföt - Jólagjafir - Jólaskraut
Sídasti pöntunardagur fyrir jól er
3. desember.
Opið á laugardögum til jóla
Ármúla 17A - Sími 588 1980 - Fax 588 1985
Opið 11-17 mán.-fös. og 10-15 laugardaga.
ottolisti@heimsnet.is
BArnA-
spArfskór
Tegund: 4983 Stæröir: 24-33
: Litir: Svart lakk
I verð kr. 2.995
Tegund: 5040 Stærðir: 24-33
Litir: Svartir, rauðir
verð kr. 3.495
Tegund: 4978 Stæröir: 24-33 Tegund: 4934 Stæröir: 19-26 Litir:
Litir: Svartir, rauðir, beige, lakk Svartir, hvíttir, rauðir, bordo, lakk
verðkr. 2.995 verðkr. 2.495
MIKIÐ ÚRVAL AF BARNASPARISKÓM
PÓSTSENDUWl SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
D0MUS MEDICA
við Snorrobrout • Reykjovík
Simi 551 8519
STEINAR WAAGE
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 • Reykjovík
Sími 5689212
mmmmmmmmmmmmtmm
4