Morgunblaðið - 26.11.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heilbrigðisnefnd Alþingis fjallar um gagnagrunn
>
Flugfélag Islands
Ákvæði um aðgang
brýtur EES-reglur
ÁKVÆÐI í frumvarpi til laga um
miðlægan gagnagrunn sem heimilai'
þeim vísindamönnum sem leggja
upplýsingar inn í grunninn aðgang að
honum við kostnaðarverði brýtm- í
bága við samkeppnisreglur sam-
kvæmt samningnum um Evrópska
efnahagssvæðið, að mati Samkeppn-
isstofnunar.
Össur Skaiphéðinsson, formaður
heilbrigðisnefndar Alþingis, en þar
er frumvarpið nú til umfjöllunar, seg-
ir að þetta þýði að taka verði þetta
ákvæði úr frumvarpinu sem sé mjög
slæmt gagnvart vísindasamfélaginu
hér á landi. Hann sagði að nú væri
unnið að því að fmna einhverja leið
sem tryggði íslenskum vísindamönn-
um aðgang að gagnagrunninum án
þess að það bryti í bága við sam-
keppnisreglur EES, en sú leið hefði
ekki fundist enn sem komið er.
Össm- sagði að það hefði verið
gagnrýnt mjög að engin ákvæði væru
um það i frumvarpinu að þær rann-
sóknir sem gerðar yrðu fyrir tilstilli
grunnsins færu í siðfræðilegt mat áð-
ur en þær væru framkvæmdar.
Rannsóknaráætlanir sem nú væru
settar fram þyrftu annaðhvort að fá
samþykki í vísindasiðanefnd heil-
brigðisráðuneytisins eða innri siða-
nefndum sem væru á sjúkrahúsun-
um. Samsvarandi ákvæði væri ekki
að fínna í frumvarpinu, heldur væri
einungis gert ráð fyrir að vísinda-
siðanefndin fengi eftir á skrá yfir
þær fyrirspurnir sem gerðar hefðu
verið. Þetta væri eitt af þeim atriðum
sem samstaða virtist vera um í heil-
brigðisnefnd að lagfæra og koma á
laggirnar einhvers konai- siðfræði-
legu mati og nefndin væri að vinna
með ákveðnar hugmyndir hvað það
snerti. Ekki væri komin niðurstaða í
þeim efnum, en hann teldi sig geta
fullyrt að það yrði gerð breytingartil-
laga sem að einhverju leyti tryggði
það að rannsóknir færu í gegnum
slíkt mat áður en þær yrðu gerðar.
Össur sagði að það væri alls ekki
útilokað að nefndinni tækist að ljúka
yfirferð sinni yfir frumvarpið í þess-
ari viku.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Frystir refaskinnin
vegna óvissu
Vaðbrekku, Jökuldal - Á refabúi
Tindafeils ehf. í Teigaseli á Jökul-
dal eru refaskinnin nú fryst og bíð-
ur verkun þeirra betri tíma þar
seni nú er mikil óvissa um verðþró-
un á skinnamörkuðum. Að sögn
Jóns F. Sigurðssonar, fram-
kvæmdasljóra Tindafells, er óvíst
hvenær hann hefur verkun en það
dregst jafnvel fram á sumar og fer
eftir verðþróun.
Tindafell framleiðir einnig
minkaskinn og verða þau verkuð
upp úr áramótunum að öllum lík-
indum nema verðið hækki snögg-
lega í desember. Jón segir að refa-
skinnin hafi lækkað um sex þúsund
krónur hvert skinn frá því verðið
var best fyrir um það bil þremur
árum. Lækkunin á þessu ári hefur
verið úr fjórum þúsundum króna á
hvert refaskinn niður í tvö þúsund
krónur. Sigurlilja Kolbeinsdóttir
vinnur við að pakka refaskinnun-
um í Teigaseli ofan í poka sem síð-
an er staflað í frystinn.
Þvottur
í blíðviðri
VEL viðraði til þvotta og ann-
arra útiverka á höfuðborgar-
svæðinu í gær. Það getur hins
vegar reynst þolinmæðisverk í
umhleypingum eins og verið hafa
síðustu daga þegar salt og tjöru-
sull flæðir um stræt.in.
Morgunblaðio/Golli
Yill fjölga ferðum til
Egilsstaða um jólin
FLUGFÉLAG Islands (Fl) ætlar
að fjölga ferðum til og frá Egils-
stöðum í desember og fram í janúar
til að mæta þörfum markaðarins
fyrir jólin að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá félaginu. Hef-
ur félagið sent erindi til Samkeppn-
isstofnunar þar sem þessi ákvörðun
er tilkynnt.
Samkvæmt ákvæðum Samkeppn-
isstofnunar frá því á síðasta ári er
FÍ óheimilt að auka ferðatíðni í
áætlunarflugi fram til 1. júh' árið
2000 ef tilgangur aukinnar tíðni er
að hamla samkeppni frá núverandi
eða tilvonandi keppinautum. I sein-
asta mánuði ákvað FÍ að fella niður
af vetraráætlun sinni fjórar ferðir í
viku á milli Egilsstaða og Reykja-
víkur í kjölfar athugasemda sem ís-
landsflug sendi Samkeppnisstofnun
í september.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá Samkeppnisstofnun í
gær er erindi FÍ nú til athugunar
hjá stofnuninni. í frétt frá FI segir
að eftirspurn eftir flugsætum aukist
að jafnaði um hátíðimar og pakka-
flutningur stóraukist einnig. Hefur
félagið ákveðið að fjölga ferðum frá
18. desember til 10. janúar og taka
upp viðbótarflug á þriðjudögum,
miðvikudögum, föstudögum og
sunnudögum.
Borgarstjóri um kvartanir íbúa á Miklubraut 13 vegna hávaðamengunar
Sjálfsagt að skoða mögu-
leika á aðstoð við flutning
VIDSiaFTI AIVINNULÍF
ð í dag
_____
---------------
Hveragerðisbær
Einar segir
af sér
EINAR Hákonarson sagði í gær af
sér öllum trúnaðarstörfum sem tengj-
ast bæjarstjóm Hveragerðis.
Einar var kjörinn bæjarfulltrúi
sjálfstæðismanna sl. vor og sagði að
afsögnin tæki jafnt til setu í bæjar-
stjórn og nefndum á vegum bæjarins.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að það sé sjálfsagt
að skoða möguleika á því að borgin
aðstoði Guðlaug Lárusson og konu
hans, íbúa á Miklubraut 13, við að
flytja úr húsi sínu vegna hávaða-
mengunar, en landlæknir hefur skiif-
að borgarstjóra bréf vegna kvartana
Guðlaugs og óskað eftir að hið bráð-
asta verði gripið til aðgerða til að
draga úr hávaða frá umferð við
Miklubraut milli Snorrabrautar og
Rauðarárstígs.
„Það sýna allar rannsóknir á þess-
um málum að fólk þolir þetta misjafn-
lega illa og sumir em viðkvæmari fyr-
ir hávaða en aðrir. Það kann vel að
eiga við í tilviki Guðlaugs Lánissonar
og getur vel réttlætt það að það sé
tekið með einhverjum sértækum
hætti á hans málum, en það þýðir þá
einfaldlega flutning," sagði Ingibjörg.
Úttekt sem gerð var á hljóðvist I
borginni í fyrra leiddi, að sögn Ingi-
bjargar Sóh-únar, í ljós að í um 2.000
íbúðum í borginni fer jafngildishljóð-
stig yfir 65 dB, en allar þær íbúðir
þar sem jafngildishljóðstigið færi yfir
68 dB væra við þjóðvegi og það ætti
við um íbúðimar við Miklubraut.
„Þó að ég skorist ekki undan því að
fá þetta frá landlækni þá hefði hann
átt að senda veghaldaranum þetta
líka sem er Vegagerð ríkisins. Við
ráðum því auðvitað ekki ein og sjálf
hvaða aðgerðir era gerðar á þjóðveg-
um,“ sagði hún.
Styrkir til hljóðeinangrunar
Reykjavíkurborg hóf í fyrra að
bjóða húseigendum sem búa við há-
vaðamengun styrki til að hljóðein-
angra húsin betur og sagði Ingibjörg
Sólrún fólk hafa notfært sér þetta,
m.a. við Miklubraut.
„Það er jafnframt mikilvægt hvað
varðar þessi tilteknu hús við Miklu-
braut að þegar við gerðum samning
við ríkið út af bamaspítalanum þá
gerðum við skilyrðislausa kröfu um
að Hringbrautin yrði flutt og við
munum lána ríkinu fyrh’ þeim fram-
kvæmdum til að hægt sé að fara í
þetta. Það er gert ráð fyrir því að
þær fi-amkvæmdir hefjist árið 2001
og þá fjarlægist Hringbrautin þessi
tilteknu hús,“ sagði hún.
„Það er fyrirsjáanlegt að það er
hægt að bæta ástandið verulega hjá
þessu fólki en við getum auðvitað
ekki horft á hlutina bara svo einangr-
að og verðum auðvitað að horfa á
þetta út frá öllum þeim fjölda sem við
þetta býr.“
AEK vildi ekki selja Arnar
Grétarsson til Parísar/B3
íslendingar unnu fyrri rimmuna
við Ungverja/B1, B4, B5, B8
VERSLUN
Stærsta
matar-
geymslan
AðföngC6
TÖLVUR
Yfirmenn
skoða
póst
Samningar/C4
MÁRATOft0
AUfilfSINS
BLAÐINll í
dag fylgir 12
síðna auglýs-
ingablað frá
verslunarmið-
stöðinni
Smáratorgi
„Smáratorg
fyrir jólin“.