Morgunblaðið - 26.11.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 26. NÓVBMBER 1998 45
Hver skrökvar
að hverjum?
MEÐ virðingu og athygli hef ég
lesið megnið af því sem þú hefur
skrifað að undanfömu og iðulega
getað fundið í því heiðarleika og
sanngirni. Þess vegna varð mér illa
bragðið er ég las grein þína „Það er
svo mörgu skrökvað", sem birtist í
Morgunblaðinu þriðjudaginn 17.
nóv. sl. Augljóst var af skrifum þín-
um að þú hafðir skyndilega hrokkið
úr hásæti víðsýni og réttsýni og
hlammast niður í þrönga hagsmuni
framkvæmdastjórans.
Á undanfömu ári hef ég verið tíð-
ur gestur á sjúkrastofnunum. Bæði
hef ég verið að sinna sjúkum ætt-
ingjum en einnig að afla heimilda í
úttekt á því ástandi sem þar ríkir.
Kafli um það sem þar hefur verið að
gerast verður í samantekt minni um
óheiðarleika í þjóðfélaginu. Skrif
þín benda til að þú verðir verulega
hissa þegar sá raunveruleiki kemur
allur upp á yfirborðið. Það er nefni-
lega víða skrökvað með þögninni,
eins og þú segir. En vegna orða
þinna í garð heilbrigðisstétta langar
mig að benda þér á plagg sem er á
veggjum margra sjúkrastofnana. Á
því er eftirfarandi texti. „Það sem
tungan meiðir er torvelt að lækna.“
Við sem tjáum skoðanir okkur opin-
berlega, ættum ekki síður en starfs-
fólk heilbrigðiskerfisins að hafa
þessi gullvægu sannindi að leiðar-
ljósi.
Því miður er of algengt við skoð-
anamyndun þjóðarinnar, að notuð
sé helsta aðferð Gróu á Leiti, „ólyg-
inn sagði mér“. Of mikið er um að
fólk myndi sér skoðun út frá því
sem aðrir segja en skoði málin ekki
sjálft frá fyrstu hendi. Af skrifum
þínum tel ég mig þekkja þig það vel
að þú viljir að þau endurspegli rétt-
sýni. En svo bregðast nú krosstré
sem önnur tré, er þú gengur svo
greinilega í smiðju Gróu á Leiti, í
heimildagrunni þessara skrifa
þinna.
Árás þín á starfsfólk heilbrigðis-
stétta er verulega ómakleg og tel ég
víst að þú viljir biðja þetta fólk opin-
berlega afsökunar, eftir að hafa
kynnt þér málin af kostgæfni. Það
vill nefnilega svo til að réttlætið er
ekki bara frá launafólki til vinnu-
veitanda, það er líka í hina áttina.
Þar virðist hin raunverulega mein-
semd þessara mála. Að hætti heil-
brigðisstétta verð ég því að segja að
sjúkdómsgreining þín er röng og
gæti stefnt lífi sjúklingsins í voða.
Ef þú værir starfandi í heilbrigðis-
þjónustunni væri þetta alvarlegt
mál, en þar sem þú nýtur þess frels-
is að vera utan þeirra stétta, skrif-
ast þessar skoðanir þínar á lítt
grandaða skapvonsku.
Aðdróttanir þínar að starfsstétt-
um „mislangskólagenginna kvenna í
hefðbundnum kvennastarfsstétt-
um“ og hugarfar þitt til þess vanda-
máls sem þama er uppi, sýnir að
langskólaganga er ekki sú leið sem
tryggir réttsýni manna á ýmis
vandamál í þjóðfélaginu. Ekki efa
ég að þú hafir mikið lengri skóla-
göngu en flest það fólk sem staðið
hefur í baráttu við ýmsar heilbrigð-
isstofnanir á sl. ári. Það hefur hins
vegar ekki hjálpað þér að skilja
sannleikann í þessu máli. Eg er ekki
langskólagenginn og get því ekki
Ef þú værir starfandi í
heilbrigðisþj ónustunni
væri þetta alvarlegt
mál, segir Guðbjörn
Jónsson, en þar sem
þú nýtur þess frelsis
að vera utan þeirra
stétta, skrifast þessar
skoðanir þínar á lítt
grundaða skapvonsku.
flaggað mörgum prófskírteinum eða
„menntagráðum". Eg hef sótt
fræðslu mína í rekstrarfræðum og
mannlegum samskiptum og gildum
mannsins, í gegnum kvöldskóla,
ráðstefnur og námskeið. Kannski
þess vegna hefur mér lærst hve
mikilvægt það er að hafa sannleika
að baki alls þess sem ég tjái mig um
opinberlega. Manngildi mitt og
virðing fyrir kærleikanum og til-
vera annars fólks, hefur lagt mér
þær skyldur á herðar.
Þessi skrif þín hljóma ekki illa frá
þröngu sjónarhorni atvinnurekenda
en þau eiga sér væntanlega ekki
mikinn hljómgrunn hjá fólki sem
þekkir þá baráttu sem launafólk í
starfi hjá ríkinu þarf að fást við. Það
hefði verið einkar fræðandi fyrir þig
að vera viðstaddur fund BHM með
11 starfsstéttum á Landspítalanum,
fimmtudaginn 12. nóv. sl. Þar hefðir
þú fengið beint í æð þá
virðingu sem sá at-
vinnurekandi ber fyrir
launafólki sínu. Allar
starfsstéttimar lýstu
því þar, að vinnuveit-
andi þeirra hefði ekki
enn framkvæmt kjara-
samninga sem gerðir
höfðu verið á árinu
1997. Nýtt launakerfi
sem taka átti gildi 1.
des. 1997 var ekki kom-
ið til framvæmda.
Handahófskenndar til-
raunir til að setja ein-
stakar stéttir inn í
launakerfið, á annan
hátt en kerfislýsingar
og kjarasamningar tilgreindu, settu
starfsfólk allra stétta í uppnám. Öll-
um vora augljós brot vinnuveitand-
ans á kjarasamningum og þar með
1. gr. laga nr. 55/1980, um starfs-
kjör launafólks. Fleira mætti tína
til, það mun hins vegar bíða þess
tíma að samantekt mín um þessi
málefni líti dagsins ljós.
Það vakti sérstaka athygli mína
að stjórnarformaður RMsspítal-
anna kom í ræðustól á fyrrgreind-
um fundi, án þess að skilja í raun
eðli vandans og án þess að biðjast
afsökunar á brotum á kjarasamn-
ingum. Hann sagði hins vegar eitt-
hvað á þá leið, að launafólk yrði að
hafa biðlund vegna þess að starfs-
fólk skrifstofunnar
væri svo fátt og það
væri allt upptekið í
öðrum störfum. Hann
upplýsti þó að búið
væri að ráða ráðgjafa-iv
þjónustu til að leysa
málin. Skn'tið að hafa
fjármagn til að kaupa
þjónustu af ráðgjafa-
þjónustu en hafa ekki
fjármagn til að kaupa
vinnu fólks til að vinna
að framkvæmd kjara-
samninga á vegum
skrifstofunnar sjálfrar.
Ætli það sé hugsanlegt
að þetta 3.000 manna
fyrirtæki, (Ríkisspítal-
arnir), í eigu ríkisins, eigi við
stjórnunarvanda að stríða? Mig'
granar það og er að skoða það. Tjái
mig um það síðar, þegar ég hef afl-
að mér fullnægjandi þekkingar á
málinu.
Frá hagfræðilegu sjónarmiði er
talað um að það þurfi 12 plúsa til að
vinna upp 1 mínus. Væntanlega tek-
ur það þig því einhvern tíma að end-
urvinna traust almennings á skrif-
um þínum, eftir þá reiðiútrás sem
þú fékkst með þessum skrifum. Lík-
lega hefði verið betra fyrir þig að
brenna þau en að senda þau í Morg-
unblaðið.
Höfundur er starfsmaður FSV.
HÓTEL SKJALDBREIÐ, LAUGAVEGI 16
NYTT HOTEL A BESTA
STAÐ í MIÐBORGINNI
VETRARTILBOÐ
Verðjrá hr. 2.700 á mann i2ja manna herbergi.
Morgunverðarbiaðborð innifalið.
Frír drykkur á veitingabúsinu Vegamótum.
Sími 511 6060, fax 511 6070
guesthouse@eyjar.is
Guðbjörn
Jónsson
Undirdívan
OPIÐ: LAUGARDAG 10:00-16:00. SUNNUDAG 13:00-17:00
Líttu við í glæsilega og breytta verslun okkar.
Nú bjóðum við stórglæsileg og vönduð húsgögn í svefnherbergið. Sem fyrr höfum
við fjölbreytt úrval af rúmum, dýnum, koddum og allt annað sem þarf fyrir góða
hvíld og góðan svefn.
Lystadún Snæland - þú þarft ekki að leita annað.
E R S L U N I N
L’
Skútuvogi 11 • Sími 568 5588
Góbur svefn gefur góban dag
ekki af sérvinnslu