Morgunblaðið - 26.11.1998, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.11.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 15 AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján Kiwanisdúkkan gefin til barnadeildar FSA Morgunblaðið/Kristján BERNHARÐ Haraldsson skólameistari Verkmenntaskólans á Akur- eyri og Bjarni Guðmundsson sölu- og markaðsfulltrúi Hugvits við afhendingu gjafarinnar. Hugvit færir YMA hugbúnað KIWANISKLÚBBAR á Óðins- svæði, sem nær frá Ólafsfirði til Vopnaíjarðar, alls sjö karla- klúbbar og einn kvennaklúbbur, hafa gefíð barnadeild FSA á Akureyri Kiwanisdúkkuna. Dúkkan er kostuð og unnin af klúbbum svæðisins enda er eitt af markmiðum Kiwanis: Börnin fyrst og fremst. Hugmynd að Kiwanisdúkkunni kemur frá Ástralíu og hefur far- ið víða m.a. hér á landi. Þessi litla einnkennalausa tuskudúkka hefur hjálpað börnum að takast á við þá erfíðleika sem mæta þeim við innlagnir á sjúkrahús. Um er að ræða hvítar ein- kennalausar léreftsdúkkur sem börnin geta gert „aðgerðir“ á, þær sömu og þau eiga sjálf að gangast undir, undir handleiðslu lækna eða hjúkrunarfólks. Hægt er að sýna börnunum hvernig nálum er stungið í æð og ýmsa aðra hluti sem framkvæmdir eru á spítalanum. Auk þess fá börnin að teikna á dúkkurnar andlit og fleira og gera þær eins og þau vilja hafa þær. Á myndinni eru Matthías Gunnarsson, t.v. Lúkas Fróði Snorrason, Ása Rut Garðarsdótt- ir og Auður Katrín Viðarsdóttir með dúkkur sínar á barnadeild FSA. Samvera aldraðra MÁLMFRÍÐUR Sigurðardóttir fyrrverandi alþingismaður verður ræðumaður á samveru aldraðra í Safnaðai'heimili Akureyrarkirkju í dag, fimmtudaginn 26. nóvem- ber, en hún hefst kl. 15. Börn úr Tónlistarskólanum á Akureyri leika á fiðlur og Ömmukórinn syngur undir stjórn Sigríðar Schiöth, þá verður al- mennur söngur og stutt helgi- stund. Veitingar eru seldar á mjög vægu verði. Atskákmót ATSKÁKMÓT Skákfélags Akur- eyrar hefst í kvöld, fimmtudags- kvöldið 26. nóvember, kl. 20. Mótinu verður fi-am haldið á sunnudag, 29. nóvember, kl. 14. Farandbikar í verðlaun og er þátttökugjald 800 krónur. Akureyrarmót í kraftlyftingum AKUREYRARMÓTIÐ í kraft- lyftingum verður haldið í Jötun- heimum, sal Kraftlyftingafélags Akureyrar í Iþróttahöllinni, laug- ardaginn 28. nóvember nk. og hefst keppni kl. 13. Keppt verður í bekkpressu, hné- beygju og réttstöðulyftu og verða keppendur um 10 talsins. Allir áhugasamir um kraftlyftingar eru hvattir til þess að mæta í Höllina og fylgjast með kraftakörlunum en aðgangui' er ókeypis. VERKMENNTASKÓLINN á Akureyri fékk nýlega afhenta gjöf frá Hugviti, en þar er um að ræða hugbúnað sem starfsfólk fyrirtækis- ins hefur hannað og nýtist skólan- um við fjarkennslu. Hugbúnaðurinn byggist á íslensku hugviti og annast innri sem ytri upplýsingamiðlun. Bjarni Guðmundsson sölu- og markaðsfulltrúi Hugvits sagði að um 80 vel menntaðir starfsmenn ynnu hjá fyrirtækinu, en menntun væri lykillinn að velgengni þess. „Það er því að okkar mati gott fyrir framtíð- ina ef við getum á einhvern hátt stuðlað að betri menntun,“ sagði Bjarni. Bernharð Haraldsson sagði að Verkmenntaskólinn á Akureyri hefði um nokki'a hríð unnið að fjarkennslu um tölvur og leitað leiða til að gera kennsluefnið aðgengilegra og vinnu nemenda skilvirkari. Netið væri ein leið sem skólinn nýtti og hafi menn séð í hendi sér að hugbúnaður sá sem Hugvitsmenn hefðu unnið að hentaði sérlega vel. Höfðingleg gjöf þeirra væri því mikið fagnaðarefni. KOMDU FLJÓTT E F Þ Ú VI LT SPARA ÞÚSUNDIR WM L I K L E G A ■ kaupin Nú er tími til að spara! Undirborðsskápur með innbyggðu 16 L. frystihólfi j Stærð: 85 x 55 x 57 i 92L. kælir Orkunýting B Verð nú kr. 24.900- Þú sparar kr. „ 5.000 LVP-25 Uppbvottavél i sn. þvo' 5 kg. og er búin öllu 1000 Tekur 5 kg. og því besta sem prýðir góða þvottavél. M.a. innb.vigt sem stýrir vatnsmagni eftir þvottamagni, ullarvöggu, flýtiþvottaKerfi o.fl. o.tl. Þúspararkr. 5.000- Verð áður kr. 52.900. Creda Þurrkari Verð áður kr. 32.900. Verð nú kr. 34.900.- Þú sparar kr. ^ 11 001 Tekur 5 kg. af þvotti, 2 hitastillingar, krumpuvörn, veltir í báðar áttir, stáltromla. fyrir 12 manns, 2 hitastig (55/65 gráður) vatnsöryggi, 4 þvottakerfi Opið alla helgina VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR á íslandi Stærsta heimilis-og raftækjaverslunarkeöja I Evrópu heirnsendngafþjónusta þjónusta vögertbarþjónusta RflFTfEKMUERZLUN ÍSLÍIIÍDS EE - AN NO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.