Morgunblaðið - 26.11.1998, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 26.11.1998, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Nám á nýrri öld NÁM Á nýrri öld er átak sem stúdentar ásamt Hollvinasam- tökum Háskóla Is- lands blása nú til. Átakinu er ætlað að bæta ástandið í tölvu- málum við háskólann en eins og allir vita, -sem eitthvað tengjast háskólanum, er það ekki til fyrirmyndar. Ætlunin er einnig að vekja stjórnvöld, al- menning og íslenskt atvinnulíf til vitundar um hversu alvarlegt ástandið er. Ekki er nóg að safna ein- göngu tölvum, því þær úreldast á nokkrum árum auk þess sem tölva án viðeigandi hugbúnaðar er til einskis nýt. I tölvuátakinu Nám á nýrri öld stendur því ekki eingöngu til að safna tölvum. Stærsta verkefnið er í raun að ^eafna í endurnýjunarsjóð, en hlutverk hans verður að standa straum af kostnaði við endurnýj- un og viðhald á þeim tölvukosti sem til er. Tölvur eru nauðsynlegar Nú gætu margir hugsað sem svo að tölvur séu munaðarvara og að margt sé nauðsynlegra en tölvur fyrir háskólastúdenta. En ef málið er skoðað kemur í ljós að það er ~j|puðsynlegt íyrir Háskóla Islands, og íslenskt þjóðfélag að geta boðið stúdent- um upp á viðunandi tölvukost. Mannauð- urinn er ein dý- mætasta auðlind okk- ar og ef Island ætlar að vera samkeppnis- hæft í kapphlaupi þjóðanna á nýrri öld er gott vald á tölvum lykilatriði til þess að mannauðurinn nýtist sem best. Það gerist ekki ef stúdentar hafa ekki aðgang að lág- marks tölvukosti. Slæmt ástand Tökum dæmi úr VR-II þar sem verkfræði og hluti af raunvísinda- deild eru til húsa. Þar er ástandið almennt talið „gott“ miðað við Það er von okkar sem stöndum að þessu átaki, segir Brynja Baldursdóttir, að ís- lenskt atvinnulíf sjái sér hag í því að fá vel menntað fólk til starfa. aðrar deildir, en þar er eitt tölvu- ver með 11 tölvum og í nærliggj- andi húsi er annað tölvuver með Brynja Baldursdóttir 21 tölvu. Þessar tölvur eru hugs- aðar fyrir nokkur hundruð nem- endur sem flestir ef ekki allir eru í námi þar sem vinna í tölvum er stór hluti af náminu. Þar má nefna greinar eins og tölvunar- fræði og verkfræði. Þessi tölvuver eru einnig kennsluver þannig að oft á tíðum er staðan þannig að engin tölva stendur þessum nem- endum til boða heilu og hálfu dag- ana. Kennarar og starfsfólk leggja sig fram um að halda gæð- um námsins uppi og það gerir ákveðnar kröfur til stúdenta um verkefnaskil og vinnu en því mið- ur eru bara engar tölvur á lausu til þess að vinna verkefnin í! Mörg verkefni á að vinna í forritum sem kosta hundruð þúsunda króna svo ekki er hægt að ætlast til þess að stúdentar vinni verkefnin heima hjá sér. Tölvuátak Stúdentar eru orðnir lang- þreyttir á þessu ástandi. Því miður hefur menntamálaráðuneytið ekki enn séð sér hag í því að bjóða stúd- entum upp á viðunandi námsskil- yrði og því eru ekki tO peningar til þess að bæta úr vandamálinu þótt háskólayfirvöld séu öll af vilja gerð. Við sjáum okkur tilneydd til þess að leita annarra leiða. Það er von okkar sem stöndum að þessu átaki að íslenskt atvinnulíf sjái sér hag í því að fá vel menntað fólk til starfa. Fólk, sem þekkir vel til þess sem er að gerast í heiminum og er í fararbroddi hvað varðar nýjungar á hinum ýmsu sviðum vísinda og fræða. Tökum höndum saman og gerum Háskóla íslands kleift að gegna hlutverki sínu með sóma. Styðjum tölvuátakið Nám á nýrri öld. Höfundur er nemi í véla- og iðnaðarverkfræði. Ár aldraðra Jenna Jensdóttir „Vort fyrsta boð er mannúðin“ (H.lbsen) Mikið er rætt um aldraða og málefni þeirra. Umræðan virðist oftar en ekki byggð á neikvæðri yfirsýn og gæti því rótfest þá skoðun að aldraðir séu öðrum fremur byrði á þjóðfélaginu. í mannlegu samfélagi er heilsan öllum dýrmætasta eignin, missir hennar er ekki bundinn við aldur. Hér verður reynt að bregða birtu á það sem reynslan hefur sýnt að líklegt er til þess að búa öldruðum betri og gleðiríkari stundir þegar beinni starfsævi lýkur. Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri á Seltjamarnesi er, hér í byrjun, beðinn að láta í ljósi viðhorf sitt til málefna aldraðra. Hann segir: „I starfi mínu hef ég bæði hitt einstaklinga sem kvíða ellinni vegna skorts á viðfangsefnum og áhugamálum svo og aðra sem varla geta beðið eftir að stundin renni upp og þeir geti helgað sig að fullu áhugamálum sem ekki vannst tími til meðan þeir voru í fullu starfi. Það ætti að vera forgangsverkefni þeirra sem að öldrunarmálum starfa að sinna fyrri hópnum, þ.e. þeim er kvíða ellinni og sjá Hér verður reynt að bregða ekkert jákvætt við að hafa nú birtu á það sem reynslan tíma til ráðstöfunar. Þarna á að hefur sýnt að líklegt er til virkja hópinn sem er barmafull- þess að búa öldruðum betri ur af hugmyndum og áhugamál- Qg gleðirikari stundir þegar um og fá hann til að deila þeim beinni starfsævi lýkur. til þeirra kvíðafullu. Á þessu ald- ursskeiði eru margir að huga að brejdingum á búsetu og lifnaðar- háttum, minnka við sig húsnæði og jafnvel losa peninga til þess að láta verða af því að gera hluti sem þá hefur langað til en ekki látið eftir sér vegna kostnaðar. Kynslóðin sem nú er að komast á eftirlaunaaldur hefur lifað mjög fjölbreytt æviskeið og nægir að nefna stríðsárin sem færðu okkur inn í 20. öldina og verðbólguárin sem rugluðu allt verðmætaskyn og nú siðustu árin er verið að leiða okkur um undraveröld tölvutækn- innar sem við ættum að leggja áherslu á að ná valdi yfir til að stytta okkur stundir þegar tíminn er nægur. Við Islendingar erum ekki það fjölmenn þjóð að við ættum að þurfa að gleyma þeim sem erfiðara eiga á þessum aldri. Fjármunir sem við látum í samhjálp verða að finna þann farveg sem beinir þeim til þess hóps sem mest þarfnast þeirra. Ellin á ekki að vera tímabil áhyggju og kvíða heldur tímabil upp- skeru og ánægju yfir ævinni sem liðin er og gleði yfir þvi sem hver og einn hefur lagt af mörkum til að gera lífið betra fyrir sig og sitt samferðafólk." Jólamatur, gjafir og föndur, 64 síðna blaðauki fylgir blaðinu um helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.