Morgunblaðið - 26.11.1998, Side 28

Morgunblaðið - 26.11.1998, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ GONGUSTAFIR Með hertum oddi Þrískiptur Ur áli Mjúkt handfang ^/fgóa<#"sumenna<,%( «pi jA (GjaiífaiJkort póst- ! . ui*Jí furitrUsJt uuí, ájÁHHUUj SfÍfÍðUM ' SAMDÆGURS i OPIÐ . LAUGARDAG . - topptArCmv i útívíit íö 9 Skeifan 6 ** Sími 533 4450 Dagskráin þín er komin út 26. nóv.-9. des. MKvikmyndir Er Farþ*£t Vantar þig venjulega tölvu? \ S, ! Bora c*.,*-*»<*«« 129.900 kr. i --- ^ 5 SlMlM»»irtt«rmít AcoéApplebúðin LISTIR Kremur það sem kremst BÆKUR Itarnabók ÞORRI OG ÞÚSUNDFÆTLAN Eftir Jenny Nimmo. Myndir: David Parkins. Þýðandi: Adda Steina Björnsdóttir. Æskan, 56 bls. HVER kannast ekki við hávaða- sama, stappandi stráka? Nú er komin lausn á þessu leiða vanda- máii; risaþúsundfætlur. Eftir að Þorri fær skó í sjö ára afmælisgjöf gerir hann fátt annað en stappa og kremja allt sem hann sér undir þykkum, þungum sólun- um. Hann stappar sig og fjölskyldu sína úr bænum; þetta áhugamál Þorra féll nágrönnunum ekki í geð. Foreldrar hans reyna, með litlum sem engum árangri, að fá hann of- an af þessu stappi sínu. Þó mörg hundruð ára gamall forfaðir, Hrossabrestm-, komi og vari hann við og segi frá eigin biturri stapp- reynslu sinni heldur Þorri iðju sinni áfram. Það er ekki fyrr en hlut- verkin skiptast, Þorri verður þol- andinn, að hann lætur segjast. Samspil mynda og texta er hreint frábært, um það er lítið ann- að hægt að segja. Stundum er sag- an sögð með myndunum eða þær bæta við hana. Þar sem myndirnar eru teiknaðar með bleki verða þær Kórsöngur FYRSTU tónleikar Tónlistarfélags Borgarfjarðar á þessu starfsári verða í Reykholtskirkju, laugardag- inn 28. nóvember kl. 16. Þar koma fram Karlakór Reykjavíkur og Drengjakór Laugarneskirkju, undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar við undirleik Önnu Guðnýju Guð- mundsdóttur. Einsöngvari verður svolítið „klessulegar" vegna hversu mikil minnkun þeiira er, sérstak- lega hvar línurnar eru þéttar. Þýðing og textafrágangur eru góð, nema hvað á blaðsíðu 43 hefur -an dottið aftan af.fram („... breiddu úr sér fyrir fram hann eins og veisluborð.“). A síðu 17 er heldur klúðurslegt orðalag og hægt að misskilja, ef sá gállinn er á manni, til hvers persónufornafnið hann vís- ar. Þorri og þúsundfætlan er góð bók fýrir unga fólkið sem er - og hefur áhuga á - að æfa sig í lestri. Það gæti jafnvel líka litað myndirn- ar. Heimir Viðarsson ----------------- Hjörtur Páls- son les í Gerðarsafni UPPLESTUR á vegum Ritlistar- hóps Kópavogs verður haldinn í Gerðarsafni í dag, fimmtudag kl. 17. Hjörtur Pálsson, rithöfundur og skáld, mun lesa úr nýrri ljóðabók sinni Hjörtur Pálsson Ur Þegjandadal. í Reykholti Signý Sæmundsdóttir, sópransöng- kona. Karlakórinn í Stykkishólm Að kveldi laugardagsins, kl. 20.30, mun Karlakór Reykjavíkur, ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur og Signýju Sæmundsdóttur halda að- ventutónleika í Stykkishólmskirkju. Sjö skáld lesa á Súfístanum SJÖ skáld lesa úr verkum sínum á Súfistanum í húsi Máls og menn- ingar fóstudaginn 27. nóvember kl. 20.30. Bjarni Bjarnason les úr bókinni Borgin bak við orðin; Sindri Freysson les úr bókinni Augun í bænum; Asdís Óladóttir les úr Haustmáltíð; Einar Örn Gunnars- son les úr Tár paradísarfuglsins; Sigfús Bjartmarsson les úr Varga- tali; Huldar Breiðfjörð les úr bók- inni Góðir Islendingar og Davíð Art les úr bókinni Þegar Ijóð eru. Kynnir verður Helga Braga Jóns- dóttir leikkona. -------♦-♦-♦----- Sýningum lýkur Ingólfsstræti 8 SÝNINGU Guðmundu Andrésdótt- ur á nýjum verkum lýkur á sunnu- dag. Galleríið er opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14-18. -------♦-♦-♦----- Nýjar bækur • Á REFILSTIGUM er eftir Tom Wilson í þýðingu Atla Magnússon- ar og Jóhanns Finnssonar. í bókinni eru ellefu sannir frá- sagnarþættir um sakamál. M.a. um atlögu OAS-manna að franska þjóð- arleiðtoganum Charies de Gaulle undir forystu hryðjuverkamanns, sem jafnan gekk undir nafninu Sjakalinn, en gerð var fræg kvik- mynd um þennan atburð. Einn þáttanna fjallar um síðustu stundir leiðtogans Leo Trotzkys sem féil fyrir morðingjahendi í útlegð sinni í Mexíkó 20. ágúst 1940. Þá er þáttur um mann að nafni Jozef Pader- ewski sem missti fjölskyldu sína í helförinni og helgaði síðar lif sitt því að hafa uppi á böðlum hennar og koma fram hefndum. Tom Wilson er sagnfræðingur og blaðamaður. Utgefandi er Fróði hf. Bókin er 126 bls. Kápu hannaði Ómar Örn Sigurðsson. Verð: 1.980 kr. -------♦-♦-♦----- ■ SJÁLFSMYND eftir bandaríska listamanninn Jean Michel Basquiat seldist á 3,3 milljónir dala, um 230 milljónir ísl. kr., á uppboði hjá Christie’s í New York í síðustu viku. Ekki hefur fyrr fengist svo hátt verð íýrir verk eftir Basquiat, sem lést langt fyrir aldur fram. Hann vakti ungur athygli popplistamannsins Andys Warhols fyrir veggjakrot og var gerð kvikmynd um Basquiat fyr- ir tveimur árum. Hann gerði sjálfsmyndina þegar hann var aðeins 21 árs og sýnir hún listamanninn með spjót í hendi og grímu fyrir andliti, og er máluð í gráum og svörtum litatónum. Fimm buðu í myndina, sem var metin á um 600.000 dali, um 42 milljónir ísl. kr., og hafði einkasafnari, sem ekki vill láta nafns síns getið, vinninginn. KARLAKÓR Reykjavíkur ásamt stjórnandanum Friðriki S. Kristinssyni. Borgarleg lýsing BÆKUR Barnab6k PÉTUR OG KRUMMI eftir Árna Árnason. Myndir Halldór Baldursson HRAFNINN er fugl Óðins. Huginn og Muninn „fljúga hverjan dag jörmungrund yfir;“ segir í Grímnismálum og oftar en ekki segja þeir Óðni hvað fyrir augu bar. Margar sagnir eru til um vizku hans og forspár, sérstaklega er tengjast veðrum eða hamförum. Þar sem hann passar í raun ekki inn í neinn einn ákveðinn flokk fugla; hann er spörfugl en veiðir líka, einsog uglan, og leggst jafnvel á hræ, einsog gammur, hefur hann löngum vakið ugg manna. Mönnum líður nefnilega ekki vel innan um það sem fleiri en eitt orð þarf til að lýsa. I bókinni Pétur og Krummi segir af Pétri, níu ára borgarbarni, sem sendur hefur verið í sveit yfir sum- arið. Hann og María, vinkona hans, bjarga hrafnsunga eftir að bóndinn á bænum skýtur niður hreiður hans. Þau ala hann unz hann er nógu vaxinn til að fara. Hann kveð- ur þó ekki endanlega, heldur birt- ist aftur er hætta steðjar að bæn- um og varar Pétur við. Textinn er eftir Arna Arnason og Halldór Bjarnason gerir mynd- ir. Eg get tæplega sagt að annað styðji hitt, myndir og texti. Sagan er úr sveitinni en litir myndanna eru alltof skærir og ýktir. Þær eru með þykkum svörtum útlínum - það er hálfgerður stórborgar- veggjakrotskeimur af þeim. Aðeins hefði mátt vanda textafráganginn betur. Neðst á síðu 18 stendur: „...fór Krummi sitt fyrsta flug“. Eins er nokkuð yfirlætislega til orða tekið á síðu 22 þegar sagt er: „...og í rigningu verður allt svo blautt...“. Er það ekki nokkuð al- menn vitneskja að vatn er blautt? Börn eru skynugri en margur held- ur, þau finna yfirleitt þegar verið er að gera lítið úr þeim. I þessari bók er heldur illa farið með góða hugmynd og ágæta hæfileika. Heimir Viðarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.