Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 4

Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ * Atak hafíð gegn ölvunarakstri í desember og janúar Stórhert eftirlit með ölvunarakstri HAFIÐ er átak gegn ölvunarakstri, „Endum ekki jólagleðina með ölv- unarakstri", sem hefur það að markmiði að fækka ölvunaraksturs- broíum, sem færast í aukana í jóla- mánuðinum. Ríkislögreglustjóri hefur beint þeim tilmælum til allra lögregluembætta í landinu að efia allt eftirlit með ölvunarakstri í des- ember og janúar og þá sérstaklega um helgar í nánd við vinnustaði. Sérútbúin bifreið Ríkislögreglu- stjóra með búnaði til áfengismæl- inga verður á ferðinni um landið og geta ökumenn átt von á honum hvar og hvenær sem er. Frumkvæði að átakinu áttu bif- reiðatryggingafélögin Sjóvá-AJ- mennar tryggingar hf., Trygging hf., Ti-yggingamiðstöðin hf., og VÍS hf. Efnt var til samvinnu við Læknafélag íslands, lögregluna og Umferðarráð, en tryggingafélögin standa straum af öllum kostnaði, sem ætlaður var 7 milljónir króna. Samkvæmt skoðanakönnun, sem vátiyggingafélögin lögðu fyrir 1.045 manns frá 17-67 ára, kom fram að 13% aðspurðra höfðu ekið undir áhrifum áfengis. Athygli vakti að 18% þeiira sem ekið höfðu drukknir voru á aldrinum 17-29 ára. Þá hefur ölvunarakstursmálum á skrá lög- reglunnar fjölgað mikið undanfarin þrjú ár, sem leiðir af sér óheyrileg- an kostnað tryggingafélaga vegna tjóns og örkumla. Skiljið bflinn eftir Sigmar Ái’mannsson, fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra tryggingafélaga, segh- að ærin ástæða hafi verið til að hefja átakið. „Ölvunarakstur er býsna algengur," segir hann. „Við getum séð það í bókum okkar að ölvaðir ökumenn valda mörgum og stórum tjónum. Við vitum líka að helmingur þeirra sem aka drukknir er undir 25 ára aldri og að meirihlutinn er karlar. Við teljum okkur geta náð til þessa markhóps með því að vekja athygli á afleiðingum þessa vanda, sem get- ur verið af margvíslegum toga. Tjónvaldurinn getur slasast sjálfur og slasað aðra.“ Sigmar segir að all- ir hlutaðeigandi aðilar sem standa að átakinu trúi því að hægt sé að ná árangri með því að upplýsa þann hóp, sem freistist mest til að aka undir áhrifum. „Við vitum að ölvun- arakstur hefur verið mikill í desem- ber og janúar og helst í hendur við jólahlaðborð og jólaglögg og áþekk- ar samkomur. Við ætlum m.a. að koma upplýsingum til stjórnenda fyrirtækja og starfsfólks um að Morgunblaðið/Kristinn BARÁTTAN gegn ölvunarakstri snýst uni hugarfarsbreytingu, þannig að enginn láti sér detta í hug að aka bfl eftir að hafa drukkið áfengi, því afleiðingarnar geta verið hörmulegar eins og sjá má af þessari uppstillingu, sem fréttamönnum var sýnd í slökkvistöð Reykjavíkur í gær. skilja bílinn eftir ætli það sér að taka þátt í slíkum samkomum á vegum íyrirtækja sinna Meira eftirlit - minni ölvunarakstur Karl Steinar Valsson aðstoðaryf- irlögregluþjónn segir að greinilegt sé að ökumenn varist að fara á bíln- um ef eftirlit lögreglu er sýnilegt og styður þá staðhæfmgu með reynslu undangenginna ára. „í desember í fyrra var mjög markviss áróður tryggingafélaganna samhliða mjög hörðum aðgerðum lögreglu gegn ölvunarakstri. Þá fækkaði mjög ölv- uðum ökumönnum, sem lögreglan stöðvaði, frá árinu áður, en í janúar þegar áróðurinn minnkaði fjölgaði ölvuðum ökumönnum að sama skapi,“ segir Karl Steinar. Hann segir að margir ökumenn átti sig ekki fyllilega á þeirri aðstöðu sem þeir geta komið sér í með því að drekka áfengi og aka síðan heim. „Viðhorf þeirra einkennist af sjálfs- ásökun yflr því að hafa lent í þessari atburðarás að sjá á eftir ökuskír- teininu og sektum vegna augnabliks yfirsjónar, sem hefði auðveldlega mátt koma í veg fyrir.“ Karl Steinar segir að í desember megi gera ráð fyrir tíðari drykkju á virkum dögum og því muni lögregl- an vera sérstaklega á varðbergi virka daga ekki síður en um helgar. „Flestir ökumenn, sem lögreglan stöðvar fyrir ölvunarakstur, eru stöðvaðir frá föstudegi til sunnu- dags, en í desembermánuði bætast fleiri virkir dagar við þar sem hætt- ara er við ölvunarakstri." / Islenskar myndir af reiki- stjörnum MYNDIR þessar af reiki- stjörnunum Júpíter og Sat- úrnusi voru teknar fyrir skömmu af íslenskum áhuga- stjörnufræðingi, Reyni Eyj- ólfssyni, með CCD-myndavél í gegnum spegilsjónauka. Þver- mál spegilsins í sjónaukanum er 203,2 mm og brennivídd 2032 mm. Á mynd 2 af Júpíter sést skuggi af tungli Júpíters, Jó, yst til vinstri og Stóri rauði bletturinn á Júpíter sést einnig á mynd 2 og 3. Myndirnar eru til sýnis á heimasíðu Stjörnuskoðunarfé- lags Seltjarnarness, http://is- meimt.is/~aquila. Þar segir að þær séu „að líkindum bestu myndir sem teknar hafa verið af reikistjörnum hér á landi“. Oánægja og uppsagnir hjá Skrán- ingarstofu ÓÁNÆGJA er meðal starfsfólks Ski-áningarstofu með tillögur dóms- málaráðuneytisins um sameiningu við Umferðarráð og stofnun Um- ferðarstofu. Óánægjan snýr ekki síður að aðdraganda málsins, en starfsfólkið telur sig ekki hafa feng- ið tryggingu fyrir því að það fái störf hjá hinni nýju stofnun. Síðustu daga hafa tveir starfsmenn Skrán- ingarstofu sagt upp vegna þessarar óánægju. I haust skilaði nefnd, sem dóms- málaráðherra skipaði, tillögum um stofnun Umferðarstofu, en sam- kvæmt þeim átti stofnunin að taka yflr starfsemi Skráningarstofu, Umferðarráðs, nokkur verkefni úr dómsmálaráðuneytinu og hugsan- lega tölvuumsýslu. Var síðan samið frumvarp, sem nú er til meðferðar hjá stjórnarflokkunum. Stefán Eiríksson, lögfræðingur og formaður nefndarinnar, sagði að ráðuneytið hefði leitast við að svara spurningum starfsfólks Ski'áningar- stofu og m.a. hefði verið haldinn sérstakur fundur með því í vikunni. Júpíter mynd 1. Júpíter mynd 2. Júpíter mynd 3. Satúrnus Vangaveltur um orðfæri í næstu útgáfu Biblíunnar Vér/oss eða við/okkur LJÁÐU ÞEIM EYRA í kvöld á Súfistanum í Bókabúð Máls og menningar Nýir höfundar kveða sér hljóðs Aðalsteinn Svanur: Kveikisteinar Auður Jónsdóttir: Stjórnlaus lukka Auður Ólafsdóttir: Upphækkuð jörð Árni Sigurjónsson: Lúx Árni Þórarinsson: Nóttin hefur þúsund augu Aðgangur ókeypis - Hefst kl. 20.30 Mál og menning • Laugavegf 18 • Sími 515 2500 STJÓRN Hins íslenska Biblíufé- lags hefur óskað eftir því við þýð- ingarnefnd Gamla testamentisins að kannað verði með hvaða hætti fleirtölumynd fomafna verði notuð í nýrri útgáfu Biblíunnar, sem ráð- gert er að líti brátt dagsins ljós, hugsanlega árið 2001. Segir í bréfi stjórnarinnar til þýðingamefndar- innar að skoðanir hafi verið skipt- ar um hvort nota eigi fleirtölu- myndina við/okkur eða fomu fleir- tölumyndimar vér/oss. Karl Sigurbjömsson, biskup Is- lands og forseti Hins íslenska Bibl- íufélags, segir að í tilraunaútgáf- um biblíuþýðinganna, sem komið hafa út undanfarin ár, hafi fleir- tölumynd fornafnanna við/okkur verið notuð enda sé það löngu orð- in gildandi málvenja í samtíman- um. Margir hafi lýst áhyggjum sínum yfir því að varpa eigi fyrir róða gamla biblíumálinu vér og oss. „Biblían er síðasta vígi þessa orðfæris sem nánast er horfið úr daglegu máli. Það er þó einnig að finna í helgimáli kirkjunnar, oft í predikun og í bænum og sálmum,“ segir biskup. Hann segir menn hafa áhyggjur af því að yrði daglega málið við/okkur alfarið tekið upp í Biblí- unni væri endanlega kippt stoðun- um undan gömlu og hefðbundnu orðnotkuninni og þá um leið klippt á þann þráð sem verið hefði í mál- inu og lifði enn á þessu afmarkaða sviði. „Þama hafa því tekist á tvö mjög gild sjónarmið, annars vegar virðingin fyrir fornhelgu og hátíð- legu máli og hins vegar tillit til málvenju nútímans." Millivegur kannaður Biskup segist hafa gert það að tillögu sinni við stjórn Hins ís- lenska Biblíufélags að kannað yrði hvort unnt væri að fara milliveg og er það orðað svo í bréfinu til Guð- rúnar Kvaran, sem er formaður þýðingarnefndarinnar: 1. Að jafnaði sé notuð fleirtölu- myndin við/okkur í sögutextum, beinni frásögn, lagatextum og prósa. 2. í litúrgískum textum, sálm- um, bænum og ljóðum verði notuð fleirtölumyndin vér/oss. 3. Þar sem vafi leikur á skal hin foma fleirtölumynd notuð. Biskup segir að með þessu sé verið að horfast í augu við gild- andi venju í samtímanum en þessi tilhögun geri ekki ráð fyrir að breytt verði orðfæri t.d. í bæninni Faðir vor eða öðrum textum sem eru bænir eða ljóð. Biskup taldi þennan milliveg koma helst til greina til lausnar vandanum og útilokað væri að hafa útgáfurnar tvær, aðra með hefðbundnu málfari og hina með orðnotkun daglegs máls. Hann sagði stjórn Biblíufélagsins bíða álits þýðingarnefndar sem von- andi bærist sem fyrst en það er stjórnar Biblíufélagsins að taka þessa ákvörðun. Brýnt væri að ákveða stefnuna þar sem þýðing- arvinnan væri nú á lokastigi enda gert ráð fyrir Biblíu 21. aldarinn- ar, snemma á öldinni nýju.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.