Morgunblaðið - 26.11.1998, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Ingimundur
FRÁ flutningi Framleiðnisjóðs landbúnaðarins í Borgarnes. Frá vinstri: Bjarni Guðmundsson, Egill Jónsson,
Þórhalla Snæþórsdóttir, Ari Teitsson, Guðmundur Bjarnason, Jón G. Guðbjörnsson og Sigurður Þráinsson.
Framleiðnisjóður landbún-
aðarins til Borgarness
Borgarnesi - Landbúnaðairáðherra
hefur ákveðið að aðsetur Framleiðni-
sjóðs landbúnaðarins skuli flutt frá
Reykjavík til Borgaraess. Hin nýja
aðstaða verður að Engjaási 2 í Borg-
arnesi þar sem áður var Mjólkursam-
lag Borgfirðinga. Þar eru nú fyrir
Rannsóknarstofa mjólkuriðnaðarins
og framleiðslufyrirtækin Engjaás hf.,
Sproti hf. og Catco hf.
Fyrsti stjórnarfundurinn í Borg-
arnesi
Þó svo að hið nýja húsnæði sé ekki
að fullu tilbúið þá hélt stjórn Fram-
leiðnisjóðs landbúnaðarins stjórnar-
fund þar sl. fimmtudag. Aður var
húsnæðið sýnt landbúnaðarráðherra,
fréttamönnum og fleiri gestum.
Bjarni Guðmundsson, stjómarfor-
maður framleiðnisjóðsins, bauð gesti
velkomna og vitnaði til silfurs Egils
Skallagiímssonar og taldi að nú væri
ekki síður gildur sjóður kominn í tún-
fótinn á Borg. Þá þakkaði hann góðar
viðtökur húsráðanda.
Sjóðurinn hefur sannað gildi sitt
Guðmundur Bjai-nason landbúnað-
arráðhema óskaði starfsmönnum og
starfseminni allra heilla. Sagði hann
að ekki væri alltaf auðvelt að flytja
opinber fyrirtæki en í þessu tilfelli
hefði ákvörðunin verið auðveld og
kær. Hefði ákvörðunin verið tekin í
fullu samráði við stjórnendur sjóðs-
ins. Hér væri að vísu ekki um stóran
vinnustað að ræða en eigi að síður
stofnun sem ætti í samskiptum við
fjölda aðila vítt og breytt um landið.
Borgarnes væri mjög ákjósanleg
staðsetning.
I stuttu spjalli sagði Guðmundur
Bjarnason að framleiðnisjóður væri
Við leitum eftir
húsnæði strax
Fyrir traustan viðskiptavin okkar, sem er búinn
að selja sína eign, vantar okkur 110-114 fm íb.
m. bílskúr eða bílskúrsrétti helst vestan Elliðaáa
eða í Kópavogi.
Allar nánari upplýsingar hjá Valhöll sími 588 4477
Nýjar glæsiíbúðir
við Vallarbraut í Hf.
I þessu fallega 7 íbúða húsi eig-
um við eftir fimm íbúðir, þ.e
fjórar 3ja herb. íb. og eina 5
herb. íb. á jarðhæð m. mögul. á
sérstúdíóíb. og 2 bílskúrum.
Húsið er staðsett rétt ofan við
höfnina í grónu hverfi og skart-
ar fallegu útsýni. íbúðirnar, sem
eru mjög skemmtilega skipu-
lagðar, afh. fullfrág. að innan Verð:
með vönduðum innrétt., 3ja herb. íb. verð 8,1-8,3 millj.
flísalögðu baðherb. en án gólf- 5 herb. íb. verð 10,6 millj.
efna að öðru leiti. Bílskúr er verð 1,1 millj.
Dæmi um greiðslukjör:
Útborgun á 20 mán.
Afh. er áætluð í
ágúst-okt 1999.
Traustir byggaðilar
Dverghamrar sf.
Við kaupsamning 500 þ.,
við fokheldi 400 þ.,
við afh. 400 þ.,
fimm mán. eftir afh. 450 þ.
tíu mán. e. afh. 400 þ.
húsbréf. mv. 70 % 5,950 b.
samt. 8,1 m.
Einkasöluaðili, Valhöll sími 588 4477
löngu búinn að sanna gildi sitt. Hann
hefði stuðlað að aðlögun, framþróun
og nýsköpun til sveita með ýmsum
hætti á erfiðu samdráttarskeiði.
Einnig mætti nefna stuðning við end-
urmenntun, rannsóknir, markaðsmál,
hagræðingu og margt fleira. Mjög
brýnt væri fyrir landbúnaðinn að
hafa slíkan þróunarsjóð sem FL er.
Lítil yfirbygging
Það vekur athygli að Framleiðni-
sjóður er fámennur vinnustaður
þrátt fyrir að hafa nokkuð umleikis.
Jón G. Guðbjörnsson, framkvæmda-
stjóri sjóðsins, segir það hafa verið
stefnu stjórna sjóðsins að hafa yfir-
byggingu eins litla og kostur væri.
Lágmarka þannig reksturskostnað.
Það hefur verið gert með þeim hætti
að skrifstofa sjóðsins hefur verið
starfrækt í samvinnu við Stofnlána-
deild landbúnaðarins og hefur það
reynst mjög hagfellt. Þá hefur Bún-
aðarbankinn annast bókhald sjóðsins
eins og bankanum bar raunar að
gera lögum samkvæmt þar til fyrir
tveimur árum. Einnig hefur FL nýtt
sér leiðbeiningaþjónustu landbúnað-
arins, bæði landsráðunauta en þó
fyrst og fremst héraðsráðunautana
vitt og breytt um landið. Þeir hafa
m.a. veitt aðstoð við mat á umsókn-
um og síðan annast úttekt á verkum
áður en til útborgunar styrkja kem-
ur. Þegar komið hafa upp verkefni
sem krefjast meiri vinnu hefur verið
gripið til þess að kaupa tímabundna
aðstoð og ráðgjöf.
Framleiðnisjóðm’ landbúnaðarins
var stofnaður með lögum árið 1966 en
hefur frá árinu 1985 fremur starfað á
grundvelli búvörulaga að aðlögun ís-
lensks landbúnaðar að markaðsað-
stæðum og verið fjármagnaður að
stærstum hluta gegnum búvörusamn-
inga 1985-1997. A þessu ári hefur
sjóðurinn til ráðstöfunar rúmlega tvö
hundruð milljónir króna og honum
hafa borist hundruð umsókna á árinu.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
KJARTAN Páll Einarsson, útibússtjóri Búnaðarbankans, afhendir
gjafabréf fyrir nýrri stigatöflu og Leifur Ingólfsson tekur á móti því
fyrir hönd Umf. Snæfells.
NÝJA stigataflan sem Búnaðarbankinn gefur Umf. Snæfelli. Hún
kostar um 1.200.000 kr. Eins og tölurnar á töflunni sýna reyndist
hún heimamönnum vel í fyrsta leik.
Snæfell fær stiga-
töfiu að gjöf
Stykkishólmi - UMF. Snæfell í
Stykkishólmi er 60 ára um þess-
ar mundir. Af því tilefni ákvað
stjórn Búnaðarbanka fslands að
færa félaginu að gjöf stigatöflu
af fullkomnustu gerð til nota í
íþróttamiðstöðinni. Hún kostar
um 1.200 þúsund krónur og er
hér um höfðinglega gjöf að ræða.
Stigataflan er frönsk, af gerð-
inni Bodet. Hana er hægt að nota
í keppni margra íþróttagreina
eins og körfubolta, handbolta,
blaki og tennis. Þegar íþrótta-
húsið var tekið í notkun árið
1990 kom ný stigatafla í húsið.
Sú tafla bilaði í haust og reyndist
ónýt. Þar sem Umf. Snæfell
keppir í úrvalsdeild körfuboltans
varð að bregðast skjótt við og
kaupa nýja töflu, því án slíks út-
búnaðar geta kappleikir ekki far-
ið fram. Búnaðarbankinn, sem er
með útibú í Stykkishólmi, brást
fljótt við og færði félaginu stiga-
töfluna.
Afhending töflunnar fór fram
hinn 19. nóvember á undan leik
Umf. Snæfells og IA. Það var
Kjartan Páll Einarsson útibús-
sljóri sem afhenti Umf. Snæfelli
stigatöfluna og Leifur Ingólfsson
tók við gjöfinni og flutti þakkir
til gefenda.
Ein glæsilegasta íb.
í Rvík er til sölu
Vorum að fá í sölu 115 fm glæsiíb. efst í Grafar-
vogi m. glæsil. útsýni og bílskúrsrétti. Eign í al-
gjörum sérflokki. Allt sérsmíðað og í samráði við
hönnuð. Þessi eign er til sölu strax ef viðunandi
verð fæst. Verðið er 10,9 milllj. sem er sann-
gjarnt fyrir allt þetta.
Hrísrimi - nýl. íb. -
laus strax - fráb. verð
Falleg 61 fm íb. á 2. hæð m. glæsil. útsýni yfir
Faxaflóann, sundin og borgina. Laus 1. des. Áhv.
2,5 millj. húsbréf. Verð aðeins 5,6 millj. 2142
Allar nánari upplýsingar hjá Valhöll sími 588 4477.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050