Morgunblaðið - 26.11.1998, Side 25

Morgunblaðið - 26.11.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 25 ERLENT Fyrsta heimsókn kínversks þjóðhöfðingja í Japan „Afsökunarbeiðni“ og Tævan á dagskrá Tókýð. Reuters. JIANG Zemin, forseti Kína, kom í gær í sögulega heimsókn til Japans en megintilgangur hennar er að leggja grann að nánari samvinnu þessara tveggja stórvelda í Asíu á næstu öld. Öryggisráðið Stuðningur við UNSCOM Bagdad, Sameinuðu þjóðunum. Reuters. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð- anna lýsti á þriðjudagskvöld yfir „fullum stuðningi" við starf vopna- eftirlitsnefndai- SÞ, UNSCOM, í Irak, en klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort áminna ætti íraka fyrir að neita að afhenda nefndinni skjöl um sýkla- og efnavopn. Irakar fögn- uðu niðurstöðunni í gær. Öryggisráðið kom saman til fund- ar á þriðjudagskvöld til að ræða þrjú bréf Iraka til ráðsins, þar sem þeir skýra hvers vegna þeir neita að af- henda skjölin, og hlýða á skýrslu Richards Butlers, yfirmanns UNSCOM, um deiluna. Bretar lögðu fram tillögu, sem studd var af Bandaríkjamönnum, um að ráðið samþykkti ályktun þar sem Irakar væru sagðir brjóta í bága við loforð sitt um að hindra ekki störf UNSCOM með þvf að neita að af- henda umbeðin skjöl. Rússar beittu neitunarvaldi gegn tillögunni, og sagði rússneski fulltrúinn, Sergei Lavrov, að áður þyrfti að rannsaka til hlítar hvort skjölin væru til í raun og veru. Irakar halda því fram að tíu flokk- ar skjala af tólf, sem UNSCOM óskaði eftir, væru annaðhvort ekki til, væru vopnaleitinni óviðkomandi eða snertu þjóðai'öryggi. Öryggisráðið samþykkti sam- hijóða framlengingu á leyfi íraks til að selja ákveðið magn olíu til kaupa á matvælum og lyfjum. írakar höfðu sótt um tveggja mánaða framleng- ingu á leyfinu en fengu hana til hálfs árs. Irak fær þá að selja olíu að and- virði rúmlega fimm milljarða banda- ríkjadala, eins og undanfarna sex mánuði. Hans von Sponeck; mannúðar- málafulltrúi SÞ fyrir Irak, sagði á þriðjudag að brýnt væri að írakar fengju áfram að selja olíu til kaupa á matvælum, sérstaklega í ljósi þess að á síðasta hálfs árs tímabili hefðu tekjur þeirra af sölunni verið mun minni en áætlað hefði verið vegna lækkunar á olíuverði. Aætluninni um olíusölu til mat- vælakaupa var hleypt af stokkunum í desember árið 1996, en hún er und- antekning frá viðskiptabanni sem SÞ lagði á Irak eftir innrásina í Kuwait árið 1990. Jiang er fyrsti kinverski þjóðhöfð- inginn, sem kemur til Japans, en samskipti ríkjanna hafa verið fremur stirð frá stríðslokum og einnig vegna samvinnu Japana og Bandaríkja- manna í öryggismálum. Kínverjar krefjast þess m.a., að Japanir biðjist ærlega afsökunar á framferði sínu í síðari heimsstyrjöld og lýsi afdrátt- arlaust yfir, að þeir styðji ekki sjálf- stætt Tævan. Jiang kom til Japans frá Novosíbírsk í Rússlandi þar sem hann var í heimsókn og var öryggis- gæsla í Tókýó mjög mikil. Talið er, að allt að 10.000 lögreglumenn hafi verið á götum borgarinnar. Nokkru fyrir komuna efndi nokkur hópur hægrimanna til fundar þar sem því var mótmælt, að beðist yrði afsökun- ar á fi'amferði japanska hersins í stríðinu. Jiang sagði við komuna, að vin- áttu- og friðarsamningur Kínverja og Japana væri 20 ára gamall og kominn væri tími til að huga að sam- skiptum ríkjanna á næstu öld. Hefur Tang Jiaxuan, utanríkisráðherra Kína, verið í Tókýó frá því á þríðju- dag til að reyna að fá Japani til að samþykkja nýja afsökunarbeiðni en haft hefur verið eftir japönskum embættismönnum, að engu verði bætt við yfirlýsingu Tomiichi Mura- yama, þáverandi utanríkisráðherra, árið 1995 er þess var minnst, að hálf öld var liðin frá ósigri Japana í heimsstyrjöldinni. A hinn bóginn væri hægt að bera hana sérstaklega fram við kínversku þjóðina. Þá myndi Keizo Obuchi, forsætisráð- herra Japans, aðeins flytja hana munnlega en ekki afhenda hana skriflega eins og Kínverjar vilja. Efnahagsmál og Tævan Leiðtogarnir tveir, Jiang og Obuchi, munu einnig ræða efnahags- ei’fiðleikana í álfunni en ríkin eru mjög háð hvort öðra efnahagslega. Þá mun hernaðarlegt samstarf Japana og Bandaríkjamanna líka bera á góma en Kínverjar óttast, að tilgangur þess sé meðal annars að koma Tævan til hjálpar reyni Kín- verjar að ná þar yfirráðum. Tyrkneska stjórnin fallin Skapar óvissu í efnahagsmálum STJÓRNUMesuts Yilmaz í Tyrklandi féll í gær er samþykkt var á hana vantrauststillaga í þinginu og sagði Yilmaz af sér nokkrum stundum síð- ar. Stjórnin hefur verið sökuð um fjármálaspillingu og greiddu 314 þingmenn atkvæði gegn henni en 276 þurfti til að samþykkja van- traustið. Fall stjórnarinnar skapar mikla pólitíska og efnahagslega óvissu og óttast margir að aðgerðir sem nauðsynlegar séu til bjargar efnahag landsins muni nú sitja á hakanum. Mikill óstöðugleiki hefur einkennt tyrknesk stjórnmál og var minni- hlutastjórn Yilmaz sú fimmta á þremur árum. Er talin hætta á að fall hennar verði til þess að ekki verði tekist á við þann vanda sem að efnahagnum steðjar en verðbólga í Tyrklandi er nú 62% og innlendar og erlendar skuldir gríðarlegar. Þá er talið að enn frekari tafir verði á einkavæðingu ríkisfyrirtækja. Beðið eftir Demirel Með afsögn Yilmaz færast völdin á hendur Suleymans Demirels, for- seta, sem mun á næstu dögum ákveða hverjum falin verður stjórn- armyndun. Þar hafa mörg nöfn ver- ið nefnd, þeirra á meðal þingforset- inn Hikmet Cetin, kúrdískur jafnað- armaður, sem var utanríkisráðherra á árunum 1991-1994. Þá hefur Recai Kutan, leiðtogi heittrúaðra múslima í Velferðarflokknum, sem er stærsti flokkurinn á þinginu, lýst því yfir að Demirel hafi boðið honum til við- ræðna. Velferðarflokknum var kom- ið frá völdum á síðasta ári, ekki síst vegna þrýstings tyrkneska hersins og er fullvíst að nýrri tilraun til að koma heittrúarmönnum til valda verður harðlega mótmælt. Fjölflokkastjórn Þá hefur verið nefndur sá mögu- leiki að mynda fjölflokkastjórn til að útiloka Velferðarflokkinn. Að slíkri stjórn stæðu Föðurlandsflokkur Yilmaz, Sannleiksstígur Tansu Cill- er og Lýðræðislegi vinstriflokkurinn undir stjórn Bulent Ecevit, aðstoð- arforsætisráðherra. Það sem helst stendur í vegi fyrir slíkri stjórn er hins vegar ósætti Ciller og Yilmaz. * Att þú von á estum? Vandaðir Amerískir svefnsófar með innbyggðri springdýnu. Frábær lausn þegar sameina þarf ^ fallegan sófa og gott rúm. Við bjóðum margar gerðir, mikið úrval áklæða og lita. W MEÐ HALENDINU - GEGN NATTURUSFJOLLUM Almennur fundur um verndun miðhálendisins i Háskólabíói Laugardaginn 28. nóvember 1998 kL 14:00. Ávörp og f jölbreytt skemmtiatriðL Sláum skjaldborg um íslenska náttúru.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.