Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 29
'fWs/OCi
ÆajJiIÍAlÍUAl'ÍjjJj"
- I|Aíj£)A17A1j,3J -
ÍJ£J.J:JJV3JJ^1
5jjjjjJJJJJJjJ
S Jajjjjdjj'
|íi> ui'jj.Dijy
s'BJS jjj1 —1 .JdJj
LISTIR
Nýjar bækur
• BÍÓSTJARNAN Húgó Flemm-
ing er eftir Quist Möller í þýðingu
Jóns Daníelssonar.
í kynningu segir að þetta sé
spennandi og hugljúf saga um skóg-
ardýrið Húgó sem kominn er aftur
heim í frumskóginn en situr þar og
saknar Ritu sem hann kynntist 1
borginni. Lymskufullir menn fanga
Húgó enn á ný en honum tekst að
sleppa á æsispennandi hátt og hitta
sína elskuðu Ritu.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
48 bls. í stóru broti. Umbrot og frá-
gangur: Skjaldborg. Bókin er prent-
uð í Singapúr. Verð: 1.480 kr.
• FAGRI Blakkur er eftir Ann
Sewell í þýðingu Jóhönnu G. Erling-
son. Myndir eftir Dinah Dryhurst.
Sagan um Fagra Blakk telst til sí-
gildra bókmennta fyrir börn jafnt
sem fullorðna. Myndir Dinah
Dryhurst eru sannkölluð listaverk
sem gefa ógleymanlega innsýn í lífíð
á Viktoríutímabilinu, segir í kynn-
ingu.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
168 bls. Umbrot og frágangur:
Skjaldborg. Bókin erprentuðí
Singapúr. Verð: 2.480 kr.
• ÁHYGGJUR Berts er eftir
Sören Olsson og Anders Jacobsson
í þýðingu Jöns Daníelssonar.
I kynningu segir: „Þetta er átt-
unda bókin um þennan óviðjafnan-
lega grallara sem er líklega vin-
sælasta sögupersóna á íslandi. Bert
byrjar í tíunda bekk - loksins. Nú
er hann orðinn stór og fullorðinn og
allt getur gerst og á að gerast. En
því miður fer ekkert eins og Bert
vonast til og áhyggjurnar hrannast
upp eins og óveðursský.“
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
207 bls. Umbrot og frágangur:
Skjaldborg. Bókin er prentuð í
Singapúr. Verð: 1.780 kr.
• FLOTT, Fríða framlileypna er
eftir Lykke Nielsen í þýðingu Jóns
Daníelssonar.
Þetta er níunda bókin um Fríðu
framhleypnu. Fríða framhleypna er
langflottust og alveg jafnfram-
hleypin í þessari bók og þeim fyrri,
segir í kynningu.
Útgefandi er Skjaldborg.
Bókin er 86 bls.
Umbrot og frágangur: Skjaldborg.
Bókin er prentuð í Singapúr.
Verð: 1.680 kr.
Náttúra og form
MYNDLIST
VEFNAÐUR
HERDÍS TÓMASDÓTTIR
Opið kl. 14-18. Sýningin stendur til
29. nóvember.
ÍSLENSK veflist hefur lengi
staðið hátt en hins vegar hefur
nokkuð minna borið á henni undan-
farin ár en áður. Líklega er það
ekki síst vegna þeirra tilrauna sem
staðið hafa yfir með ný efni og að-
ferðir - hér eins og á öðrum sviðum
lista líða hefðbundnari framsetning-
arform íyrir slíkar tilraunir. Það
væri reyndar ekki sanngjarnt að
segja að vefír Herdísar Tómasdótt-
ur væra hefðbundnir, að minnsta
kosti ekki ef í því gæti falist að þeir
bæru ekki vott um sjálfstæða sköp-
un eða listhugsun. Hins vegar sýna
þeir að Herdís hefur þann aga sem
þarf til að setja hugsun sína fram í
einföldum verkum þar sem mögu-
leikar forma og efnis eru nýttir til
hlítar. Hún vinnur vandlega úr hug-
myndum sínum, einfaldar umgjörð-
ina þar til aðeins hugmyndin stend-
ur eftir skýr og útfærð af kostgæfni
og þolinmæði í efnið.
Vefir Herdísar eru umfram allt
formrænar stúdíur en þeir sýna þó
um leið að hún hefur næma tilfínn-
ingu fyrir efniskennd formanna,
bæði í verkum þar sem hún hefur
ofíð einfaldar myndir í verkin - til
dæmis í götumyndaröðinni - og í
þeim verkum sem eru afstrakt þar
sem hún beitir sísal, hör og kopar-
þræði til að draga myndina út í þrí-
vídd og undirstrika efnistilfínning-
una.
Sýning Hel'dísar í Norræna hús-
inu er eiginlega tvískipt. f fremri
salnum eru myndir ofnar í ull eða
þar sem er bætt við ýmsu efni eins
og fýrr segir. í innri salnum eru
hins vegar stór verk sem hanga nið-
ur úr loftinu, ofin úr léttari efnum.
Þessar myndir eru hálfgagnsæjar
og Herdís nefnir þetta transparent-
vefnað. Efnið er ýmist hör eða girni
og vefurinn er fínlegur og laus svo
að sér í gegn. Samanvið hefur í
sumum verkunum verið ofið fínum
koparþræði svo þau glitra þegar
ljósið fellur á þau og í gegnum þau
og virðast svífa í ljósinu. Önnur
verk virðast hafa verið borin ein-
hverju glæru efni svo á þau sindrar
líka í birtunni. f þessi léttu gagn-
sæju verk hefur Herdís ofið form
líkt og í ullarverkin í fremri salnum,
en formin eru stærri og ógreini-
legri, en það undirstrikar aftur létt-
leikann í þessum verkum.
Hvorki aðferðh-nar né efnisnotk-
unin í verkum Herdísar geta talist
til nýjunga enda er það greinilega
ekki markmið hennar að reyna að
vekja athygli með nýstárlegum
verkum, eða að gera tilraunir á því
sviði. Verkin einkennast frekar af
viðleitninni til að ná fullkomnu valdi
á efni og formi og til að gera hverri
hugmynd þannig skil að efni og
form fari fullkomlega saman.
Þetta mun vera fyrsta einkasýn-
ing Herdísar en hún hefur tekið
þátt í samsýningum frá árinu 1984.
Þessi sýning ber þess líka glöggt
vitni að hér hefur ekki verið flanað
að neinu. Sýningin er heilsteypt og
ákaflega vandlega unnin. Hér hefur
verið unnið af þeirri þolinmæði sem
ein dugir til að tryggja hreina og
skýra útfærslu listrænnar hug-
myndar í efni, hvort sem efnið er ull
og hör, olíulitir eða eitthvað annað.
Jón Proppé
VEFIR Herdísar Tómasdóttur eru fyrst og fremst formrænar stúdí-
ur, en sýna líka næma tilfinningu fyrir efniskennd forma.
Flytjum
fyrir pig
- af einum stað á annan
• Daglegarferðir til allra helstu þéttbýlisstaða
• Áttatíu vöruafgreiðslur um land allt
• Flytjum litlar sem stórar sendingar
• Fullkomin kœli- og frystiaðstaða
• Sœkjum og sendum innanbæjar
• Afhending vöru næsta dag
Pér býðst hröð og örugg þjónusta í ílutningum
innanlands með þéttu flutninganeti VM. Við
bjóðum tiðar ferðir og tengiflutninga hvert á
land sem er. Hafðu samband og nýttu þér
áralanga reynslu okkar í vöruflutningum.
Varan þín er d réttri leið með VM!
VORUFLUTNINGAMIÐSTOÐIN
KLETTAGÖRÐUM 15 • 104 REYKJAVlK
SÍMI 515 2200 • FAX 515 2201 • NETFANG vmOvm.ls
Borðbúnaður