Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 31

Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 31 LISTIR Nýjar • UNDUR veraldar - greinasafn um raunvfsindi fyrir almenning. Greinarnar eru afrakstur fyrir- lestraraðar sem var haldin á vordög- um 1997 á vegum raunvísindadeildar Háskóla Islands og Hollvinafélags hennar. Tilgangurinn var að kynna almenningi viðfangsefni og aðferðir raunvísinda og ýmis furðuverk í náttúi’u og stærðfræði. Höfundar greinanna eru: Gunn- laugur Björnsson stjarneðlisfræð- ingur, Sigurður Steinþórsson jai'ð- fræðingur, Páli Hersteinsson líf- fræðingur, Þorsteinn J. Halldórsson eðlisfræðingur, Már Björgvinsson efnafræðingur, Kristján Leósson eðlisfræðingur, Hjálmtýr Hafsteins- son tölvunarfræðingur, Reynir Ax- elsson stærðfræðingur og Þorsteinn Vilhjálmsson eðlisfræðingur sem er ritstjóri bókarinnar og ritar inn- gangskafla um vísindi við aldamót. Utgefandi er Heimskringla, Há- skólaforlag Máls og menningar. Bókin er 244 bls. í stóru broti, lit- prentuð með fjölda mynda, prentuð í Danmörku. Erlingur Páll Ingvars- son gerði kápu. Verð: 5.680 kr. Hún er bók mánaðarins í desember og kostar þá kr. 3.980 kr. • RÉTTLÆTI og ranglæti er eftir Þorstein Gylfason. í kynningu segir: „í bókinni er að finna margt það merkasta sem Þor- steinn hefur látið frá sér fara í rúm- an aldarfjórðung um stjórnmála- heimspeki eða stjórnspeki og skyld efni. Hún er safn fímmtán ritgerða og skipt- ist í þrjá hluta. I þeim fyrsta gerir hann atrennur að réttlæti, annar hluti geymir at- huganir á sið- fræði og í þeim þriðja gerii’ hann at- lögur að hugmyndaheimum, svo sem marxisma, frjálshyggju, nytjastefnu og hlutleysiskenningunni um vísind- in.“ Þorsteinn Gylfason er prófessor í heimspeki við Háskóla íslands. Hann hefur ritað margt um fræði sín og önnur málefni og er auk þess ljóða- þýðandi. Hann hlaut íslensku bók- menntaverðlaunin 1996 fyrir rit- gerðasafnið Að hugsa á íslenzku. Útgefandi er Heimskringla, Há- skólaforlag Máls og menningar. Bók- in er 355 bls., prentuð í Prentsmiðj- unni Odda hf. Erlingur Páll Ingvars- son gerði kápu. Verð 3.880 kr. • DIGITUS sapiens er grafísk vís- indaskáldsaga eftir Kristin Þóris- son, Þóri S. Guðbergsson og Bjarna Hinriksson. í kynningu segir: „Sagan segir frá tveimur ungmennum, Önnu og Úlfari, sem lenda í sérstæðu og jafn- framt heillandi ferðalagi um undra- veröld. Þegar síðasta skóladegi er lokið um vorið leggja þau leið sína út í hraun sem er skammt frá þorpinu þeirra og þá fara undarlegir atburðir að gerast. Furðuverur djúpt úr iðr- um jarðar leiða ungmennin og les- endui’ bókarinnai- um ókunna stigu.“ Kristinn R. Þórisson er sálfræð- ingur og doktor í boðmiðlavísindum. Hann starfar að vísindarannsóknum. Þórir S. Guðbergsson hefur skrifað á þriðja tug bóka. Bjarni Hinriksson hefur starfað við myndasögugerð, myndskreytingar og tölvugrafík. Útgefandi er Fróði. Bókin er 93 bls. Bókin er prentunnin í Prent- smiðjunni Odda hf. Verð 1.790 kr. bækur • ÝKT eðlilegt er eftir Omar Ragnarsson í kynningu segir: Aðalsöguhetj- umar eru tvö reykvísk ungmenni, piltur og stúlka, sem lenda í vafasömum fé- lagsskap, leiðast út í afbrot og komast í kast við lögin. Til þess að koma þeim á rétt- ar brautir er ákveðið að þau fari til sumardval- ar á afskekktum bæ eða „norður í rassgati“ eins og þau orða það sjálf. Þegar í sveitina kemur taka við ný ævintýri, ný vandamál. Ein söguhetjan í bókinni, Silli, sem er mikið heyrnarskertur, er hæfíleikai’íkur og margt til lista lagt. Þetta er fimmta bók Ómars. Útgefandi er Fróði. Bókin er 171 bls., prentuð í Grafík. Kápu hannaði Aron Reyr. Verð 1.980 kr. • ELDHÚSHANDBÓKIN _ Hag- nýtar upplýsingar um matreiðslu og eldhússtörfin er eftir Þráin Lár- usson matreiðslumann. Þetta er fyrsta bók Þráins, en fyr- ir allmörgum árum gaf hann, ásamt nokkrum félögum sínum, sem þá stunduðu nám í Hótel- og veitinga- skóla Islands, út bókina Handbók sæjkerans. I bókinni eru hagnýtar upplýs- ingar upplýsingar fyrir alla þá sem vinna að matar- gerð og eldhús- störfum, auk þess sem í bókinni eru uppskriftir að al- gengum hvers- dagsréttum og ráðleggingai’ um matreiðslu þeirra. Útgefandi er Fróði. Bðkin er 89 bls. í stóru broti, með allmörgum skýringarmyndum. Kápuhönnun og uppsetningu bókar annaðist Ólöf Guðmundsdóttir. Bókin erprent- unnin í Prentsmiðjunni Grafík. Verð 2.190 kr. • ALMÚGAMENN er eftir Arn- mund Backman. Arnmundur hafði nýlega lokið við söguna er hann lést í september sl. Áður hafa komið út tvær skáldsögur eftir Arnmund, Hermann og Böndin bresta og auk þess skrifaði hann leikrit. I kynningu segir: Sögusvið er íslenskt sjávar- þorp í upphafi sjötta áratugar- ins. Það eru mikil átök í íslensku þjóðlífi - milli landsbyggðarinn- ar og höfuðborg- arinnar, milli kapítalista og sósí- alista og menn eru jafnvel á önd- verðum meiði í trúmálum. Sumir telja Jósef Stalín guði almáttugum æðri. Aðalsöguhetja bókarinnar er ung- ur drengur sem elst upp í þorpssam- félaginu og mótast af þeim viðhorf- um sem ríkja hjá hans nánustu. Afi Gvendur og amma Gunna eru stoð hans og stytta. Útgefandi er Fróði. Bókin er 231 bls., prentunnin í Prentsmiðjunni Grafík hf. Kápu hannaði Hildur Inga Björnsdóttir. Verð 2.980 kr. Þorsteinn Gylfason Ómar Ragnarsson Þráinn Lárusson Herveldi á Suðurlandi BÆKUR Sagnfræði STYRJALDARÁRIN Á SUÐURLANDI Guðmundur Kristinsson skráði. Ár- nesútgáfan, Selfossi, 1998, 317 bls. SÁ SEM lesið hefur tveggja binda ritverk Guð- mundar Kristinssonar um Selfoss fer ekki í grafgötur um að hann er einstaklega ná- kvæmur og vandvirkur höfundur, sem lætur fátt fram hjá sér fara. Sú bók, sem hér kemur fyrir sjónir almennings, staðfestir þennan vitn- isburð enn frekar. Þar tekur höfundur sér fyr- ir hendur að rekja hernaðarumsvif Banda- manna (Breta, Kanada- manna, Bandaríkja- manna) á Suðurlandi frá því að Island var hernumið 10. maí 1940 og til styrjaldarloka. Bókin greinist í fjórtán kafla. Sá fyrsti er stuttur inngangur. Síðan er gerð grein fyrir varnar- eða varðstöðvum hermanna í Ölfusi og Selvogi. En þar voru þeir á nokkrum stöðum. Þá segir frá her- flugvellinum í Kaldaðarnesi, en þar var aðalílugvöllur hersins á Islandi Guðmundur Kristinsson og geysimikil umsvif. Er þar frá mörgu að segja. Kafli er um varnir Selfoss og Ölfusárbrúar. Tvær flug- sveitir fá hvor sinn kafla. Sagt _er frá könnunarflugi Þjóðverja yfir Is- landi, vörnum uppsveita og óbyggða, allt að Hveravöllum, varð- stöðvum í Rangárvallasýslu, Skaftafellssýslu og Vestmannaeyj- um og átökum, sem urðu á hafinu umhvei’fis Island. Og loks greinir frá því hvað varð um þá her- menn, sem á Islandi höfðu dvalist, en flestir þeirra tóku þátt í styrj- öldinni í Evrópu uns yf- ir lauk. Bók þessi er sérstæð að því leyti að við samn- ingu hennar hefur höf- undurinn fengið upplýs- ingar frá mörgum yfir- mönnum hernámsliðs- ins. I heimildaskrá eru taldir upp sex Bretar, tíu Bandaríkjamenn, einn Þjóðverji, einn Frakki og einn Kanadamaður. Við flesta þessa menn hefur höfundur staðið í bréfaskiptum, við suma þeirra oft og mörgum sinnum. ís- lenskir heimildamenn eru um átta- tíu talsins. Marga kafla bókarinnar þýddi höfundur á ensku og sendi einum bréfvina sinna, „sem hefur lesið og leiðrétt Iþá] ... og lagt víða til grunninn í frásögnina, skýrt her- fræðileg efni og lagt til 38 ljósmynd- ir“. Þjóðveijinn „hefur verið óspar á upplýsingar um könnunarflugsveit sína og Islandsflugið á stríðsárun- um og lagt til ljósmyndir af könnun- arflugi þein’a á Suðurlandi“. Og að sjálfsögðu hefur höfundurinn fengið vitneskju um þátttöku hermann- anna í styrjöldinni í Evrópu frá er- lendum heimildarmönnum sínum. Hér er því sagan sögð bæði eins og hún horfði við Islendingum og einnig eins og hermennirnir sjálfir sáu hana. Þeir gátu auðvitað einnig veitt fræðslu um fjöldamargt, sem engin leið var að fá annars staðar frá. Þegar þessar staðreyndir bætast við hina frábæru nákvæmni höf- undar er ljóst að hér er um ein- stæða bók og einkar verðmæta að ræða á þessu sviði. Þá hefur höfundur dregið fram fjölmörg skjöl, sem ekki hafa legið á glámbekk, svo og fjöldann allan af ljósmyndum, sem varla hefðu kom- ið fyrir sjónir almennings án þess- arar bókar. Augljóst má vera að höfundur hefur unnið að þessu verki um langt árabil og lagt í það mikla vinnu. Bókin er prýðilega útgefin, prentuð á góðan pappír, svo að myndir njóta sín vel og prófarkir hafa verið vandlega lesnar. í bókar- lok er heimildaskrá, myndaskrá og nafnaskrá. Sigurjón Björnsson # .SIEMENS 1 ,4 ! I \ / I /1 / i ! r jjJyjijA mr •” ' iwi^ CiamQnc hnl Að elda og borða goðan mat. Jtiflefniafkomandi storhatiðunum bjóðum við nu i november þessi og fléiri eldunartæki á sérstöku tilboðsveröi Siemens eldavél Hl. 54023 Siemens bakstursofn í 79-&ffO iteH V'- — Stor. —' .... , stgr. ^ Keramíkhelluborð, fjórar hraðsuðuhellur, ein stækkanleg hella, fjórfalt eftirhitagaumljós, fjölvirkur bakstursofn, létthreinsikerfi, geymsluskúffa, gufuútstreymi að aftan, loftkæld ofnhurð. UMBOÐSMENN: Akranes: Bilinsli Spltis - Imgws: Biii - Snxfellsbær: Kmslintii - Mmljgrtiir: Eiini H)iíbsii - Slrkkishólniiir: Skipmik- Hvamrastangi: Skjnei - Sanðárkrokir: (ilsji - Sigliljðrðir: liijii - Akirevrí: Ijssgjafin - Húsavik: Oryggi - Vopnafjðrðir: Hiliagisi íili II. - Neskaupslaður: lililli - Rerðarfjörðir: liHiralsl. íni E - Egilsstilii: Sveín tilnilssii - Breiðdalsvlk: Stefðn I. Slefáesssi ■ Hðfn i Hornafirði: Króm ij bvílt ■ Vik i Mrrdal: Háiri • Vestnannaeyiar: liiral Iftijisrabt. H ■ Hella: tlsi - Sellnss: takii - Erindavik: liq - Garður: Riitzkjn Sij lijrass - IeIMc Ijiskijin - Hafnarfjðrður Raliið SUififislBÍi. 1 SMITH & ÁsM-lsafjðrður: Póiu NORLAND • SJÓNVÖRP • MYNDBANDSTÆKI • DVD SPILARAR • HLJÓMTÆKi • FERÐATÆKI MEÐ GEISLA • VASADISKÓ • BÍLTÆKI • HEYRNARTÓL 0UtSl v'Vs CTT/k 'i oq qóó kaup! Sjónvarpsmiðstöðin SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • www. sm.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.