Morgunblaðið - 26.11.1998, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 67
i
I
2-'
26. nóv.-
Háskólabíó 26. nóv.-2. des.
Baðhúsið
(Hamam - il bagno turco)
ftalski vinnu-alkinn Francesco, leikinn af Alessandro
Gassman, erfir fasteign í Istanbul af aldraðari frænku sinni.
Hann ferðast til Tyrklands með það fyrir sjónum að selja
eignina hæstbjóðanda og halda rakleiðis aftur til Rómar með
gróðann. Annað kemur á daginn þegar Francesco kemst að
því að frænka hans skildi eftir gamalt tyrkneskt baðhús.
Menningin og fólkið sem Francesco kynnist í Istanbul heillar
hann og breytir viðhorfi hans til muna. Hann ákveður að gera
baðhúsið upp og hefja starfsemi þar að nýju. Myndin er
leikstýrð af Ferzban Ozpetek sem er bæði af ítölskum og
tyrkneskum ættum. Myndin var tilnefnd af tyrkneskum
kvikmyndagerðarmönnum sem framlag Tyrklands til
Óskarsverölaunahátíðarinnar en var afturkölluð. Yfirvöld töldu
hana sýna um of inn í umhverfi samkynhneigðra þar í landi.
Regnboginn 26. nóv.-2. des.
Reykmcrki
(Smoke Signals)
Reykmerki er fyrsta kvikmyndin í fullri lengd sem framleidd
og unnin er af norður-amerískum indíánum. Hún hefur vakið
áhuga og umtal og hlaut m.a. áhorfenda verðlaunin á
Sundance kvikmyndahátíðinni 1998. Myndin fjallar um tvo
unga menn, Victor og Thomas, sem ferðast til Phoenix að ná í
jarðneskar leifar föður Victors. Victor ber kaldar tilfinníngar til
föður síns sem yfirgaf hann um 10 ára aldur. Thomas á
hinsvegar gamla manninum líf sitt að launa og reynir á
leiðinni að sannfæra Victor um að faðir hans heitinn hafi veriö
góður og virðingaverður maður. Leikarar myndarinnar eru
taldir framúrskarandi og hefur túlkun þeirra á hlutverkum
sínum hvarvetna fengið mikið lof.
Háskólabíó 3. des.-9.des.
Fjárhættuspilarinn
(The Cambler)
Leikstjóri „The Gambler" er Karoly Makk, einn virtasti
kvikmyndaleikstjóri Ungverjalands. Hann hlaut sérstök
verðlaun dómnefndar á Cannes hátíðinni 1971 fyrir mynd sína
„Ást“ (Love).
Nýjasta verk hans er byggt á sjátfsævisögu Dostojevsky um
eðli (eða óeðli) fjárhættuspilarans. Makk segir söguna á
óvenjulegan en mjög áhugaverðan hátt og notar hæfileika
leikarahópsins til hins ýtrasta. Stórleikarinn enski Michael
Gambon (The Cook, The Thief, His Wife and Her Lover) leikur
aðalhlutverkið á móti Johdi May og Polly Walker.
' ■« f <
'm :
Regnboginn 3. des.-9.des.
Þjófurinn
(Vor)
Átakanleg rússnesk kvikmynd sem gerist á árunum eftir lok
seinni heimstyrjaldarinnar þegar mikil eymd og óvissa var
ríkjandi meðal rússnesks almennings. Myndin er sýnd frá
sjónarhorni Sanya, 6 ára drengsnáða, og fjallar um kynni
hans og heimilislausrar móður hans af hinum myndarlega
Tolyan, sem í fyrstu virðist vera liðsforingi með ágætis tekjur.
Móðirin fellur fyrir hor.um en hún og Sanya eiga eftir að
komast að hinni dökku hlið Tolyan, sem fjármagnar lífstíl sinn
á kostnað annarra. Leikstjórinn Pavel Chukhrai fer ekki leynt
með ádeiluna í mynd sinni sem er hápólitisk og er beint að
Stalín sjálfum. Myndin vartilnefnd til Óskarsverðlauna 1998,
sem besta erlenda kvikmyndin.
Háskólabíó 10. des.-16.des._____________
Skoteldar
(Hana-bi)
Japaninn fjölhæfi Takeshi Kitano skrifar, leikstýrir, klippir og
leikur aðalhlutverkið í „Skoteldar" sinni sjöundu kvikmynd. I
heimalandi sínu er „Beat“ Kitano gífurlega vinsæll og þekktur
fyrir stíl sinn sem einkennist af mínimalisma i bland viö bik-
svartan húmor og hrottalega raunsæ ofbeldisatriði. Sem
dæmi má nefna mynd Kitano, „Violent Cop“, sem hefur náð
„költ status" víðast livar. „Skoteldar" fjallar um fyrrverandi
lögreglumann sem stendur í skuld við japönsku mafíuna
(Yakuza). Hann reynir að annast dauðvona konu sína sem
hann elskar heilshugar en tilvera hans og umhverfi verður
sífellt ofbeldisfyllra. „Skoteldar" hlaut Gull Ijónið á
kvikmyndahátíðinni í Feneyjum 1997.
DprtNIDrNrtlMKI
HASKOLABIO
Regnboginn 10. des.-16.des.__________________
Falinn farangur
(Lejt Luggage)
Hinn þekkti hollenski leikari, Jeroen Krabbé (Immortal
beloved, The Fugitive), leikstýrir hér sinni fyrstu mynd
jafnframt því að leika eitt aðalhlutverkið á móti Isabellu
Rosseilini (Blue Velvet, The Big Night). „Falinn farangur"
gerist í Antwerpen snemma á 8. áratugnum. Cliaja er tvítug
háskólastúdína sem felst á að gerast barnapía hjá strangtrúa
gyðingum og annast fjögur börn þeirra þ.á.m. Simcha, vanda-
málabarn sem neitar að tala. Chaja hefur jákvæð áhrif á
drenginn en á erfitt með að þola hinar ströngu hefðir og
ofsafengna trúrækni sem foreldrar Simcha móta líf sitt og
barnanna eftir. Chaja er sjálf gyðingur en fjölskylda hennar
hefur fjarlægt sig trúnni eins mikiö og hægt er í kjölfar seinni
heimstyrjaldarinnar. Jeroen Krabbé hlaut leikstjórnarverðlaun
á kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrir þessa frumraun sína í
leikstjórn.
1
t