Morgunblaðið - 26.11.1998, Page 70

Morgunblaðið - 26.11.1998, Page 70
70 FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM 4' I MIÐJU kafi tóku Naglbítarnir sig til, stöðvuðu tónlcikana, fluttu stuttan allsérkennilegan leikþátt og hneigðu sig fyrir áheyrendum. NAGLBITARNIR kunnu bráðvel við sig í búningaaðstöðu Leikfélags Akureyrar og veltu því fyrir sér að klæðast matrósafötum úr Rummungi ræningja, en smám saman náði spennan tökum á þeim. uppgnp Nóvembertilboð létttr per liftð Uppgrip eru á eftirtöldum stöðum: ð Sæbraut við Kleppsveg © Mjódd í Breiðholti @ Gullinbrú i Grafarvogi @ Hamraborg I Kópavogi @ Alfheimum við Suðurlandsbraut @ Hafnarfjarðarvegi i Garðabæ Arinkubbar 6 stk. Coca Cola 0,5 Itr. - Diet Coca Cola 0,5 Itr. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir VILHELM Anton Jónsson, söngspíra og gítarleikari 200.000 Naglbfta kunni greinilega vel við sig á leiksviðinu, enda var hann ekki þar staddur í fyrsta sinn; lék lítið, en veigamikið, hlutverk í Laxnessverki fyrir margt löngu. sveitina inn. „Við vorum síðan á Sp- írum og í kjölfarið var okkur boðinn útgáfusamningur, reyndar tveir samningar, við gátum valið á milli Skífunnar og Spors, ekki að það skipti miklu máli í dag.“ Sveitin gerði fímm platna samning við Sprota og Neondýrin er fyrsta breið- skífan í þeim samningi. Eins og getið er stendur til að taka plötuna upp á ensku, en þeir segjast lítið spá í útlönd eins og er, tónlistin hafi verið þein-a hreyfiafl í sex ár og verði áfram. „Við hefðum ekki verið í þessu ef ekki væri fyrir tónlistina, en við erum til í að taka því sem fylgir, hvort sem það er að troða sér í útvarpsstöðvar eða fljúga í einkaþotum. Við erum ekki í þessu fyrir peningana og höfum reyndar skömm á þeim sem eru í tónlist fyrir frasgð og peninga, en vissulega væri gaman að skoða sig um og kynnast nokkrum fegurðardrottningum.“ Markaður fyrir naglbítana er helst fyrir sunnan af eðlilegum orsökum, en þeir segja að það hafi vissa kosti að vera fyrir norðan; það sé einfalt að bregða sér suður til að spila á tón- leikum, veita viðtöl og þess háttar, en síðan sé gott að komast norður og vera laus við alla sölumennskuna og hamaganginn þess á milli. „Það væri vissulega gott að geta verið fyrir sunnan þegar mest er að gerast í kringum útgáfuna, en gott að draga sig í hlé á sveitasetrið þess á milli.“ Lagasafnið er mikið að vöxtum og þeir eiga mikið safn af upptökum, þó ekki sé þar allt gott. Vilhelm semur velflest laganna, á til að mynda öll lögin á disknum, og hann semur líka textana. Þeir gáfu út spóluna Askur yggdrasill fyrir nokkrum árum þar sem textarnir voru allpólitískir, upp fullir með sósíalískri reiði að sögn Vilhelms, en í dag eru þeir öllu per- sónulegri, „lokaðir og súrrealískt sorglegir", segir hann. „Mér finnst skemmtilegra að hlusta á texta sem kemur við mann eða maður skilur, frekar en eitthvert bull,“ segir Vil- helm sem finnst greinilega ekki þægilegt að tala of mikið um textana. Þeir félagar segjast aldrei verða leiðir á tónlistinni eða hver á öðrum sem tónlistarmenn, að minnsta kosti ekki hingað til, en nú um stundir tak- ið þeir tónlistinni og hljómsveitar- stússinu miklu léttar en á árum áður. Þá voru málin tekin af svo mikilli al- vöru að þegar einhver las um hvern- ig stjörnurnar fóru að var þegar far- ið að gera eins, og menn mættu í ein- kennisbúningum á æfingar. „Núna er þetta allt miklu afslappaðra, við þekkjumst svo vel að það þarf ekkert að vera að stressa sig yfir hlutunum. Við æfum ennþá jafnoft, en æfing- arnar fara líka oft í það að sprella, spila bölvaða vitleysu eða djamma bara eitthvað út í bláinn.“ Spjallið fer fram í búningaaðstöðu Leikfélagsins undir sviðinu skömmu fyrir tónleika og þó þeir félagar reyni að bera sig mannalega má smám saman finna hvernig spennan nær æ meiri tökum á þeim; svörin verða sífellt sérkennilegri og ferðum ýmissa aðstoðarmanna fjölgar að spyrja um hitt og þetta. Það er því ekki annað að gera en slökkva á við- talstækjunum, slást í hóp áheyrenda sem fylla Leikhúsið á Akureyri og bíða eftir að fjörið byrji. Toblerone 35 g ■ Smarties 40 g K'rt Kat extra stórt ■ Skittles 55 g Áður230 kr. Langlokur Sóma ■ Pik-Nik kartöflustrá Norðlenskir naglbítar Hljómsveitin 200.000 naglbítar hélt út- gáfutónleika í heimabyggð sinni fyrir norðan í síðustu viku. Þremenningarnir í sveitinni hafa spilað saman í tæp sex ár en segjast þó aldrei fá leið hver á öðrum. FYRIR þessi jól láta nokkrar sveitir í sér heyra í fyrsta sinn og einhverj- ar eiga eflaust eftir að vera áberandi í íslensku tónlistarlífi næstu árin. Ein af þessum sveitum er utan af landi, heitir því rammíslenska nafni 200.000 naglbítar og sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu fyrir stuttu. Naglbítarnir eru þó ekki ókunnir með öllu, því á síðasta ári varð vel vinsælt lagið Hæð í húsi og á þessu ári hefur talsvert heyrst lagið Hvítt. Síðastliðinn laugardag héldu 200.000 naglbítar seinni útgáfutónleika sína í „útgáfutónleikaröðinni", eins og þeir kjósa að kalla það, en þeir fyrri voru í Þjóðleikhúskjallaranum fyrir nokkru. Utgáfutónleikar númer tvö voru þeim meira hjartans mál en þeir fyrri, því þó að það sé gott og blessað að spila á mölinni skiptir meira máli að standa sig vel í heima- byggðinni; seinni útgáfutónleikarnir voru í Leikhúsi Akureyrar. 200.000 naglbítar hafa spilað sam- an í á sjötta ár, segjast reyndar mjög nálægt því að geta haldið upp á sex ára afmælið, komu fyrst fram 20. apríl 1993. Allan þann tíma hafa þeir haldið sig fyrir norðan og lítið sem ekkert gert til að koma sér á fram- færi. Undantekning frá því var þeg- ar þeir félagar komu suður og tóku þátt í Músíktilraunum fyrir nokkrum árum. Þá gekk þeim reyndar allt í haginn, komust í þriðja sæti keppn- innar, sem gaf hljóðverstíma, og Vil- helm var kjörinn besti söngvarinn. Síðan hurfu þeir félagar sjónum manna. Þeir segjast hafa nýtt stúdíótím- ana í Hljóðhamri til að taka upp nokkur lög og hljóðblandað sjálfir, þá fimmtán ára. Þegar norður var komið fóru þeir í hljóðver Kristjáns Edelsteins og tóku upp tíu lög. „Sek- úndu eftir að við stigum út úr hljóð- verinu ákváðum við að hætta að syngja á ensku og breyta um nafn, þannig að upptökurnar voru þar með ónýtar," segja þeir og skella uppúr. A Neondýrunum eru nokkur lög frá því í hljóðverinu hjá Kristjáni, nokkuð breytt og með íslenskum texta, til dæmis Hæð í húsi, enda segja þeir að platan sé safn bestu laga frá síðustu árum, nema að þeir slepptu þungarokkstímabilinu þegar þeir léku rokk að hætti Metallicu. „Við eigum þrjú eða fjögur góð þungarokkslög sem við geymum okkur,“ segja þeir lymskulega. Vilhelnt Anton Jónsson Þeir félagar segjast hafa ákveðið að hætta að syngja á ensku vegna þess að þeim hafi þótt rétt að syngja á íslensku fyrir Islendinga, en þó semja þeir lögin á ensku enn sem komið er að minnsta kosti. „í dag finnst okkur langflottast að syngja á íslensku, en ég syng á ensku þegar ég er að semja,“ segir Vilhelm, „vegna þess að það er svo miklu auð- veldara að semja laglínuna á ensku, það eru fleii-i sérhljóðar í henni. Þeg- ar laglínan er komin svona í bylgj- um,“ segir hann og gerir sínusbylgj- ur með hendinni, „sest ég svo niður og set íslenska textann inn í hana þó það komi stopp hér og þar,“ og sínusbylgjan breytist í sneiðmynd af íslensku efnahagslífi með tilheyrandi skrolli. Þeir segja að ekki standi til að skipta yfir í ensku aftur, en reyndar næst á dagskrá að syngja plötuna inn á ensku að beiðni útgáf- unnar, sem ætti að reynast þeim létt verk þar sem þeir Vilhelm og Kári bjuggu í Skotlandi á sínum yngri ár- um. Auglýst eftir lögunt Eins og getið er sýndu þeir félag- ar engan sérstakan áhuga á að koma sér á framfæri þar til Vilhelm segist hafa heyrt hvar auglýst var eftir lög- um á safnplötu á vegum Sprota. Hann segist hafa slegið til og sent prufuupptökur inn og útgefandinn hringdi um hæl og vildi endilega fá Áður 65 kr. 55 Áður 88 kr. Aður 990 kr Aður 90 kr. 90 kr. % Háaleitisbraut við Lágmúla @ Ananaustum Vesturgötu í Hafnarfirði & Langatanga í Mosfellsbæ @ Klöpp við Skúlagötu & Tryggvabraut á Akureyri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.