Morgunblaðið - 11.12.1998, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Leikfélag Reykjavíkur
Ljósmynd/Guðmundur Ingólfsson
FYRSTI samlestur á leikritinu Horft frá brúnni sem frumsýnt verður í janúar.
Horft frá brúnni í samlestri
HJÁ Leikfélagi Reykjavíkur eru
hafnar æfingar á Horft frá
brúnni eftir Arthur Miller í þýð-
ingu Sigurðar Pálssonar. Verkið
verður frumsýnt á stóra sviði
Borgarleikhússins um miðjan
janúar.
Sögusviðið er hafnarhveríi
ítalskra innflytjenda í New York.
Hafnarverkamaðurinn Eddie og
eiginkona hans ganga Katrínu,
systurdóttur konunnar, í for-
eldrastað. Þegar fram líða stund-
ir og Katrín verður ástfangin af
ungum Itala blossar upp afbrýði-
semi í Eddie og það rennur upp
fyrir honum að tilfinningar hans
í garð Katrfnar eru flóknari en
hann hafði gert sér grein fyrir.
Hann einsetur sér að skilja
elskendurna að.
Með hlutverk ungu elskend-
annna fara Marta Nordal og
Guðmundur Ingi Þorvaldsson.
Með önnur hlutverk fara: Eggert
Þorleifsson (Eddie), Ari Matthí-
asson, Ellert A. Ingimundarson,
Hanna María Karlsdóttir, Hjalti
Rögnvaldsson, Jóhann G. Jó-
hannsson^ Jón J. Hjartarson,
Margrét Ólafsdóttir, Steindór
Hjörleifsson og Þórhallur Gunn-
arsson.
Hljóð annast Ólafur Örn
Tlioroddsen, lýsingu Ögmundur
Þór Jóhannesson, búninga Helga
I. Stefánsdóttir, leikmynd Stígur
Steinþórsson. Leikstjóri er Krist-
ín Jóhannesdottir.
Norræn jólasýn-
ing í New York
ÍSLENSK leikkona,
Sigrún Gylfadóttir,
leikur annað aðalhlut-
verkanna í jólasýning-
unni Christmas
Revels sem færð er
upp árlega í New
York. Þátttakendur í
sýningunni eru um
100, leikarar, söngvar-
ar, dansarar og hljóð-
færaleikarar, og eru
flestir af norrænum
uppruna. Efni sýning-
arinnar er fengið
frá Norðurlöndunum,
þættir úr finnska þjóð-
kvæðabálknum Ka-
levala, ásamt norsk-
um, dönskum, íslensk-
um og sænskum sög-
um, söngvum og kvæðum.
Sigrún Gylfadóttir nam leiklist í
New York við American Academy
of Dramatic Arts og New York
University. Hún hefur starfað
hérlendis undanfarin ár og tekið
þátt í leiksýningum í Þjóðleikhús-
inu, Kaffileikhúsinu og með ýms-
um leikhópum. Sigrún sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hún væri
í hlutverki annars tveggja sögu-
manna sem tengja hin fjölmörgu
atriði sýningarinnar saman í tali
og tónum. „Mér bauðst þetta hlut-
verk í Christmas Revels þar sem
leikstjórinn er fyrrverandi kenn-
ari minn og var að leita að
leikkonu með norrænan uppruna.
Þetta er fjölskyldusýning sem
nýtur mjög mikilla vinsælda og
margir koma ár eftir ár með börn-
in sín og barnabörnin. A hverju
ári er efni sýningarinnar valið úr
menningararfi tiltek-
inna þjóða eða heims-
hluta og þátttakendur
eru valdir með tilliti
til þess. Langflestir
sem taka þátt í sýn-
ingunni núna eru af
norrænum uppruna
og svo er í henni hóp-
ur söngvara og dans-
ara frá Karelíu í Finn-
landi sem setja mjög
skemmtilegan svip á
hana.“
Sigrún segir að
Revels-sýningamar
séu ekki bundnar við
jólin eingöngu og séu
settar upp víðsvegar
um Bandaríkm árið
um kring. „I New
York hefur skapast sú hefð að
Revels-sýningin er alltaf rétt fyrir
jólin og tengist jólunum. Margt af
því skandinavíska efni sem notað
er í sýningunni núna tengist þeim
fallega sið að fagna rísandi sól á
nýju ái'i. Frá Islandi er sungið
kvæðið Ólafur Liljurós á kröftugii
íslensku með sterkum bandarísk-
um hreim en allir söngtextar em
sungnir á frummálinu."
Sýningarstaðurinn er ekki af
verri endanum, gamalt virðulegt
leikhús á Broadway, Symphony
Space heitir það og tekur nær 700
manns í sæti. Framsýt verður í
kvöld en alls verða sýningarnar sex
talsins nú um helgina og er uppselt
á þær allar. „Það er virkilega gam-
an að taka þátt í þessu og upplifa
jólastemmninguna hérna í New
York,“ segir leikkonan Sigi'ún
Gylfadóttir.
SIGRÚN Gylfadóttir
leikkona leikur í jóla-
sýningu Christmas
Revels í New York.
Ingveldur
Yr og kór
Landakirkju
INGVELDUR Ýr Jónsdóttir,
mezzosópran, syngur einsöng með
Kór Landakirkju
sunnudaginn 13.
desember kl.
20.30, á árlegum
jólatónleikum
kórsins. Ingveld-
ur Ýr mun einnig
flytja einsöngs-
lög við undirleik
Guðmundar H.
Guðjónssonar,
orgelleikara og
stjómanda kórsins. Einnig koma
fram á tónleikunum Védís Guð-
mundsdóttir, sem leikur á þver-
flautu, og Elísa Guðjónsdóttir, sem
leikur á altflautu.
Flutt verða verk eftir innlenda og
erlenda höfunda, m.a. Helga S.
Ólafsson, G.F. Handel, L. Luzze
o.fl.
Aðgöngumiðar, kr. 800, verða
seldir við innganginn.
--------------
Máradans á
Súfistanum
PÉTUR Jónasson gítarleikari
kynnir nýútkomna plötu sína,
Máradans, á
kaffihúsi Súfist-
ans, Strandgötu í
Hafnarfirði kl.
21 í kvöld, fóstu-
dag. Á morgun,
laugardag kl. 15,
kynnir hann
plötuna á Súfist-
anum við Lauga-
veg. Á plötunni
leikur Pétur
þekkt lög frá gullaldartíma
spænskrar gítartónlistar.
LEV Andre Vykopal við verk sitt.
Vinnustofusýn-
ing í Hafnarborg
BRESK-bandaríski listmálarinn
Lev Andre Vykopal opnar vinnnu-
stofu sína almenningi kl. 16 á morg-
un, laugardag.
Listamaðurinn dvelur nú í lista-
mannaíbúð og starfar í vinnustof-
unni í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar. Á
vinnustofunni mun hann sýna „verk
í þróun“, en þau hefur hann unnið á
þeim þremur mánuðum sem hann
hefur dvalið á íslandi.
Hinn 27 ára gamli Vykopal er
menntaður í myndlist frá Lundúna-
háskóla og Brighton og hefur sýnt
verk sín í Englandi, Frakklandi og
Þýskalandi. Seinasta sýning hans
var afrakstur 18 mánaða dvalar í
glei'verksmiðjum í Bretlandi.
Verkefnið sem listamaðurinn er
nú að vinna að nefnist „Nomad“
(Hirðingi) og er það blanda mál-
verks og þrívíðrar myndlistar. Þar
er áherslan lögð á hugtakið „Genus
Locki“ eða Staðarsálina og lista-
maðurinn hefur unnið að þessu
verkefni á ýmsum stöðum frá Vest-
mannaeyjum til Akureyrar.
„Nomad“ (Hirðingi) á að vera far-
andsýning (frá árinu 2000) þar sem
hreyfmg eða flutningur verkanna er
samofm hugmyndinni á bak við þau.
Listamaðurinn mun einnig vinna
að þessu verkefni á Italíu, í
Englandi og Oman.
Sýningin er opin á morgun, laug-
ardag og sunnudag kl. 15-18.
Listaverk-
smiðja í
Gateshead
KYNNTAR hafa verið teikningar
og fyrirætlanir um nýja listamið-
stöð í Gateshead, systurborg
Newcastle, í norðausturhluta
Englands, sem nefnist Baltic. Um
er að ræða alþjóðlega listamið-
stöð sem opnuð verður árið 2001.
Vonast aðstandendur hennar til
þess að hún muni marka tímamót
í rekstri slíkra miðstöðva, þar
sem frekar sé um listaverksmiðju
en Jistasafn að ræða.
Áhersla verður lögð á að fela
listamönnum ákveðin verkefni,
þeim verður boðin gisti- og
vinnuaðstaða en gestum mið-
stöðvarinnar gefst þá kostur á
því að fylgjast að einhverju leyti
með verkunum verða til. Til þess
að svo megi verða er Iögð
áhersla á að miðstöðin verði op-
in, nánast „gegnsæ". Hún er
byggð inn í gamla hveitimyllu og
verður reynt að tengja hið gamla
og nýja hlutverk hússins eins og
þess er kostur. Fimm sýningar-
salir verða í miðstöðinni hver
með sínu sniði, auk margmiðlun-
armiðstöðvar, fyrirlestrarsalar,
kennslustofa, sýningartjalds, op-
ins vinnurýmis og rýmis fyrir
uppákomur.
Yfirmaður listamiðstöðvarinn-
ar er Sune Nordgren en upp-
bygging hennar og rekstur verða
að mestu ijármögnuð af breska
ríkinu og svæðaþróunarsjóði
Evrópusambandsins. Kostnaður
við breytingar á húsinu og rekst-
ur fyrstu fimm árin er áætlaður
45,7 milljónir punda, um 5,4
milljarðar ísl. kr.