Morgunblaðið - 03.01.1999, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nýárstón-
leikar frá
Vínarborg
„VIÐ Tomislav erum báðir í Óperuháskólanum í Vín.
Hann var eitthvað dapur einn daginn svo að ég sagði
að stórtónleikar í Reykjavík myndu koma honum og
Reykvíkingum í gott skap. Hann sló til og hér erum
við komnir.“ Þannig lýsir Davíð Ólafsson, bassa-
söngvari, tildrögum nýárstónleika frá Vínarborg,
sem haldnir verða þriðjudaginn 5. janúar í Smáran-
um, sal Söngskólans í Reykjavík. Þar koma þeir fé-
lagar fram ásamt Ólafi Vigni Albertssyni píanóleik-
ara.
„Tomislav Muzek er frá norðurhluta Króatíu og er
aðeins 22 ára, en þegar farinn að syngja margt af því
erfiðasta sem tenórar þora að syngja. Hann þolir alveg
að heyra þetta,“ segir Davíð. Og Tomislav tekur af
honum orðið: „ Við Davíð erum nú svo góðir vinir, að
hann er ekki alveg hlutlaus.
En það er. alltaf hættulegt fyrir unga söngvara að
færast of mikið í fang. Það hafa margir brunnið út á fá-
um árum. Til að forðast þau örlög má maður ekki vera
of gráðugur."
Hvað hafíð þið verið að syngja undanfarið?
„Eg hef verið mjög heppinn," segir Davíð. „Eg
söng fjögur aðalhlutverk á árinu, m.a. Leporello á
óperuhátíð í Graz og svo Figaro (Mozart) nú í haust.
Þetta vindur nokkuð hratt upp á sig og ég er þegar
kominn með þrjú hlutverk fyrir næsta ár; Sarastro í
Töfraflautunni, Don Alfonso í Cosi fan tutte og svo
Don Magnifico í Öskubusku. Það er mikið sönglíf
þarna í Vín. Montnastur var ég þó þegar það var
hringt í mig og ég beðinn um að leysa söngvara frá
Ríkisóperunni í Vín af með hlutverk Bartolo í Rakar-
anum frá Sevilla. Þetta var fyrir einhverja óperuhá-
tíð. Eg var þá í miðri uppfærslu á Don Giovanni og
bað þá bara um að hringja næsta sumar og hló.
Maður verður að taka þessu með hæfilegu kæruleysi
TOMISLAV Muzek og Davíð Ólafsson koma fram á
nýárstónleikum frá Vínarborg ásamt Ólafi Vigni
Albertssyni píanóleikara.
eins og Guðmundur Jónsson söngvari segir alltaf og
fær yér í nefið!“
„Ég söng með Davíð í Brúðkaupi Figaros nú í
haust,“ segir Tomislav. „Og svo verðum við saman í
Töfraflautunni, sem verður sýnd í Sumarhöll keisar-
ans, en það er elsta barokk-óperuhús í heimi og mikil
stemmning að vinna þar. Ég söng svo Jónatan í
óratóríunni Sál eftir Hándel með fílharmóníunni í
Munchen í haust. Það var mitt fyrsta stóra verkefni,
ég fékk góða dóma og þetta var gefið út á geislaplötu.
Ég get því ekki kvartað."
Tónleikar þeirra félaga verða í Smáranum, sal Söng-
skólans við Veghúsastíg, 5. janúar og hefjast kl. 20.
Þar syngja þeir Davíð og Tomislav óperuaríur og
dúetta, söngleikjatónlist og íslensk og ítölsk sönglög.
Fyrri hluta tónleikanna fer mest fyrir Mozart og
Puccini, en á efnisskrá síðari hlutans eru ítölsk, amer-
ísk og íslensk lög.
s
Tríó Olafs Stephensen
á Jólaþrennu ‘99
DJASSTRÍÓ Ólafs Stephensen
leikur á Jólaþrennu, „djasstón-
leikum fyrir fólk sem hefur tak-
markaða ánægju af djassi,“ í
Sölvasal Sólons íslandusar í
Reykjavík 4. og 5. janúar.
Jólaþrennan var haldin í fyrsta
sinn uin áramótin 1997/98 en þá
bauð tríóið Jóni Páli Bjarnasyni,
gítarleikara í Los Angeles, að
leika með sér. Tónleikarnir áttu
upphaflega að vera þrennir, eins
og nafnið gefur til kynna, en sök-
um aðsóknar urðu þeir fimm.
Fyrstu tónleikar Jólaþrenn-
unnar voru 29. desember. Sá
háttur er hafður á að gestir eru
boðnir velkomnir kl. 20.30 með
freyðivíni og jarðarberjum en
tónlistarflutningurinn hefst kl.
21 og lýkur kl. 23.15.
I tríóinu eru auk Ólafs, sem
leikur á píanó, þeir Guðmundur
R. Einarsson slagverksleikari og
Tómas R. Einarsson bassaleikari.
í fréttatilkynningu segir m.a. að
Tríó Ólafs Stephensen hafi leikið
víða um heim. Arið 1997 lék það í
Grænlandi og Bandaríkjunum
svo og í Argentínu og Chile. I
fyrra lékþað m.a. í Færeyjum og
Kanada. I þessum mánuði leggja
þeir félagar land undir fót og
ferðast til Asíu. Þeir leika í
Bangkok í þessum mánuði og í
Kuala Lumpur í febrúar. Síðan
verða þeir væntanlega með tón-
leika á Akureyri, Húsavík og víð-
ar. Geisladiskur þeirra, Píanó,
bassi & tromma hefur verið end-
urútgefinn m.a. vegna fyrir-
spurna frá Japan.
Einkaþjálfun - Body Max - Spinning - Yoga - Vaxtamótun - Líkamsmeðferðir - Nudd - Snyrtistofa
Pianet Puise - Suðuriandsbraut 2-2. hæð Hótel Esju - S: 588-1700 - www.planetpuise.is
Planet Pulse er llkamsræktarstöð og
heilsulind í hæðsta gæðaflokki. Öll þjónusta
er innifalin í æfingagjöldum, þ.e.a.s.
handklæði, einkaþjálfun, ráðgjöf og aðhald,
þjónusta i SPA-deild, háls-, höfuð- og herðanudd og
ungverskur andlitsmaski.
Ráðgjafar Planet Pulse eru
alltaf til staðar fyrir þig.
Ráðgjafarnir kynna þig fyrir
aðstöðunni og þjónustunni
sem felst í þvi að vera
meðlimur í Planet Pulse.
Reglulegir fyririestrar um
mataræði.
Þá
SPA-deildin
Eftir hverja æfingu er farið i heitu
pottana sem innihaida þörunga
og nærandi söit Þar er boðið upp
á háts, höfuð- og herðanudd ásamt
ungverskum andlitsmaska. Einnig
er hægt að nota vatnsgufurnar
sem innihalda aroma oliur eða
siaka á á hvildarbekkjunum.
Sfun
Þjálfararnir taka á móti þér og
eru tilbúnir með æfingaprógram,
sérhannað fyrir þig. Þjáifaramir
stilla upphitunartækin og fylgja
þér í gegnum þær æfingar sem
á að gera. Fylgst er með því
aö þyngdir séu réttar og að æfingar
séu framkvæmdar rétt Þol og
þrekmælingar eru gerðar ef óskað er.
Nýtt í rafnuddi
%>odef- Sfafae
Þjónusta
í Planet Pulse er fullkomið
tölvustýrt bókunarkerfi og þarf
alltaf að bóka sig i tíma. Þegar
þú mætir erum viö tiibúin til að
taka a móti þér og þú þarft ekki
að hafa áhyggjur af biðröðum og
stressi. Að sjálfsögðu fá allir
handklæði við hverja komu.
Nánari upplýsingar í síma
588-1700
Bókiö viðtal hjá ráðgjafa