Morgunblaðið - 03.01.1999, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson
JAKOB Óskar Sigurðsson og Fjóla Sigurdardóttir ásamt börnum sínum, Guðrúnu Maríu og Sigurði Ágústi.
ERUM ÓSÝNILEGIR
VTÐSKIFn AIVINNULÍF
A SUNNUDEGI
► Jakob Óskar Sigurðsson fæddist í Vestmannaeyjum 28. mars
1964. Hann útskrifaðist sem efnafræðingur frá Háskóla íslands
samhliða því að hann var leikmaður með „gnll-liði“ Islands í
handknattleik, sem vann það frækilega afrek 1989 að vinna
stórsigur í B-heimsmeistarakeppninni í París. Jakob hélt til
Bandaríkjanna 1993, þar sem hann útskrifaðist sem markaðs-
og viðskiptafræðingur frá Nord West University, sem er rétt
norðan við Chicago 1995. Jakob er nú framkvæmdastjóri hjá
efnafyrirtækinu Rohm and Haas, sem er eitt það stærsta í
heimi. Jakob er giftur Fjólu Sigurðardóttir, tölvu- og hagfræð-
ingi, og eiga þau tvö börn, Sigurð Ágúst, fæddan 1. maí 1991,
og Guðrúnu Maríu, fædda 4. nóvember 1993.
Eftir Sigmund Ó. Sleinarsson
Jakob Sigurðsson, fyri-um fyr-
irliði Vals og íslenska lands-
liðsins, sem hefur keppt und-
ir merkjum íslands á þrenn-
um Ólympíuleikum - í Los Angeles
1974, í Seoul 1988 í Barcelona 1992,
er einn af mestu keppnismönnum
íslands. Þegar ég var á ferðinni í
Þýskalandi á dögunum ákvað ég að
heimsækja hann í Delkenheim við
Wiesbaden til að forvitnast um hvað
hann væri að gera. Ég hafði frétt að
hann væri „liðsstjóri" fímm efna-
verksmiðja í Evrópu. Eins og fyrri
daginn var ekki komið að tómum
kofunum, er Jakob á í hlut.
Jakob, sem er lærður efnafræð-
ingur frá Háskóla íslands, og fjöl-
skylda fór til Bandaríkjanna haustið
1993, þar sem hann hóf nám í mark-
aðs- og viðskiptafræði við háskóla
Nord West rétt norðan við Chicago,
þaðan sem hann lauk námi haustið
1995. Eftir það hóf hann störf hjá
bandaríska efnafyrirtækinu Rohm
and Haas. Fyrst var hann markaðs-
stjóri fyrirtækisins í Evrópu, var
ábyrgur fyrir ákveðnum mai'kaðs-
hluta, en síðan varð Jakob alheims-
markaðsstjóri hjá fyrii-tækinu.
Rohm and Haas sendi Jakob til
Þýskalands fyrir ári, þar sem hann
sér um rekstur fimm stórra efna-
verksmiðja í Evrópu. Aðalstöðvar
Jakobs eru í Frankfurt, þar sem að-
alstarf hans er að innleiða ákveðna
aðferðafræði, sem gengur þvert á
alla framleiðslu fyrirtækisins - á
þrjár afkomueiningar á viðskipta-
hlið fyrirtækisins. Einnig sér hann
um öll innkaup og framleiðslu.
„Mitt hlutverk er að hámarka allar
þær aðgerðir sem eiga sér stað frá
því að pöntun kemur inn í fyrirtæk-
ið, þar til varan er framleidd, komin
til viðskiptavina og þar til pening-
arnir skila sér til baka. Mitt hlut-
verk hefst í rauninni áður, eða þeg-
ar áætlunargerð hefst. Hvað ætlum
við að selja og síðan hvernig þær
hugmyndir þróast hjá fyrirtækinu -
hvernig áætlanir eru byggðar upp.
Hér á árum áður vorum allar þær
deildir sem komu að framleiðslunni
kastalar, sem varla töluðu sín á
milli. Grýttu gögnum á milli sín með
slöngubyssum. Mitt verkefni
byggðist upp á að breyta vinnufyr-
irkomulaginu í fyrirtækinu, þannig
að vinnslan var öll markvissari og
hraðari - það var lögð áhersla á að
stytta allan þann tíma sem vinnslan
tekur; tíminn er peningar. Einnig
er lögð áhersla að minnka allar
birgðir, sem voru í öllu kerfinu;
Birgðimar eni einnig peningar.
Eg hef kappkostað að stytta allan
vinnsluferilinn á þann hátt að það sé
ekki gert á kostnað þjónustu við
viðskiptavini okkar. Það skemmti-
lega við starfið er að sjá hvernig svo
stórt fyrirtæki hreyfir sig, breytir
sér - já, breytir sér ört. Ef við ætl-
um að vera samkeppnishæfir verð-
um við að geta breytt okkur ört -
aðlagað okkur fljótt breyttum að-
stæðum. Ef það er ekki gert lifum
við ekki lengi. Að sjá hvemig þetta
gerist er skemmtilegt, góð reynsla
og góður skóli,“ sagði Jakob.
Leiðir tíu vinnuhópa
Þegar hér var komið sögu fannst
mér réttast að spyrja Jakob hvaða
vörar væri um að ræða. „Fyrirtæk-
ið sem ég starfa hjá framleiðir
vatnsborin akrílefni, sem eru notuð
í byggingariðnaði, pappírsiðnaði,
leðuriðnaði og alls kyns límfram-
leiðslu. Allt eru þetta umhverfisvæn
efni, sem eru meira og minna að
leysa af hólmi leysiefnaframleiðslu.
Fyrirtækið er leiðandi á því sviði í
heiminum."
Hvíið erfyrirtækið stórt?
„Fyrirtækið er með fjóra millj-
arða dollara í sölu á ári. Hjá því
starfa hátt á tólfta þúsund manns.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í
Philadelphiu í Bandaitkjunum, en
síðan er fyrirtækið með verksmiðj-
ur um allan heim - fimm hér í Evr-
ópu. Mitt starf er að vinna með Evr-
ópudeildinni og leggja áherslu að
breyta ferli iðnaðarins. Númer eitt
er að vita hvernig við stöndum okk-
ur og í því sambandi vinnum við að
endurbótum. Ef við vitum ekki
hvernig við stöndum okkur hverju
sinni er ekki hægt að vinna mark-
visst að endurbótum á fyrirtækinu.
Ég ber ábyrgð á þeim þætti og þar
með stjórna ég vinnuhópunum í
verksmiðjunum fimm hér í Evrópu.
Þeim mönnum sem sjá um innkaup,
þjónustu við viðskiptavini, þeim
sem sjá um pantanir og annað. Ég
leiði eina tíu vinnuhópa - fímm í
verksmiðjunum, síðan þrjá í að-
komueiningum og tvo í miðlun. Að-
almarkmið okkar er að vinna hratt
og skipulega. Við þessi verkefni er
notuð ákveðin aðferðafræði sem ég
ber ábyrgð á,“ sagði Jakob.
Á ferð og flugi um Evrópu
Jakob er ekki aðeins starfandi í
Frankfurt, heldur er hann á ferð og
flugi á milli verksmiðjanna fimm í
Evrópu. Hvar eru þær? „Ein verk-
smiðjan er rétt hjá Malmö í Svíþjóð
- í Landskrona, önnur rétt hjá
Newcastle í Englandi, hinar era hjá
Strasborag í Frakklandi, Tudela á
Spáni, ekki langt frá Bilbao, og sú
fimmta er rétt hjá Mflanó á Ítalíu.
Ársframleiðsla hjá þessum verk-
smiðjum er á bilinu þrjú til fjögur
hundruð þúsund tonn.“
Pú ert þá greinilega mikið á ferð-
inni á milli þessara verksmiðja?
„Já, einnig er ég mikið með síma-
fundi. Þeir koma þó aldrei í staðinn
fyrir að hittast. Ég legg þvi mikla
áherslu að fara á staðina og ræða
við mitt fólk, byggja upp trúnað og
traust. Þá koma starfshópar mikið
hingað til Frankfurt til funda. Við
höldum einnig reglulega fundi í
London, þar sem aðabækistöðvar
fyrirtækisins í Evrópu eru. Hér í
Érankfurt er mjög gott hafa að-
stöðu, þar sem borgin er í miðri
Evrópu. Það er stutt af flugvellinum
til bækistöðvar okkar, þ_ar sem
fundaraðstaðan er frábær. Ég fer af
og til til aðalbækistöðvanna í
Bandaríkjunum, þar sem við erum
nú að innleiða sömu hugmynda-
fræðina og hér í Evrópu; einnig í
Suður-Ameríku. Ég hef mikil sam-
skipti við starfsfélaga mína á þess-
um svæðum. Öll rannsóknar- og
þróunarstarfsemi fer fram í Banda-
ríkjunum."
Jakob starfaði áður sem mark-
aðsstjóri hjá fyrirtækinu. Hann
byrjaði sem Evrópumarkaðsstjóri,
og síðan alheimsmarkaðsstjóri. Þá
var hann ábyrgur íyrir vöraþróun
og markaðssetningu á ákveðnum
flokki efna um allan heim, en síðan
var honum boðið að taka við því
starfi sem hann er nú í.
„Þetta starf er allt annað. Ég sé
um að móta viðskipti og framleiðslu
og allt þar á milli. Þegar mér bauðst
þetta starf gat ég ekki neitað. Fyrra
starf mitt sem markaðsstjóri krafð-
ist miklu meiri ferðalaga og þá vora
símafundir á öllum tímum sólar-
hringsins. Þá var ég í samskiptum
við fólk í Asíu, þar sem klukkan er
tíu til. tólf tímar á undan og fólk í
Bandaríkjunum, þar sem klukkan
er sex tímum á eftir. Þetta þýddi
mikil ferðalög á milli svæðanna og
símafundi sem vora yfirleitt á
kvöldin og stóðu þeir fram á miðja
nótt. Út frá þessu var starfið þreyt-
andi, en um leið mjög áhugavert. Þá
var ég ábyrgur fyrir liði sem mótaði
stefnuna og var ábyrgur fyrir vöru-
þróun sem velti eitthvað um það bil
tvö hundruð og fimmtíu milljónum
dollara. Við vorum með um tuttugu
milljónir dollara í okkar hlut fyrir
rannsóknir. Þetta fjölþjóðalið skipu-
lagði alla markaðssetningu og rann-
sóknar- og þróunarstarfsemi. Þessu
starfi gegndi ég í um það bil eitt ár
áður en ég tók við starfinu sem ég
gegni nú.“
Þegar Jakob var spurður út í
hvernig hann fékk þessi störf, sagði
hann að spurningin væri nokkuð
góð. „í fyrsta lagi hefur það eitt-
hvað með bakgrunninn að gera. Ég
er efnafræðingur og vann á íslandi
sem viðskiptavinur hjá fyrirtækinu,
þegar ég vann hjá málningardeild
Slippfélagsins. Þá fengum við
ákveðin efni til íslands sem við not-
uðum í málningariðnaði. Síðan fór
ég í skóla í Bandaríkjunum, sem er
einn af fjórum skólum sem fyrir-
tækið sem ég starfa hjá, leitar eftir
mönnum úr. Áður en ég fékk vinnu
hjá fyrirtækinu fór ég í yfir tuttugu
viðtöl, bæði hér í Evrópu og í
Bandaríkjunum.
Ég byrjaði síðan sem markaðs-
stjóri í Evrópu og smám saman
vann ég mig upp í það að vera mað-
ur með ábyrgð. Síðan tók ég þátt í
að endurskipuleggja alla vöraþróun,
sem byggist upp á því að stytta
þann tíma frá því menn fá hug-
mynd, þar til menn geta farið að
selja vörana. í allri samkeppni ræð-
ur hraðinn miklu - það er lykilatriði
að koma vörunni eins fljótt á mark-
að og mögulegt er til að nýta öll
tækifæri sem fyrir hendi eru. Ef
það er ekki gert eiga menn hrein-
lega á hættu að missa af lestinni.
í kjölfarið var mér boðin staða
sem alþjóða markaðsstjóri. Síðan
geri ég mér ekki alveg grein íýrir
því hvernig ég fékk það starf sem
ég nú er í. Það starf tengist ekki því
sem ég var að vinna við áður. Ég
hefði þó góðan almennan bakgrann
frá skólanum í Chicago. Ég var þó
engan veginn sérfræðingur í því
sviði sem starfið byggist á. Ég var
valinn og skólaður upp í þvi valda
starfinu. Það byggist fyi’st og
fremst í því að leiða hópvinnu.
Ég á að halda starfsmannahópun-
um saman og er ábyrgur fyrir því
að halda heildinni saman, að haída
ákveðnum verkefnum inni á
ákveðnum sporum. Það er mitt
hlutverk - ég er liðsstjórinn. Það
getur vel verið að það sé aðalástæð-
an fyrir því að ég fékk starfið, að
mér hefur gengið vel að leiða hópa,“
sagði Jakob.
Á hvaða tungumáli fara fundirnir
fram?
„Viðskiptatungumálið er enska.
Flestallir fundir fara því fram á
ensku. Þegar við ræðum við við-
skiptavini í Þýskalandi fara fundirn-
ir fram á þýsku. Sundum reyni ég
að rifja upp gömlu dönskuna þegar
ég er í Svíþjóð.“
Þegar þú komst hingað til Þýska-
lands, hafðir þú gott vald á þýsku?
„Nei, ég var aðeins með gömlu
menntaskólaþýskuna í farteskinu.
Það kom mér á óvart hvað hún var á
góðum granni. Þegar ég kom hing-
að fékk ég kennara, sem kenndi
mér viðskiptaþýsku. Það er ekki sú
þýska sem maður lærir í mennta-
skóla. Danskan er aftur á móti erf-
iðari viðfangs.
Stundum skil ég ekki Þjóðverja;
hvernig þeir umgangast mál sitt.
Eins næmir og þeir eru fyrir er-
lendum áhrifum, sem sést best á því
að þeir tala inn á erlendar kvik-
myndir, eru þeir að verða kæralaus-
ir með tungu sína eins og Danir.
Þeir era byrjaðir að taka mörg ensk
orð í þýskuna. Þeir hafa ekki hugs-
að um að finna þýsk hugtök eða orð
yfir ákveðna hluti. Sundum hef ég á
tilfinningunni að þeim finnist fínt að
sletta enskunni. Það er nokkuð sem
ég reyni að passa mig á sjálfur í
sambandi við okkar frábæra mál, ís-
lenskuna - og íslenska málið læt ég
börnin mín virða. Við hjónin reyn-
um að lesa sem mest íslensku fyrir
börnin okkar og með þeim, þannig
að þau tapa ekki íslenskunni."
Hvernig er að vera hér í Þýska-
landi með íslenska fjölskyldu?
„Það er gott. Við búum hér í
sveitasælu. Eins og heima fara
börnin út að leika sér - þau koma
síðan heim þegar þau era þyrst eða
svöng. Þetta er nánast eins og þeg-
ar ég ólst upp í Vestmannaeyjum.
Við þurfum ekki að hafa neinar
áhyggjur. En að sjálfsögðu söknum
við ættingjanna - þeir eru heima á
íslandi. Það er mikils virði að búa í
þannig umhverfi að maður þarf ekki
að hafa áhyggjur af börnum sínum
þó að þau bregði sér út fyrir þrösk-
uldinn. Við kunnum vel við okkur
hér. Það hefur mætt mikið á eigin-
konunni og þá sérstaklega fyrst eft-
ir að við komum hingað. Það tekur
alltaf tíma að aðlaga sig nýju um-
hverfi. Það er ekki einfalt, en þrosk-
andi.“
Hvernignýtir þú frítíma þína?
„Ég reyni hvað mest að vera í
faðmi fjölskyldunnar. Við höfum
verið dugleg að heimsækja íslend-
inga hér í nágrenninu. Þá höfum við
fengið marga gesti í heimsókn. Við
reynum að nota tímann sem best
um helgar, hvort sem það er hér í
garðinum eða að fara út að hjóla.
Helgarnar hjá okkur eru yndislegar
samverastundir. Ég verð að viður-
kenna að laugardagsmorgnarnir
eru fráteknir í skvass, enda er það
orðið eina virkilega líkamsræktin
mín. Við Islendingarnir hér á svæð-
inu erum með félagsskap og mæt-
um við sex til átta til etja kappi hver
við annan. Við keppum í klukkutíma
og fórum síðan í gufubað á eftir -