Morgunblaðið - 03.01.1999, Page 48

Morgunblaðið - 03.01.1999, Page 48
■^8 SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ekk/ segja /uée.. f>ú ERLT S/M/ÐAM/IOK! ------------------- -cs*« E&EZ EEYNPy4E D(/l - BÚ/KJ/J 7F&HÍVJ Grettir 8AVE I EVER TOLP THE U)ORLPWARI FLYIN6 ACE HOW MUCH I ADMIRE HI5 BEAUTIFUL SILK 5CARF ? Hef ég nokkru sinni sagt flugkapp- anum úr fyrri heimsstyrjöldinni hve ég dáist mikið af silkiháls- Jflútnum hans? PERHAPS THE FLYIN6 ACE MI6HT BE UJILLIN6TOTRA0E IT FOR A LITTLE KlSS... Kannski er flugkappinn fús til þess að skipta á honum og smá kossi... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Ekki bara heitt loft Frá Arngrími Arngrímssyni: TÍMARNIR eru að breytast. Með heimabönkum og sjálfvirkum bönk- um minnkar álag á starfsfólk bank- anna. Það hefur líka unnið gott starf í þágu fjöldans með heimilisbók- haldinu sem það hefur kennt fólki. Tryggingafélög og bankar eru nú meir og meir að renna saman og mynda heildstæða fjármálaþjón- ustu. Bankar ráða yfir miklum og góðum upplýsingum um fasteignir, stundum betri en Fasteignamat rík- isins. Þeir hafa líka innan sinna vé- banda fólk sem kann til verka þegar mæla þarf fyrir mannvirki eða taka það út. Ofantalið í heild sinni skapar nýtt tækifæri fyrir bæjarstjórnir að einfalda rekstur sinn og spara. Nú þegar nær ekkert er byggt á lands- byggðinni má leggja byggingar- nefndir og skrifstofuhald þeim sam- fara niður. Einfaldlega af því að verkefni þeirra eru hverfandi. En það má líka stíga þetta spamaðar- skref til fulls og bjóða aiit skrif- stofuhald bæjarins út. Bankaútibú- in, til dæmis, gætu vel tekið við þessari þjónustu og þannig hækkað sértekjur sínar en lækkað um leið rekstrarkostnað bæjarins. Til þess að milda umrótið sem af þessu hlyt- ist má hugsa sér að bankarnir tækju tímabundið eitthvað af starfs- liði bæjarskrifstofunnar til sín til að kynna sínu fólki þau nýju störf sem bankinn tekur að sér. Gerjun er að verða í þjóðfélaginu. Bæjarstjórnir geta ekki treyst því að næsta ríkisstjórn hlaupi undir bagga með bæjarfélögunum. Ekki er víst að almenningur geri sér að góðu, eina ferðina enn, að skattpró- sentan sé bara hækkuð eða nýr gjaldstofn fundinn upp. í stuttu máli, bæjarstjórnir gætu sjálfar orðið að leysa vandann og til þess þarf djarfar ákvarðanir. En lítum nú á björtu hliðarnar. Með því að loka byggingarnefndarskrifstofunni og hætta rekstri bæjarskrifstofunn- ar fáum við allt í einu í hendur mik- ið og gott ónotað húsrými. Og hér er það einmitt þjóðfélagsgerjunin sem getur hjálpað bæjarfélögunum. En til að ná árangri verður auðvitað að snúa hugsunarhættinum við. Gamla skattpíningarstefnan gerir ekkert annað en drepa. Jæja, hús- næðið ónotaða skapar ný tækifæri. Gott og vel, hvaða? Jú, bærinn gæti iaðað til sín ný fyrirtæki í hugbún- aðariðnaði og líftækniiðnaði. Þau þurfa ekki að vera stór til þess að skipta máli. Fjarlægðir eins og hér á landi eru ekki lengur hindrun á þessu sviði. Eins má hugsa sér að Islensk erfðagreining stofni útibú úti á landi, eða fyrirtæki sem af henni kann að spretta. En í þessu efni skiptir mestu máli að skapa sem ódýrast og þægilegast starfs- umhverfi fyrir þessa nýju vaxtar- brodda. Ekki skattpíninguna á fullu frá fyrsta degi eins og vaninn er nú. Djörf skref í þessa átt gætu, ef vel tekst til og það er engin ástæða til að ætla annað, náð langt til að bæta þjónustu bæjarins við þegna sína og eins hitt: sparað verulegar fjárhæð- ir. En nú, meðan þessar breytingar í bæjarrekstrinum ganga yfir, hvað á bæjarstjórnin að gera? Fólk tekur sig ekki upp og flytur burt af engu. Það segir sig sjálft. Bærinn þarf á fólkinu að halda, ef ekki til annars en til þess að halda uppi bæjarkerf- inu. Bærinn þarf að vita ástæður fólks fyrir brottflutningi, það er al- veg augljóst. Þess vegna ætti bær- inn að koma á fót viðtalsnefnd. Það fólk sem hyggst flytja getur þá tal- að við nefndina og sagt henni ástæður sínar. Alveg má hugsa sér að slík samtöl leiddu í ljós að bær- inn sjálfur gæti bætt eitt og annað í framkomu sinni við þegnana. Slík betrumbót gæti leitt til þess að fólk- ið yrði áfram í bænum. Allt hjálpast að, það munar um skattpeninga hverrar fjölskyldu. Ennþá eitt gæti komið að gagni: bæjarstarfsmenn og bæjarfulltrúar gætu litið í eigin barm svo sem í fimmtán mínútur einu sinni í mánuði og lagt fyrir sjálfa sig: hef ég komið á sama hátt fram við alla, hef ég komið heiðar- lega fram við alla? Slík sjálfsskoðun getur ekki gert nema gott. í bæjarfélagi voru til samþykktar teikningar af bílskúr. I þrjátíu ár borgaði konan sem átti teikningarn- ar upphitunarkostnað af skúrnum. Þegar konan bað bæinn um leiðrétt- ingu fékk hún nei. Dómstólar sögðu hinsvegar já, en leiðréttu aðeins til fjögurra ára, hin tuttugu og sex lágu óbætt hjá garði. Bæjarstarfs- menn og bæjarfulltrúar, ójöfnuður, eins og sá gagnvart konunni með samþykktu teikningarnar, getur komið ykkur sjálfum í koll; því þeim mun fleiri sem hrekjast brott hans vegna, þeim mun erfíðara verður að framfæra ykkur. Reyndar sleppið þið vel, einhliða, ósanngjörn ákvæði sett í skjóli yfírburðastöðu (ákvæðin um greiðsluskyldu vegna sam- þykktra teikninga) standast nefni- lega ekki samkvæmt íslenskum rétti. Konan hefði getað krafist skaðabóta, miskabóta og refsibóta (punitive damages) og þær hefðu getað numið verulegum fjárhæðum. Það var einmitt af þessum sökum sem rafveitan bætti tjón vegna raf- truflana á Skaganum hérna um dag- inn. Rafveitan veit sem er að ákvæðið um að tjón af raftruflunum bætist ekki á sér ekki stoð sam- kvæmt lögum. Bæjarstarfsmenn, bæjarfulltrú- ar, hlutverk ykkar ætti ekki að vera að níðast á einstaklingum, verið þess fullvissir að þann dag sem síð- asti ímyndaði andstæðingur ykkar fer úr bænum, byrja fyrst vandræði ykkar fyrir alvöru. Látið ekki ykkar þegna borga bara heitt loft. ARNGRÍMUR ARNGRÍMSSON, Baldursgötu 23, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.