Morgunblaðið - 03.01.1999, Side 56
456 SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Sambíóin, Regnboginn, Nýja bíó í Keflavík og á Akureyri sýna spennumyndina Enemy of the
---------t-----------r. .—------------------------------------------------------
State, Ovinur ríkisins. I aðalhlutverkum eru Will Smith og Gene Hackman. Leikstjóri er Tony Scott.
BLÓMLEGUR starfsferill
og hamingjusamt heimilislíf
lögfræðingsins Roberts
Claytons Deans (Will Smith) fer í
vaskinn eftir að hann rekst á gaml-
an kunningja fyrir tilviljun og
þessi endumýjuðu kynni enda með
því að hann er sakaður um morð. Á
bak við sakargiftirnar stendur
spilltur njósnaforingi hjá banda-
ríska Þjóðaröryggisráðinu, Thom-
as Brian Reynolds (Jon Voight)
sem hefur misnotað aðstöðu sína
til þess að fremja hinn fullkomna
glæp, breiða yfir víðtækt pólitískt
samsæri, og koma Robert í leiðinni
í gjörsamlega vonlausa stöðu í
^-'samfélagi þar sem allt byggist á
tölvuvæddum persónuupplýsing-
um. Eina vonin sem Robert á um
að endurheimta sitt íyn-a líf og
sanna sakleysi sitt liggur í því að
hann fái aðstoð dularfulls manns,
fyrrverandi njósnara, sem þekkir
vel til í undirheimunum, og gengur
undir nafninu Brill (Gene Hack-
man).
Á bak við myndina um Óvini rík-
isins stendur framleiðandinn Jerry
Bruckheimer, sem gert hefur
-ínyndir á borð við Flashdance, Top
Gun, Crimson Tide, The Rock, Con
Air og Armageddon. Bruckheimer
hófst handa við undirbúning verks-
ins ásamt samstarfsmanni sínum
til margra ára, Don Simpson, árið
1991, en Don lést í fyrra. Þeir
fengu ungan handritshöfund, Da-
vid Marconi, til að vinna út frá
ákveðinni hugmynd og skrifa fyrir
sig handrit út frá henni. Eftir
rannsóknir ákvað Marconi að
skrifa um Þjóðaröryggisráð
Bandaríkjanna, National Security
Agency. „Gælunafn þeirra er No
Such Ágency," segir Marconi. „Því
meira sem ég rannsakaði málið því
minna vissi ég um þá og ég sá að
JON Voight leikur manninn sem stendur
á bak við samsærið.
ROBERT Clayton Dean (Will Smith) fær Brill
(Gene Hackman) í lið með sér.
GABRIEL Byrne fer með hlutverk í myndinni.
þessi stofnun gæti orðið gott efni í
voldugan andstæðing í bíómynd."
„Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á öllum þeim spurningum,
sem tengjast vemd einkalífsins,“
segir Jerry Bruckheimer. „Eins
og tæknin er orðin er allt mögu-
legt og jafnvel líklegt. Ég held
ekki að almenningur geri sér
grein fyrir því hvað mikið er í húfi
þegar um einkalífsvernd er að
tefla. En hin hliðin á málinu er sú
að við þurfum að vernda ríkið og
borgarana.“
Leikstjórinn Tony Scott tók að
sér að festa söguna á filmu. Hann
hefur áður unnið með Simpson og
Bruckheimer við leikstjóm Top
Gun, Beveriy Hills Cop II, Days of
Thunder og Crimson Tide en auk
Frumsýning
I greipum
samsæris
þess á hann t.d. að baki myndir á
borð við True Romance. Seott og
Bruckheimer komu sér saman um
að sagan krefðist sterkra leikara
og hún ætti að leggja áherslu á
njósnir og eftirlit. Þeir voru strax
með WUl Smith og Gene Hackman
í huga. Smith var fljótur að gefa
kost á sér en Hackman lét ganga á
eftir sér.
Will Smith, stjarnan úr
Independence Day, Men in Black
og Bad Boys, segir að eftir að hafa
unnið að gerð myndarinnar í 10
daga hafi hann fyrst gert sér
grein fyrir því að þetta var tíma-
mótamynd á ferli hans. „Þá fattaði
ég að þetta var ekki mynd um tvo
félaga eða einhvem hóp, heldur
var ég aUtaf í mynd; í fyrsta skipti
snerist sagan algjörlega um þann
sem ég leik. Það hvíldi meira á
mínum herðum en nokkra sinni
fyrr.
Gene Hackman, óskarsverð-
launahafi úr French Connection og
Unforgiven og samstarfsmaður
Brackheimers og Scotts úr Crim-
son Tide, segir að það sem höfði til
sín við þessa mynd sé að í henni sé
fjaUað um hluti sem gætu gerst
þótt þeir virðist fjarstæðukenndir.
„Brill er bitur maður,“ segir Gene
um fyrrverandi njósnarann, sem
hann leikur. „Hann er strax tilbú-
inn að gera það sem hann getur til
þess að fá þetta ofvaxna skrímsli,
sem Þjóðaröryggisráðið er, til þess
að spóla í hjólförunum."
I aukahlutverkum myndarinnar
er álitlegt úi'yal þekktra leikara.
Jon Voight, Óskarsverðlaunahaf-
inn úr Coming Home, sem er
þekktur úr myndum á borð við
Midnight Cowboy, Deliverance,
Runaway Train, The Rainmaker,
Anaconda og Mission: Impossible,
leikur óvininn. Lisa Bonet, sem
sló í gegn í sjónvarpsþáttunum
um Cosby-fjölskylduna, fer með
hlutverk og einnig Regina King,
sem var eftirminnileg í Jerry
Maguire. Þá eru þarna Gabriel
Byrne úr Usual Suspects, Ian
Hart, Lennon í Backbeat, og Ja-
son Robards í smærri hlutverk-
um.
HEIÐURSGESTURINN Össur Skarphéðinsson var á léttu nótunum og
gerir hér upp gömul mál við samþingmann sinn Áma Johnsen.
ÞEIR VORU flottir á
Skötukvöldinu klæddir
eins og alvöm kúrekar.
Magnús Kristinsson, út-
vegsbóndi og starfsmaður
hans Guðni Hjörleifsson.
JÓHANN Pétursson, fráfarandi kóngur
Skötukvöldsins, til vinstri, sæmir nýkjörinn
kóng, Sigurð Sveinsson, sæmdarheitinu og
afhendir honum dúkkuna Sjöfn.
HÖRÐUR Rögnvaldsson
hlaut Dollarann en hann
er veittur þeim sem að
mati Hrekkjalóma hefur
skarað framúr á árinu
við að gera mikið úr litlu.
SKÖTUKVÖLD
HREKKJALÓMA
Vestmannaeyjum
Hrekkjalómafélagið í Vest-
mannaeyjum hélt sitt árlega
Skötukvöld fyrir skömmu.
Skötukvöld Hrekkjalóma hafa
verið haldin á jólaföstunni í
áraraðir og eru afar vinsæl.
Fullt hús var á Hertoganum
þar sem Skötukvöldið var hald-
ið að þessu sinni og skemmtu
. allir sér konunglega. Skötu-
kvöldin eru karlakvöld og er
kvenfólki meinaður aðgangur
að samkomunni enda ríkir andi
karlrembu á skemmtuninni.
Forseti Hrekkjalóma, Þórar-
inn Sigurður Sigurðsson, setti
hátíðina en að loknu ávarpi
hans var gengið að hlaðborði
með skötu, saltfiski og plokk-
fiski ásamt tilheyrandi meðlæti
og var loft í salnum fljótt mett-
að megnri skötulykt.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
FASTUR liður á Skötukvöldum Hrekkjalóma er að Magnús Kristinsson,
útvegsbóndi, gangi fyrstur að hlaðborðinu og gæði sér á kræsingunum.
Þegar allir höfðu borðað sig
sadda var tekið til við
skemmtidagskrá sem stóð fram
á nótt. Farið var yfir atburði
ársins I máli og myndum og
viðurkenningar veittar fyrir
ýmis afrek og glappaskot. Öss-
ur Skarphéðinsson, alþingis-
maður, var heiðursgestur
kvöldsins og fór hann á kostum
í ávarpi sínu þar sem hann rifj-
aði uppð ýmis skemmtileg at-
vik.
Hrekkjalómar og gestir
þeirra enduðu svo formlega
dagskrá með fjöldasöng við
undirleik Árna Johnsen en síð-
an skemmtu menn sér hver
sem betur gat fram eftir nóttu.