Morgunblaðið - 07.01.1999, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Hærn gigur en
í fyrri
GÍGURINN sem hlóðst upp í
nýafstöðnu gosi í Grímsvötnum
og sést á þessari mynd frá í gær
er töluvert hærri en í fyrri gos-
um sem þekkt eru á þessum stað
en hann nær nokkra tugi metra
upp fyrir vatnsyfirborðið.
„Þetta er nokkurn veginn
sami gosstaður og í síðustu
tveimur gosum sem við þekkjum
þarna og borið saman við ljós-
myndir sem til eru frá því eftir
gosið 1934 hefur þetta gos
myndað gíg sem nær miklu
hærra,“ segir Magnús Tumi
Guðmundsson jarðeðlisfræðing-
ur. „Það hefur greinilega byggt
ofan á það sem myndaðist í fyrri
gosum
tveimur gosunum á þessi öld.
Gossprungan hefur auk þess
verið heldur lengra uppi í hlíð-
inni en 1934.“
Magnús segir að gosin sem
verði á þessum stað séu dæmi-
gerð megineldstöðvagos og þau
séu að jafnaði fremur lítil, um
1/5-1/10 af því gosmagni sem
kom úr Gjálp árið 1996. A móti
komi að gos af þessu tagi séu
tíðari. Þeim fylgi að jafnaði
ekki hætta, en mikil virkni geti
valdið því að regluleg Gríms-
vatnahlaup verði smám saman
stærri því „vatnstankurinn"
stækki eftir því sem meira
bráðni.
FRÉTTIR
Eins árs fangelsi og sekt
fyrir stórfellt skjalafals
32 ÁRA karlmaður var í gær
dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur
í 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mán-
uði skilorðsbundið, og til að greiða
14 milljónir króna í sekt og skaða-
bætur fyrir stórfellt skjalafals og
tollsvik á árunum 1994-1997.
Maðurinn, sem var framkvæmda-
stjóri og stjórnarmaður innflutn-
ingsfyi-irtækisins Elnets, notaði
fölsuð bréf við tollafgreiðslu á loft-
netsbúnaði hjá Tollstjóranum í
Reykjavík til að fá aðflutningsgjöld
felld niður af ýmiskonar fjarskipta-
búnaði. Samtals fékk hann með
þessum hætti, í 30 skipti á um-
ræddu tímabili, felld niður aðflutn-
ingsgjöld sem námu 6,6 milljónum
króna.
Maðurinn bætti m.a. vörum inn í
bréf frá Ríkisútvarpinu og Útvarpi
Kántrýbæ þar sem fram kom að
fyrirtækin væru að kaupa loftnets-
búnað til eigin nota. Þá notaði hann
Ijósritunartækni til að skeyta sam-
an bréfsefni fyrirtækja og undir-
skrift starfsmanna þeirra og falsaði
með þessum hætti bréf frá sendi-
ráði Noregs, Ríkisútvarpinu, Is-
lenska útvarpsfélaginu, íslenska
sjónvarpinu, Hafnfirskri fjölmiðlun,
Útvarpi Kántrýbæ, Húsvískri fjöl-
miðlun, Sýn, Video Skann, Villa
Video og Kristniboðskirkjunni þar
sem fram kom að þau væru að
kaupa ýmsar vörur sem undan-
þegnar eru aðflutningsgjöldum.
I dómi Héraðsdóms, sem Pétur
Guðgeirsson héraðsdómari kvað
upp, kom fram að maðurinn játaði
skýlaust þá verknaði sem hann var
sóttur til saka fyrir. Var hann
dæmdur í árs fangelsi, þar af 9
mánuði skilorðsbundna, og til að
greiða 7,5 milljónir króna í sekt og
kemur árs fangelsisvist í stað sekt-
arinnar verði hún ekki greidd innan
tiltekins tíma. Þá var maðurinn
dæmdur til að greiða Ríkistoll-
stjóraembættinu í skaðabætur þær
6.642.803 krónur sem hann sveik út.
Morgunblaðið/Ómar Ragnarsson
Birting prófkj örsgreina
Leikskólakenn-
arar vilja segja
sig úr BSRB
ÁKVEÐIÐ hefur verið að hafa
áfram það fyrirkomulag prófkjörs-
greina í Morgunblaðinu fyrir próf-
kjörin, sem í hönd fara, vegna al-
þingiskosninganna í vor og viðhaft
var í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í haust í Reykjaneskjördæmi.
Frambjóðendur í prófkjömm geta
eftir sem áður skrifað greinar í
blaðið og er lengd þeirra miðuð við
u.þ.b. 3.000 tölvuslög með bilum.
Hins vegar verða greinar stuðn-
ingsmanna einstakra frambjóð-
enda birtar í Morgunblaðinu á Net-
inu en stuttur útdráttur úr þeim
greinum verður birtur í blaðinu
sjálfu. Með útdráttunum verður
birt mynd af höfundi.
Miðað er við að útdrættir úr
greinum, sem birtast á Netinu
verði um 10 dálksentímetrar eða
rúmlega 800 tölvuslög með bilum,
sem eru um það bil 10 línur á A4-
blaði miðað við 12 punkta letur eða
10 línur vélritaðar á A4-örk.
Eins og áður er óskað eftir því
að höfundar komi með greinamar
tölvusettar á disklingum og í út-
prenti í einu eintaki. Mynd þarf að
fylgja af höfundi sé hún ekki til í
myndasafni Morgunblaðsins og
kennitala viðkomandi. Einnig er
unnt að tölvusenda með tölvupósti
bæði texta greinar og myndir á
netfangið: ritstj@mbl.is
Loks ber að geta þess að Morg-
unblaðið mun hafa sama háttinn á
Frágangur
Frambjóðendur: Aðsend grein
að hámarki 3000 tölvuslög.
Stuðningsmenn: Aðsend gi’ein
í Morgunblaðið á netinu, en út-
dráttur í Morgunblaðið að há-
marki 10 dálksentimetrar.
10 dálksentimetrar; Jafngilda
rúmlega 800 slögum með orða-
bilum, eða 10 vélrituðum línum
á pappír að breidd A4 eða
tölvusetningu á 12 pt. letri.
Skil: Greinum sé skilað í tölvu-
pósti á: ritstj@mbl.is eða á
disklingi, sem sendur er Morg-
unblaðinu. Hið sama er unnt
að gera við myndir.
hvað varðar raðgreinar, sem skrif-
aðar eru í kynningarskyni til þess
að hvetja fólk til einhvers, sbr.
tannverndardagur, brjóstagjafa-
herferðir, almennar safnanir
o.s.frv. I blaðinu birtist þá 10
dálksentímetra útdráttur með
mynd, en aðalgreinin í Morgun-
blaðinu á Netinu.
Birting á mbl.is
Til þess að nálgast prófkjörs-
greinar á mbl.is er nægilegt að
smella á hnappinn „Aðsendar
greinar", sem er innan flokksins
„Sérvefír" vinstra megin á forsíðu
vefjarins. Á sama hátt má smella á
hliðstæðan hnapp hægra megin á
síðunni undir efnisþættinum Nýtt
á mbl.is. Loks má slá inn slóðina
sjálfa, sem er http://www.mbl.is/
adsent. Þá býðst frambjóðendum
og öðnim að auglýsa á þessum sér-
vef.
Einnig er hægt að senda greinar
til blaðsins frá vefnum. Smellið þá
á hnappinn „Viltu senda grein til
Morgunblaðsins?" og þá opnast
form sem skrifa má inn í.
93% LEIKSKÓLAKENNARA sem
tóku þátt í skoðanakönnun Félags
íslenskra leikskólakennara lýstu yfir
stuðningi við að félagið segði sig úr
BSRB. 87% þeirra vildu að félagið
sækti um aðild að nýju kennarasam-
bandi. Þröstur Brynjarsson, vara-
formaður félagsins, segist telja að
niðurstaðan endurspegli að félags-
menn vilji taka þátt í stofnun nýs
kennarafélags.
Samþykkt var á fulltrúaráðsþingi
Félags íslenskra leikskólakennara í
maí sl. að kjósa nefnd sem hefði það
hlutverk að kanna afstöðu félags-
manna til úrsagnar úr BSRB og
kanna möguleika á aðild að öðrum
bandalögum eða félögum. Nefndin
hefur haldið 11 kynningarfundi vítt
og breitt um landið og kynnt félags-
mönnum þá möguleika sem nefndin
skoðaði og þóttu álitlegir ef til úr-
sagnar úr BSRB kæmi. í lok funda-
herferðarinnar var efnt til skoðana-
könnunar sem send var til allra fé-
lagsmanna í lok nóvember.
Niðurstaða skoðanakönnunarinn-
ar var að 404 vildu segja sig úr
BSRB eða 93%, en 24 vildu það ekki
eða 5,5%. Auðir og ógildir seðlar
voru 6. Af þeim sem vildu segja sig
úr BSRB vildu 353 eða 87,3% aðild
að nýju Kennarasambandi. 34 eða
8,4% vildu aðild að BHM og 17 eða
4,2% vildu standa utan bandalaga.
434 tóku þátt í skoðanakönnun-
inni, en um 1.200 leikskólakennai-ar
eru í Félagi íslenskra leikskólakenn-
ara.
Þröstur sagði að skipulagsnefnd
félagsins myndi í framhaldi af þess-
ari niðustöðu gera tillögu til stjórnar
félagsins. Stjórnin myndi síðan
leggja tillögu fyrir fulltrúaráðsþing í
maí. Ef tillaga um úrsögn yrði sam-
þykkt á þinginu yrði tillagan borin
formlega undir félagsmenn. 2/3 þátt-
takenda í atkvæðagreiðslunni eða
helmingur félagsmanna yrði að sam-
þykkja tillöguna til að hún öðlaðist
gildi.
Kennarasambandið og HÍK vinna
nú að stofnun nýs kennarafélags og
sagði Þröstur greinilegt að leik-
skólakennarar vildu taka þátt í því.
Hann sagði að á hinum Norðurlönd-
unum nema í Danmörku væru kenn-
arafélögin saman í félagi eða lands-
sambandi. Þróunin hér á landi tæki
því mið af þeirri þróun sem átt hefði
sér stað á Norðurlöndunum. Hann
sagðist telja að þetta skipti meira
máli varðandi afstöðu leikskóla-
kennara en óánægja með skipulags-
mál BSRB.
Þroskaþjálfar á leið úr BSRB
Þroskaþjálfafélag íslands er
einnig á leið úr BSRB. Skoðana-
könnun fór fram í haust meðal fé-
lagsmanna um tillögu um úrsögn og
lýstu tæplega 90% stuðningi við
hana. Þroskaþjálfafélagið á aðild að
BSRB í gegnum Starfsmannafélag
ríkisstofnana og miðast tillaga um
úrsögn við að félagið segi sig úr því
sem jafnframt þýðir úrsögn úr
BSRB.
Sólveig Steinsson, foimaður fé-|
lagsins, segir að tillaga um úrsögn
verði borin upp á aðalfundi félagsins
í vor. Jafnframt verði borin upp til-
laga um að félagið gangi í BHM-
Virkir félagsmenn í Þroskaþjálfafé-
laginu eru um 280.
---------------
Póstkassar
sprengdir
LÖGREGLAN í Reykjavík var
kvödd að fjölbýlishúsi á Dunhaga 20
um klukkan 18.30 í gær vegna
skemmdarverka sem unnin voru á
póstkössum í stigagangi hússins-
Fjórir póstkassar voru í stigagangin-
um og voru þrír þeirra sprengdir og
eyðilagðir. Þá var póstkassi við Þing-
holtsstræti 27 sprengdur og eyði-
lagður í gær, en þrjú bréf sem í hon-
um voru skemmdust ekki og voru
látin í annan póstkassa.
ð í dag
Étea
3
••••••••••••••••••••••••••••••••••••%
VIDSKIPn AIVINNULÍF !
OPINBER FERÐ
Asía
Ráðhen-a og 11
fyrirtæki/B7
GSM SÍMAR
Met-
sala
Vinsæl
jólagjöúB8
Lausn fundin á NBA-deilunni
í Bandaríkjunum/C1
Erfitt að venjast
myrkrinu fyrir vestan/C2