Morgunblaðið - 07.01.1999, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samkomulag um prófkjörsregflur samfylkingarinnar
Kvennalistinn fær eitt af
fj órum efstu sætunum
FLOKKUNUM þremur sem þátt taka í sameig-
inlegu framþoði félagshyggjumanna í Reykjavík
verða hverjum um sig tryggð tvö af átta efstu
sætum á framboðslista samíylkingarinnar og að
minnsta kosti eitt af fjórum efstu sætunum. Þetta
var niðurstaðan eftir fundahöld Kvennalista, Al-
þýðuflokks og Alþýðubandalags í gær. Kvenna-
listinn sóttist upprunalega eftir tryggingu fyrir
einu af þremur efstu sætum listans, en á það
vildu hinir flokkamir ekki sættast.
Steinunn Valdís Oskarsdóttir, fulltrúi Kvenna-
listans, vill ekki túlka samkomulagið sem sigur
fyrir annan hvom aðilanna. „Þetta er bara sigur
samfylkingarinnar. Þetta em búnar að vera erfið-
ar fæðingarhríðir sem fólk hefur fylgst með nán-
ast í beinni útsendingu vikulega og núna síðast
nánast daglega. Ég er mjög ánægð með að málið
skuli vera komið í höfn.“
Félagsfundur verður haldinn hjá Kvennalistan-
um í Reykjavík á morgun. Að sögn Steinunnar
mun þá skýrast hvaða konur muni gefa kost á sér
í prófkjörinu. Framboðsfrestur rennur þó ekki út
fyrr en næstkomandi laugardag.
Árni Þór stefnir á 1. sætið
Gert er ráð fyrir að Guðný Guðbjörnsdóttir
þingmaður muni sækjast efth- fyrsta sæti
Arni Þór stefnir á 1. sæti
Alþýðubandalags
Kvennalistans í Reykjavík og Hulda Olafsdóttir
eftir fyrsta eða öðru sæti. Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir er orðuð við fyrsta sæti á Reykjanesi.
I gær tilkynnti Ámi Þór Sigurðsson, aðstoðar-
maður borgarstjóra, að hann myndi taka þátt í
prófkjöri samfylkingar í Reykjavík. Hann stefnir
á fyrsta sætið. Hann segir í yfirlýsingu sem hann
sendi frá sér að hann telji að reynsla sín sem borg-
arfulltrúi, aðstoðarmaður borgarstjóra og af störf-
um innan Alþýðubandalagsins og Reykjavíkurlist-
ans sé dýrmætur undirbúningur fyi-ir þau forystu-
verkefni sem hann sækist eftir. Ámi hefur að
höfðu samráði við borgarstjóra tekið sér þriggja
vikna frí frá störfum vegna prófkjörsins.
Ámi mun keppa við Bryndísi Hlöðversdóttur al-
þingismann um forystusæti hjá Alþýðubandalag-
inu. Bæði vísa þau til þess að Svavar Gestsson hafi
ákveðið að hætta þingmennsku og þvi þurfi Al-
þýðubandalagið að kjósa sér nýja forystu.
Þá sendi Magnús Ingólfsson, kennari og stjórn-
málafræðingur, frá sér yfirlýsingu
í gær þar sem hann tilkynnir þátttöku í prófkjör-
inu. Magnús tók þátt í störfum fyrir Alþýðubanda-
lagið á Vestfjörðum á árum áður og var tvívegis á
lista flokksins þar í alþingiskosningum.
Stefán Benediktsson, þjóðgarðsvörður og fyn-
verandi alþingismaður, hefur bæst í hóp þeirra
sem ætla að taka þátt í prófkjörinu fyrir Alþýðu-
flokkinn.
Reikna má með að fleiri gefi kost á sér í dag og
á morgun, en þá rennur framboðsfrestur út.
Sigríður stefnir á
2. sætið á Reykjanesi
Samfylkingin á Reykjanesi auglýsir í dag fram-
boðsfrest vegna prófkjörs sem fram fer fyrstu
helgina í febrúar. Framboðsfresturinn er til 13.
janúar. Á fundi í kjördæmisráði Alþýðubandalags-
ins á Reykjanesi í fyrradag voru leikreglur í próf-
kjörinu samþykktar. Á fundinum lýsti Sigríður
Jóhannesdóttir alþingismaður því yfir að hún gæfi
kost á sér í prófkjörinu og að hún myndi stefna að
því að ná öðru sæti listans. Reiknað er með að al-
þýðuflokksmaður skipi fyrsta sætið enda hefur Al-
þýðuflokkurinn alltaf verið stærri en Alþýðu-
bandalagið á Reykjanesi. í gær lýsti Skúli
Thoroddsen lögfræðingur því yfir að hann gæfi
kost á sér í prófkjörinu. Skúli er Alþýðubanda-
lagsmaður.
Þrotabú Júlíusar P. Guðjónssonar ehf.
Yanskil á áfengis-
gjaldi á annað
hundrað milljónir
Gallar í innheimtukerfí aðflutningsgjalda
UMBOÐS- og heildverslunin Júlíus
P. Guðjónsson ehf. hefur verið tek-
in til gjaldþrotaskipta að kröfu toll-
stjórans í Reykjavík en fyrirtækið
stóð ekki skil á áfengisgjaldi í ríkis-
sjóð í eitt til eitt og hálft ár eða
fram í september síðastliðinn þegar
innheimtuaðgerðir hófust, skv.
heimildum Morgunblaðsins. Var þá
upphæð vangoldinna áfengisgjalda
komin í um 110 milljónir króna.
Samkvæmt kröfuskrá þrotabús-
ins nemur samþykkt krafa toll-
stjórans í Reykjavík í þrotabúið
tæplega 131 milljón kr. að meðtöld-
um vöxtum og er hún að megin-
hluta til komin vegna áfengis-
gjaldsins.
Samþykktar kröfur í þrotabúið
eru um 147 milljónir króna. Kröfu-
lýsing hefur verið send kröfuhöfum
og verður skiptafundur haldinn á
fóstudaginn í næstu viku.
Fyrirtækið Júlíus P. Guðjónsson
ehf. hefur flutt inn og annast dreif-
ingu á fjölmörgum tegundum af
áfengi. Skv. upplýsingum blaðsins
hafa komið í ljós gallar í inn-
heimtukerfi aðflutningsgjalda, sem
voru ástæða þess að tollstjóri greip
ekki fyrr í taumana, þannig að fyr-
irtækið gat óáreitt haldið áfram
innflutningi áfengis meðan skuldin
hlóðst upp.
Lögheimili í Reykjavík en
starfsaðstöðu í Kópavogi
Fyrirtækið var með lögheimili í
Reykjavík og fór innflutningurínn
þar í gegn en það hafði hins vegar
starfsaðstöðu í Kópavogi þar sem
tollafgreiðslur voru skráðar. Var
fyrirtækið því alltaf skráð skuld-
laust hjá tollstjóraembættinu í
Reykavík. Fjármálaráðuneytið
fékk fyrst vitneskju um málið í
september sl. og voru þá strax gef-
in út fyrirmæli um að tollstjóri
hæfi þegar í stað innheimtu skuld-
arinnar. Eftir að árangurslaust
fjárnám hafði farið fram var óskað
eftir gjaldþrotaskiptum.
Ljósmynd/Björgvin Þórðarson
FÁLKINN sat á svölunum og Ieit upp þegar myndin var tekin af hon-
um og flaug burt eftir hálfrar klukkustundar setu.
Formaður Félags eldri borgara um skattskyldar greiðslur úr lffeyrissjóðum
Baráttu fyrir
breyttum sköttum
haldið áfram
PÁLL Gíslason, formaður Félags
eldri borgara í Reykjavík, segir að
samtökin muni halda áfram bar-
áttu sinni á nýju ári gegn því að
ávöxtun framlags í lífeyrissjóði
verði skattlögð með tekjuskatts-
prósentu þegar til útgreiðslu kem-
ur eins og gert er í dag. Hann seg-
ir að samtökin hafi reynt að koma
þeim sjónarmiðum á framfæri í
tvö ár að eðlilegra sé að þessi hluti
lífeyrisgreiðslna sé skattlagður
með sama hætti og aðrar fjár-
magnstekjur, þ.e. með 10% skatti.
A blaðamannafundi fjármála-
ráðherra og fulltrúa aðila á fjár-
magnsmarkaði um viðbótarlífeyr-
issparnað sl. þriðjudag kom fram
að frjáls viðbótarlífeyrissparnaður
og ávöxtun framlagsins á sparnað-
artímabilinu verður skattlagður
eins og um hverjar aðrar launa-
tekjur væri að ræða, þ.e. með
tekjuskattsprósentunni þegar til
útgreiðslu kemur. Fjármálaráð-
herra sagði að krafa samtaka eldri
borgara væri hins vegar að tekjur
úr lífeyrissjóðum yrðu skattlagðar
með sömu prósentu og fjár-
magnstekjur. „Við vitum af þeirri
kröfu, þ.e.a.s. 10%, en hvort hún
er raunhæf, það er annað mál,“
sagði ráðherra á blaðamannafund-
inum.
Óeðlilegt að borga fullan tekju-
skatt af ávöxtun iðgjaldsins
Aðspurður um þessi ummæli
sagði Páll Gíslason að eldri borg-
arar teldu óeðlilegt að ekki væri
greint á milli upphaflegs framlags
í lífeyrissjóði og ávöxtunar fjár-
hæðarinnar þegar lífeyrisgreiðslur
væru skattlagðar við útgreiðslu.
Framlag í lífeyrissjóði væri undan-
þegið skatti en þegar kæmi að út-
greiðslu hefði féð ávaxtað sig og
væri upphaflegt framlag þá aðeins
1/3 hluti þess sem menn fengju
greitt úr lífeyrissjóði en 2/3 hlutar
væru fjármagnsaukning og eldri
borgarar hefðu margsinnis farið
fram á að greiddur yrði 10% skatt-
ur af þeim hluta lífeyrisgreiðslna.
„Mér finnst ekki óeðlilegt að menn
borgi fullan skatt af þessum einum
þriðja hluta sem við fengum dreg-
inn frá skatti en af tveimur þriðju
hlutunum finnst mér að við ættum
bara að borga fjármagnstekju-
skatt eins og aðrir sem hafa
ávaxtað sitt fé,“ sagði hann.
Jólatré
hirt í end-
urvinnslu
JÓLATRÉ verða hirt á höfuð-
borgarsvæðinu frá og með deg-
inum í dag. Starfsmenn gatna-
málastjóra í Reykjavík munu
annast söfnunina í borginni og
eru íbúar vinsamlegast beðnir
um að setja jólatrén út fyrir
lóðarmörk sín til að auðvelda
stai-fið. í Hafnarfirði, Garðabæ
og Kópavogi verður einnig ekið
um götur og trén fjarlægð.
Við endui"vinnslu eru trén
mulin niður og m.a. notuð við
gerð gangstíga. Þau tilmæli
bárust frá hreinsideild Hafnar-
fjarðar að eigendur trjánna
tækju af þeim allt jólaskraut
og fýlgihluti áður en þeim væri
fieygt. Dæmi eru um að tré
hafi verið sett fullskreytt út á
götu en það mun ekki vera
vænlegt til endurvinnslu.
Reykvíkingar geta nýtt sér
þessa þjónustu fram til 12. jan-
úar en eftir það er fólk vinsam-
legast beðið um að snúa sér tii
gámastöðva Sorpu. í Garðabæ
verða jólatrén eingöngu hirt í
dag en í Hafnarfirði og Kópa-
vogi einnig á morgun.
Sat salla-
rólegur á
svala-
handriðinu
Á ÞORLÁKSMESSU tyllti patt-
aralegur fálki sér á svalahand-
riðið hennar Helgu Pétursdótt-
ur, sem býr á efstu hæð fjölbýl-
ishúss við Hæðargarð. Líklegt
er að fálkinn sé hinn sami og
settist á gluggahandrið Borg-
arspítalans ekki alls fyrir
löngu.
Gestkomandi hjá Helgu sá
fálkann fyrst á svölunum, sem
voru skreyttar grenigreinum
og jólaseríu og taldi fuglinn
vera styttu sem Helga hefði bú-
ið til og komið svo haganlega
fyrir á svalahandriðinu, en
Helgu rak í rogastans þegar
hún athugaði ætlað sköpunar-
verk sitt. „Þá situr þar fálki,
svo ansi kyrfilegur á miðju
svalahandriðinu,“ sagði Helga
við Morgunblaðið. Fálkinn sat
alveg spakur og sneri inn að
glugganum og bærði ekki á sér
í hálfa klukkustund. Helga
sagði það ótnílegt að fuglinn
skyldi þora að setjast á upp-
ljómaða jólaseríuna, en heldur
að hann hafi e.t.v. litið á sval-
irnar, sem einskonar kletta-
syllu. Helga kallaði til húsvörð-
inn, sem tók nokkrar myndir af
fálkanum, sem sat fyrir eins og
fínasta fyrirsæta. Alls voru 6-7
manns í einu, sem horfðu á
fálkann úr glugga íbúðarinnar,
en þrátt fyrir mannfögnuðinn
Iét fálkinn sér hvergi bregða.
„Hann var svo sallarólegur og
var ábyggilega saddur eða
þreyttur því hann var í hvíldar-
stöðu. Það var yndislegt að sjá
þetta,“ sagði Helga. Hún ákvað
að freista fálkans með matar-
ögn og fór inn í eldhús og sótti
honum laxbita, en þegar hún
kom aftur var hann nýfloginn.
„Hann flaug burt í rólegheitum
og hafði mikið vænghaf svo
mér þótti sem hann væri full-
vaxinn," sagði Helga og bætti
því við að þetta atvik yrði lengi
í minnum haft enda hefur hún
aldrei séð fálka áður.