Morgunblaðið - 07.01.1999, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Heilbrígðisráðherra !
f*f fer til Færeyja
Færeyskir
sjúklingar
'til íslands?
SVONA verið þið nú ekkert að reyna að troðast fram fyrir hvort annað í biðröðinni rétt
á meðan ég skrepp frá, greyin mín.
Nýr
kristniboði
LEIFUR Sigurðsson, nývígður kristniboði, stendur hér við hlið Karls
Sigurbjörnssonar biskups. Aftan við þá eru vígsluvottarnir: Jónas Þór-
isson, formaður SÍK, Lilja Sigurðardóttir, sem situr í stjórn sambands-
ins, sr. Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri SIK, og Árni Sigurjónsson.
vígður til
Kenýa
BISKUP íslands, herra Karl Sig-
urbjömsson, vígði síðastliðinn
sunnudag Leif Sigurðsson til
kristniboðastarfa í Kenýa. Heldur
Leifur utan um miðjan mánuðinn á
vegum Sambands íslenskra kristni-
boðsfélaga.
Leifur Sigurðsson hefur undan-
farin ár stundað nám við kristni-
boðaskóla í Noregi, síðan djákna-
nám við Háskóla Islands og á liðnu
hausti stundaði hann enskunám í
Englandi. Við vígsluna sagði hann
undirbúningstíma senn lokið og nú
tækju störfín við, fyrst myndi hann
þó stunda sex mánaða nám í swahili
í Nairobi áður en harin heldur til
starfa í Pókot-héraði í Kenýa. Þar
starfa einnig kristniboðarnir Hrönn
Sigurðardóttir og Ragnar Gunnars-
son, sem fóru út þangað á síðasta
ári, Kristín Bjarnadóttir, sem sinnir
kennslustörfum, svo og Kjellrun
Langdal og Skúli Svavarsson, sem
væntanleg eru heim á miðju þessu
ári.
Karl Sigurbjörnsson biskup
sagðist í predikun sinni við vígsl-
una vænta þess að hún boðaði nýja
tíma fyrir kristniboðið og þjóð-
kirkjuna. „Kirkja sem ekki sinnir
kristniboði verður ekki langlíf og
kristniboð sem ekki á sér athvarf
og sækir sér ekki næringu í samfé-
lagi kristins safnaðar um orð Guðs
og borð dagar uppi,“ sagði biskup
einnig í samtali við Morgunblaðið.
Hann kvaðst vona og biðja þess að
íslensk kirkja og kristniboðsfélög
vöknuðu til nýrrar og aukinnar út-
rásar um mikilvægi þess að standa
saman um þessa grundvallarköllun
kristinnar kirkju.
Kristniboðar Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga, SÍK, hafa starfað
í Kenýa í rúma tvo áratugi og í
meira en fjóra áratugi í Eþíópíu.
Þar hafa margir Islendingar starfað
um árabil en nú eru þar aðeins séra
Helgi Hróbjartsson og Jóhannes
Olafsson læknir. Sérstök kveðju-
samkoma á vegum SIK verður
haldin í Kristniboðssalnum við Háa-
leitisbraut í Reykjavík að kvöldi
miðvikudags í næstu viku, hinn 13.
janúar.
Malarfylling
við Skeiðarvog
VIÐ gatnamót Miklubrautar og
Skeiðarvogs má nú sjá
malarfyllingu undir rampa við
mislægu gatnamótin sem þar er
verið að vinna að. Harald B.
Alfreðsson, verkfræðingur hjá
gatnamálastjóra, segir að gert
sé ráð fyrir að landið, sem er að
mestu mýri við gatnamótin,
muni síga og því hafi verið
ákveðið að yfírfylla rampann og
fergja en síðan verður tekið
ofan af honum fyrir malbikun í
vor.
Morgunblaðið/Ásdís
Landmælingar islands á Akranesi
Stafrænn
kortagrunnur
af öllu landinu
Magnús Guðmundsson
MORGUN, fóstu-
daginn 8. janúar
taka Landmæling-
ar íslands fonnlega til
starfa á Akranesi en starf-
semin var flutt þangað í
kjölfar ákvörðunar um-
hverfisráðherra í júlí 1996.
Magnús Guðmundsson hóf
störf sem forstjóri Land-
mælinga íslands nú um
síðustu áramót.
„Það var í tíð Össurar
Skarphéðinssonar þáver-
andi umhverfisráðherra
sem fram fór könnun á
möguleikum á að flytja
Landmælingar íslands út
á landsbyggðina en nefnd
á vegum forsætisráðu-
neytisins hafði gert tillögu
um flutning nokkurra rík-
isstofnana út á land. Ákvörðunin
mætti á sínum tíma mikilli and-
stöðu meðal starfsmanna en nú
liggur fyrir að um helmingur
þeirra 30 starfsmanna, sem unnu
hjá Landmælingum Islands þeg-
ar ákvörðunin var tekin, mun
starfa áfram hjá henni á Akra-
nesi. Þetta eru mjög mikilvægir
starfsmenn sem hafa mikla
þekkingu á starfssviði stofnunar-
innar.“
- Hafa mai-gir nýir starfs-
menn verið ráðnir að stofnun-
inni?
„Alls hafa fjórtán nýir starfs-
menn verið ráðnir á síðustu mán-
uðum og að meðaltali hafa tíu
einstaklingar sótt um hvert starf
sem auglýst hefur verið. Það er
betra en flestir þorðu að vona.
Þá má geta þess að af þessum
fjórtán starfsmönnum eru níu
háskólamenntaðir og þeir búa
allir á Vesturlandi, það er að
segja á Akranesi eða í Borgar-
nesi.“
Magnús segir að þeim fimmt-
án starfsmönnum, sem fylgdu
stofnuninni á Akranes og eru bú-
settir á höfuðborgarsvæðinu, sé
boðið upp á áætlunarferðir til og
frá vinnustað. „Þessir starfs-
menn ferðast á vinnutíma en um
það var gerður sérstakur samn-
ingur við þá.“ -Hvaða verk-
efni fæst starfsfólk Landmæl-
inga Islands aðallega við?
„Almennt má segja að helstu
verkefni snúi að kortagerð,
kortaútgáfu, landmælingum og
að loftmyndagerð auk margs-
konar upplýsingamiðlunar og
sölustarfa. Stofnunin gefur út
350 kortatitla sem dreift er um
allt land og um allan heim.“
Magnús segir að framtíðarsýn
Landmælinga íslands byggist á
því að landfræðileg gagnasöfn
og kort á stafrænu formi muni
gegna miklu hlutverki við skipu-
lag og stjórnun samfélagsins í
framtíðinni. Stjórn-
sýslan, viðskipta-
heimurinn og al-
menningur mun í
auknum mæli setja
fram kröfu um að
geta tengt margskon-
ar gögn landfræðilegri staðsetn-
ingu.
Undanfarinn mánuð hefur
starfsemin nánast eingöngu snú-
ist um að koma sér fyrir á Akra-
nesi. Það hefur verið unnið að
því hörðum höndum að ljúka inn-
réttingum á húsnæðinu sem er
glæsilegt og einnig hefur verið
sett upp nýtt tölvukerfi svo og
upplýsingakerfi sem er stórt
►Magnús Guðmundsson er
fæddur í Reykjavík 19. maí árið
1960. Hann lauk BS-námi í
landafræði frá Háskóla íslands
árið 1983 og hefur síðan starf-
að hjá Landmælingum íslands.
Hann vann m.a. í áratug að
töku loftmynda af landinu og
var deildarsljóri fjarkönnunar-
deildar um skeið.
Magnús varð forstöðumaður
framleiðsiusviðs Landmælinga
íslands frá árinu 1997 og
gegndi því starfi uns hann tók
við starfi forstjóra Landmæl-
inga íslands nú um áramótin.
Eiginkona hans er Jóhanna
Guðjónsdóttir og eiga þau
þrjú börn.
skref fram á við fyrir stofnun-
ina.“
Magnús segir að hins vegar sé
unnið að undirbúningi mjög mik-
ilvægs verkefnis hjá Landmæl-
ingum íslands um þessar mundir
sem er að koma upp stafrænum
kortagrunni af öllu landinu sem
byggist á kortum í mælikvarða
1:50.000.
„Slíkur kortagrunnur er
grundvöllur fyrir skilvirkri fram-
leiðslu korta sem Landmæling-
um Islands er ætlað að gefa út
en einnig er hann forsenda eða
undirstaða margvíslegra rann-
sókna og verkefna sem tengjast
umhverfismálum.“
-Hvemig líst þér á þig í nýju
starfí?
„Sú reynsla sem hefur fengist
af þessum flutningi er auðvitað
misjöfn en ég kýs að líta á já-
kvæðu hliðamar og nýta sem
best þau tækifæri sem eru í stöð-
unni fyrir Landmælingar íslands.
Ég fullyrði að stofnunin hefur
þrátt fyrir mótlæti styrkst eins
og oft gerist við slíkar aðstæður.
Mér líst því vel á starfið og er
bjartsýnn, ég kvíði engu varð-
andi starfsmannamál og öll að-
staða stofnunarinnar
hefur stórbatnað. Við
höfum einnig fengið
mjög jákvæðar undir-
tektir frá ýmsum
stofnunum hér á landi
sem eru tilbúnar í
frekara samstarf á sviði korta-
gerðar."
Magnús segist finna að Land-
mælingum íslands sé vel tekið á
Akranesi og hann segir að hin
mikla umræða um stofnunina
hafi þrátt fyrir allt aukið skiln-
ing ráðamanna á að Landmæl-
ingar íslands fái að dafna og
sinna því mikilvæga hlutverki
sem henni er ætlað.
Meirihluti
nýráðinna
starfsmanna
af Vesturlandi