Morgunblaðið - 07.01.1999, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Ritverkið
Byggðir Borgar-
fjarðar komið út
Borgarnesi - Búnaðarsamband
Borgarfjarðar kynnti nýlega á
blaðamannafundi útkomu tveggja
síðari binda í ritverkinu Byggðir
Borgarfjarðai’.
Jón G. Guðbjörnsson, formaður
ritnefndar, sagði frá gangi mála við
þetta mikla verk og gat þeirra sem
að því hafa komið. Guðbrandur
Brynjólfsson, formaður Búnaðar-
sambands Borgarfjarðar, þakkaði
fyrir vel unnin störf að útgáfunni.
Vildi hann sérstaklega þakka þeim
fjórum er mest hefði mætt á varð-
andi útgáfuna, þeim Bjama Ara-
syni, Björk Ingimundardóttur,
Bjarna Guðráðssyni og Hólmfríði
Héðinsdóttur. Var þeim afhent
heildarútgáfan af Byggðum Borgar-
fjarðar sem þakklætisvottur fyrir
vel unnin störf.
Tuttugu ára vinna
að baki
Það eru rétt um tuttugu ár síðan
Þorsteinn Guðmundsson, fyrrum
bóndi á Skálpastöðum í Lundar-
i’eykjadal, hvatti til þess á aðalfundi
Búnaðarsambands Borgarfjarðar
að hugað yrði að útgáfu byggðalýs:
ingar fyrir Borgarfjarðarhérað. I
ritnefnd völdust auk Þorsteins þeir
Jakob Jónsson, bóndi á Varmalæk,
og Jón G. Guðbjömsson, bóndi í
Lindarhvoli. Björk Ingimundar-
dóttir frá Hæli í Flókadal tók að sér
INGIMUNDUR heitinn Ásgeirs-
son, fyrrum bóndi á Hæli í Flóka-
dal, tók saman ábúendatalið fyrir
ritverkið Byggðir Borgarfjarðar
en hann féll frá árið 1985.
ritstjórn. Bjarni Guðráðsson, bóndi
í Nesi í Reykholtsdal, fór með fram-
kvæmdastjórn. Meginþungi verks-
ins hvíldi á þeirra herðum, en aðrir
helstu starfsmenn við þetta verk
hafa verið Bjarni Arason, fyrrum
héraðsráðunautur og framkvæmda-
stjóri Búnaðarsambands Borgar-
fjarðar, og Hólmfríður Héðinsdótt-
ir, fyrram starfsmaður sambands-
ins. Fyrsta bókin kom út árið 1989
en önnur bókin árið 1993.
Morgunblaðið/Ingimundur
FJÓRIR einstaklingar hlutu sérstakar þakkir fyrir vinnu sína að ritverkinu Byggðir Borgarfjarðar. Frá
vinstri: Bjarni Arason, Björk Ingimundardóttir, Bjarni Guðráðsson og Hólmfríður Héðinsdóttir. Með þeim á
myndinni er Guðbrandur Brynjólfsson, formaður Búnaðarsambands Borgarfjarðar.
í 1. bindi er að finna ágrip af bún-
aðarsögu Borgarfjarðarhéraðs rak-
ið frá landnámstíð í ljósi tiltækra
heimilda. Aðalhöfundur þess er
Helgi J. Halldórsson. Um viðskipta-
mál og verslun skrifa Björk Ingi-
mundardóttir og Guðbrandur
Brynjólfsson.
Kafli um þróun þjóðlífs
Þá má finna kafla um þróun þjóð-
lífs og búskaparhátta í Borgarfirði á
19. öld, sögu Búnaðarsambands
Borgarfjarðar, söguþætti um rækt-
unarsambönd og búnaðarfélög og
einstakar búgreinar. Loks er þáttur
um Samband borgfirskra kvenna.
Bókin er ríkulega skreytt ljósmynd-
um frá ýmsum tímum.
í II. og III. bindi er að finna
sveita- og jarðalýsingar. Ennfremur
lýsingar allra afrétta ásamt upp-
dráttum af afréttarlöndum og
myndir af réttum og réttartóftum.
Hverri jörð er helguð ein blaðsíða
með samtímamynd af ábúendum og
mannvirkjum. Allar myndir af
mannvirkjum eru teknar úr lofti af
Jóni Karli Snorrasyni. Uppdrættir
af hverri sveit fylgja sveitarlýsing-
um til glöggvunar um bæjarröð og
helstu ömefni.
Ábúendatal
I IV. bindinu er að finna ábú-
endatal og nafnaskrá fyrir öll bind-
in. Ingimundur Ásgeirsson, fyrrum
bóndi á Hæli í Flókadal, tók saman
ábúendatalið en hann féll frá árið
1985. Bjami Arason bætti svo við
tímabilið fram til 1995. Ábúenda-
talið spannar meira en 100 ára ábú-
endasögu allra jarða í héraðinu og
oft gott betur. Nafnaskrár era mikl-
ar að vöxtum og mikilvægar en þær
vann Björk Ingimundardóttir.
Margir fleiri komu að þessu verk.
Það er greinilegt að þeir sem að út-
gáfunni komu lögðu metnað sinn í
verkið, en prentun og bókband ann-
aðist Prentsmiðjan Oddi hf.
Viðstaddir athöfnina voru marg-
ir þeir sem unnið hafa að útgáfu
ritsins, stjórn Búnaðarsambands
Borgarfjarðar og formenn allra
búnaðarfélaga auk fulltrúa fjöl-
miðla.
r* V Á ‘ ' Æ i t
V / . jfl L_/ i
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
AFHENDING tilnefninga til fþróttamanns ársins 1998.
Morgunblaðið/KVM
KIRKJUSÓKN um hátíðarnar var góð í Grundarfjarðarkirkju.
USVH velur íþrótta-
mann ársins 1998
Góð kirkjusókn í Grundar-
firði um jól og áramót
Hvammstanga - Ungmennasam-
band V-Hún. bauð til athafnar á
Hótel Seli á Hvammstanga á
gamlársdag. Þar fór fram af-
hending viðurkenninga fyrir
góðan árangur ungmennafélaga í
íþróttum á árinu 1998, ásamt
kynningu á vali fþróttamanns
ársins 1998.
Formaður USVH, Baldur tí.
Haraldsson, bauð gesti velkomna
og kynnti val á þeim unglingum
sem tilnefndir hefðu verið. Þau
voru: Bára Kristinsdóttir, frjáls-
ar íþróttir og körfuknattleikur,
Birgitta Maggý Valsdóttir,
körfuknattleikur og knattspyrna,
Eyrún Ösp Hauksdóttir, frjálsar
íþróttir og sund, Halldór P. Sig-
urðsson, hestaíþróttir, Hjördís
Óskarsdóttir, fijálsar íþróttir og
knattspyrna, Sigurbjörg Þor-
steinsdóttir, fijálsar íþróttir og
körfubolti, Björn Þór Hermanns-
son, körfubolti og knattspyrna,
Daníel Geir Sigurðsson, körfu-
bolti og knattspyrna, Einar Örn
Rafnsson, körfubolti og knatt-
spyrna, Fannar Karl Omarsson,
knattspyrna, Krislján Haukdal,
fijálsar íþróttir, Magnús Ásgeir
Elíasson, hestaíþróttir, Vilmar
Þór Víglundsson, fijálsar íþróttir
og körfubolti, Þórir Trausti
Sveinsson, knattspyrna.
I vali um íþróttamann ársins
hjá USVH hlaut Sigurbjörg Þor-
steinsdóttir fyrsta sæti, með 36
atkvæði. Sigurbjörg vann gull í
spjótkasti og kúluvarpi á ung-
lingalandsmóti UMFI og bætti
héraðsmet USVH í spjótkasti.
Hún var einnig valin í FRI 2000-
hópinn, sem þykir góð viður-
kenning. Við tilnefninguna nú
hlaut hún verðlaunabikar og
styrk sem Sparisjóður Húnaþings
og Stranda veitti úr menningar-
sjóði kr. 20.000.
í öðru sæti varð Birgitta
Maggý Valsdóttir, með 28 stig og
Bára Dröfn Kristinsdóttir í
þriðja, með 13 stig.
Að afhendingu viðurkenninga
ÍÞRÓTTAMAÐUR USVH árið
1998, Sigurbjörg Þorsteinsdótt-
ir, ásamt formanni USVH,
Baldri tí. Haraldssyni.
lokinni, talaði sr. Sigurður Grét-
ar Sigurðsson, sóknarprestur á
Hvammstanga, nokkur orð til
ungmennafélaganna og ræddi
m.a. um gildi þess að taka bæði
sigrum og ósigrum og minnti á
heilræðið um „heilbrigða sál í
hraustum líkama“.
Grundarfirði - Á Þorláksmessu kl.
23 var Grundfirðingum boðið að
koma til kirkju og hlýða á Friðrik
Vigni Stefánsson, organista í
Grundarfirði, leika sálma og tón-
verk sem tengjast aðventu og jól-
um. Þetta er orðinn árviss viðburð-
ur og hefur sá hópur sem notfærir
sér þessa fallegu tónleika farið
stækkandi.
Aftansöngur í Grundarfjarðar-
kirkju var svo kl 18 á aðfangadag og
voru kirkjubekkir fullsetnir. Á jóla-
dag kl. 14 var hátíðarguðsþjónusta í
Setbergskirkju, hinni gömlu kirkju
Hellissandi - Blíðuveður var í Snæ-
fellsbæ um áramótin. Snæfellsbær
stóð að mikilli áramótabrennu á
Hólsbreiðinni og var bæjarstjórinn,
Kristinn Jónasson, ábyi’gur fyrir
henni. Hjálmar Kristjánsson í Rifi
var brennustjóri.
Þarna mættust Sandarar og Ols-
arar á miðri leið og létu sér vel líka
og kom vel saman. Gamlar sagnir
Eyrarsveitar. Og annan í jólum var
einnig fjölskylduguðsþjónusta í
Grundarfjarðarkirkju þar sem
barnakórinn söng undir stjórn Arn-
hildar Þórhallsdóttur við undirleik
Friðriks V. Stefánssonar. Á gaml-
ársdag var síðan guðsþjónusta þar
sem liðins árs var minnst og beðið
um blessun Guðs á því sem nú er að
hefjast.
Þeir sem sóttu kirkjuna í Grund-
arfirði og Setbergi áðurnefnda
daga voru um 480 manns en í Eyr-
arsveit eru nú 950 íbúar svo kirkju-
sókn verður að teljast nokkuð góð.
herma að svo hafi ekki alltaf verið
þegar þeir mættust á mannfundum.
Kveikt var í brennunni kl. 20.30
og logaði glatt og lengi í henni. Þeg-
ar brennan tók að fjara út stóðu
björgunarsveitirnar í bænum fyrir
mikilli flugeldasýningu. Var notaður
tölvustýrður búnaður til að gera
sýninguna bæði hættuminni og til-
komumeiri.
Mikil brenna í Snæfellsbæ