Morgunblaðið - 07.01.1999, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Rækjuveiðar bannaðar á svæði norðaustur af landinu
Helsta veiðisvæðinu
lokað vegna smárækju
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYT-
IÐ hefur gefið út reglugerð um
bann við rækjuveiðum utan Sléttu-
grunns, í Langaneskanti og á inn-
anverðum Héraðsflóa frá og með
10. janúar nk.
Um er að ræða mjög stórt svæði
norðaustur af landinu sem hefur á
síðustu árum verið eitt helsta
veiðisvæði rækjuveiðiflotans. Þá er
einnig lokað litlu svæði innst í
Héraðsflóa. Gripið er til þessara
aðgerða að tillögu Fiskistofu og
Hafrannsóknarstofnunar, að höfðu
samráði við skipstjórnarmenn,
vegna hækkandi hlutfalls
smárækju í afla og vegna slæmrar
stöðu rækustofnsins. Veiðibannið
gildir um óákveðinn tíma.
Guðmundur Karlsson, hjá Fiski-
stofu, segir menn hafa áhyggjur af
ástandi stofnsins og telja að við því
þurfi að bregðast með einhverjum
hætti. „Menn telja að á umræddu
svæði sé mest og jafnast af
smárækju og að öllum líkindum
uppeldisstöðvar rækjunnar sem
síðan skilar sér inn á landgrunnið
"ir 16" 14" irv
rv r'V 'V
XV ' • '7 66*-
. \\ C^-.Héraðsflói
65’-
Reglugerðarlokun
vegna smárækju
utan Sléttugrunns, 64'
í Langaneskanti og
á innanverðum Héraðsflóa
og vestur með landinu,“ segir Guð-
mundur.
Ekki hjá því komist
að grípa til aðgerða
„Þetta leggst illa í flesta en því
er hreint ekki að neita að veiðin
hefur verið mjög léleg á þessu
svæði að undanförnu og því varla
hjá því komist að grípa til ein-
hverra aðgerða. Ástandið hefur
líklega ekki verið verra í 20 ár,“
segir Þormóður Birgisson, skip-
stjóri á rækjuskipinu Sigluvík SI.
Hann segir skip hafa skoðað um-
rætt svæði nú í upphafi árs og
fengið þar mjög lítinn og lélegan
afla. „Þessu er því jafnvel sjálf-
hætt. Við höfum sótt mikið á
svæðið, enda lítið verið að hafa
vestan við það. Ég tel rækjuna
ekki hafa smækkað neitt að ráði
undanfarin ár, hún hefur verið
jafnsmá og við bentum á það fyrir
mörgum árum. Þessi lokun ætti
því ekki að koma mönnum á óvart
þó líklega geri það mörgum erfitt
fyrir. Staðreyndin er engu að síð-
ur sú að það er fátt sem bendir til
þess að ástandið sé að lagast og
þá gildir einu hvar skipin eru að
draga, veiðin er allsstaðar léleg.
En vonandi lagast veiðin þegar
líða fer á febrúar eins og oft ger-
ist,“ segir Þormóður.
Allt að 30.000 krónum
fyrir hvern dag á sjó
MJÖG gott fiskirí og hærra verð á
alþjóðlegum fiskmörkuðum en
nokkru sinni fyrr hefur komið sér
vel fyrir færeyska sjómenn. Hlutur
þeirra hefur aldrei verið jafnmikill
og á liðnu ári. í mörgum tilfellum
hafa tekjur þeirra fjórfaldast síð-
ustu fjögur til fimm árin og sé
miðað við tekjumar fyrir tíu árum
eru dæmi um 230% hækkun.
Minnst hækkun
á frystitognrum
Samtök sjómanna í Færeyjum,
Föroya Fiskimannafelag, hafa
reiknað út meðaltekjur færeyskra
sjómanna á dag. Þær hafa aldrei
verið hærri og jafnframt segir for-
maður Sjómannasamtakanna að af-
koma sé í raun betri en þessar töl-
ur sýni, því hinir miklu opinberu
styrkir, sem sjávarútvegurinn hafi
fengið fyrir nokkrum árum, heyri
nú sögunni til. Það sé aðeins í ein-
staka tilfellum, sem tekjurnar á ár-
inu hafí ekki verið í hámarki, en
það sé á stóru frystitogurunum,
sem gerðu það enn betra fyrir
nokkrum árum.
Daglaun áhafnar á flakafrysti-
togara á síðasta ári voru um 16.200
íslenzkar krónur, sem er 11%
meira en árið áður er launin voru
14.580 krónur. Þessi upphæð telst
þó ekki mikil í samanburði við tekj-
urnar árið 1991, þegar mikil gó-
sentíð ríkti hjá frystitogurunum.
Þá voru dagleg laun 22.780. Lægst
hafa launin á frystitogurunum ver-
ið 13.080 krónur á dag árið 1995.
15.300 á dag á línubátunum
Sjómenn á nótaskipum nutu
langmestrar launahækkunar á
síðasta ári. Daglegar tekjur þeirra
á síðasta ári eru 29.680 fyrir hvern
dag á veiðum. Þetta er mikil breyt-
ing frá árinu 1989, þegar daglegar
tekjur voru aðeins 9.110 krónur. Á
síðustu tíu áram hafa tekjur sjó-
manna á nótaskipum hækkað um
226%. Á árinu 1997 fengu þeir
19.380 krónur fyrir hvern dag á sjó
og nemur hækkunin því um 53%
milli ára.
Tekjur sjómanna á línubátum,
Mikil tekjuaukn-
ing færeyskra
sjómanna í fyrra
sem fiska í ís, hafa einnig hækkað.
I fyrra fengu þeir að meðaltali
15.290 krónur fyrir hvem dag um
borð. Það er 41% meira en 1997, er
daglegar tekjur voru um 10.850
krónur. Þegar efnahagskreppan
var mest, 1993, vora daglegar tekj-
ur á þessum bátum aðeins um
7.020 krónur, að meðtöldum opin-
beram styrkjum. Árið 1989 voru
meðaltekjur þessa hóps sjómanna
á dag 10.150 og hafa því hækkað
urn 85% á tíu árum.
Áhafnir lítilla ísfisktogara hafa
einnig notið góðs af góðærinu. Þær
þénuðu um 16.350 krónur á mann
fyrir hvem dag á sjó í fyrra, sem er
47% meira en þeir gerðu árið 1997
þegar meðaltalslaun á dag námu
„ÞAÐ má kalla auglýsinguna eins
dags áminningu um stöðu sjávarút-
vegsmála í landinu,“ segir Guð-
mundur Hallvarðsson, formaður
Sjómannadagsráðs, um auglýsingu
ráðsins sem birtist í Morgunblaðinu
á þriðjudag. Hann segir auglýsing-
unni vissulega beint gegn upplýs-
ingaherferð Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna sl. vetur.
„Okkur fannst auglýsingar LIÚ
þess eðlis að nauðsynlegt væri að
rétta þær aðeins af. Við viljum
minna á að útgerðarmaður og skip
ná ekki aflaheimildunum, heldur
þarf til þess framsækna og duglega
sjómenn."
Að Sjómannadagsráði standa
stéttarfélög allra sjómanna í
11.900. Á síðustu tíu áram hafa
tekjur þessara sjómanna aukizt um
70%. Það hefur einnig gengið vel á
stóru ísfisktoguranum. Þar hafa
daglegar tekjur verið 12.460 krón-
ur á síðasta ári, sem er 29% aukn-
ing frá árinu áður, er daglegar
tekjur vora 9.660 krónur. Á síðustu
tíu áram hafa laun þessara sjó-
manna hækkað um 37%.
53% hækkun
á rækjutogurunum
Áhafnir rækjutogara vora með
11.400 krónur fyrir hvem dag á
sjó. Það er 53% aukning frá árinu
áður er tekjur á dag voru 9.430
krónur. Á síðustu tíu áram hafa
laun þeirra hækkað um 20%. Loks
kemur fram í úttekt Föroyja Fiski-
mannafelags, að sjómenn á bátum,
sem veiða grálúðu í net, hafa þénað
11.840 krónur á dag hvem á veið-
um. Það er 13% meira en árið áður,
er daglaunin námu 10.480 krónum.
Reykjavík og Hafnarfirði. Guð-
mundur segir það eitt af markmið-
um Sjómannadagsráðs að kynna
þjóðinni áhættusöm störf sjómanns-
ins og hin mikilvægu störf sjó-
mannastéttarinnar í þágu
þjóðfélagsins. Hann segir hinsvegar
ekki á döfinni auglýsingaherferð
þess efnis. „Fólk er sífellt að fjar-
lægjast mikilvægi þessarar útflutn-
ingsgreinar. Okkur fannst einnig
auglýsingar LIÚ þannig úr garði
gerðar, að við sem samtök þyrftum
stöðu okkar vegna að leiðrétta
auglýsingakompás útgerðarinnar.
Við höfum orðið áþreifanlega varir
við að auglýsingin vakti mikla at-
hygli og teljum að hér sé nóg að
gert í bili,“ segir Guðmundur.
Auglýsing Sjómannadagsráðs
„Leiðrétting á aug-
* *
lýsingakompás LIU“
Leið fundin til að
stöðva „eilífðar-
vél“ krabbameins
London. Reuters.
BREZKIR vísindamenn greindu í
fyrradag frá því að þeir hefðu
komizt að því hvemig hægt væri
að láta krabbameinsfrumur deyja
af sjálfu sér. Gert er ráð fyrir að
með uppgötvuninni opnist nýir
meðferðarmöguleikar við krabba-
meini.
Að sögn vísindamannanna, sem
birtu niðurstöður rannsókna sinna
í nýjasta hefti Journal ofthe
National Cancer Intstitute, tókst
þeim að einangra hóp gena sem
kunna að geta stöðvað framleiðslu
ensímsins telomerasa, en þetta
ensím kemur í veg fyrir að krabba-
meinsfrumur deyi eins og aðrar
frumur. Það mun svo til eingöngu
finnast í krabbameinsfrumum en
ekki í heilbrigðum frumum
mannslíkamans.
Stór áfangi
„Þetta er stór áfangi þar sem við
höfum með þessu sýnt fram á að
með því að skrúfa fyrir telomerasa
skrúfast fyrir hæfni krabbameins-
frumna til að skipta sér og þær
hætta að skipta sér í öllum tilvik-
um,“ segir Robert Newbold, pró-
fessor við Brunel-háskóla í Vestur-
London, en hann er í forsvari fyrir
rannsóknarhópnum.
Helga Ögmundsdóttir, for-
stöðumaður rannsóknarstofu
Krabbameinsfélags Islands, sagði i
samtali við Morgunblaðið að
krabbameinsrannsóknir hefðu á
síðustu árum beinzt mjög sterklega
að telomerasa-ensíminu. „Að búið
sé að finna eitthvað sem vinnur á
þessum mekanisma," segir Helga,
„er mjög merkileg uppgötvun.
Þetta er eiginlega eilífðai-vélin sem
er að finna í krabbameinsfrumun-
um, sem er verið að skemma
þarna,“ segir hún.
Brezku vísindamennirnir beindu
sjónum sínum í rannsókninni eink-
um að bijóstakrabba, en niðurstöð-
urnar munu einnig eiga við um aðr-
ar krabbameinstegundir.
„Telomerasi er fyrir hendi í
samasem öllum krabbameinsfram-
um og finnst ekki í venjulegum
vefjum. Hann er því einstakt mark-
efni sem við getum einbeitt okkur
að og ráðist gegn til að eyða
krabbameini,“ segir Newbold.
Uppgötvunin opnar fyrir mögu-
leika á þróun nýrra leiða til gena-
meðferðar gegn krabbameini. „All-
mörg fyrirtæki, sérstaklega í Band-
aríkjunum, hafa verið að reyna að
finna lífefnafræðileg efni til að
hemja þetta ensím,“ segir Newbold.
„Það sem rannsókn okkar hefur
gefið þeim er vissan um að takist
þeim að finna efni sem hemur
telomerasa með eins skilvirkum
hætti og hið náttúrulega gen gerir
þá ná þeir árangri.“
Stofnanir ESB deila um spillingarásakanir
Santer segir fram-
kvæmdastjdrnina
ekki munu víkja
Brussel. Reuters.
FRAMKVÆMDAST J ORN Evr-
ópusambandsins, sem í sitja samtals
20 fulltrúar aðildarlandanna 15,
mun þá aðeins víkja úr embætti ef
yfir tveir af hverjum þremur þing-
mönnum á Evrópuþinginu
samþykkja brottrekstur hennar í
atkvæðagreiðslu sem fram á að fara
í næstu viku.
Þetta sagði
Jacques Santer,
forseti fram-
kvæmdastj órnar-
innar, á blaða-
mannafundi í
Brussel í gær.
Santer sagði
framkvæmdastjórnina hvergi munu
víkja jafnvel þótt einfaldur meiri-
hluti þingmannanna 626 samþykktu
tillögu um að víkja henni frá, en at-
kvæðagreiðsla á að fara fram
fimmtudaginn í næstu viku um slíka
tillögu, sem er til komin vegna ásak-
ana um að meðlimir og starfsmenn
framkvæmdastjórnarinnar hefðu
sóað fé sambandsins.
Til þess að hljóta lögformlegt
samþykki þarf tillagan tvo þriðju
hluta atkvæða á þinginu, en ekki er
búizt við því að svo mikill stuðning-
ur sé við hana.
Viðurkennir misferli
Santer viðurkenndi að einstaka
aðilar innan framkvæmdastjórnar-
innar hefðu gerzt
sekir um mis-
ferli, en hún væri
staðráðin í að
koma á reglu í
eigin ranni.
Fyrr í þessari
viku staðfesti
framkvæmda-
stjórnin að hún hefði rekið embætt-
ismann, sem hafði sent Evr-
ópuþinginu skýrslu þar sem bent er
á ýmiss konar fjármálamisferli og
spillingu innan framkvæmdastjórn-
arinnar.
Kosið verðu á ný til Evrópuþings-
ins í sumar, en venjulegu fimm ára
skipunartímabili framkvæmda-
stjórnarinnar lýkur um næstu
áramót.
ESB hótar sektum
The Daily Telegraph.
FRONSK stjórnvöld eiga á hættu að
þurfa að borga háar sektir fari
franskir skotveiðimenn ekki að
hertum lögum Evrópusambandsins
(ESB) um fuglavernd. í byrjun
janúar hefst hinn hefðbundni
veiðitími en þá vopnast 1,6 milljónir
Frakka og skjóta smáfugla í gríð og
erg.
Vegna sameiginlegs átaks
framkvæmdastjórnar ESB og
franskra umhverfissinna getur nú
farið svo að franska ríkið verði
sektað fari skotveiðimenn ekki að 20
ára gömlum lögum ESB um
fuglavernd. Lögin segja til um að
skotveiðitímabilinu eigi að ljúka í lok
janúar til að farfuglar geti flogið
burt. En fram til þessa hefur
tímabilið endað mánuði seinna í
Frakklandi en annars staðar í
Evrópu.
Á síðasta ári samþykkti franska
þingið, undir þrýstingi sport-
veiðimanna og bænda, lög um að
skotveiðitímanum lyki mánuði
seinna í Frakklandi. Þingið hunsaði
þar með lög ESB sem nú hefur fært
málið fyrir Evrópudómstólinn. Fari
svo sem búist er við að dómstóllinn
dæmi framkvæmdastjórn ESB í hag
þarf franski ríkissjóðurinn að borga
fjársektir fyrir hvern dag sem skotið
er í febrúar.