Morgunblaðið - 07.01.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 23
ERLENT
Játvarður Bretaprins og unnusta hans, Sophie Rhys-Jones, tilkynna trúlofun sína
Reuters
SOPHIE Rhys-Jones og Játvarður prins ganga á fund fréttamanna í
garðinum við St. James-höll þar sem þau tilkynntu trúlofun sína.
Hyggj a á látlaust
brúðkaup í vor
London. Reuters.
TILKYNNT var um konunglegt
breskt brúðkaup á sumri komanda
er Játvarður prins, yngsti sonur
Elísabetar Englandsdrottningar, og
unnusta hans, Sophie Rhys-Jones,
gerðu trúlofun sína opinbera í gær-
morgun. Samband þeirra hefur
staðið í fimm ár og sagðist prinsinn
í gær hafa gert sér grein fyrir að
væri hann „ekki reiðubúinn nú, yrði
það of seint“. Játvarður og Sophie
lögðu á það áherslu að brúðkaupið
yrði látlaust en það verður haldið í
kapellu heilags Georgs í Windsor-
kastala.
í útliti minnir Sophie Rhys-Jones
óneitanlega á Díönu prinsessu, fyrr-
verandi eiginkonu Karls, elsta bróð-
ur Játvarðs. En þær þykja þó eiga
fátt annað sameiginlegt, Sophie hef-
ur til að bera sjálfsöryggi og
reynslu og hún hyggst til dæmis
ekki hætta að vinna utan heimilis
eftir giftinguna en hún rekur eigið
markaðsfyrii-tæki.
Játvarður og Sophie eru komin
á fertugsaldurinn, hún 33 ára,
hann árinu eldri. Þau kynntust á
góðgerðarsamkomu í tennisklúbbi
árið 1993 og höfðu fjölmiðlar fljót-
lega veður af samdrætti þeirra.
Samband þeirra hefur verið hálf-
opinbert í rúmlega fimm ár, þau
hafa farið saman í ferðalög og
Sophie hefur gist í Buckingham-
höll. Hafa Bretar lengi beðið þess
að Játvarður og Sophie staðfestu
ráð sitt og voru margir landar
þeirra orðnir vondaufir um það er
fregnin barst í gær. Aðspurð neit-
aði Sophie því að hún hefði þrýst á
unnusta sinn að kvænast sér.
„Þvert á það sem margir halda,
höfum við ekki búið saman og ég
hef aldrei sett honum úrslitaskil-
yrði,“ sagði hún.
Játvarður staðfesti þessi orð unn-
ustu sinnar og sagði að sér hefði
tekist að koma henni í opna skjöldu.
„Hún hafði ekki hugmynd um hvað
var yfirvofandi, einmitt eins og ég
vildi,“ sagði prinsinn og Sophie
kvaðst hafa orðið steinhissa. „Svo
rann að endingu upp fyrir mér að
ég ætti að svara spumingunni, svo
ég sagði ,já“, ég sagði ,já takk“,“
sagði Sophie, sem skartaði trúlofun-
arhring skreyttum demöntum.
„Vill svo til að við elskum
hvort annað“
Játvarður og Sophie hyggjast
ganga í hjónaband í vor eða snemm-
sumars. Ekki er von á mikilli
skrautsýningu, Sophie lagði á það
áherslu að þótt athyglin beindist
óneitanlega að þeim, væri giftingin
íyrst og fremst persónuleg athöfn
og tilefni fyrir fjölskylduna til að
koma saman.
Er hjónaleysin tilkynntu um trú-
lofun sína nefndu fréttamenn m.a.
misheppnuð hjónabönd allra
þriggja systkina Játvarðs; Karls,
Onnu og Andrésar. „Þeir urðu nátt-
úrulega að minnast á þetta?“ spurði
Játvarður unnustu sína og bætti
við: „Ég held að ef einhverjir ætla
að gifta sig, geri þeir það í þeirri
von að það sé hið eina rétta. Við er-
um góðir vinir og það er nauðsyn-
legt. Svo vill svo vel til að við elsk-
um hvort annað mjög mikið. Við er-
um hamingjusöm núna, megi það
endast sem lengst.“
David Starkey, sérfræðingur í
málefnum konungsfjölskyldunnar,
sagðist í samtali við Sky-sjónvarps-
stöðina í gær vonast til þess að
konungsfjölskyldan bæri gæfu til
þess að gera ekki mikið úr væntan-
legu brúðkaupi og að undirbúninjg-
urinn „fari ekki úr böndunum. Eg
held að við höfum vaxið upp úr
þeirri skoðun að einveldið sé ein-
hvers konar táknrænt hjónaband
fyrir þjóðina. Höfum við ekki gert
það er það löngu tímabært," sagði
Starkey.
Miðstéttarstúlkan
og prinsinn
ÞRÁTT fyrir gjörólíkan bakgrunn eiga
Sophie Rhys-Jones og Játvarður prins sam-
eiginlegan fjölbreyttan starfsferil og góðar
gáfur auk þess sem þau þyKja vera með
báða fætur á jörðinni. Þau hafa ekki anað
að neinu og tóku ekki ákvörðun um gift-
ingu fyrr en þau voru fullviss um að þau
vildu eigast, líklega minnug þess hve illa
hjónabönd systkina Játvarðar hafa enst.
Sophie er miðstéttarstúika og áður en
þau Játvarður kynntust var hún með öllu
óþekkt á meðal breska aðalsins. Hún er
ósköp venjuleg ung kona, vinnur úti og
hafði átt í nokkrum ástarsamböndum áður
en hún kynntist prinsinum. Getum hefur
verið leitt að því að hann hafi einmitt hrif-
ist af hinum ofurvenjulega bakgrunni
Sophie er þau hittust á góðgerðarsamkomu
fyrir rúmum fimm árum.
Sophie er fædd í Oxford og alin upp í
smábæ skammt frá London þar sem faðir
hennar rekur hjólbarðasölu. Hún á einn
eldri bróður. Sophie gekk í einkaskóla og
lauk skólagöngunni er hún var 18 ára.
Flutti hún til Lundúna þar sem hún bjó með
nokkrum vinum sinum, starfaði sem ritari
og við almannatengsl.
Er Sophie var rúmlega tvítug hélt hún til
Sviss þar sem hún skipulagði m.a. skemmti-
kvöld fyrir skiðafólk en þaðan lá ieiðin til
Ástralíu þar sem einn skíðakennaranna og
þáverandi unnusti hennar bjó. Upp úr sam-
bandinu slitnaði en Sophie bjó áfram í
Ástralíu og vann á ferðaskrifstofu. Hún
flutti aftur heim til Bretlands snemma á
þessum áratug og hefur m.a. aflað fjár fyrir
góðgerðarsamtök og unnið hjá almanna-
tengslafyrirtæki. Fyrir fáeinum árum stofn-
aði hún svo eigið almannatengslafyrirtæki.
Hinn gjörólíki bakgrunnur hjónaleysanna
varð mönnum ljós fyrir nokkrum árum er
Elísabet drottning hafði boðið fjölskyldu
Sophie í te í Sandringham-höll. „Því verður
ekki neitað, himinn og haf aðskilja Rhys-Jo-
nes fjölskylduna frá konungsfjölskyldunni,"
sagði Christopher, faðir verðandi brúðar,
er tedrykkjunni lauk.
Talið er að fyrstu ár sambandsins hafi
Sophie ekki viljað giftast Játvarði, m.a. var
haft eftir embættismanni í konungshöllinni
að hún væri ekki reiðubúin að gangast und-
ir þann stranga aga sem fylgdi því að
ganga inn í konungsijölskylduna. Sophie
hefur ennfremur haldið sig til hlés, hefur
reynt að sinna starfi sínu þrátt fyrir athygli
fjölrniðla og hefur aldrei tjáð sig opinber-
lega um samband sitt við prinsinn.
„Laglegastur og gáfaðastur“
Játvarður hefur verið sagður vera lag-
legastur og best gefinn allra í konungsfjöl-
skyldunni. Hann er jafnframt sá eini sem
vinnur fyrir sér og hefúr alla tíð lagt
áherslu á sjálfstæði sitt. Játvarður reitti til
dæmis Fóður sinn og marga Breta til reiði
er hann hætti í sjóhernum eftir aðeins fjög-
urra mánaða vist og neitaði að halda áfram.
Hlaut hann m.a. uppnefnið „bleyða" í
bresku götublöðunum en hann sagðist ein-
faldlega ekki telja sig nógu áhugasaman til
að Ieggja hermennsku fyrir sig.
Annað viðurnefni, sem reynst hefúr
lífseigara er „trúðaprinsinn" en Játvarður
er þekktur fyrir áhuga sinn á leikhúsi og
þykir auk þess uppátektasamur. Hann hef-
ur m.a. starfað fyrir Andrew Lloyd Webber
að uppsetningu söngleikja en stofnaði síðar
eigið leikfélag ásamt nokkrum vinum. Það
varð gjaldþrota og þá lá leiðin til Ardent-
sjónvarpsstöðvarinnar og þaðan til Banda-
ríkjanna, þar sem hann hefur m.a. framleitt
sjónvarpsþætti.
Fyrir nokkrum árum sagðist Játvarður í
blaðaviðtali kunna því vel að starfa í
Bandaríkjunum, þar sem engu máli skipti
þótt hann væri konungborinn. í Bretlandi
væri annað uppi á teningnum, þeir sem
væru af konungsættum væru sjálfkrafa
álitnir bjánar.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðid.
Lögreglan í Danmörku segir mál barnaníðingsins mun umfangsmeira en talið var í fyrstu
Urskurðað að birta
beri nafn mannsins
BORGARDOMUR í Kaupmannahöfn
úrskurðaði í gær að birta ætti nafn
danska barnaníðingsins, sem misnot-
að hefur drengi er hann kenndi bar-
dagaíþróttir. Verjandi mannsins
áírýjaði úrskurðinum til Eystri lands-
réttar, sem fellir úrskurð í dag. Lög-
reglan hafði farið fram á nafnbirt-
ingu, því málið er að hennar mati
mun umfangsmeh'a en virtist í fyrstu.
Með nafnbirtingu gætu foreldrar
gert sér grein fyrir hvort synir
þeirra hefðu orðið fyrir barðinu á
manninum, sem hefur kennt bar-
dagaíþróttir víðsvegar í Kaupmanna-
höfn og einnig unnið á leikskólum.
Maðurinn fékk að vita í ársbyrjun
1997 að hann væri alnæmissmitaður,
en ekki liggur Ijóst fyrir hvort hann
hefur níðst á börnum eftir að hann
fékk að vita þetta. Einn drengjanna,
sem maðurinn hefur misnotað fékk
að vita fyrir jól að hann væri smitað-
ur af alnæmi, en þrjú ár eru liðin frá
því að misnotkunin átti sér stað.
I gær fór lögreglan hins vegar
fram á að nafn mannsins yrði birt,
því málið væri mun umfangsmeira
en virst hefði í fyrstu. Kurt Jensen,
yfirmaður glæpadeildar lögreglunn-
ar, segir að þar sem maðurinn hafi
hugsanlega lagt lag sitt við drengi
undanfarin 5-6 ár og hugsanlega
smitað einhverja af alnæmisveirunni
sé nauðsynlegt að gera allt til að ná
til drengjanna, sem nú gætu verið á
þeim aldri að þeir færu að stunda
kynlíf. Ekkert bendir til að maður-
inn hafi misnotað börn á leikskólum
sem hann hefur unnið á.
Enn í gæsluvarðhaldi
Upp komst um athæfi mannsins
eftir að lögreglunni hafði verið bent á
afbrigðilegan áhuga mannsins á að
vera einn með drengjum, sem hann
kenndi bardagaíþróttir. Kennslan fór
fram í íþróttasal úti á Kristjánshöfn
og naut stuðnings bæjarfélagsins.
Maðurinn var þá sóttur í kennara-
skólann, þar sem hann var við nám og
færður til yfirheyi-slu. Við yfirheyrsl-
ur 17. desember viðurkenndi hann að
hafa misnotað drengi kynferðislega.
Maðurinn hefur verið í gæsluvarð-
haldi og nafni hans verið haldið
leyndu samkvæmt dómsúrskurði eins
og venja er í svona málum.
Maðurinn, sem um ræðir er 38 ára
að aldri. Hann hefur starfað á leik-
skólum, auk þess sem hann hefur um
árabil unnið við að kenna ungum
drengjum austurlenskar bardagaí-
þróttir af ýmsu tagi. Við yfirheyrslm-
játaði maðurinn að vera alnæmis-
smitaður. Hann er einnig eiturlyfja-
neytandi og sprautufíkill. Ekki er
ljóst hvort hann hefur smitast af
óhreinum sprautum, eins og algengt
er um alnæmissmitaða eiturlyfja-
neytendur eða eftir öðrum leiðum.
Lögreglan hefur gefið upp að ver-
ið sé að athuga samband mannsins
við sjö drengi á aldrinum níu tU tólf
ára. Maðurinn hefur viðurkennt að
hafa gróflega níðst á tveimur drengj-
um. Annar þeirra er alnæmissmitaði
drengurinn, sem nú er fimmtán ára.
Maðurinn misnotaði drenginn frá því
hann var níu ára og þar til hann varð
fimmtán ára, því maðurinn hefur að
sögn lögreglu aðeins áhuga á drengj-
um á þeim aidri. Drengurinn segir
að engir aðrir en maðurinn hafi mis-
notað sig, svo grunur beinist að því
að hann sé smitberinn.
Nokkrir aðrir drengir, sem mað-
urinn er grunaður um að hafa mis-
notað, eru lausii- við smit en aðrir
bíða enn niðurstöðu alnæmisprófs.
Ef í ljós kemur að maðurinn hafi
misnotað drengi eftir að hann vissi af
því að hann væri smitaður af alnæmi
er maðurinn einnig brotlegur við lög
um að refsivert sé að smita einhvern
vísvitandi af lífshættulegum sjúk-
dómi á borð við alnæmi. Ef kynferð-
isleg misbeiting barna sannast á
manninn á hann yfir höfði sér allt að
tíu ára fangelsi.
Danir slegnir óhug
Málið hefur eðlilega vakið mikinn
óhug í Danmörku. Karlmenn eru í
miklum minnihluta í starfsliði leik-
skóla og vera þeirra þar þykir mjög
mikilvæg til að gefa börnum færi á
að sjá annað en einungis konur í
kringum sig. Mál af þessu tagi er
mjög óþægilegt fyrir karlmenn, sem
annast börn, þar sem það getur ýtt
undir tortryggni í þeirra garð.
Námskeið í austurlenskum bar-
dagaíþróttum, sem mest eru sótt af
strákum, hafa þótt heppileg afþrey-
ing fyrir unga drengi og verið mjög
vinsæl. Danskir sérfræðingar telja
að í skólastarfinu sé ekki tekið tillit
til mikillar hreyfiþarfar drengja og
þarfar þeirra tÚ að beita sér líkam-
lega og slást og tuskast eins og
strákum virðist lagið.