Morgunblaðið - 07.01.1999, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 7. JANIJAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
SAMKOMULAG
hefar tekist milli sam-
gönguráðuneytis,
menntamálaráðuneytis
og Reykjavíkurborgar
um að vinna að því að
ráðstefnumiðstöð og
tónlistarhús í tengslum
við nýtt hótel geti risið í
hjarta borgarinnar. Að-
dragandi þessa er býsna
langur. Þegar ég skip-
aði nefnd í árslok 1991
til að kanna möguleika
og hagkvæmni þess að
ráðstefnumiðstöð yrði
byggð í Reykjavík hafði
umræðan um nauðsyn
þeirrar framkvæmdar
staðið í fjölmörg ár.
Tónlistarhúsið á sér ennþá lengri
sögu. Árið 1943 gaf Tónlistarfélagið
Passíusálmana út í hátíðarútgáfu í
1.000 tölusettum eintökum og skyldi
ágóðanum varið til byggingar tónlist-
ai'hallar í Reykjavík. Arið 1945 komu
Kvæði og rímur Hallgríms út í sömu
útgáfu og Sálmar og hugvekjur 1957.
Og kann ég þá sögu ekki lengri.
A undanfómum árum hefur orðið
gífurlegur vöxtur í ferðaþjónustu og á
það ekki hvað síst við um ráðstefnu-
geirann. Ráðstefnuskrifstofa Islands
var opnuð 1992 til þess að leggja
meiri þunga á þennan þátt ferðaþjón-
ustunnar. Stofnaðilar voru Ferða-
málaráð, Reykjavíkurborg, Flugleið-
ir, Samband veitinga- og gistihúsa og
Félag íslenskra ferðaskrifstofa. Það
sýndi sig strax að þetta var rétt
ákvörðun. Nú eru aðilamir orðnir
rétt um fjömtíu og frá 1994-1998 hef-
ur fjöldi alþjóðlegra ráðstefna og ráð-
stefnugesta hér á landi þrefaldast.
Það er til marks um mikilvægi
þessa þáttar ferðaþjónustunnar að
reiknað er með að brúttótekjur af
600 manna ráðstefnu sem stendur í
þrjá daga geti numið 30
millj. kr. Ef ráðstefnan
er aíf erlendum uppruna
er talið að um 2/3 hlutar
þeirrar fjárhæðar verði
eftir hérlendis. Slík ráð-
stefna nýtir allt að 20%
gistirýmis í Reykjavík
meðan hún stendur yfir.
Kannanir sýna að ráð-
stefnugestir leita eftir
afþreyingu af ýmsum
toga og framlengja
jafnvel dvöl sína til að
njóta þess betur sem
gestgjafalandið hefur
upp á að bjóða. Má þar
nefna jöldaferðir, hvala-
skoðunarferðir, hesta-
ferðir og hvers konar
afþreyingu aðra sem í boði er. Hér
hef ég nefnt það sem er einstakt fyr-
Ráðstefnumiðstöð á að
vera lifandi hús, segir
Halldór Blöndal, með
ótal uppákomum á
hverjum degi, stórum
og smáum.
ir ísland til að undirstrika að ráð-
stefnuþáttur ferðaþjónustunnar nýt-
ist ekki einungis höfuðborginni eða
næsta nágrenni hennar heldur land-
inu öllu.
Lykillinn að ráðstefnumiðstöð í
Reykjavík er vitaskuld sá að hér rísi
hótel í gæðaflokki sem getur keppt á
alþjóðlegum markaði þar sem mest-
ar kröfur eru gerðar. Það er sjálf-
stætt verkefni að finna fjárfesta að
slíkri framkvæmd og rekstraraðila
sem gjarnan má vera hinn sami.
Ugglaust má segja að affarasælast
sé að alþjóðleg hótelkeðja standi að
rekstri hótelsins og ráðstefnumið-
stöðvarinnar til þess að tryggja
markaðssetninguna erlendis. Og
minni ég þá á að hinar voldugu hótel-
keðjur hafa fasta viðskiptavini sem
færast á milli hótela í mismunandi
löndum og mismunandi stöðum. Það
sem gefur okkur sérstaka möguleika
í því sambandi er þetta tvennt sem
við þreytumst aldrei á að endurtaka:
Island er miðja vegu milli Evrópu og
Ameriku með beinu flugi til milli 20
og 30 áfangastaða beggja vegna Atl-
antshafsins. Og svo er hin sérstaka
náttúra landsins sem enginn getur
keppt við.
En ráðstefnumiðstöð er ekki ein-
ungis fyrir erlenda gesti eða form-
legar ráðstefnur. Hún verður að vera
lifandi hús með ótal uppákomum á
hverjum degi, stórum og smáum. Ég
skoðaði slíka miðstöð í Helsinki.
Auðvitað voru þar haldin skákmót og
bridsmót, þar voru vörusýningar og
myndlistarsýningar. En mesta at-
hygli vakti og það var stolt forstjór-
ans að heimsmeistaramót í pílukasti
var árlegur viðburður á þeim bæ. Og
til útskýringar lét forstjórinn þess
getið að til þess að ná upp nýting-
unni stæðu dyrnar opnar íyrir allri
starfsemi og öllum viðburðum svo
lengi sem þeir væru löglegir. Það er
fjölnota hús af þessu tagi sem ég sé
fyrir mér þegar ég hugsa um hina
væntanlegu ráðstefnumiðstöð í
Reykjavík og er raunar stoltur af því
að við setjum markið ögn hærra með
því að við ætlum því að vera tónlist-
arhöll um leið.
Ekki hefur farið hjá því að nokk-
urrar tortryggni gæti hjá tónlistar-
mönnum og í ferðamálageiranum í
garð þeirrar hugmyndar að sameina
ráðstefnumiðstöð og tónlistarhús. Sú
tortryggni er ástæðulaus. Heimkynni
sinfóníuhljómsveitarinnar verða stóri
1.200 manna salurinn. Svo stórar ráð-
stefnur verða mjög fátíðar og
ákveðnar með löngum fyrirvara svo
að ekki þarf að koma til árekstra.
Ég vil að endingu óska okkur öll-
um til hamingju með að ákvörðun
skuli tekin um ráðstefnumiðstöð og
tónlistarhús í Reykjavík. Það er
íyrsta skrefið og á nýrri öld hillir
undir að framkvæmdir hefjist.
Höfundur er samgönguráðherra.
Ráðstefnu-
miðstöð er tím-
anna tákn
Halldór
Blöndal
TILKYNNING UM SKRÁNINGU HLUTABRÉFA Á VERÐBRÉFAÞING ÍSLANDS
HHAÐFRYSTISTÖÐ
ÞORSHAFNAR HF.
SKRÁNING HLUTABRÉFA
Stjórn Veröbréfaþings íslands hefur samþykkt aö skrá hlutabréf félagsins
á Aöallista og veröa bréfin skráö þann 11. janúar 1999.
Hlutafé sem Á stjórnarfundi 15. desember 1998 var ákveðfð að óska eftir
skráð verður: skráningu á Aðallista Verðbréfaþings íslands. Heildarnafnverð
hlutafjár er alis 431.250.000 kr. Ekki verða gefin út ný
hlutabréf í tengslum við skráninguna.
Starfsemi: Tllgangur félagsins samkvæmt 3. gr. samþykkta er að
„starfrækja útgerð og fiskvinnslu. Einnig sölustarfsemi,
rekstur fasteigna, lánastarfssemi og annan skyldan
atvinnurekstur.” Félagið starfar skv. lögum um hlutafélög
nr. 2/1995.
Markmið með Að unnt verði að elga viðsklpti með bréf félagsins á
skráningu: skipulegum markaði, Verðbréfaþingi íslands. Skránlng
hlutabréfanna á VÞÍ er eðlilegt skref í þróun fyrirtækisins
sem opið almenningshlutafélag.
Umsjón meb Landsbanki íslands hf., Viðskiptastofa, kt. 540291-2259,
skránlngu: Laugavegi 77, 155 Reykjavík og Strandgötu 1, 600 Akureyrl.
Skráningarlýsing og önnur gögn vegna ofangreindra hlutabréfa liggja frammi
hjá Landsbanka íslands hf., Laugavegi 77,155 Reykjavík, Strandgötu 1,
600 Akureyri og á skrifstofu Hraöfrystistöövar Þórshafnar, Eyrarvegi 16,
680 Þórshöfn.
Landsbanki Islands
Landsbanki íslands hf. - Viöskiptastofa
Laugavegl 77, 155 Reykjavfk, síml 560 3100, bréfsíml 560 3199, www.landsbankl.l
Að læra gegn-
um húðina
Bjarni Ragnhildur
Ólafsson Richter
FYRIR margt löngu
var sú saga sögð að
nemandi nokkur í
menntaskóla beit í sig
að náttúrufræði skyldi
hann aldrei læra. Hann
taldi þá námsgrein fyr-
ir neðan virðingu sína,
sagnfræði var hins veg-
ar eftirlæti hans og
henni helgaði hann
tíma sinn. Sá hængur
var á afstöðu hans að
náttúrufræði var grein
til stúdentsprófs. I þá
daga var hægt að fá
mínus 23 fyrir að
standa algerlega á gati
og ólíklegt að nokkur
þyldi það. Bekkjarbræður okkar
manns lögðu sig því í líma við að
telja honum hughvarf en töluðu fyr-
ir daufum eyrum. Fyrir munnlegt
próf í náttúrufræði lá hann uppi á
bæli, sneri sér til veggjar og þuldi
ártöl. Rétt áður en kom að honum í
prófi settist vinur hans inn til hans,
Okkur dettur jafnvel í
hug, segja Bjarni
Ólafsson og Ragnhild-
ur Richter, að eðlis-
fræði lærist léttast í
gegnum húðina.
sló upp í kennslubókinni sem opnað-
ist á ánamaðkinum og fór vinurinn
upphátt með helstu fregnir af þein-i
þarflegu skepnu á meðan hinn bjó
sig til prófs. Ekki er að orðlengja
það að á prófinu kom hann upp í
ánamaðkinum og töldu kunnugir að
nú væri sagnfræðingnum borgið.
Þvílík hundaheppni. En sá varðist
allra frétta og svaraði spumingum
kennara og prófdómara með djúpri
þögn. Loks gáfust þeir upp og stóri
mínusinn blasti við, próftaki vai'
sendur út. En í dyi'unum fékk hann
bakþanka, sneri sér við og sagði:
„Það sakar kannski ekki að geta
þess að kvikindið andar með húð-
inni!“
Það er ekkert nýtt að nemendur
eigi sér eftirlætisnámsgreinar. Það
er líka hætt við að kennsla yrði
daufleg ef kennari væri ekki sann-
færður um að eigin námsgrein væri
öðrum merkilegri. Nemendur brosa
í kampinn þegar hann talar innblás-
inn um „aðalgreinina". Smáýfingar
geta orðið á kennarastofum þar sem
tekist er á um mikilvægi náms-
greina. Oftast er þetta á spaugsnót-
unum og gerir svo sem engum til.
Við nánari umhugsun er öllum ljóst
að vel unnið verk ber launin í sjálfu
sér hvort sem nemandi gerist inn-
vígður í náttúrufræði eða sögu.
Húðarnám
Sagan um orminn sem andar með
húðinni kom okkur í hug þegar við
lásum viðtal Salvarar Nordal við
Þorstein Vilhjálmsson, prófessor í
eðlisfræði, í Morgunblaðinu 6. des.
sl. Viðtalið er sjálfsagt tekið vegna
þess að Þorsteinn er ritstjóri nýút-
komins safns greina um raunvísindi.
Ein millifyrirsögn í viðtalinu er:
„Lærum ekki gegnum húðina." Og
hér er tekið beint upp eftir Þor-
steini:
í Háskólanum finnum við mikið
fyrir því agaleysi sem ríkir hér og
birtist meðal annars í því að fólk tel-
ur sig geta lært gegnum húðina sem
ég kalla svo, líkt og við lærum móð-
urmálið og ef til vill önnur mál. En
það er ekki hægt að læra raungrein-
ar í gegnum húðina, það er aðeins
hægt með skipulögðum vinnubrögð-
um. Þessi skortur á aga birtist í því
að nemendur koma sér hjá því að
læra raungreinar sem krefjast ag-
aðra vinnubragða.
Þar sem við erum íslenskukenn-
arar í framhaldsskóla sjáum við
okkur knúin til að gera nokkrar at-
hugasemdir við þessi orð Þorsteins.
Þorsteinn ber saman ósambæri-
leg atriði þegar hann ber það hvern-
ig börn læra að tjá sig í málum-
Titboð
30% afsláttur mán.-mil kl. 9-13
AndlitsbaS 1 asn
Litun oq plokkun
Handsnijrtinq
tl.980
1.690
2.690
Samt.
9.160
30% ajsl. 6.612
cö
<7^ .
SNYRTI & NUDDSTOFA
HönnuKristínarDidriksen
Laugavegi 40, sími 561 8677
Peysuúrvalið er
í Glugganum
Glugginn
Laugavegi 60, sími 551 2854
É SÖLUKEniNSLA GUNNARS ANDRfl Einkaþjálfun • Námskeið • Ráðgjöf • Fyrirlestrar váí> mbl.is ALLTAf= enrTH\SA£> NÝT1
Við höfum sameiginlegt markmið - að þér gangi vel! Upplýsingar í síma 561 3530 og 897 3167
a 1 1 w
HÚSGAGNALAGERINN
• Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475 *