Morgunblaðið - 07.01.1999, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Leikskólar Reykja-
víkur, góðan dag
í GILDI er námskrá
fyrir leikskólann í
landinu. Þar er fjallað
um þá námsþætti sem
leikskólinn tekur til.
Móðurmálskennsla,
hugtakaskilningur,
tjáning, skapandi
hugsun. Venjur og sið-
ir í samfélagi manna á
milli, athafnir daglegs
lífs, útivist og hreyfing.
Allt þetta, og miklu
fleira, eru þættir sem
leikskólinn kennir
nemendum sínum.
Þetta kenna ekki ófag-
lærðir starfsmenn leik-
skólans en þeir eru
ófáir. Það þarf einfaldlega mennt-
aða kennara til að kenna öðrum.
Sama lögmál gildir um leikskólann
og aðrar menntastofnanir. Og, það
eiga allir kröfu á leikskólagöngu
fyrir börnin sín. Leikskólinn er
löngu viðurkenndur sem nauðsyn-
legur þáttur í menntun einstak-
linga í nútíma tæknisamfélagi.
Leikskólakennarar og fagmenntað
fólk leikskólanna hefur staðið
dyggan vörð um innihald leikskóla-
starfsins og hafa margir leikskólar
hérlendis staðið fyllilega jafnfætis
eða framar leikskólastarfi víða er-
lendis. Þau framkvæmdastjórinn
og þjónustufulltúinn á Dagvist
bama ættu því að þekkja þann
mikla mun sem er á gæslu annars
vegar og leikskólamenntun hins
vegar öðrum betur og niðuriægja
ekki menntað fagfólk með því að
leggja þessi störf að
jöfnu.
Leikskólar
Reykjavíkur
Undirritaðri er með
öllu fyrirmunað að
skilja hverju það sæt-
ir að Reykjavíkur-
borg, stærsta sveitar-
félag landsins, heyk-
ist við að aðskilja
rekstur 70 leikskóla
sinna frá gæslu“veit-
unni“, Dagvist barna.
Skóli sem starfar eftir
lögum menntamála-
ráðuneytisins og
framfylgir
námskránni hlýtur að heyra undir
fræðsluyfirvöld. Einföld aðgerð
eins og að ákvarða að leikskólar
borgarinnar skuli eftirleiðis heyra
undir embætti fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur eða bara nýtt emb-
ætti Leikskóla Reykjavíkur virðist
flækjast ótrúlega fyrir mönnum
sem hafa tekið allt borgarkerfið til
gagngerrar uppstokkunar ekki
einu sinni heldur oftar í sinni
valdatíð. Hvernig væri að stór-
huga stjórnmálamenn stigju nú
skrefið til fulls og tækju í alvöru á
málefnum leikskólans í borginni?
Leikskólinn yrði gjaldfrír, kennsl-
an sem slík ekki gjaldfærð á for-
eldra, hún væri í höndum leik-
skólakennara og skóladagurinn
skilgreindur 3-4 tímar á dag.
Skólinn starfaði í 10 mánuði ársins
og væri einsetinn. Þessu til viðbót-
Mér er fyrirmunað að
skilja, segir Jóhanna
Thorsteinsson, hverju
það sætir að Reykja-
víkurborg heykist við
að aðskilja rekstur 70
leikskóla sinna frá
gæslu „veitunni“, Dag-
vist barna.
ar væri foreldrum gefinn kostur á
að kaupa viðbótarþjónustu s.s.
fæði í hádegi og gæslu fyrir og eft-
ir skóla. Innritun færi fram að
vori og öllum börnum 2 ára og
eldri tryggður aðgangur. Hér er
skýrt aðgreint menntunarhlutverk
skó'lans frá gæslutilboðinu. Sá er
munurinn. Reykjavíkurborg
tryggði leikskólakennara í hvern
bekk og eitthvert ákveðið þak
væri á fjölda nemenda í hverjum
bekk. Aðstoðarfólk væri ráðið til
að sinna gæsluþættinum. Þetta
fyrirkomulag hefði það í för með
sér að dagleg viðvera leikskóla-
kennarans yrði manneskjuleg og
svigi’úm til undirbúnings starfsins
betra. Hver er munurinn á þessu
fyrirkomulagi og því sem embætt-
ismenn Dagvistar barna skrifa
um; að allir foreldrar eigi að fá þá
dvöl í leikskólanum sem þeir
Jóhanna
Thorsteinsson
æskja eftir fyrir börn frá 18 mán-
aða aldri?
Ef þessi framtíðarsýn rættist
nú innan tíðar, þyrði ég að ábyrgj-
ast að leikskólakennarar myndu
endast betur í starfi og framboð á
menntuðum leikskólakennurum
myndi aukast, því þeir gætu vel
hugsað sér slík vinnuskilyrði. Já,
það mætti jafnvel manna 10 nýja
leikskóla með fagfólki strax í vor.
Almenn kennsla
- einkakennsla
Foreldrar eru yfirleitt mjög
metnaðarfullir fyrir hönd barna
sinna. Góður leikskóli er þeim því
mikilvægur. Þó má finna foreldra
sem kvarta undan skipulögðu starfi
í leikskólanum. Þeir vilja ráða
hvenær börnin mæta á morgnana
og hvenær þeir sækja börnin síð-
degis. Þeim finnst að sama skapi
eðlilegt að bai-nið þeirra njóti alls
hins sama og hin börnin uppskera
sem mæta stundvíslega og taka
daglega þátt í starfsemi skólans frá
upphafi skóladagsins til loka hans.
Þetta er ein af þessum óraunhæfu
kröfum sem seint verða uppfylltar,
nema auðvitað að þessir foreldrar
ráði sér einkakennara til kennslu í
heimahúsum.
Margir gera þá kröfu til leikskól-
ans að hann sé opinn 12 mánuði
ársins. Borgaryfirvöld mæta þess-
um óskum með því að leggja til
reksturs leikskólanna aukalega um
15 milljónir til að halda starfsem-
inni úti allt sumarið. Einhverjum
þætti sá peningur betur kominn í
öðrum og brýnni verkefnum. Líti
nú hver í eigin barm og skoði hug
sinn í þessu máli.
Skoðanaskipti og
frjóar umræður
Þessi skrif mín kunna að þykja
glannaleg. Um það get ég eitt sagt
að löngu er orðið tímabært að taka
upp málefnalega umræðu um leik-
skólann og hlutverk hans. Skoð-
anaskipti um þennan málaflokk
eru mjög brýn. Hann er ekkert
einkamál vinstri manna. Hann á
ekki að vera í ætt við fyrir-
greiðslupólitík og klíkuskap. Fé-
lagsleg staða foreldra kemur mál-
inu ekkert við. Það eru einfaldlega
mannréttindi að börn njóti leik-
skólamenntunar.
Langur vinnudagur leikskóla-
kennarans er einn þátturinn^ sem
gerir þetta starf óaðlaðandi. Ohóf-
legt vinnuálag er annar þáttur,
þriðji þátturinn er mikil verk-
stjórn leikskólakennarans sem er
með tvo til þrjá aðstoðarstarfs-
menn undir sinni stjórn auk sér-
menntaðra starfsmanna sem sinna
börnum með sérþarfir.
Það er orðið brýnt að taka allan
pakkann upp og brjóta blað í sög-
unni. Leikskóli er sjálfsagður rétt-
ur allra barna í nútíma samfélagi.
Um það þarf ekkert að deilda
frekar. Hins vegar er það álitamál
hvort rétt sé að innheimta gjald
fyi-ir skólagönguna sem slíka.
Annar kostnaður við leikskólann
sem lýtur að aukinni þjónustu, s.s.
gæsla fyrir skóla og eftir, fæðis-
kostnaður og gæsla í hádegi eru
þættir sem foreldrar ættu að eiga
eitthvert val um. Enda þyrftu þeir
að greiða fyrir þjónustu af slíkum
toga sjálfir. Og þegar kemur að
því að telja upp úr buddunni, þá
má víða spara. Nú stendur yfir í
menntamálaráðuneytinu endur-
skoðun námskrár leikskólans. Af
þeim hvötum læt ég það eftir mér
að fá þessar hugleiðingar mínar
birtar á pi-enti, að þær megi verða
til að kalla fram viðhorf og skoð-
anaskipti um leikskólann, leikskól-
anum í landinu og nemendum
hans til heilla.
Höfundur er leikskólastjóri í leik-
skólanum Laufásborg, Reykjavík.
UTSALA UTSALA UTSALA UTSALA UTSALA UTSALA UTSALA UTSALA UTSALA UTSALA UTSALA UTSALA
ÚTSALAN
hefst í dag
30-60%
afsláttur
KRINGLUNNI - 5686062
SKÓHOLUnEU
BÆJARHRAUNI 16-555 4420
vnvsin vivsin vivsin vivsin vnvsin vivsin vivsin vnvsin vivsin vivsin vnvsin vivsin
Bætt endurhæf-
ingaraðstaða á
Reykjalundi
ÓSJALDAN, þegar
fólk hefur lent í hremm-
ingum, misst aleigu sína
eða jafnvel ástvini, hef-
ur þjóðin brugðist við
ákalli um hjálp af miklu
veglyndi. Þetta finnst
okkur öllum sjálfsagt.
Nú gerðist það fyrstu
helgina í október sl. að
fólk hvaðanæva af land-
inu brást með stórhug
við þegar hafin var söfn-
un á landsvísu undir
heitinu „Sigur lífsins“,
til styrktar byggingu
sundlaugar og hópmeð-
ferðarsalar á Reykja-
lundi. Þetta finnst okkur
ef til vill ekki sjálfsagt.
En þetta sýnir hug manna til þessa
staðar og þeirrar starfsemi, sem þar
fer fram.
Reykjalundur er endurhæfingar-
miðstöð, sú stærsta sinnar tegundar
á íslandi og leitast stöðugt við að
Sú aðstaða, sem sjúkra-
þjálfun býr við í dag,
segir Birgir K. John-
son, er mjög góð.
sinna þörfum landsmanna fyrir end-
urhæfingarþjónustu. Hér er um að
ræða alhliða endurhæfingu og tekist
er á við hin margvíslegu vandamál af
líkamlegum, andlegum og félagsleg-
um toga. Hefm' Reykjalundur sér-
stöðu hvað þetta varðar og þjónar
landinu öllu. Svo verður áfram og
starfsemin sveigð að þörfum sjúk-
linganna.
Sú aðstaða, sem sjúkraþjálfun býr
við í dag er mjög góð, þar til komið
er að sundlaugar- og hópmeðferðar-
aðstöðunni. Núverandi
laug er mjög ófullkom-
in og öll aðstaða við
hana óviðunandi, bæði
fyrir vistmenn og
starfsfólk.
Mikilvægi sundlaug-
ar fyrir endurhæfingu
verður ekki ofmetið,
því nota má vatnið á
margvíslegan hátt til
æfinga og nægir að
nefna að í því geta
hreyfihamlaðir fram-
kvæmt hreyfingar sem
þeir ráða ekki við á
þurru landi. Við skilj-
um strax hvaða þýð-
ingu það hefur. Ein-
staklingur sem er nán-
ast ósjálfbjarga á þurru verður ótrú-
lega sjálfbjarga í vatninu og upplifb'
þar tilfinningu sjálfstæðis. Sundlaug
hentai- einnig mjög vel til „vatnsleik-
fimi“ í hópum. Margir hafa lært að
synda á Reykjalundi á efri árum og
látið gamlan draum rætast.
Hópmeðferðarformið er nauðsyn-
legm- þáttur í endurhæfingu í dag og
þarf því að vera til hentugur salur til
afnota í þvi skyni og er ætlunin að
bæta úi' þeirri vöntun sem er á slíkri
aðstöðu. Reykjalundur er einka-
stofnun í eigu SÍBS. Happdrætti
SIBS var stofnað í upphafi til að
fjármagna byggingaframkvæmdir á
Iteykjalundi. Enginn afgangur er af
rekstrarfé til þeirra þarfa. Happ-
drættið er sú tekjulind sem þessi fé-
lagasamtök hafa til að byggja fyrir.
Söfnunin „Sigur lífsins" tókst mjög
vel og verður landsmönnum seint
þakkað hið stóra framlag. En betur
má ef duga skal og er fólk hvatt til
að styrkja málefnið áfram með því að
kaupa miða í happdrætti SÍBS.
Höfundur er sjúkraþjálfari.
Birgir K.
Johnson